Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 15 Ríkistónlistarhús? Sumum er mikið niðri fyrir þeg- ar tónlistarhús berst í tal. Þannig skrifar Árni Bjömsson læknir grein hér i blaðið 15. þ.m. og telur að það sé það „móðgun við tónlist- arfólkið okkar“ ef ríkið reisir ekki hið fyrsta „fullkomið“ hús fyrir tónlist Samvinna við aðra um nýtingu væri meira að segja ekki „viðun- andi þak“ yfir tónlistina, að mati Áma. Hann minnist á gamla áætl- un, sem hann þó viðurkennir að mundi ekki standast, um að húsið gæti kostað 3 milljarða króna en það mundi þýða rúmar 11.000 krónur á hvert mannsbarn á land- inu. Fjögurra manna fjölskylda þyrfti því að reiða fram litlar 44.000 krónur fyrir tónlistarhúsið, ef svo ólíklega vildi til að áætlun stæðist. Nú má vel vera að Árni sé ekki feiminn við slíkar upphæðir en ég leyfi mér að fullyrða að ýmsa munar um minna. Grein Áma endurspeglar að vissu leyti þann tón sem farinn er að heyrast sums staðar í þjóðfélag- inu um að í lagi sé að slaka á í rík- isfjármálum og eyða í nokkur gæluverkefni. Slík hugsun kann þó að reynast þjóð- inni dýr. Er réttlætanlegt aö sækja 11.000 krónur í vasa hvers íslendings í þágu tónlistarhúss? Dýr rekstur Það er m.a. vegna þess að gæluverk- efni á borð við tón- listarhús kosta ekki aðeins stórar fúlgur í upphafi heldur líka mikið í rekstri. Föst útgjöld hins op- inbera aukast því við hvert verkefni af þessu tagi og reynist það sérstaklega erfitt þeg- ar verr árar en nú, eins og menn ættu að kannast við eftir niður- skurðarumræður síðustu ára. Auðvitað má svo sem halda því fram að til séu fjármunir í tónlist- arhúsið, allt sem þurfi sé vilji til verksins. Þetta er að vissu leyti rétt. Hægt væri að hækka skatta verulega til að standa undir byggingunni. Einnig væri hægt að klípa af laun- um kennara eða loka deildum sjúkrahúsa. Þetta er í raun það „Fjögurra manna fjölskylda þyrfti því að reiöa fram litlar 44.000 krónur fyrir tónlistarhús- ið, ef svo ólíklega vildi til að áætlun stæðist.“ sem stuðningsmenn tónlistarhúss á kostnað ríkisins eru að biðja um, þótt þeir af einhverjum ástæðum kjósi að orða það með öðrum hætti. Finnist mönnum þetta spennandi tilhugsun þurfa þeir að minnsta kosti ekki að hafna tón- listarhúsi á þeim forsendum að ekki sé til fjármagn. Farið í vasa fólks En þá má ekki gleyma því að það er alls ekki sjálfgefið að rikið ætti að reisa tónlistarhús og reka það þótt peningamir til þess fynd- ust. Það er langt því frá sjálfgefið að rétt- lætanlegt sé að fara í vasa fólks og taka þaðan 11.000 krónur í þágu tónlistarhúss. Sem dæmi má taka að ýmsir þjóðkunnir tónlistarmenn gengu fyrir nokkram árum um Kringluna og ósk- uðu eftir framlögum til byggingarinnar og er ekkert við slíkt að athuga. En hvað ætli fólki hefði þótt ef tón- listarmennirnir hefðu ekki beðið um fram- lag heldur sótt það sjálfír í vasa þess? Það væri líklega ekki mikil stemning fyrir slíku. Við verðum að velta því fyrir okkur hvenær réttlætanlegt er að hið opinbera fari í vasa okkar og hvenær ekki. Því þótt eðlilegt Kjallarinn Haraldur Johannessen háskólanemi kunni að vera að fólk sé látið greiða skatta til að halda uppi lög- um og reglu og nauð- synlegri heilsugæslu, svo að dæmi séu tek- in, er alls ekki þar með sagt að réttlátt sé að fara í vasa þess í hvert sinn