Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 10
1» mennmg FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 30’^’ Egil sat down and put his shield at his feet. He was wearing a hel- met and laid his sword across his knees, and now and again he would draw it half-way out of the scabbard, then thrust it back in. He sat upright, but with his head bowed low. Egii had verydis- tinctive features, with a wide forehead, bushy brows and a nose that was not long but ex- tremely broad. His beard grew over a long, broad part of his face, and his chin and entire jaw were exceptionally broad. With his thick neck and broad should- ers, he stood out from other men. When he was angry, his face grew harsh and fierce. He was well built and taller than other men, with thick wolf-grey hair, although he had gone bald at an early age. When he was sitting in this particular scene, he wrinkled one eyebrow right down onto his cheek and raised the other up to the roots of his hair. Egil had dark eyes and was swarthy. He refused to drink even when ser- ved, but just raised and lowered his eyebrows in turn. Egils saga 55. kafli. Myndin er úr AM 426 fol., handriti frá 17. öld. Bernard Scudder er afkastamikill þýðandi íslensks skáldskapar og þýddi bæði Eglu og Grettlu fyrir nýju útgáfuna á íslendingasögum á ensku sem kom út í sumar hjá Bókaútgáfunni Leifi Eiríkssyni. Auk þess var hann í ritnefnd útgáfunnar og hafði það sérstaka hlutverk að fara yfir kveðskap í sögunum. Form og innihald Bernard þýddi líka kveðskap Grettis og Egils, og er gaman að sjá hvað verður um dróttkvæði og drápur þegar þeim er snúið á aðra tungu. Til dæmis verður ennþá augljósara á nýju máli hvað Höfuðlausn Egils er merkingarlaust kvæði. „Já, það er partur af gríninu. Þó að kvæðið sé langt og „vel flutt“ segir það bókstaflega ekki neitt!“ segir Bernard, „en þannig er kannski einmitt myndin sem Egill vildi gefa af Eiriki konungi. Hins vegar held ég að skynjun Eg- ils sé alveg einstök í miðaldabók- menntum. Dæmi um það er Sonatorrek þar sem við sjáum inn í hina dimmu nótt sálarinnar hjá heiðnum manni. Það er alltaf ákveðin togstreita á milli málskrúðs og innihalds í dróttkvæðum. Við reyndum að taka innihaldið fram yfir formið þannig að þetta er ekki bundið mál í þröngum skilningi. Textinn vildi þá bæði stækka í þýðingunni af því hann er svo knappur í frummálinu en líka skreppa sam- an af því að merkingin er svo ein- hæf og rýr. Auðvitað eru undan- tekningar, sérstaklega hjá Agli. Næsterfiðast var að þýða sam- tölin, vegna þess að munurinn á ritmáli og talmáli í sögunum er ekki mikill en í enskum texta er áberandi munur á þessu tvennu. Þar aö auki þarf að gefa til kynna hver talar. Kóngur má ekki tala sama mál og þræll - og þó! Það er erfitt að finna réttan blæ til að gera þetta sannfærandi." Bernard Scudder - Á erindi við nútímann - Hvernig kunnirðu við Egil eftir alla vinnuna við hann? „Ég varð mjög hrifinn af honum,“ segir Bernard án þess að hugsa sig um. „Eiginlega lít ég á hann sem frum-pönkarann! Og ég ber mikla virðingu fyrir þess- ari manngerð. Hann skammast sín aldrei fyrir neitt og hann hefur skilning á sjónarspili. Hann er alltaf með stæla og það gefur honum þrívídd. Hann gerir eitt og annað bara til að sjokkera - alveg eins og Johnny Rott- en, gæti ég hugsað mér. Þetta er mikilvægt atriði því slík persónugerð höfðar til nútímalesenda. Týpur af þessu tagi vaða uppi 1 íslendingasögunum en eru hverfandi fáar annars staðar i miðaldabók- menntum. Svona sálfræðileg dýpt og fjölbreytni er jafnvel sjaldan til hjá Chaucer. Og markmiðið með þýð- ingunum okkar er að gera þessar persónur þá nútíma- menn sem þeir eru. Þegar Egill ætlar að svelta sig i hel, til dæmis, er það leikaraskapur að mínu viti. Á bamslegan hátt er hann að kalla á athygli. Hann lætur Þorgerði ekki plata sig einn af þrjátíu þýöendum íslendingasagnanna á ensku. - enda veit hún lika að hann er að leika. Það er þessi sálfræði sem mér finnst ekki koma fram í bókmennt- um almennt fyrr en á 20. öld - kannski fyrir utan Shakespeare." - Heldurðu að almennir lesendur erlendis muni kveikja á sögunni um Egil eins og þú hefur gert? „Ég ætla að vona það. Ég veit að allir sem hafa les- ið Eglu í öðrum þýðingum hafa hrifist af manninum, og það sama gildir um ákveðnar persónur aðrar í sög- unum. Mönnum kemur á óvart hvað lýsingarnar eru margbrotnar. Atburðarásin er í rauninni aukaatriði, tækifæri fýrir persónumar til að fara á kostum. Mannssálin í stækkaðri mynd er aðalatriðið.