Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
Fréttir
Tvær tíu ára stúlkur lentu 1 ævintýralegri reynslu:
Fundu mink
í íbúðinni
„Ég var alveg dauðhrædd. Ég var
búin að hringja á öllum hæðum í
blokkinni en það var enginn
heima.“
Þetta sagði Lára Björg Gunnars-
dóttir, 10 ára Reykjavíkurmær, sem
lenti ásamt vinkonu sinni í ævin-
týralegri reynslu í gær. Þær Lára
Björg og Tanja Rán voru einar
heima hjá þeirri síðarnefndu í íbúð
á jarðhæð i 3 hæða blokk í Selás-
hverfi í Reykjavík. Lára Björg var
að leika sér á tölvu en Tanja Rán að
greiða sér.
„Allt í einu sáum við dýr sem
kom í áttina til mín. Ég var með
heyrnartæki og mér brá svo mikið
að ég gleymdi að taka þau af mér
þegar ég stökk á fætur og var nærri
búin að hengja mig í þeim.“
Þær stöllur héldu fyrst aö þetta
væri köttur en áttuðu sig fljðtlega á
að þarna væri minkur á ferðinni,
enda höfðu þær séð minka í hús-
dýragarðinum og vita hvernig þeir
líta út. Þær hlupu út og skelltu
hurðinni á eftir sér. Þær flýttu sér
upp í íbúðina hjá Láru Björgu og
fóru að hringja í þá sem þær
þekktu. En annaðhvort svaraði ekki
eða það var á tali. Þá datt þeim í
hug að hringja í neyöarlínuna.
„Fyrst talaöi ég svo hratt að kon-
an skildi mig ekki. En svo gat ég
sagt henni frá minknum. Eftir svo-
lítinn tíma kom löggan og fann
hann undir dýnu inni í herbergi.
Þeir voru alltaf að reyna að króa
hann af og loksins tókst það. Þá
gátu þeir rotað hann. Það var allt í
rúst í íbúðinni eftir eltingaleikinn
og ægilega vond lykt eftir mink-
inn.“
Trúlegt þykir að minkurinn hafi
komist inn um svaladyr sem höfðu
staðið opnar. Raunar hafði faðir
Láru Bjargar séð mink á bílastæð-
inu kvöldið áður og er ekki ósenni-
legt að um sama dýrið hafi veriö að
ræða.
-JSS
Tanja Rán Ólafsdóttir t.v. og Lára Björg Gunnarsdóttir t.h. Á milli þeirra er
lögreglumaður með minkinn sem skaut þeim svo sannarlega skelk í bringu.
DV-mynd Hilmar Þór
Deila um lögmannaþóknun:
Stjórn Lögmannafélagsins braut lög
- er úrskurður samkeppnisráðs
Samkeppnisráö hefur fellt þann
úrskurð að stjóm Lögmannafélags
íslands hafi brotið gegn samkeppn-
islögum í úrskurði sem stjómin
felldi í deilu lögmanns og skjólstæö-
ings hans. Stjórnin gerði lögmann-
inum að lækka reikning sem hún
taldi of háan miðað við uppreiknaða
gjaldskrá Lögmannafélags íslands
frá 1992.
Samkeppnisráð felldi þennan úr-
skurð sl. fimmtudag í máli sem lög-
maður skaut til Samkeppnisstofn-
unar en lögmaöurinn felldi sig
ekki við þann dóm Lögmannafé-
lagsins að honum bæri að fara eft-
ir gjaldskrá félagsins þegar hann
setti upp reikning fyrir veitta þjón-
ustu.
Forsaga málsins er sú að skjól-
stæðingur lögmannsins taldi lög-
manninn hafa sett upp of hátt gjald
fyrir veitta þjónustu og leitaði til
Lögmannafélagsins vegna þess. Lög-
maðurinn sagðist hins vegar hafa
verðlagt þjónustuna samkvæmt
verðskrá stofu sinnar.
Lögmaðurinn felldi sig ekki við
niðurstöðu stjómar Lögmannafé-
lagsins og skaut málinu til Sam-
keppnisstofnunar þar sem gjald-
skráin væri í raun bönnuð þar sem
hún bryti í bága við samkeppnis-
lög. Samkeppnisráð komst að
þeirri niðurstöðu að sú háttsemi
stjórnar Lögmannafélagsins aö
beita samanburði á gjaldtöku ein-
stakra lögmanna við gjaldskrárliði
í gjaldskrá Lögmannafélags íslands
frá 1. júlí 1992 til að meta hvað geti
talist „hæfilegt endurgjald," leiði
til þess að hinni ólögmætu gjald-
skrá verði í raun viðhaldið. Þessi
háttsemi stjómar félagsins sé til
þess fallin að draga úr samkeppni
milli lögmanna.
„Beiting stjórnar Lögmannafé-
lags íslands á gjaldskrá félagsins
frá 1. júlí 1992 við meðferð úr-
skurðarvalds síns samkv. lögum
nr. 61/1942 um málflytjendur brýt-
ur gegn 10. og 12. gr. samkeppn-
islaga nr. 8/ 1993,“ eru úrskurðar-
orð samkeppnisráðs.
-SÁ
Áframhaldandi deilur ÁTVR og verslunarmanna:
Gjafir mega ekki fylgja Bailys-líkjör
„Við erum aö kanna þaö hvort
við eigum frekar að stefna ÁTVR
fyrir íslenska dómstóla til þess að fá
ógildan úrskurð áfrýjunamefndar-
innar eða hvort viö látum reyna á
þetta við samkeppnisyfirvöld í Evr-
ópu, því að ákvæði í reglum um
áfengisútsölu ÁTVR hafa áhrif á
viðskipti á milli byrgja í Evrópu og
falla þar af leiöandi alveg klárlega
undir þau skilyrði er varða sam-
keppnisreglur Evrópska efnahags-
svæðisins," segir Baldvin Hafsteins-
son, lögfræöingur samtaka verslun-
arinnar, félags íslenskra stórkaup-
manna.
