Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Síða 36
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 Látinn eftir umferðarslys Drengurinn, sem lést á sunnudag af völdum áverka sem hann hlaut í umferðarslysi á Bústaðaveginum síð- astliðinn fimmtudag, hét Valberg Gunnarsson. Hann var 12 ára og til heimilis að Básenda 10. Valberg átti 4 hálfsystkin og bjó hjá móður sinni og fósturföður. Valberg hóf nám í Foss- vogsskóla á þessu hausti en var áður nemandi í Vesturbæjarskólanum. „Hitabylgja" fyrir norðan DVj Aknreyri: Óvenjulegir hitar eru á Norður- og Austurlandi miðað við árstíma. I nótt fór hitinn í 17 stig á Akureyri og þar var 16 stiga hiti klukkan 6 í morgun að sögn lögreglu. Þessum hlýindum valda suðlægir vindar sem berast að landinu. Veður- stofan gerir ráð fyrir að hitinn geti farið í allt að 20 stig norðanlands í dag, en á Akureyri var skýjað í morg- un og strekkingsvindur úr suðri. -gk Texas-drengurinn: Stjórnvöld funda Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnavemdarstofu, skilaði í gær viðamikilli skýrslu um mál íslenska drengsins sem dæmdur hefur verið til fangavistar í Texas fyrir meint kynferðisbrot. Hann sagði að sá dómur sem drengurinn hefði fengið í Texas ætti sér enga hliðstæðu hér á landi eða á Norðurlöndunum og bæri keim af þeim mjög þrönga refsiramma sem gildir í Texas. Bragi segir málið nú vera í höndum utanríkis-, dóms- mála- og félagsmálaráðuneytis og á sameiginlegum fundi í dag yrði væntanlega tekin afstaða til fram- haldsins af hálfu stjórnvalda. -SÁ L O K I Áralangar byggingarframkvæmdir við Grettisgötuna: Borgin hefur fengið nóg Byggingarfulltrúinn í Reykja- vík hefur hvað eftir annað haft af- skipti af byggingaframkvæmdum eins af forystumönnum íbúasam- takanna við norðanvert Skóla- vörðuholt undanfarin tæp átta ár. Afskipti embættisins eru vegna þess hve mjög dregist hefur að ljúka framkvæmdum og vegna ít- rekaðra kvartana nágranna yfir seinagangi og draslarahætti vegna byggingaframkvæmda for- ystumannsins, Magnúsar H. Skarphéðinssonar að Grettisgötu 40b. Byggingarleyfi fyrir viðbygg- ingu við hús Magnúsar var sam- þykkt í byggingamefnd Reykja- víkur sumarið 1987 og er því ára- tugur liðinn síðan framkvæmd- irnar hófust formlega. Magnús segir sjálfur í samtali við DV að þær hafi hafist mun síðar og dreg- ist af ýmsum ástæðum, m.a. að- stæðum í fjölskyldunni. Þeim sé hins vegar lokið að mestu nú, að- eins eigi eftir að setja tvo glugga á bakhlið hússins. Verið sé að smiða þá og verði þeir settir í á næstu dögum. Lokafrestur Þann 13. ágúst 1996 fékk Magn- úsi lokafrest til að Ijúka fram- kvæmdunum innan sex mánaða. og síðan annan til 1. september sl. Jafnframt var honum tilkynnt að hann yrði beittur dagsektum ef framkvæmdum yrði enn ólokið þann 1. september sl. Enn er þó ekki farið að beita dagsektum og Magnús kveðst hafa náð sam- komulagi við byggingafulltrúann í Reykjavík um að ljúka frágangi hússins á næstu dögum. Nágrannar Magnúsar við Grett- isgötuna hafa margkvartað, bæði vegna seinagangsins, en eins vegna ónæðis á síðkvöldum vegna hamarshögga og sagarhljóða. Magnús segir þessar kvartanir að mestu frá einum þeirra komnar. DV spurði Magnús hvort ekki væri óþægilegt fyrir áberandi for- ystumann í íbúasamtökum að vera með eigin framkvæmdir í slíku óefni. Magnús óskaði eftir að svara ekki spurningunni. -SÁ Grettisgata 40b. Myndin er tekin í lok síðustu viku en þá stóðu vinnupallar utan á húsinu eins og þeir hafa stað- ið undanfarin tæp átta ár. Húseigandinn, sem er forystumaður í íbúasamtökum við norðanvert Skólavörðuholt, segir að framkvæmdunum Ijúki á næstu dögum. DV-mynd BG Veðrið á morgun: Hiti 10-20 stig Á morgun er gert ráð fyrir sunnan stinningskalda og rign- ingu, einkum sunnan- og vestan- lands en úrkomulítið verður norð- austanlands. Hiti verður á bilinu 10-20 stig framan af degi en síð- degis kólnar vestast á landinu og styttir upp er vindur snýst til vestlægrar áttar. Veöriö í dag er á bls. 37 Platan kom í verslanir hér á landi í gær. Björk fær góða dóma Viðtökur plötu Bjarkar Guð- mundsdóttur erlendis hafa verið prýðilegar og hefur platan fengið mjög góða dóma hingað til. Meðal þeirra sem hrósa plötunni er Kem- brew McLeod hjá veftónlistartíma- ritinu AudioNoise. Hann segir fyrst að platan sé alls ekki venjuleg popp- plata né heldur dansplata. Þetta sé hreinlega óvenjuleg plata. Hann seg- ir einnig að textar hennar séu mjög frumlegir, sem er hrós frá honum þar sem hann veitir textum yfirleitt ekki mikla athygli. Dómur þessi endar á orðunum: „Takk, Björk, fyr- ir að láta drauma mína rætast.“ Tímaritið Webnoise hefur einnig hrósað plötrmni í hástert og gefur henni 87 stig af hundrað. í dómi tímaritsins segir að Björk hafi aftur sannað að hún eigi engan sinn líkan í tónlistinni í dag. -HI Náði kvótanum í einu kasti DV, Eskifiröi: „Við fengum síldina við Noreg, aflann í einu kasti um miðjan dag á sunnudag. Fram að þvi hafði verið bræla á miöunum," sagði Hinrik Halldórsson, 2. stýrimaður á Hólma- borg SU-11 frá Eskifirði. Skipið er væntanlegt með farm- inn til Eskifjarðar á miðvikudag. Auk Hólmaborgar eru Beitir, Júpít- er, Þorsteinn og Þórshamar einnig búnir að ná sínum kvóta og eru á heimleið. Hámarksveiðiheimild er 770 tonn á hvert hinna 13 skipa sem leyfi fengu til síldveiðanna í norsku efnahagslögsögunni. „Síldin er ágætlega feit en nokk- uð blönduð og fékkst á svæði nálægt 70. breiddargráðu, um 110 sjómílur frá Noregsströnd. Samstarfið við norsku landhelgisgæsluna hefur verið með miklum ágætum," sagði Hinrik. -Regína •jbyl CO/3ÍI 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.