Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 Útlönd Indónesía: Tíu þúsund berjast við skógareldana Allt með kyrrum kjörum áður en Nóra kemur Fellibylurinn Nóra hélt áfrara ferð sinni upp að Kyrrahafsströnd Mexíkós snemma í morgun. Allt var þó með kyrrum kjörum í ferðamannabænum Ensenada þar sem skemmtiferðaskip venja kom- ur sínar. Veðurfræðingar spá því að felli- bylurinn komi á land í Suður-Kali- fomíuríki um miðjan dag í dag. „Við höfum engar áhyggjur því ef eitthvað gerist erum við í guðs höndum,“ sagði gengilbeinan Santa Mendez. Hafnarvörðurinn í Ensenada sagði fréttamanni Reuters að bú- ist væri við að fellibylurinn færi beint yfir hafnarsvæðið. Reuter BIFREIÐASTILLINGAR NICOUU Yfir eitt þúsund slökkviliðsmenn frá Malasíu hafa verið sendir til Indónesíu til að berjast við skógar- eldana sem valdið hafa stórhættu- legri mengun. Alls reyna nú um tíu þúsund menn að ráða niðurlögum eldanna sem herja á Súmötm og Borneo. Yfir þrjátíu þúsund manns á eyjunum hafa átt við öndunarörð- ugleika að stríða vegna mengunar- innar sem er einhver sú versta sem orðið hefur i Suðaustur-Asíu. í gær tilkynntu yfirvöld Indónesíu að tveir hefðu látist af völdum meng- unarinnar. Bandarísk og bresk yfirvöld hafa varað ferðamenn við að fara til þeirra svæða þar sem mengunin er sem verst. Hún nær norður til Phuket í Tailandi og norðaustur til Filippseyja. Verst er mengunin á norðan- verðri Borneo. Þar rikti í gær neyð- arástand sjötta daginn í röð. Börn hafa ekki sótt skóla og opinberar skrifstofur hafa verið nær mann- lausar. Fólk sér varla handa sinna skil. Ökumenn hafa verið beðnir um að hafa ljós á bílum sinum eða hreyfa ekki bílana. Öldruðum og veikum er ráðlagt að vera innan- dyra og forðast áreynslu. Öllum al- menningi er einnig ráðlagt að reyna ekki mikið á sig utanhúss. Margir kenna skógarhöggsfyrir- tækjum og bændum um að hafa kveikt eldana til að ryðja land fyrir monsúnrigningamar. Rigningarnar eru hins vegar seint á ferðinni núna vegna E1 Nino hafstraumsins í Kyrrahafi sem hefur áhrif á veður- far um allan heim. Ráðamenn í Indónesíu eru bjart- sýnir á að slökkviliðsmönnum tak- ist brátt að ná yfirhöndinni i barátt- unni við eldana. Skógarsérfræðing- ar hafa sagt að eldamir geti haft í för með sér vistfræðilegt stórslys. Alþjóðabankinn bauð i morgun neyðarhjálp vegna eldanna. Japan- ar hafa boðist til að senda búnað og sérfræðinga til Indónesíu. Sérfræð- ingar frá Kanada eru væntanlegir þangað um helgina. Reuter UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Fjallalind 34, þingl. eig. Helga Lilja Eyj- ólfsdóttir og Logi Einarsson, gerðarbeið- endur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins og íslandsbanki hf., mánudaginn 29. september 1997 kl. 14.45. Gnípuheiði 11, 1. hæð 04-01-01, þingl. eig. Hjörleifur K. Júlíusson, gerðarbeið- andi Lögmenn Garðar og Vilhjálmur sf., mánudaginn 29. september 1997 kl. 13.15. Daltún 18, þingl. eig. Guðbjörg Helga Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins og Bæjarsjóður Kópavogs, mánudaginn 29. september 1997 kl. 15.30. Hlíðarhjalli 55,0001, þingl. eig. Anna H. Sveinbjömsdóttir, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna, mánudaginn 29. september 1997 kl. 16.15. Engihjalli 1,1. hæð D, þingl. eig. Daðey Steinunn Daðadóttir, gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkis- ins og Lífeyrissjóðurinn Framsýn, mánu- daginn 29. september 1997 kl. 14.15. Engihjalli 17,10% af 1. hæð E, þingl. eig. Anna Karin Juliussen, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands, mánudaginn 29. september 1997 kl. 14.00. Hlíðarhjalli 63, 00-01, þingl. eig. Sigríð- ur Anna Guðnadóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Hh'ðar- hjalli 63, húsfélag, mánudaginn 29. sept- ember 1997 kl. 16.30. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI. UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins aö Skógarhlíö 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Suðurlandsbraut 46, 91,2 fm skrifstofur á 3. hæð t.h., sem er na-hom 3. hæðar, ásamt 0402 64,2 fm geymslu í n-hluta í risi, þingl. eig. Upplýsingar ehf. (Info Ltd.), gerðarbeiðendur Handsal hf. verð- bréfafyrirtæki og Lífeyrissjóður Austur- lands, mánudaginn 29. september 1997 kl. 13.30. Bjargartangi 14, Mosfellsbæ, þingl. eig. Stefán Jóhann Pálsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., höfuðst. 500, mánudag- inn 29. september 1997 kl. 10.00. Tjamargata lOb, 2. hæð, merkt 0201, þingl. eig. Monique Jaquette, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóðurinn Framsýn, mánu- daginn 29. september 1997 kl. 13.30. Torfufell 27, 3. hæð til hægri, merkt 2-3, 3ja herb íbúð, ehl. 11,15%, áður 2. hæð t.h., þingl. eig. Guðbjörg Karitas Sigurð- ardóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, mánudaginn 29. september 1997 kl. 10.00. Engjasel 85, 4ra herb. íbúð á 2. hæð t.v. ásamt stæði í bílageymslu, þingl. eig. Jó- hanna Rannveig Skaftadóttir og Ævar Sigmar Hjartarson, gerðarbeiðendur Bún- aðarbanki íslands, Húsbréfadeild Hús- næðisstofnunar og Lífeyrissjóður versl- unarmanna, mánudaginn 29. september 1997 kl. 10.00. SÝ SLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Háaleitisbraut 111, 4ra herb. íbúð á 2. hæð f.m., þingl. eig. Db. Helga Indriða- sonar, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, mánudaginn 29. sept- ember 1997 kl. 10.00. Mosarimi 14, íbúð á 2. hæð t.h. merkt 0202 og bílastæði nr. 21, þingl. eig. Ingi- björg E. Þórarinsdóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, mánudaginn 29. september 1997 kl. 10.00. Baldursgata 25b, 50% ehl. í íbúð á 1. hæð t.v., þingl. eig. Guðbjörg Erlín Guð- mundsdóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar, mánudaginn 29. september 1997 kl. 16.00. Frakkastígur 8, ehl. 0109, 0110, 0111, 0112, 0113, 0114, 0115, 0116, 0117, þingl. eig. Símon Ólason, gerðarbeiðend- ur Gjaldheimtan í Reykjavík og Þráinn ehf., mánudaginn 29. september 1997 kl. 13.30. Neðstaberg 4, þingl. eig. Hrafnhildur EU- ertsdóttir, gerðarbeiðandi Jón Ólafsson, mánudaginn 29. september 1997 kl. 10.00. Njálsgata 106, 2 herb. og eldhús á 2. hæð v-hluti, merkt 0202, þingl. eig. Bjöm H. Jóhannesson, gerðarbeiðandi Eftirlauna- sj. starfsm. Búnaðarbankans, mánudag- inn 29. september 1997 kl. 13.30. Reykjadalur 1, íbúðarhús, Mosfellsbæ, þingl. eig. Erlingur Ólafsson, gerðarbeið- andi Mosfellsbær, mánudaginn 29. sept- ember 1997 kl. 13.30. Lokastígur 2, 1. hæð, merkt 0101, þingl. eig. Guðrún Hannesdóttir, gerðarbeið- endur Búnaðarbanki íslands og Gjald- heimtan í Reykjavík, mánudaginn 29. september 1997 kl. 15.00. Lokastígur 16,4ra herb. íbúð á 3. hæð og bílskúr, þingl. eig. Bragi B. Blumenstein og Sigríður Þ. Þorgeirsdóttir, gerðarbeið- endur Gjaldheimtan í Reykjavík, Hús- bréfadeild Húsnæðisstofnunar, Inn- heimtustofnun sveitarfélaga og Póstur og sími hf., innheimta, mánudaginn 29. sept- ember 1997 kl. 14.30. Sólvallagata 32a, 64 fm íbúð í kjallara og geymsla m.m., þingl. eig. Jón Valur Jens- son, gerðarbeiðandi Hjörtur Kristinsson, mánudaginn 29. september 1997 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK l'búi í Singapore batt vasaklút fyrir andlitið áður en hann fór í göngutúr með hundinn sinn. Mengunin vegna skógareldanna frá indónesíu hefur borist víöa um Suöaustur-Asfu. Sfmamynd Reuter ísraelar við sama heygarðshornið: Byggja fleiri hús á Vesturbakkanum Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, lofaði þvi í gær að haldið yrði áfram að reisa hús fyrir gyðingalandnema á Vesturbakkan- um. Sú stefna hefur einmitt komið friðarferlinu í Mið-Austurlöndum á heljarþröm. Leiðtogi skæruliðasamtakanna Hamas, Abdel-Aziz al-Rantissi, sagði að enginn skortiu- væri á sjálf- boðaliðum í sjálfsmorðsárásir í ísr- ael. Hamasliðar hafa staðið fyrir nokkrum slíkum árásum undan- famar vikur. Tuttugu ísraelsmenn hgfa fallið í valinn síðan 30. júlí. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, telur að áform Netanyahus og stjómar hans um að reisa 300 heimili til viðbótar fyrir gyðinga á Vesturbakkanum, samrýmist ekki því andrúmslofti fyrir s£tmningaviðræður sem hún hafði vonast til að ná fram með heimsókn sinni. Þetta kom ffam í orðum talsmanns hennar i gær. Netanyahu minntist ekkert á áformin í simtali við Albright fyrr um daginn. Reuter Byssuvæddir gamlingjar skutu og særðu ræningja Vopnaður táningur, sem grunað- ur er um að hafa framiö rán á veit- ingastað í Jacksonville í Flórída þar sem hópur eldri borgara sat, er nú á batavegi eftir að hafa verið skotinn af tveimur rosknum mönnum. Að sögn lögreglu kom ungling- urinn, sem er 17 ára, æðandi inn á veitingastaðinn og veifaði hagla- byssu. Skipaði hann gestum að leggjast í gólfið. Það var þegar ung- lingurinn skipaði þjónustustúlku að opna peningakassann sem annar mannanna skaut á hann. Hinn skaut á eftir ræningjanum er hann flúði. Reuter Stuttar fréttir dv í rétta átt Samstöðuflokkarnir og Frels- isbandalagið 1 Póllandi ræddu stjórnarmyndun í gær og að sögn þokaðist nokkuð í sam- komulagsátt. Búist er þó við að samningaviðræðurnar muni reynast erfiðar. Chirac til Moskvu Jacques Chirac Frakklands- forseti kemur í þriggja daga heimsókn til Moskvu i dag. Tilgangur ferðarinnar verður aðal- lega að efla efnahagsleg tengsl landanna en þau eru frem- ur veikburða um þessar mundir. Króatar varaðir við Bandarísk stjórnvöld hafa var- að þau króatísku við því að ef ekki verður gert eitthvað til að koma bosníu-króatískum stríðs- glæpamönnum undir manna hendur verði gripið til aðgerða. Tyrkir í írak Um fimmtán þúsund tyrk- neskir hermenn með skriðdreka og brynvarða bíla eru komnir inn í norðurhluta íraks eftir að fréttir bárust um bardaga kúrdískra uppreisnarmanna og tyrkneskra hersveita. Fulltrúar styðja Kim Fulltrúar Pyongyang i norður- kóreska kommúnistaflokknum hafa lýst yfir stuðningi sínum við Kim Jong-il sem næsta flokksleiðtoga. Það þykir benda til að undirbúningur fyrir form- leg valdaskipti sé kominn í full- an gang. Vill fast sæti Klaus Kinkel, utanríkisráð- herra Þýska- lands, hvatti til þess í gær að endi yrði bundinn á um- ræðurnar um endurbætur á Öryggisráði SÞ, sem hafa dregist mjög á langinn, og sagði að land sitt mundi gegna mikil- vægu hlutverki ef það fengi fast sæti í ráðinu. Umbóta er þörf Nýr forseti Víetnams hefur ít- rekað að umbóta sé þörf í land- inu en að kommúnistaflokkur- inn eigi að halda í alla stjómar- tauma áfram. NASA-maður í Mir Bandaríska geimferðastofnun- in (NASA) tilkynnir í dag að bandaríski geimfarinn David Wolf muni verða sendur um borð í geimstöðina Mir. Versnandi fer Borgarastyrjaldir, minnkandi alþjóðleg aðstoð og vanræktur landbúnaöur hafa valdið því að hægt hefúr á hagvexti í þeim löndum sem verst eru á vegi stödd. Olíufélögin bíða Olíufélög sem hafa fjárfest hundruð milljóna króna í olíu- leit í Atlantshafi verða að bíöa fram undir helgi áður en bresk- ur dómstóll kveður upp úr um það hvort aðgerðir félaganna séu löglegar. Kæti með Gro Norðmenn mæta hvarvetna mikilli velvild í garð Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsæt- isráðherra, sem hefur mikinn hug á að verða næsti yfirmaður Al- þjóða heilbrigðismálastofnunar- innar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.