Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 M 4* tilyeran iForeldrar Síðustu áratugi hefur raunin oft orðið sú að börn hafa „rekið" foreldra sína og sum hver lent á vergangi í kjölfarið. Vaxandi unglingavandi mætir mörgum foreldrum sem vita ekki til hvaða ráða þeir eiga að grípa. Tilveran hitti Hugo Þórisson sálfræöing sem undanfarin ár hefur kennt foreldrum aðferð- ir til þess að hæta samskiptin við hörnin sín. Það læra börnin sem... Síðastliðin þrettán ár hefur Hugo Þórisson sálfræðing- ur í félagi við Wilhelm Norðfjörð haldið námskeið fyrir for- eldra undir.yfirskriftinni Samskipti barna og foreldra. Námskeiðið bygg- ir á kenningum bandaríska sálfræð- ingsins dr. Thomasar Gordon en hann er afar virtur innan sálfræð- innar og nú eru sambærileg nám- skeið haldin í yfir 30 löndum. Nám- skeiðið í ár er nýhafið en enn mun hægt að skrá sig. „Þetta er fjórtánda árið sem við höldum þetta námskeið. Við tökum fyrir mikilvæga þætti í uppeldinu og byggjum þá aðallega á bókinni Samskipti barna og foreldra eftir Thomas Gordon. Það má segja að grunnhugmyndin í kenningum Gor- dons sé að barnið temji sér sjálfsaga og tillitssemi og læri að koma fram viö annaö fólk af virðingu. Þá er mikO áhersla lögð á að bamið læri að bera ábyrgð. Þó ekki þannig að bamið eigi að gera alla hluti sjálft en ég held hins vegar að foreldrum hætti oft til að vanmeta þroska barna sinna. Við þurfum ekki annað en að skoða hluti eins og að velja sér fot á morgnana eða bjarga sér um mjólkurglas. Að mínu viti era böm fær um að gera þetta frá þriggja til fjögurra ára aldri. For- eldrar hafa vanið sig á að gera slíka hluti fyrir böm sín langt fram eftir öllum aldri. Ef börnin okkar ráða ekki við eða era ekki vön að fram- kvæma einfaldar athafnir sem þess- ar, hvernig getum við þá ætlast til að þau geti borið ábyrgð á námi eða atvinnu sfðar? Foreldrum kennt um, ekki kennt Ábyrgð foreldra er mikið til um- ræðu nú á dögum, til dæmis þegar alþjóðlegar kannanir á námsgetu bama eða ofneyslu vímuefna ber á góma og þá er gjarna bent á foreldra og sökin sögð þeirra. „Þrátt fyrir þessa staðreynd er ekki nokkur maður í þessu þjóðfélagi sem kenn- ir eða leiðbeinir foreldmm hvernig sé best að haga uppeldinu. Gordon hittir naglann á höfuðið þegar hann segir að foreldrum sé ekki kennt, heldur kennt um.“ „Það er eins og fólk haldi að upp- eldi sé eitthvað sem komi af sjálfu sér. Maður veit líka að foreldrar beita oftast sömu eða svipuðum að- ferðum við uppeldið og þau upplifðu sjálf sem börn. Margir kannast við það þegar þeir fara að hljóma eins og foreldrar sínir og raunar er ég viss um að margir for- eldrar vilja gera betur og eru alls ekki sáttir við að- ferðir sínar. Ekki svo að skilja að all- ar aðferðir, aðrar en þessar, séu slæmar. Grunn- þættir uppeldisins, Hugo Þórisson sálfræöingur. DV-mynd ÞÖK aðferðir og kenningar Gordons ver- iö notaðar hjá öðrum hópum þjóðfé- lagsins. Hugo hafnar því að ekki sé hægt að taka á vandamálum þótt þau séu orðin nokkurra ára. „Það er alltaf leið til bcika. Ég veit það af eig- in raun í gegnum vinnu mína með bömum og unglingum síðustu ár.“ Unglingar eru sanngjarnir Unglingar eru í eðli sínu afar sanngjarnir og þeir eru aldrei ánægðir ef ástand heimilisins er ekki í lagi. Þá skiptir engu hvort þeir eru beittir valdi eða þeir hafi yfirhöndina á heimilinu. Það er eng- inn ánægður í slíku ójafnvægi. Það kemur mér oft skemmtilega á óvart hversu unglingar eru i raun þroskaðir miðað við það uppeldi sem þeir hafa hlotið. Ég sé því ekkert til fyrirstöðu að fólk taki sig á jafnvel þótt illa hafi gengið í einhver ár. Við erum fyrst og fremst að skoða hin daglegu sam- skipti foreldra og barna og reyna að fmna leiðir sem leiða til úrbóta. Við gerum okkur grein fyrir því að við náum aldrei fullkomnun í þessum efnum en við getum alltaf bætt okk- ur, segir Hugo Þórisson. -aþ þínu skilaboð um að svona séu mál leyst. Mér finnst aðferðir sem þess- ar afar varhugaverðar því með þessu móti lærir bamið að loka sig frá vandanum og beitir hugsanlega sömu aðferð- um verði það fyrir áfóll- um, svo sem einelti. Þegar bamið kemst síð- an á unglingsaldur er ekkert ólíklegt að það skelli útidymnum þegar upp úr sýður. Ein lausn á þessu er að- ferð sem Gordon kýs aö kalla taplausu aðferðina. Hún felur í sér að sá sem er sterkari, hvort sem er sökum aldurs eða líkamsstærðar, hefur ekki leyfi til að stjóma hin- um. Ef fólk elur böm sín upp við valdbeitingu þá læra þau að það sé ríkjandi regla í samskiptum fólks að annar sigri en hinn tapi. Við verð- um að kenna börnum að það sé hægt að leysa mál þannig að báöir aðilar séu sáttir og að sjálfsögðu verða foreldrarnir að sýna for- dæmi.“ Aldrei of seint að byrja Hugo seg- ir námskeiðið og kenningar Gor- dons gilda fyrir alla aldurshópa, þetta séu í raun gmndvallaratriði í mannlegum samskipttim enda hafa ást og umhyggja, em yfirleitt í góðu lagi en margir vilja einfaldlega gera betur og það er nokkuð lýsandi fyr- ir þá foreldra sem hafa sótt foreldr- anámskeiðin. Taplausa aðferðin A námskeiðinu er mikil áhersla lögð á hlustun og telur Hugo það einn mikilvægasta þátt uppeldisins. „Við verðum að gefa okkur tíma til þess að hlusta á bömin okkar. Ef þú elur bamið þitt upp við að það er rekið inn í herbergi þegar eitthvað bjátar á þá ertu að senda baminu í tilefni 5ára afmælis Vikuna 17. - 24. september gefum við hol með hverri pizzu meðan birgðir endast ef verslað er fyrir kr. 1.500 eða meira. Eitt simanúmer um land allt 755 6767 Gömlu númerin gilda áfram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.