Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 9 DV Utlönd Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, varð fyrstur manna á Allsherjarþingi SÞ í New York til að íjúfa þögnina um fjöldamorðin í Al- sír að undanfömu þegar hann spurði hversu lengi þjóðir heims gætu litið undan. „Viðbjóðurinn í síðasta blóðbað- inu í Alsír er slíkur að erfitt er að slá hann út. Maður verður gjörsam- lega orðlaus," sagði Kinkel. Þýski ráðherrann vísaði þar til nær daglegs blóðbaðs þar sem óbreyttir borgarar eru drepnir á hixrn viðurstyggilegasta hátt, skom- ir á háls eða hálshöggnir. Stjóm- völd í Alsír kenna bókstafstrúuðum múslímum um drápin. Stjómvöld í Bandarikjunum og Frakklandi urðu í gær ásátt um að ræða hugsanlegar sameiginlegar að- gerðir í Alsír til að stöðva frekara blóðbað. Madeleine Albright, utan- ríkisráðherra Bandarikjanna, og Timamót í Belfast: Blair vill samkomulag um N-írland næsta vor Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist i morgun vera staðráðinn í að tryggja samkomulag mn framtið Norður-írlands fyrir maímánuð á næsta ári. Friðarvonir jukust til muna í gær þegar andstæðingar fylkingar bundu enda á sextán mánaða langt orðaskak sem haföi tafíð fyrir að al- vömsamningaviðræður gætu hafist. Stjómvöld á Bretlandi og írlandi fögnuðu mjög og sögðu einstakt tækifæri nú gefast til að koma á friði eftir margra áratuga skæm- hemað á Norður-írlandi, „Ég er mjög ánægður með sam- komulagið sem náðist i Belfast um að hefja formlega efnislegar samn- ingaviðræður um varanlega póli- tíska lausn á Norður-írlandi,“ sagði Blair í yfirlýsingu til Press Associ- ation fréttastofunnar bresku. John O’Donohogue, dómsmála- ráðherra írlands, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að vonargeisli skini nú á írland. Reuter 10 Fjörflug-myndbönd Hugdjarfir birnir vangi Sameinuðu þjóðanna franskur starfsbróðir hennar, Hubert Védrine, ræddu málið yfir morgunverði. Reuter Brasilískir ráðamenn og Ijósmyndarar hörfuðu þegar sprenging varð í maríjúana sem kveikivökva hafði verið hellt á. Fíkniefnin höfðu verið ræktuð ólöglega á landi sem stjómvöld höfðu tekið eignarnámi. Sfmamynd Reuter Klaus Kinkel rýfur þögnina um Alsír: Morðaldan rædd á vett- Karólína Arnadóttir Hreggviður Harðarson Berglind Ólafsdóttir Hjördís Inga Hjörleifsdóttir Kristjana Osk Sandra Vilborg Heiöa og Aron Arnar Freyr Þorsteinsson Hafþór Frímannsson Eyrún Jóhannsdóttir nr. 5230 nr. 11476 nr. 11122 nr. 10605 nr. 5514 nr. 4910 nr. 8370 og 8371 Krakkaklúbbur DV og Sam-myndbönd þakka ötl- um kærlega fyrir þátttökuna. Vinningarnir verða sendir vinningshöfum í pósti næstu daga. Bresku hjúkrunarkonurnar: Sadi-Arabar neita að sýna vægð Yfirvöld í Sádi-Arabíu kváöust í gær ekki láta undan þrýstingi frá breskum yfirvöldum um aö milda dóma yfir tveimur breskum hjúkr- unarkonum sem fundnar hafa verið sekar um morö á ástralskri hjúkrun- arkonu í desember i fyrra. Önnur hjúkrunarkonan, Lucille McLauchlan, var dæmd í átta ára fangelsi auk þess sem hún verður að þola 500 vandarhögg. Enn hefur ekki verið kveðinn upp dómur yfir hinni hjúkrunarkonunni, Deborah Parry. Ef hún verður dæmd fyrir morð á hún á hættu að verða tekin af lífi. McLauchlan og Parry neita því báðar að hafa myrt áströlsku hjúkr- unarkonuna Yvonne Gilford i læknamiðstöð þar sem þær störfúðu allar. Gilford hafði verið stungin 13 sinnum auk þess sem hún haföi fengið þungt högg og verið kæfö. Hjúkrunarkonurnar, sem hafa verið sakfelldar, drógu til baka játningu sem þær segja hafa verið þvingaða ffarn með kynferðislegu og líkam- legu ofbeldi. Örlög Parry hafa virst vera í höndum bróður Gilford sem hvatt haföi til að báðar konumar yrðu teknar af lífi. Samkvæmt lögmn i Sádi-Arabíu geta ættingjar fómar- lambs krafist dauðarefsingar eða blóðpeninga. Lögmaður Parry sagði í gær Frank Gilford hafa undirritað sam- komulag fyrir viku um að harm fengi um 80 milljónir íslenskra króna í bætur fyrir systur sína. Af þeirri upphæö eiga um 35 milljónir íslenskra króna að renna til barna- spítala í Ástralíu. Fyrr í gærdag sögðu lögmenn Giifords í Ástralíu að hann heföi ekki gefið eftir rétt sinn til aö krefjast dauðarefsingar yfir Parry. Utanríkisráðherra Bretlands, Robin Cook, fordæmdi í gær dóminn yfir McLauchlan og sagöi hann al- gjörlega óviðunandi í samfélagi nú- tímamanna. Kvaðst Cook taka málið upp við utanríkisráðherra Sádi-Ar- abíu, Saud prins, á morgun. Mann- réttindasamtökin Amnesty Intemational hafa beðið Fahd, kon- ung Sádi-Arabíu, um að sýna bresku hjúkrunarkonunum vægð. Bresk blöð tóku í gær undir kröfu föður McLauchlan um að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, geri allt til að dómnum verði ekki fúllnægt. Reuter Málmþreyta í öxli þyrlunnar Rannsókn á þyrluslysinu und- an Noregsströndum 8. september hefur leitt í ljós að sprungur af völdum málmþreytu vom í öxli á aðalgírkassa Super Puma þyrl- unnar, að sögn Áftenposten. Að sögn formanns flugslysa- nefndar hefur þyrla aldrei farist fyrr í Noregi af þessum sökum. Neftidai'menn telja að gallamir eigi aðeins við um þessa einstöku þyrlu en ekki fleiri af sömu gerð. Rannsókn á slysinu verður haldið áfram til að kanna hvers vegna svo virðist sem báðir mót- orar þyrlunnar hafi stöðvast svo aö segja samtímis. Vinningshafar í Fjörflugs-leiknum 10 Fjörflug-myndbönd Blikur á lofti íris og Marta Grétarsdætur Elma Sif Einarsdóttir Ásrún Björk Perla og Garðar Adam Freysson Sandra Seidenfaden Heiöa Elín Aðalsteinsdóttir Daníel Ágúst Gautason Elísa Björg Björgvinsdóttir Eva Ósk Kristjánsdóttir nr. 10752 og 10753 nr. 3129 nr. 10646 nr. 4600 og 4601 nr. 10665 nr. 8125 nr. 12198 nr. 9361 nr. 2248 nr. 6264 Dulúð, ástir, örlög og framtíðin . . . Viltu kynnast sjálfum/ sjálfri þér á nýjan hátt? Viltu kanna eigin sálardjup og sjá inn í framtíðina? TíVimfi'Kin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.