Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 Fréttir Yfirmaður Se og Hor í Noregi: „Stela uppsetningu" - íslenskir lögfræðingar komnir í málið „Það sem við höfum uppgötvað er að útgefandi á íslandi hefúr stælt dönsku útgáfuna af Se og Hor sem er eitt mest selda vikutímaritið á Norðurlöndum. Þeir hafa stolið upp- setningu okkar á blaðinu svo það er nákvæm eftirlíking. Þetta teljum við brot á höfundarrétti og við höf- um fengið til liðs við okkur íslenska lögmannsstofu til að annast þetta mál fyrir okkur,“ sagði Knut Haavik, forstjóri Se og Hor í Ósló í Noregi, við blaðamann DV í gær. Aller Press Intemational í Kaup- mannahöfn, sem gefur út tímaritið Se og Har í Danmörku og Noregi auk fleiri blaða og tímarita, íhugar að höfða mál á hendur Fróða hf. fyrir útgáfu á Séð og heyrt vegna þess hve þeim þykir blaðið ná- kvæm stæling á Se og Hor. Málið er í höndum Óslóardeildar Aller Press en J. Aller, deildarstjóri á Forstjóri Se og Hor í Noregi segist hafa fengið íslenska lögmannsstofu tii liös viö sig vegna meints brots á höfundarrétti íslensku útgefendanna. stjórnarskrifstofu Aller Press International i Valby í Kaup- mannahöfn, sagði í samtali við DV í fyrrakvöld að þessi nákvæma stæling kæmi þeim á óvart og stjórnendur og eigendur Aller Press hefðu ekki gefið leyfi sitt til þess að líkja á þennan hátt eftir hinu danska vikuriti. Að sögn norska lögfræðings Se og Hor mun hann senda starfsbræðr- um sínum hérlendis frekari gögn um málið í dag en hann hefur verið að safna saman upplýsingum frá höfuðstöðvimum í Danmörku þar sem danska útgáfan af Se og Hor hefur verið hér á boðstólum vel á annan áratug. Lögfræðingurinn norski telur útgáfu timaritsins Séð og heyrt hér á landi vera skýlaust brot á höfundarrétti og kemur til með að krefjast útgáfúbanns hið fyrsta. „Engir samningar geröir" „íslensku útgefendurnir heim- sóttu okkur fyrir nokknun árum og báðu um ráðleggingar og annað varðandi útgáfu tímarits á íslandi en við ímynduðum okkur aldrei að þeir myndu stela öllu okkar útliti og hugmyndum. Útgefandinn Fróði gerði enga samninga við okkur um þessi mál og við viljum að þeir hætti útgáfu blaðs sem er nánast eins og Se og Hor. Það verður síð- an bara að ræða það síðar hvort grundvöllur er fyrir einhverri samvinnu okkar og íslensku útgef- endanna. Það var bara fyrir tilvilj- un að við fréttum af þessu blaði en lögfræðingar okkar eru komnir með þetta mál núna,“ sagði Haavik. -ÖB Ritstjóri Séð og heyrt á íslandi: Höfum ekkert heyrt“ „Við höfum aldrei orðið varir við það að þeir séu ekki ánægðir með blaðið hjá okkur né heyrt eitt einasta orð um einhverja máls- höfðun. Blaðið hjá okkur heitir líka Séð og heyrt en ekki Set og Hort eða eitthvað álíka og þetta vörumerki var skráð hjá útgefanda okkar, Fróða, fyrir mörgum árum,“ sagði Kristján Þorvaldsson, - vörumerkið skráð ritstjóri Séð og heyrt, sem gefið er út af Fróða. „Við höfum í raun og veru átt mjög góð samskipti við norska Se og Hor og þeir hafa tekið okkur opnum örmum. Til dæmis höfum við ritstjórar blaðsins farið tvisvar í heimsókn til þeirra og nú nýlega fengum við að senda blaðamann okkar með þeim í ferð sem var hér fyrir mörgum árum á landi þegar þekktir norskir íþróttamenn komu hér við og buðu þeir okkur að nota myndir frá sér úr ferðinni. Það hefur hins vegar cddrei farið neitt á milli mála að vissulega horfðum við til þeirrar formúlu sem gengið hefur mjög vel á Norðurlöndunum og ekki bara þá hjá Se og Hor heldur lika hjá blöðum eins og danska Billede- blaðinu, Norsk ukeblad og fleirum sem hafa verið á þessum nótum og gengið mjög vel. Það kemur flatt upp á okkur ef þeir eru að íhuga einhverja máls- sókn á hendur okkur og þettu eru fréttir sem ég trúi ekki. Ég get al- veg sagt þér það að við höfum aldrei heyrt frá þeim hvað þetta varðar.