Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
Spurmngin
Saknaröu leiklistargagnrýni
Jóns Viðars úr Dagsljósi?
Herdís Guðjónsdóttir: Nei, það
geri ég ekki.
Ari Björnsson verslunarskóla-
nemi: Nei, alls ekki.
Fríða Ingvarsdóttir: Já, það geri
ég.
Dalla Jónsdóttir verslunarmað-
iu-: Nei.
Róbert Fragapane nemi: Já, gera
það ekki allir? Jón Viðar var réttur
maður á réttum stað.
Kristín Sveinbjömsdóttir: Nei.
Lesendur
Spillingin sprettir
úr spori
ísland einkavætt og stjórn landsins yröi kosin í allsherjar prófkjöri um land allt.
Helgi Sigurðsson skrifar:
Hún er landlæg spillingin hér á
íslandi. Það segir mér hins vegar
enginn ljúga því að spillingin er að
snaraukast hin síðustu misseri. Og
nú sprettir hún svo sannarlega úr
spori. Einhver myndi nú segja sem
svo: Vissirðu það ekki fyrr en rétt
núna? - Nei, ég held bara ekki. Og
ekki í svona miklum mæli. Það er
bókstaflega eins og allir sem með
völd fara eða embættum sinna verði
bendlaðir við misgengi á siðferðis-
sviðinu á ferli sínum.
Ég tek sem dæmi síðustu embætt-
isfærslur í bankakerfinu, t.d. ferða-
lög bankastjóranna. Nú síðast eins
bankastjóra Seðlabankans vítt og
breitt um heiminn. Ferðir þing-
manna og ráðherra á dagpeningum
greiddum af almenningi. Peningum
sem þessir menn fá líka greidda
beint í vasann, því þeir þurfa ekki
að borga hótelin! Misferli í lánamál-
um í gegnum Húsnæðisstofnun fyr-
ir gæðinga einhvers staðar á ,jöt-
unni“. Og enginn tekur á vandan-
um, sem bara rúllar áfram.
Innan æðsta embættis kirkjunnar
eru fúaspýtur sem ekki mátti hrófla
við. Innan dómskerfisins og innan
lögreglunnar gnaúða og ýlfra vind-
ar um vafamál á vafamál ofan. Skjöl
týnast eða misfarast með óútskýr-
anlegum hætti og það þykir ekki til-
tökumál: Nú eru komin ný lög, seg-
ir æðstiprestur - og svona kemur
ekki fyrir aftur!
Þegar allt kemur til alls sé ég
ekki aðra leið til útrýmingar spill-
ingunni í kerfinu en að kerfið sjálft
verði einfaldlega lagt af og ísland
verði einkavætt með hefðbundnum
hætti. Byrja mætti með þvi að
skipta upp auðlind hafsins og senda
öllum landsmönnum hlutabréf upp
á tæpa milljón króna eins og reikn-
að hefur verið út að auðlindin leggi
sig á. - Stjóm (svo sem 7-9 manna)
yrði svo kosin í allsherjar prófkjöri
um land allt.
Guðrún í efsta sæti
sjálfstæðismanna
Sverrir Ólafsson skrifar:
í kjölfar ákvörðunar fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um
að prófkjör skuli haldið vegna kom-
andi borgarstjórnarkosninga vil ég
hvetja hinn stóra hóp sem studdi
Guðrúnu Pétursdóttur í forseta-
kosningunum til þess að koma fram
og beina kröftum sínum í það að
styðja hana til framboðs í efsta sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir
komandi prófkjör flokksins. Guðrún
Pétursdóttir hefur allt til að bera til
þess að leiða hóp sjálfstæðismanna
til sigurs.
Davíð Oddsson, sem hefur opin-
berlega stutt Árna í efsta sætið, er
ekki hinn endanlegi dómstóll fólks-
ins. Mjög varhugavert er að taka
mark á þessari yfirlýsingu sé tekið
mið af því hvern hann studdi árið
1991 þegar hann hætti sem borgar-
stjóri. Davíð valdi Markús Öm sem
var vanhæfur til þess að leiða flokk-
inn, enda hrundi fylgið og spilling
innan borgarkerfisins blossaði upp.
Ámi Sigfússon heyrist mér tala
tveimur tungum; hann vill lækka
skatta, auka þjónustu og draga úr
skuldum borgarinnar. Allt í senn.
Hvernig er hægt að trúa því að
þetta standist?
Sjálfstæðismenn í Reykjavík: velj-
um frekar Guðrúnu Pétursdóttur,
sem er mun trúverðugri kostur en
aðrir sjálfstæðismenn sem nefndir
hafa verið til sögunnar til að leiða
flokkinn. Ég er ekki í minnstá vafa
um að Guðrún geti lyft Grettistaki í
því að endurreisa fýlgi flokksins í
Reykjavík. - Það verður einfaldlega
að koma frá völdum þessari sósíal-
istastjórn sem nú ræður ríkjum í
borginni og gerir ekki neitt í þágu
borgarbúa.
Melatorginu umturnað
til einskis
Reynir hringdi:
Maður getur ekki setið á sér aö
hringja í fjölmiðla þegar manni of-
býður opinber eyðsla sem sýnilega
er einskis nýt og hefur ekki neinn
tilgang annan en að breyta breyt-
inganna vegna. - Þannig er það um
Melatorgið og ffamkvæmdir sem
þar era búnar að standa yfir nokk-
um tíma. Ég hef ekið þarna fram
hjá að undanfomu eftir að leiðinni
austur í borgina gegnum miðbæinn
var lokað.