“ Frum-p önkar inn fundinn Skemmtilegir tónleikar Barnarokk í Norræna húsinu f, Á morgun kemur til landsins hópur | barna og unglinga frá Danmörku sem | kallar sig „Vesterbro ungdomsgárds ■ sanggruppe". Fyrirbærið Vesterbro ungdomsgárd er fjörutíu ára gamalt og | var upphaflega sett á fót til að gefa | bömum og unglingum í fátækrahverf- inu á Vesturbrú í Kaupmannahöfn ■ tækifæri til að kynnast listum og list- I iðkun, skáldskap, leikhúsi, tónlist og svo framvegis. Fjöldamargar hljóm- plötur hafa verið gefnar út á vegum 8 þessa félagsskapar og bækur eftir með- f limi hans, auk þess sem hópar frá hon- | um hafa troðið upp víðsvegar innan og : utan Danmerkur. Hingað kemur tæplega 40 manna | sönghópur sem mim syngja í skólum í Hafharfirði, Garðabæ, Akranesi og | Keflavík og ljúka dvölinni með tónleik- 1 um í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17 laug- ardaginn 4. október. En fyrstu tónleik- amir verða 1 Norræna húsinu núna á laugardaginn kl. 16. Þar verður leikin rokktónlist og rólegri tónlist í bland, og inn á milli lesa krakkarnir frum- samin ljóð. Þetta eru kraftmikil ung- menni sem hafa miklu að miðla. Að- (gangur er ókeypis. Stærðfræði- j námskeið fyrir alla | Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar hefur | hafið átak til að efla stærðfræði- * kennslu í grunnskólum sínum. Skóla- { nefnd bæjarins var ekki ánægð með út- í komu úr samræmdum prófum og leit- | aöi til Freudenthalstofhunarinnar í J Hollandi til að athuga hvað hægt væri | að gera til úrbóta. Nú eru komnir tU landsins tveir fulltrúar þaöan, dr. Jan | de Lange og dr. Marja van den Heuvel- { Panhuizen tU að halda fyrirlestra og {námskeið um stærðfræðinám og | stærðfræðikennslu fyrir hafnfirska { kennara. Á laugardaginn kl. 9-15 j verða þau svo með opið námskeið fyr- {ir aUt áhugafólk um stærðfræði- kennslu í Frímúrarahúsinu, Ljósutröð j 2. Þátttöku skal tilkynna tU Skólaskrif- j stofu Hafnarijarðar. Freudenthalstofnunin er virt á sínu j sviði í Evrópu og Bandaríkjunum fyr- j ir rannsóknir og námsefhi. Skólanefiid Hafnarfjaföar kaUar hana tU svo að hægt verði að komast að því hvernig ástandið er nákvæmlega. „Við erum að láta athuga hvernig j námsefnið er lagt fyrir, hvar nemend- ! ur byrja að dala og hvar í ferlinu við * þurfum að bæta,“ segir Þórleif Drifa { Jónsdóttir kennslufuUtrúi. „Við höfum j þegar sett af stað tvö námskeið fyrir | kennara yngri og eldri barna. Kennar- Iar á þeim eru íslenskir, en þangað koma svo HoUendingamir og segja frá sínum hugmyndum. Þetta er tveggja ára átak og við emm rétt að byrja. En meiningin meö því að fá Hollending- ana tU okkar núna er að hleypa svolitlu lofti í átakið með hugmyndum ? annars staðar að. Svo er spumingin l hvað við getum nýtt okkur af þeim.“ : Nánari upplýsingar fást í síma 555 Vel heppnaðir tónleikar voru haldnir í Lista- safni íslands síðastliðið mánudagskvöld. Þeir eru hluti tónlistarhátíðarinnar Ung Nordisk Musik sem nú er haldin hér á landi í fimmta sinn. Hátíðin er helguð verkum tónskálda frá Norðurlöndum sem öU era yngri eða rétt um þrítugt. Svona er tíminn afstæður, handbolta- maður um þrítugt er í eldri kantinum en tón- skáldin eru rétt að slíta bamsskónum um sama leyti. Flestir hljóðfæraleikararnir era líka vald- ir með tiUiti tU aldurs; þarna gefst því tækifæri tU að heyra og sjá þau sem móta og miðla menningu okkar norræna menningarkima næstu áratugina. Á efnisskránni vora sex verk en aðeins fimm þeirra vora flutt - Partita eftir Þorkel Atlason þarf enn að bíða flutnings. Þetta er víst í ann- að skiptið sem flutningi er frestað á verkinu og vekur það í sjálfu sér forvitni. Koyaaq eftir Perttu