Samtökin eru aö undirbúa máls-
sókn gegn ÁTVR, annaðhvort hér á
landi eða fyrir dómstólum í Brassel
vegna lítilla gjafa sem áttu að fylgja
nokkrum eintökum af Bailys fyrir
síðustu jól.
„Aðdragandinn að málinu er sá
að fyrir jólin síðustu bauð BaOys
umboðsmönnum sínum vítt og
breitt um heiminn að setja smágjöf
á aUar BaOys-flöskur, sem voru litl-
ar styttur, eftirlíkingar af írskum
krám. Umboðsmaðurinn héma
féUst á það og ætli þetta hafi ekki
verið sett á um 100 flöskur eða 4-5
kassa. Þegar þetta var sent ÁTVR
neituðu menn þar að taka við flösk-
unum með þessum smágjöfum á og
bára fyrir sig að þarna væri um
breytingu á útliti flöskunnar að
ræöa. Þetta væri auglýsing og með
vísan til ákvæðis í einhliða settar
reglur ÁTVR í viðskiptum við
byrgja, þá kröfðust þeir þess að
þetta yröi tekið af.
Stytturnar voru fjarlægöar af og
tók ÁTVR síðan flöskumar í sölu.
Umboðsmaðurinn hér á landi sætti
sig ekki viö þetta og benti á aö þar
sem ÁTVR taldi að þama væri um
auglýsingu að ræða, þá væri fuUt af
öðrum áfengistegundum með aug-
lýsingum á flöskunum tO sölu hjá
fyrirtækinu og kærði málið tO Sam-
keppnisstofnunar.
Samkeppnisstofnun gegn
ATVR
Samkeppnisstofnun komst að
þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum í
vor að þetta ákvæði í viðskiptum
við byrgja bryti gegn samkeppnis-
reglum og að það bæri að breyta
þessu ákvæði í reglunum.
ÁTVR áfrýjaði málinu tO áfrýjun-
arnefndar, sem komst að
gagmstæðri niðurstöðu og þvi ætla
Samtök verslunarinnar með málið
lengra.
-ST
Fyrirtækjaskráin Gula bókin:
„Hér er helvítið"
Byggingavöraverslunin Þ. Þor-
grímsson í Ármúla hefur stefnt
útgefanda Gulu bókarinnar til
greiöslu 1,5 miOjóna króna
skaðabóta vegna setningar á bls.
136 í Gul'u bókinni 1997 undir
nafni fyrirtækisins. Á gulum síð-
um bókarinnar, undir dálki sem
heitir Timbursala, stendur nafn
fyrirtækisins Þ. Þorgrímsson Ár-
múla og símanúmer. í næstu línu
standa síðan þau orð sem stefnt
er út af en þau eru: „Hér er hel-
vítið."
Steingrímur Þormóðsson, lög-
maöur fyrirtækisins, segir að
þessi setning hafi valdiö fyrir-
tækinu og starfsmönnum þess
talsverðu ónæði og leiöindum og
því hafi verið ákveðiö að krefjast
miskabóta. Búiö sé aö gefa út
stefnu og nú sé beðið eftir grein-
argerð frá útgefandanum. Lög-
maðurinn kvaðst búast við nið-
urstöðu í árslok eöa byrjun
næsta árs.
Taliö er líklegt að þessi um-
rædda setning hafi verið slegin
inn í tölvu einhvers af textagerð-
armönnum Gulu bókarinnar
meðan hún var enn í vinnslu en
síðan gleymst að þurrka hana út
og hún síöan komist í gegnum
aUar síur í vinnsluferli bókarinn-
ar, þar á meðal prófarkalestur,
eins og fram kom í frétt DV í vor.
-SÁ
Nokkrar tegundir af styttum áttu aö fylgja flöskum af Bailys fyrir síðustu jól.
DV-mynd Hilmar Þór
Stuttar fréttir
Landsbergis á þingi
Vytautas Landsbergis, þingfor-
seti í Litháen, verður viðstaddur
þegar Alþingi verður sett 1. októ-
ber nk. Landsbergis verður á Is-
landi í boði Ólafs G. Einarssonar,
forseta Alþingis, 29. sept.-2. okt.
Bankar enn sameinaðir
Viöræður eru hafnar um frek-
ari bankasameiningu, einkum að
því að sameina íslandsbanka og
Búnaðarbankann, að sögn RÚV.
Kísiliöjan undirstaöan
Sveitarstjórinn í Mývatnssveit
segir viö RÚV að sveitin leggist í
eyði ef KísOiðjunni verði lokað
þegar starfsleyfi hennar rennur
út eftir 7 ár.
Skólagjöld bæta ekkert
PáU Skúlason háskólarektor
segir engin rök mæla með því að
kennsla í Háskólanum batni við
það að tekin verði upp skólagjöld
og efar aö þau leysi fjárhags-
vanda skólans. Morgunblaðið
segir frá.
Brauð í þróunarhjálp
Hjálparstofnun kirkjunnar fær
3 krónur af hverju MyUubrauði
sem selst í september og október.
Víðförli, blað þjóðkirkjunnar,
segir frá þessu.
Landnám frá árinu 700
PáU Theódórsson kjameðlis-
fræðingur segir kolefnaaldurs-
greiningar benda sterklega tU
þess að landnám á íslandi hafi
hafist upp úr árinu 700, eða 150
árum fyrr en almennt er taliö.
Sjónvarpið sagði frá.
-SÁ