sem hópi manna dettur i hug að óska eftir stuðn- ingi ríkisins við áhugamál sitt, jafnvel þótt áhugamálið sé af hinu góða. Með þvi sem hér hef- ur verið sagt er ég vitaskuld ekki að mæla gegn því að einkaaðilar reisi og reki tónlistarhús, slíkt væri þvert á móti ánægjuefni. En við verðum að vera án hússins ef einkaaðilar geta ekki fjármagnað það. Haraldur Johannessen Ufeyrissjóður - til hvers? Nú í dag verður haldin ráð- stefna um lífeyrismál aldraðra á vegum Öldrunarráðs í samvinnu við Landssamband eldri borgara. Megintilgangur er áð við fáum að kynnast hvemig lífeyris- og fjár- málum aldraðra er fyrir komið í nágrannalöndum okkar og hér heima. Þar sem lífaldur fólks í hinum vestræna heimi hefur verið að lengjast á undanfornum áratug- um hafa átt sér stað miklar um- ræður m.a. um lífsgæði fólks á efri árum. Flestar Evrópuþjóðir hafa lífeyr- issjóði en það er misjafnt hvort meginstefnan er sjóðssöfnun eða gegnumstreymi. En nú á síðustu árum hafa mörg stór sambönd launafólks og at- vinnurekenda, m.a. í Danmörku, valið lífeyrissjóða- fyrirkomulag byggt á sama grunni og sam- tryggingarsjóðir, sem stofnaðir vora hér á landi fyrir áratugum. Gífurlegur vandi Gegnumstreymissjóðir, þar sem ábyrgð launagreiðanda kemur ekki til greiðslu fyrr en launþeg- inn fer á eftirlaun, hafa m.a.' kom- ið ríkisstjómum Ítalíu og Frakk- lands í veruleg vandræði og er þar skemmst að minnast verkfalls vörabílstjóra í Frakklandi vegna lífeyrisaldurs og ábyrgðar ríkis- sjóðs. Ríkissjóðir þessara landa eru i gífúrlegum vanda vegna lif- eyrisgreiðslna og hafa margir talið að reynsla þeirra sanni að heppi- legra sé að launafólk eigi aðgang að lífeyrissjóði sem tryggi þeim líf- eyrisrétt í réttu hlutfalli við vinnulaun yfir starfsævina og að sá lífeyrisréttur sé ekki takmark- aður við ákveðinn árafjölda (sér- eignasjóðir) heldur njóti launþeg- inn svo lengi sem hann lifir. Hópur sérfræðinga á vegum ESB vann aö skýrslu um lífeyris- mál ESB-landanna fyrir örfáum árum og kom þar m.a. fram að gegnumstreymiskerfið stefnir víð- ast í þrot. Þeir mæla eindregið með því að þjóðir, sem byggjast á gegnumstreymiskerfi, fikri sig yfir í sjóðsöfhunarkerflð og losi sig þar með úr óbærilegum vanda. Þá benda þeir á að sjóðsöfnúm stuðli að almennum hagvexti, lítill spam- aður sé ein af orsök- um hárra vaxta í Evrópu. Öryggissjóöur Lífeyrissjóðir á al- menna vinnumark- aðnum uppfylla þessa kosti vel. En megin- tUgangur með greiðslu í lífeyrissjóð er að eiga öryggissjóð tU eftirlaunaáranna. Fólk, sem nú er á miðjum aldri, mun eiga fuUa starfsævi á bak við sínar lífeyris- greiðslur þegar það tekur eftirlaun á næstu öld. Þótt almenna lífeyris- sjóðakerfið sé að mestum hluta ekki eldra en frá árinu 1970 er það farið að hafa veruleg áhrif á flár- hagsstöðu eldra fólks og er því al- varlegt tU þess að vita að misvitr- ir pólítíkusar haldi að aðalmálið sé aö reka lífeyrissjóði þar sem svo miklir peningar séu í vörslu sjóðanna. Nú þegeir staða almennu sjóð- anna er komin á fastan og öragg- an grann þá væri það vítavert gá- leysi að hrófla við stoðum þeirra. Meginmarkmið þessara sjóða er að tryggja fólki betra líf á efri árum. TU þess að geta tryggt þetta markmið sem best þarf að vera hópáhættudreifing samkvæmt trygginga- fræðUega réttu mati. Þess vegna hafa samningsaðUar að líf- eyrissjóðum á al- menna vinnumark- aðnum valið m.a. 10% iðgjald því með því er hægt að tryggja sjóðs- félögum eUilífeyri, maka- og bamalífeyri auk örorkulifeyris. Ef tryggingafélag ætlaði að bjóða hliðstæða tryggingu mundi ið- gjald vera margfalt það iðgjald sem nú er tU lífeyrissjóðs. Þess vegna er svariö við upp- hafsspumingunni „Lífeyrissjóður - tU hvers?