“ -ÖB Dæmdur fyrir kynferöis- leg mök við stúlkubarn DV, Akureyri: Karlmaður á sjötugsaldri hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til 15 mánaða fangels- isvistar vegna kynferðismaka og kynferðislegrar áreitni við stúlku- barn sem var tæplega 5 ára þegar verknaðurinn átti sér stað í ársbyrj- un á þessu ári. Stúlkan var, vegna félagslegra að- stæðna, vistuö þrívegis á tímilinu 1995-1997 á heimili mannsins í S- Þingeyjarsýslu. Grunur vaknaði um það á síðasta ári að stúlkan hefði mátt þola kynferðislega áreitni og var þá borin fram kæra til rann- sóknarlögreglu ríkisins. Var m.a. rætt við ákærða vegna þess máls en kærumálið var síðar fellt niður þar sem ekki þóttu koma fram gögn sem leitt gætu til saksóknar. í byrjun febrúar þegar stúlkan var á heimili mannsins bárust fé- lagsmálayfirvöldum kæra vegna ætlaðra kynferðisafbrota ákærða gagnvart stúlkunni og var stúlkan þegar í stað tekin af heimili manns- ins. Um það leyti leitaði ákærði að eigin frumkvæði til skýrslugjafar hjá lögreglunni á Húsavík og viður- kenndi hann þar brot sín. Kvað hann stúlkuna hafa haft 1 frammi tilburði sem örvuðu sig kynferðis- lega og hefði sá veikleiki hans leitt til þess að hann hafði í frammi kyn- ferðislega áreitni og mök við stúlk- una. Auk 15 mánaða fangelsisvistar var ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, þar með talin 50 þúsund króna saksóknaralaun og sömu greiðslu til skipaðs verjanda síns. -gk Nýtt umsýslugjald Mjólkursamsölunnar: Þúsundkall fyrir litlar pantanir „Afgreiðslugjaldið er hluti af nýju kerfi sem verður tekið í notkun hjá okkur 1. október. Allar pantanir undir 5.000 kr. utan virðisauka- skatts fá á sig 1.000 kr. umsýslugjald nema varan sé sótt þá verður gjald- ið 500 kr. auk virðisauka," segir Ad- olf Ólason, sölustjóri Mjólkursam- sölunnar, vegna væntanlegra breyt- inga á sölukerfi fyrirtækisins. „Þetta er ekki stór hluti okkar pant- ana en við tökum þetta fyrir með- höndlan á litlum pöntunum. Við þurfum að keyra vörumar til við- komandi, sjá um innheimtu, vera með skrifstofuumsýslu, taka til nið- ur á mjólkurkæli og selja. Það er verið aö tala um að koma upp gegn- sæju kerfi í mjólkuriðnaðinum, ein- hvers konar afsláttarkerfl. Sams konar kerfi eru alþekkt úti um allan heim, einkum á Norðurlöndunum. Magnafsláttarkerfi samsölunnar má ekki renna neitt út í vömverðið svo við erum bara að hagræða í okkar rekstri." -ST •• Íí Stuttar fréttir Helgi viö stýríð Pétur Guðfinnsson útvarps- stjóri réð Helga H. Jónsson sem fréttastjóra Sjónvarpsins. Helgi fékk fjögur atkvæði í útvarps- ráði en Elín Hirst þrjú. Helgi er ráðinn tO ársloka 1998. Ágúst með 15 milljónir Agúst Einarsson, þingmaður jafnaðarmanna, hefur keypt hlut í Dagsprenti, sem gefur út Dag- Tímann, fyrir 15 milljónir króna. Á morgun kemur blaðið út í breyttri mynd. Jón Axei keypti Póstinn Jón Axel Ólafsson hefúr keypt meirihluta í útgáfufélagi Helg- arpóstsins, það er þann hlut sem fyrrverandi ritstjóri og fram- kvæmdastjóri blaðsins hafa ráð- ið yfir. Fyrirtæki Jóns, Perluút- gáfan, ætlar ekki að gefa út Helgarpóstinn. Deila um hestaleigu Laxnesbúið krefst þess að hestaleigan Laxnes fari af jörð- inni Laxnesi en deilt er um af- notarétt lands. Minni lykt Öflugur mengunarvarnabún- aður verður settur í Krossanes- verksmiðjuna við Akureyri á næstunni. Þar með mun di-aga úr lykt frá bræðslunni. Forritaþjófa leitað Lögreglumenn á vegum ríkis- lögreglustjóra hafa farið i 46 fyr- irtæki í leit að ólöglega fjölfóld- uðum forritum. Hæstir í sveitinni Nemendur á samræmdu próf- unum náðu hæstu einkunnum í Laugarbakkaskóla og Stóru- tjarnaskóla. í þessum skólum munu nemendur hafa fengið yfir sjö í meðaleinkunn. Dagur-Tím- inn segir frá að fyrmefndir tveir skólar hafi veriö með hæstu ein- kunnimar. Gengurvel Útlit er fyrir að endurbótum á stjómarráðshúsinu verði lokið síðar á þessu ári og að forsætis- ráðuneyti verði komið þangað aftur fyrir jól. Dagur-Tíminn sagði frá. Einn til Rússlands Mecklenburger Hoch- seefischerei, dótturfyrirtæki Út- gerðarfélags Akureyringa, hef- ur selt einn af fimm togurum sínum til Rússlands. Morgun- blaðið greindi frá. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.