Nú er Melatorgið orðið eitt
drullusvað og ökuleiðin þrengd um
helming á meðan á þessum einskis-
verðu framkvæmdum stendur. Ég
myndi vilja láta DV taka þama
mynd til að sýna lesendum hvað við
er átt.
Standi það eitt fyrir dyrum að búa
þjónusta
allan sólarhringii
i sima
ÍO 5000
li kl. 14 og 16
Melatorgiö var ágætt eins og þaö var. - Yfirvöld og gatnamálastjóri veröa aö
sanna aö framkvæmdirnar þjóni tilgangi.
til afhallandi hring líkt og á mótum
Borgartúns og Lönguhlíðar er til-
gangsleysið fullkomnað. Ég get ekki
séð hvað framkvæmdirnar þar hafa
leitt til bóta. Melatorgið var ágætt
eins og það var og ökumenn þekktu
allar aðstæður. Hvað þama á að
koma veit ég raunar ekki en hvað
svo sem það verður ættu borgaryfir-
völd og gatnamálastjóri að sanna að
það þjóni einhverjum tilgangi.
Ætli R-listinn að hala inn at-
kvæði á þessum framkvæmdum
sem eru í ætt við „eyrun“ alræmdu
sem þrengja beygjur inn i aðrar göt-
ur er hann á villigötum. Girðingar á
milli akreina eins og á Hringbraut-
inni mestan part eru lika óskiljan-
legar.
Borgaryfirvöld; látið nú af þess-
um sýndarframkvæmdum eins og
þeim við Melatorgið og takið til við
nauösynlegar framkvæmdir á
gatna- og gangstéttakerfinu. Við-
hald og viðgerðir á því, t.d. í vestur-
borginni, er í molum víðast hvar.
DV
Árni er sá eini
Haukur Hauksson hringdi:
Ég lýsi eindregnum stuðningi
við þá skoðun forsætisráðherra
að styðja Árna Sigfússon sem
áframhaldandi oddvita Sjálfstæð-
isflokksins í borgarmálum. Ámi
er sá eini sem er óumdeildur odd-
viti okkar sjálfstæöismanna þrátt
fyrir að margir aðrir komi þar
við sögu sem sterkir frambjóðend-
ur til borgarstjómar. Ég hefði
hins vegar viljað sjá Áma taka þá
áhættu aö sitja í baráttusæti
flokkins, 8. sætinu, á hinum end-
anlega lista. Það verður ekkert
gaman fyrir oddvita sjálfstæðis-
manna að sitja inni annaö kjör-
tímabO vinni þeir ekki borgina úr
höndum R-listans.
Sláturgerð í bíl-
skúrum
Guðleif hringdi:
Ég las skemmtilega grein i
Degi-Tímanum sem hét Gaman í
slátri. Þar mátti sjá glatt og frískt
fólk við sláturgerð í bílskúrnum
einhvers staðar á Akureyri. Gott
og vel, hugsaði ég. Auðvitað gera
þetta allir og spyrja ekki leyfis.
En hvers vegna í ósköpunum er
þá verið að banna fjöldafram-
leiðslu matvæla nema tO staðar
séu flöldi salema, sturtuhausa og
vaska um aOt svæðið? Auðvitað
er svona framleiðsla ekkert frem-
ur tO heimilisnota, fólk gefur vin-
um og kunningjum með sér af
henni.
Löglegt og sið-
laust
S.P. skrifar:
Það mun hafa verð Stalín sem
þróaði fuUtrúalýðræðið. Sýslu-
menn og Gjaldheimtan era ekki
bestu vinir borgaranna. Það eru
lagðir ofurskattar á öreiga, aldr-
aða og dauðvona sjúklinga. Opin-
bem fé er beinlínis variö til að
gera þetta fólk gjaldþrota. Þetta
skUar sér í sjálfsvígum, áfaUa-
hjálp, þunglyndisköstum og
stjamfræðOegmn skuldum heim-
Oanna. Nei er nei! Á meöan ekki
kemrn- fram stjómmálafólk sem
tekur á þessum vanda þá sitjum
við heima eða skOum auðu i
kosningum, þrátt fyrir blítt bros á
skjánum eða á ljósmyndum.
Mælikvarði á
menningu?
Stjáni meik hringdi:
Ég las kjaUaragrein Sverris
Stormskers hinn 18. þ.m. um eitt
og annað gagnrýnisvert um
menningarmál hjá okkur og var
þar DV auðvitað ekki undanskU-
ið, enda gagnrýndi hann blaðið
sjálft ótæpUega. - Það er mjög
erfitt að setja mælikvarða á
menningu í landinu eins og DV
hefur gert. Ég vU hins vegar óska
DV tU hamingju fyrir það aöhald
sem fær inni á síðum blaðsins
gagnvart því sjálfu jafnt og á aðra
aðila. Það er einmitt besta dæmið
um frjálsa og óháða blaða-
mennsku.
Rústir Al-
mannavarna
Rúnar Theodórsson skrifar:
Enn hefur ekki verið gengið frá
rústunum viö Sundagarða, fyrir
neðan Kassagerð Reykjavíkur,
þar sem Almannavamir rikisins
vom með aðgerðir samfara al-
mannavamaæfmgunni Samverði
í sumar sem leið. Af þessu er mik-
0 óprýði, bflhræ og plastborðar
fjúkandi í aUar áttir. Einnig er
mikU fokhætta af jámplötum og
ýmsu öðm dóti á svæðinu sem er
opið fyrir krökkum í leit að ævin-
týrum eins og gengur. Þetta er Al-
mannavömun tU vansa og ættu
þær að bæta úr þessu hið fyrsta.
Ekki síst þar sem þær fengu er-
lendan styrk tU að halda æflng-
una svo að hún yrði tU sóma.