“ þetta: Með því tryggir maður sig best fyrir áfóUum í líf- inu og fyrir þokkalegri afkomu á efri árum sem ekki er háð afkomu ríkissjóðs á hverjum tíma eins og eUUífeyrir almannatrygginga held- ur á þvi sem lagt hefur verið tU hliðar með reglulegum spamaði í lífeyrissjóð. Með uppsöfnunarkerfi lífeyrissjóða er horft tU framtíðar. Þórunn H. Sveinbjömsdóttir „Nú þegar staða aimennu sjóð- anna et komin á fastan og örugg- an grunn þá væri það vítavert gá- leysi að hrófla við stoðum þeirra. Meginmarkmið þessara sjóða er að tryggja fólki betra líf á efri árum.u Kjallarinn Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir formaöur SAL og Starfs- mannafélagsins Sóknar Með og á móti Styttugjöf með Bailey’s líkjör: ÁTVR komið út í móa Þegar verið er að setja bann- reglur við tUteknum þáttum at- vinnustarfsemi, sem annars er lögleg, verður oft erfitt að finna hinn gullna meðal- veg. Með þvi að neita að taka við líkjörnum í þessu tUviki tel ég að ÁTVR hafi ekki ein- asta farið út af veginum held- ur sé komið langt út í móa. Þannig er, að þó svo að áfengislög banni auglýs- ingar á áfengi þá hafi dómstólar ekki treyst sér tU þess aö halda því banni tU streitu þar sem það hefti um of tjáningarfrelsi manna. Auglýsing í þessu sam- bandi er talin vera tilkynning tU almennings. Það er deginum ljós- ara að stytta eins og þær sem hér um ræðir og hengdar voru á sölu- vöruna sjálfa geta á engan hátt talist tilkynningar tU almenn- ings. Ef svo væri mætti aUt eins kreflast þéss að flarlægja þyrfti aUa miða af áfengisflöskum, því hvað era þeir annað en tilkynn- ingar tU almennings? Með þessu framferði tel ég ÁTVR hafa tekið sér mun meira vald en henni er ætlað samkvæmt lögum. Þar fyr- ir utan er hér um ákaflega falleg- ar og smekklegar styttur að ræða sem út af fyrir sig eru næg rök með því að leyfa þeim að hanga á viðkomandi áfengisflöskum. Hvetur til áfengis- neyslu Við í Áfengisvarnaráði erum algjörlega á móti svona markaðs- setningu á áfengi. Þarna er um að ræða auka- markaðssetn- ingu á víni sem okkur finnst mjög óeðlileg. Það er ekki hægt að mæla með því að láta einhver leik- fong fylgja með áfengi eins og því sem hér um ræðir. Svona leikfong höföa oft til barna og þau vilja gjarnan leika sér með styttur lík- ar þeim sem verið er að reyna aö gefa. Svona styttum er ekki stillt upp í hUlur og þá fá börnin gjarn- an leikfangið í hendur. Hvaða boðskap er þá verið að innleiða sem kemur úr þessari átt? Það er mjög óviðeigandi að gefa svona bamaleikfang ‘með áfengi. Þetta er markaðssetning sem hvetur fólk til áfengisneyslu, auk þess sem þetta flytur vafasöm skila- boð til bamanna sem leika sér með leikfangið. -HI Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@,centrum.is Alexandor Alexand- ersson, deildar- stjóri hjá Áfengis- varnaráði. Baldvin Hafstelns- son, lögfræóingur Samtaka verslunar- innar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.