Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
Afmæli
Hjálmar Vilhjálmsson
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknarstofnun,
Ásvallagötu 18, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Hjálmar fæddist á Brekku í Mjóa-
firði og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá ML 1957, stundaði
nám við læknadeild HÍ1957-58, lauk
forspjallsvísindaprófi 1958 og BC-
prófi frá University of Glasgow 1965.
Hjálmar var fiskifræðingm- hjá
Hafrannsóknarstofnun 1965-84,
sviðsstjóri þar 1984-89, var i rann-
sóknarleyfi við Northwest Atlantic
Fisheries Centre í St. John’s á Ný-
fundnalandi í Kanada 1989-90 og er
fiskifræðingur hjá Hafransóknar-
stofnun frá 1990.
Hjálmar hefur einkun starfað við
síldar- og kolmunnarannsóknir.
Hann stjómaði rannsóknum á
loðnu frá 1966 og á fjölda og út-
breiðslu fiskiseiða 1970-86.
Fjölskylda
Eiginkona Hjálmars er Kolbrún
Sigurðardóttir, f. 2.3. 1940, deildar-
stjóri. Hún er dóttir Sigurðar Guð-
laugssonar hárskera, f. 19.7.1918, og
Kristínar Guðmundsdótt-
ur, f. 21.4. 1918, forstöðu-
konu.
Böm Hjálmars og Kol-
brúnar era Sigurður Stef-
án, f. 2.4. 1961, fram-
kvæmdastjóri í Sviþjóð,
kvæntur Jóhönnu Er-
lingsdóttur og eiga þau
þrjá syni; Kristín Anna, f.
23.9. 1962, kennari í Vest-
mannaeyjum, gift Jóni
Þór Geirssyni og eiga þau
tvær dætur; ína Björg, f.
28.11. 1963, líffræðingur,
búsett á Seltjamarnesi, gift Sigurði
Jónssyni og eiga þau tvö böm; Vil-
hjálmur, f. 1.2.1967, leikari í Reykja-
vík, en kona hans er ísóld Grétars-
dóttir.
Systkini Hjálmars era Páll, f. 23.5.
1940, sjómaður á Seyðisfirði; Sigfús
Mar, f. 28.11. 1944, bóndi á Brekku;
Stefán, f. 11.9. 1949, matvælafræð-
ingur á Akureyri; Anna, f. 7.3. 1954,
kennari á Selfossi.
Foreldrar Hjálmars era Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, f. 20.9. 1914, bóndi
og fyrrv. ráðherra og alþm., og k.h.,
Anna Margrét Þorkelskdóttir, f.
15.2. 1914, húsfreyja.
Ætt
Vilhjálmur er sonur
Hjálmars, útvegsb. á
Brekku, Vilhjálmssonar,
b. á Brekku, Hjálmars-
sonar, hreppstjóra þar,
Hermannssonar í Firði,
Jónssonar „pamfíls".
Móðir Vilhjálms eldri
var María, dóttir Jóns
Jónssonar í Flögu. Móðir
Hjálmars var Svanbjörg
Pálsdóttir, b. í Merki,
Jónssonar, og Helgu Hall-
dórsdóttur, Hermannssonar í Firði.
Móðir Vilhjálms var Stefanía,
systir Bjargar, ömmu Tómasar
seðlabankastjóra og Vilhjálms hrl.,
og langömmu Sigríðar, móður Vil-
hjálms Einarssonar skólastjóra, fóð-
ur Einars spjótkastara. Stefanía var
dóttir Sigurðar, b. á Hánefsstöðum,
Stefánssonar, b. í Stakkahlíð, bróð-
ur Gunnars, afa Gunnars Gunnars-
sonar skálds. Stefán var sonur
Gunnars, b. á Hallgilsstöðum á
Langanesi, Skíða-Gunnarssonar, b.
í Ási í Kelduhverfi, Þorsteinssonar.
Móðir Stefaníu var Sigríður Vil-
hjálmsdóttir, b. á Brekku, Vil-
hjálmssonar, og Guðrúnar, dóttur
Konráðs Salómonssonar úr Lóni
suður og Sigríðar Einarsdóltur.
Anna Margrét er dóttir Þorkels,
b. á Háreksstöðum og verkamanns á
Seyðisfirði, Björnssonar, b. á Engi-
læk í Hjaltastaðaþinghá, Pétursson-
ar, b. í Ósi og á Klúku, Runólfsson-
ar, b. á Surtsstöðum, Bjamasonar.
