Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997 Fréttir_____________________:_x>v | Bleikargróf er gleymd1 „Ástandið hér er ómögulegt, allt rafmagn er í loftinu og gatan hefur ekki verið malbikuð og rykið er úti um allt. Ég veit ekki hvort það er ástæðan en mig grunar að gatan sé hálfgert bitbein milli bæjarfélag- anna,“ segir ibúi við Bleikargróf en gatan tilheyrir Kópavogsbæ að hluta og Reykjavíkurborg að hluta. „Gatan virðist verða algjörlega út undan í öllum framkvæmdum og ég er virkilega óánægð með það. Það er rólegt og gott að vera héma en það er löngu kominn tími til að bæjarfélögin talist við og ákveði hvað gera skuli í málunum. Við borgum okkar skatta og skyldur eins og aðrir.“ Hjá bæjarverkfræðingi í Kópa- vogi fékkst staðfesting á því að gatan tilheyrði bæjarfélögunum til um það bil helminga og ætti því hvort bæjarfélag að sinna sinni lögsögu. Málið hefði aftur á móti ekki komið inn á borð embættis- ins en þegar þar að kæmi yrði rætt við aðila hjá Reykjavíkur- borg. Erfiðlega gekk aftur á móti að fá svör frá gatnagerðaryfirvöldum í Reykjavík sökum þess hve margir eru í sumarleyfi þessa dagana. - helmingur hennar í Reykjavík og helmingur í Kópavogi Bleikargróf er aö hluta til I Kópavogi og aö hluta til í Reykjavfk en viröist þó veröa út undan hjá báöum bæjarfélögunum. T.d. hefur gatan ekki veriö mal- bikuö eins og sjá má á þessari mynd og gamlir sfmastaurar eru notaöir sem Ijósastaurar. Segja má aö gatan líti út eins og algengt var f Reykjavík í kringum áriö 1960. DV-myndJAK Eins og í sveit „Þetta er mjög fallegt svæði og falleg gömul hús en það er allt ófrá- gengið. Það er malarvegur og eng- ir göngustígar. Það er eins og að vera í sveitinni þó gatan sé inni í miðri borg,“ segir Halldóra Jónas- dóttir sem hefur gert kauptilboð í hús við götuna. „Þetta er frekar skrýtið kerfi þama. Húsið sem við erum að festa okkur er í Reykjavík en hús- in hinum megin við götuna til- heyra Kópavogi. Það er malbikaö allt í kringum okkur en gatan er það ekki. Á Breiðholtsbrautinni er hljóðmúr sem virðist hreinlega stoppa þegar kemur að Bleikar- gróf. Hljóðmúrinn byrgir því ekki fyrir hávaða við götuna. Við ætl- um að kanna málið betur því það er ljóst að það þarf að ganga mim betur frá öllu við þessa götu,“ seg- ir Halldóra. -ggá/RR I I \ I I I Flugmálastjórn um Qarvistir flugumferðarstjóranna: Stuttar fréttir varoao brottrekstri - ólíklegt að allir veikist í einu Flugumferöarstjórar geta átt von á áminningu eöa jafnvel brottrekstri vegna þess aö þeir mættu ekki til starfa á laugardagsmorgun. Getur „Ef í ijós kgmur að um vítavert gá- leysi eða sinnuleysi hafi verið að ræða, eða í versta falli viljaverk, sem við vonum aö ekki hafi veriö, þá er þetta mjög alvarlegt mál. Þá verða eft- irmálin eins og kveður á í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna, þ.e. áminningar eða eitthvað þar af harðara, jafhvel brottrekstur." Þetta sagði Ásgeir Pálsson, fram- kvæmdastjóri flugmálasfjómar, vegna hópveikinda flugumferðarstjóra sl. laugardagsmorgun. Þá mættu funm flugumferðarstjórar ekki á vakt sína í Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugmálastjórnar. „Það hefur enginn frá Flugmála- stjóm haft samband við Félag ís- lenskra flugumferðarstjóra né ein- staka flugumferðarstjóra svo aö ég viti. Mér finnst þetta óttalega barna- legar hótanir sem maður er að heyra, en við munum auðvitað verja okkar félagsmenn, ef ástæða veröur til,“ sagði Loftur Jóhanns- son, varaformaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. „Það kom þama upp ákveðið vandamál sem brugðist var við á þann eina hátt sem hægt var, bæði flugstjómarmiöstöðinni vegna veik- inda. Til viðbótar boðuðu tveir flug- umferðarstjórar, sem áttu að hefja vakt í flugtumi kl. átta, veikindi. Þá var gripið til þess ráðs að hringja í alla þá flugumferðarstjóra sem vom á frívakt til þess að freista þess að manna vaktina. En svo brá við að þeir sögðust ýmist vera „ólöglegir" eða veikir. af þeim sem voru á vakt og af stjórnanda vaktar. Veikindi