Haapanen er einleiks- verk fyrir píanó og var flutt af Kari Tikkala. Rómantísk áheyrUeg tUþrif sett fram í sterkri andstæðu við tærleika sköpuðu væntingar um framvindu sem tók svo aftur aUt aðra stefnu. Píanóleikarinn stílfærði og lék af miklu öryggi. Board is Lit for Causin It eftir Mattias Sven- son frá Svíþjóð er einhvers konar stórborgar- erting skrifuð fyrir flautu og fagott. Höfundur er skemmtilega frjáls og hugmyndaríkur í vinnu sinni en enn vantar nokkuð á úrvinnslu og heildarmynd. Hann sýndi í upphafi leikni sína í stUbrigðum sem oftlega eru tengd Banda- ríkjunum, þó svo okkar vestræni heimur sé aU- ur undirlagður, en vann sig svo skemmtilega út úr þeim heimi og drap víða niður fæti áður en síðasti tónninn hljómaði. Feöginin Malin og Hans Samuelsson fluttu og gerðu mjög vel, sér- staklega vakti leikur hins reynda fagottleikara mikla hrifningu. Davíð Franzson var fuUtrúi íslands á þessum tónleikum. Fimm ljóð um nóttina er tUgerðar- laus og músíkölsk tónsmíð fyrir einleiksflautu. Emilía Rós Sigurðardóttir flutti næturljóðin af skilningi og bar okkur í gegnum blæbrigði næt- ur og út í bjartan morguntaktinn sem sló sig fast inn í vitundina. Píanótríó eftir Tage Tysland frá Noregi var eina verkið þar sem tónskáldið virtist enn láta Tónlist Sigfríður Bjömsdóttir sér nægja sína eigin barnslegu furðu yfir hljómi hljóðanna. Alla úrvinnslu og stefnu skorti. Hljóðtjöld og stemningar geta jú verið áheyrileg en ekki sérlega áhugaverð þegar á aUt er litið. Hljóðfæraleikurinn var vandaður og virtist gera það sem hægt var að gera fyrir verkið. Þau Sif Tulenius fiðluleikari, HrafnkeU Orri EgUsson seUóleikari og Tinna Þorsteins- dóttir píanóleikari gerðu vel en gaman hefði verið að heyra þau flytja meiri tónsmíð. Koncert eftir Lasse Laursen frá Danmörku var síðast á efnisskránni. Verkið er skrifað fyr- ir tvö píanó og sembal en það vora þau Ástríð- ur Haraldsdóttir á sembal, Hrönn Þráinsdóttir og Steingrímur ÞórhaUsson píanóleikarar sem fluttu. Þessi sérstaka samsetning hljómaði mjög áhugaverð. Laursen vann í fóstum takti ágætar fléttur, hljómrænar og lagrænar. Hlut- verk sembalsins var hins vegar næstum eins og háðslegt, konserthugmyndin, sem titiUinn vís- ar í, er gjörólík þeim einfoldu stróf- um sem hljómuðu í sembal. En þetta var vel fram yfir mitt verkið skemmtUegt áheyrnar - kjörin tónlist fyrir bíómyndina Piano II, þar sem tvo flygla ræki á fjöru einhverra sem fyrir ættu sembal. Þannig myndi hinn klassíski ástarþríhyrningur einnig speglast í hljóðfæraskipaninni. Tónskáldið hefði mátt vinna mark- vissar í síðari hluta verksins en í það mun einmitt líf hans fara - að ydda tónhugmyndir. Flutningurinn var góður og sérstaklega ánægjulegt að upplifa hvað leikur hinna ungu hljóð- færaleikara var almennt vel útfærð- ur. Það sem er skemmtUegast við tón- leika sem þessa er að forvitni og spenna kemur í stað þeirrar svæfandi nautna- hyggju sem aUa jafna mettar loftið á tónleikum þar sem topp fimmtíu frá síðastliðnum þremur öldum eru flutt aftur og aftur. Ekki skal það í efa dregið að góð list er sígUd en listunnandinn þarf að vera vakandi og verja sig fyrir síbylju gamaUa rjómatertna. Að öðram kosti missir hann af lífinu i listinni því tónlistin er jú ein af leiðum mannsins til að upplifa sig í heimi sem aldrei verður að fuUu skilinn og skilgreindur með orðum. Sannur tónlistarunnandi leitar því í samtíma sínum að hinum sígUdu gildum alb- ar listar. 2340 Fyrir lífið Svöluleikhúsið frumsýnir á laugar- dagskvöldið nýtt dans- verk eftir Auði Bjarnadóttur og Lára Stefánsdóttur sem þær nefna „Fyrir lífið". Þetta er dansleikur fyrir tvo dansara um úlfakonuna sem skríð- ur yfir holt og hæðir og safiiar beinum sem hún syngur líf í. Tónlistin er eftir Áskel Másson sem flytur hana sjálfur á sýningunni og hjálpar úlfakonunni að magna seið sinn. Dansarar eru Lára Stefánsdóttir og Jóhann Björgvins- son og sýningar verða í Tjamarbíó. Umsjón Silja Aðalsteinsdótdr Leikmyndin viö „Fyrir lifiö“ er eft- ir Ragnhildi Stef- ánsdóttur mynd- höggvara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.