Móðir Björns var Áslaug Sigurðar-
dóttir, b. í Njarðvík og ættfóður
Njarðvíkurættarinnar yngri, Jóns-
sonar. Móðir Áslaugar var Kristín
María Sigfúsdóttir, prests á Ási,
Guðmundssonar. Móðir Þorkels var
Anna, systir Gróu, móður Bjöms
Hallssonar, hreppstjóra á Rangá.
Anna var dóttir Bjöms, b. á Bónda-
stöðum, Bjömssonar.
Móðir Önnu Margrétar var Helga
Ólafsdóttir, kennara, Bergssonar, b.
í Efri-Miðbæ í Norðfirði, Víglimds-
sonar, b. á Hallgilsstöðum á Langa-
nesi. Móðir Ólafs var Ingibjörg,
systir Rannveigar, móður Jónasar
Hallgrímssonar. Ingibjörg var dóttir
Jóns, vinnumanns á Hamri í
Svarfðardal, Þorsteinssonar. Móðir
Helgu var Guðný, dóttir Kristján
Sigfússonar og Sesselju Jóhannes-
dóttur.
Hjálmar tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengdason-
ar að Selbraut 15 laugardaginn 27.9.
milli kl. 16.00 og 20.00.
Hjálmar
Vilhjálmsson.
Stefán Þórarinn Sigurðsson
Stefán Þórarinn Sigurðsson,
fyrrv. bóndi á Steiná í Svartárdal í
Austur-Húnavatnssýslu, er níræður
í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist á Steiná og hefur
átt þar heima alla tíð. Hann hefur
verið bóndi á Steiná frá 1929, í
fyrstu á móti fóður sínum en síðan
einn.
Stefán lét dóttur sína og tengda-
son, Jónu Önnu og Ólaf, hafa þriðj-
ung af jörðinni 1961. Síðar fékk son-
ur hans og tengdadóttir, Sigurjón og
Katrín, einnig þriðjung jarðarinnar
og bjó hann á móti þeim til 1982 en
þá tók Óskar Eyvindur við búi for-
eldra sinna.
Stefán sá um hirðingu á búfénaði
sínum í félagi við bróður sinn, Jak-
ob, til 1991 er Jakob andaðist. Eftir
það var Stefán ekki nema eitt ár við
hirðingu.
Stefán var um skeið réttarstjóri í
Stafnsrétt, hann fór i göngur og eft-
irleit á Eyvindastaðaheiði um ára-
bil en ekki era mörg ár síðan hann
brá sér á hestbak í smalamennsku.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 15.7. 1934 Ragn-
heiði Rósu Jónsdóttur, f. 10.11. 1908,
d. 31.3.1997, húsfreyju. Hún var dótt-
ir Jóns Ólafssonar, f. 18.5. 1866, d.
27.11.1936, bónda á Skottastöðum, og
k.h., Sigríðar Unu Jónsdóttur, f. 30.8.
1872, d. 26.9. 1967, húsfreyju.
Börn Stefáns og Ragnheiðar Rósu
era Jóna Anna, f. 13.3. 1935, ráðs-
kona og húsfreyja í Hafnarfirði, gift
Ólafi Blómkvist Jónssyni húsa-
smíðameistara, bónda á Steiná og
síðar sendibílstjóra í Hafnarfirði;
Sigurbjörg Rannveig, f. 22. 5. 1937,
starfar við heimilisþjónustu í Kópa-
vogi, gift Sigurði Pálssyni, aðstoðar-
verkstjóra og bifreiöarstjóra hjá Öl-
gerð Egils Skallagrímssonar hf; Sig-
urjón, f. 19. 10. 1938, bóndi á Steiná
III en kona hans er Katrín Gríms-
dóttir, bóndi og húsfreyja.
Börn Jónu Önnu og Ólafs eru Ósk-
ar Eyvindur, f. 25.10.1959, gröfumað-
ur og bóndi á Steiná II, en kona hans
er Herdís Jakobsdóttir og eru börn
þeirra Jakob Ólafur, f. 1983, Jón
Heiðar, f. 1986, Hafdís Bára, f. 1989,
og Óskar Eyvindur, f. 1995; Eydís, f.
13.10.1960, sérfræðingur i augnlækn-
ingum í Örebro í Svíþjóð, en maður
hennar er Ólafur Tryggvason, raf-
virkjameistari og tæknifræðingur,
og er dóttir þeirra Þorbjörg, f. 1990,
en fyrir átti Eydis Önnu Heiði, f.