flugum- ferðarstjóra eru líklega í 90 pró- senta tilvika tilkynnt milli sex og sjö á morgnana, þannig að þetta er ekkert nýtt. Hins vegar er það trún- aðarmál milli læknis og sjúklings hvað þeim fer á milli, og jafhvel þótt trúnaðarlæknir segi vinnuveitanda eitthvað þá er það líka trúnaðarmál. En það komu í fjölmiðlum undarleg- ar yfirlýsingar varðandi þetta at- riði. Þetta vora ekki aðgerðir á vegum Fjárhagslegt tjón Flugumferðarstjórarnir boðuðu veikindi með mislöngum fyrirvara. Einn þeirra boðaði t.d. forföll hálf- tíma áður en hann átti að mæta á vaktina. Bakvaktarmaður lét ekki vita, en þegar hringt var í hann kvaðst hann vera veikur. Yfirmenn flugmálasfjómar unnu að því í allan gærdag að kanna félagsins og það er engin ástæða til að ætla að einstakir flugumferðar- stjórar hafi tekið sig saman um að mæta ekki,“ sagði Þorleifur Bjöms- son, formaður Félags íslenskra flug- umferðarstjóra við DV. Þorleifur benti á að kjaravið- ræðufundur hefði veriö haldinn með samninganefnd ríkisins sl. fóstudag og þar hefði verið ákveðið að hittast aftur 24. júlí. Það væri í hæsta máta óábyrgt í þeirri stöðu ef félagið færi að hvetja til einhverra aðgerða til að þrýsta á. -JSS málið og þeirri vinnu verður hald- ið áfram í dag. „Við fórum í gegnum aflt ferlið og komumst að því hvernig þetta ástand gat orðið á þennan hátt,“ sagði Ásgeir. „Við ákveðum fram- haldið í ljósi þeirra upplýsinga sem þá liggja fyrir. Það fer þá vonandi að skýrast hvort þetta geti hafa átt einhverjar eðlilegar skýringar, sem ég tel mjög ólíklegt, því það að nær allir staifsmenn veikist á sama sól- arhringnum er mjög furðulegt ástand og ekki mikil líkindi á slíku.“ Ásgeir sagði það Ijóst að töluvert fjárhagslegt tjón hefði orðið vegna þessa, bæði fýrir innlend og erlend flugfélög. Vitað væri um þó nokkuð mörg flugfélög sem hefðu sneitt hjá íslenska flugstjórnarsvæðinu og þurft þá að fljúga lengri leiðir og endurvinna þar með flugáætlanir. „Þegar hugað er að því að kostn- aður við mínútu á flugi getur verið 7-14.000 krónur, þá er það fljótt að koma. En sem betur fer var flug- umferð þennan dag fremur lítil. Auk þess er þetta viss álits- hnekkir fyrir þjónustuna hér á landi, en það er ekkert sjálfgefiö mál að þjónusta af þessu tagi sé starfrækt hér.“ -JSS Refur í fjárhúsi Skagfirskir refabanar felldu um helgina fimm refa fjöl- skyldu sem búið hafði um sig í 1 fjárhúsi skammt frá Egilsá í Skagafirði. Morgunblaðið sagði frá. Rás 2 skelfur Alþýðublaðið segir að margir dagskrárgerðarmenn á rás 2 hætti störfúm vegna fyrirhug- aðra breytinga hjá RÚV. Þeir óttast, að sögn blaðsins, þaö aö sjálfstæði rásarinnar verði skert. Kaffihúsakjaftæði Alþýöublaðið segir aö órói sé í Sjálfstæðisflokknum á ísafiröi yfir meirihlutasamstarfi í bæj- arstjóm ísafjaröar. Hana skipa fimm sjálfstæðismenn og einn krati. Oddviti sjálfstæðismanna segir titringinn kaffihúsa- | kjaftæði ættað frá einum manni. Leitað að gulli Gullfélagið Melmi hf. heldur áfram að leita að gulli á 10 stöð- um á landinu í sumar að sögn Morgunblaösins. Lagðar verða í leitina á annað hundrað millj- ónir króna í sumar, allt erlent áhættufé. Ný ökuskírteinl | Ný ökuskírteini verða tekin upp hér á landi 15. ágúst sam- kvæmt EES-samningunum. Handhafar þeirra munu ekki lenda í vandræðum vegna fram- andlegra ökuskírteina í Evr- ópu. Gömlu skírteinin verða áfram í gildi hér á landi. Morg- unblaðið segir frá. Ný vegabréf Ný vegabréf veröa tekin upp á íslandi á næsta ári. Mjög erf- itt á að verða að falsa þau nýju, en einhver brögð hafa veriö að því að hin eldri hafi verið ' fólsuð. Morgunblaðiö segir frá. 11 námsráðgjafar 11 námsráðgjafar hafa verið ráðnir til Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Þar með eiga allir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur að hafa aðgang að námsráðgjafa. Námsráögjafarn- ir eru allir ráðnir í hálft starf og hver þeirra starfar í einum skóla. -SÁ Félag íslenskra flugumferöarstjóra: Barnalegar hótanir - segir varaformaöurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.