1986, með Þorláki Guðmundssyni;
Stefán Þórarinn, f. 14.7. 1964, lög-
fræðingur á Blönduósi, en sambýlis-
kona hans er Hafdis Elfa Ingimars-
dóttir og er dóttir þeirra Tinna Krist-
ín, f. 1992, en fóstursonur Stefáns og
sonur Hafdísar Elfu er Aron Elfar, f.
1988; Ragnheiður Rósa, f. 11.2. 1967,
hjúkrunarfræðingur í Sví-
þjóð.
Börn Sigurbjargar
Rannveigar og Sigurðar
eru Guðrún Margrét, f.
5.6. 1968, dýralæknir í
Skagafirði, en sambýlis-
maður hennar er Vé-
steinn Þór Vésteinsson,
rafeindavirki og fram-
leiðslu- og innkaupastjóri
hjá Element-skynjara-
tækni ehf. á Sauðárkróki,
og er dóttur þeirra Ragna
Vigdís, f. 1997; Una Aldís,
f. 8. 6. 1970, skrifstofumaður hjá
KPMG Endurskoðun hf. á Sauðár-
króki en sambýlismaður hennar er
Stefán Sigurbjöm Guðmundsson, bú-
fræðingur og húsasmiður, og er son-
ur þeirra Siguröur Páll, f. 1995; Stef-
án Þórarinn, f. 18.4. 1972, líffræðing-
ur I framhaldsnámi hjá Krabba-
meinsfélagi íslands en unnusta hans
er Guðbjörg Ludvigsdóttir læknir.
Synir Sigurjóns og Katrínar era
Grímur, f. 1.2. 1965, vélvirkjameist-
ari og sölumaður, en kona hans er
Harpa Lind Guðbrandsdóttir og eru
börn þeirra Berglind, f. 1995, og Arn-
ar, f. 1997; Jakob, f. 27. 3. 1969, bú-
fræðingur og bóndi á Hóli í Svartár-
dal, en kona hans er Sesselja Sturlu-
dóttir, bóndi og húsfreyja, og era
börn þeirra Jakob Skafti, f. 1993, og
Rakel Ýr, f. 1995.
Hálfsystkini Stefáns Þórarins,
samfeðra, börn Sigurðar og f.k.h.,
Lilju Sigurðardóttur, eru
Anna Aldís, f. 26.9. 1881,
d. 19.2.1948, saumakona á
Blönduósi; Jón, f. 6.8.
1882, d. 7.9. 1924, bóndi á
Steiná; Rannveig Ingi-
björg, f. 4.10. 1888, d. 1.3.
1985, bjó i Böðvarshúsi á
Blönduósi og á Hólabaki.
Hálfbróðir Stefáns Þórar-
ins, sammæðra, sonur
Hólmfríðar og Péturs Pét-
urssonar, síðar kaup-
manns á Akureyri, var
Pétur, f. 30.11. 1905, d. 7.5.
1977, búfræðingur og hreppstjóri að
Höllustöðum.
Alsystkini Stefáns Þórarins: Lilja,
f. 14.10.1910, d. 1.12.1988, húsfreyja á
Akureyri; Pálmi, f. 22.2. 1914, húsa-
smiður á Skagaströnd og í Reykja-
vík; Sigríður Guðrún, f. 22.5. 1917, d.
16.10. 1987, húsfreyja að Hólabaki og
í Reykjavík; Friðrik Guðmann, f.
22.5.1917, d. 5.9.1987, bifvélavirki hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðár-
króki; Jakob Skapti, f. 10.10. 1920, d.
27.5. 1991, bóndi á Steiná og Hóli í
Svartárdal.
Foreldrar Stefáns Þórarins voru
Sigurður Jakobsson, f. að Eiriks-
stöðum í Bólstaðarhlíðarhreppi 16.6.
1859, d. 23.5. 1945, bóndi á Hóli og
Steiná, og s.k.h., Ingibjörg Hólmfríð-
ur Sigurðardóttir, f. í Hringveri í
Hjaltadal 22.12. 1880, d. 28.6. 1969,
húsfreyja.
Stefán Þórarinn er að heiman.
Stefán Þórarinn
Sigurðsson.
Þráinn Skarphéðinsson
Þráinn Skarphéðinsson,
prentari og eigandi Hér-
aðsprents, Tjarnarbraut
21, Egilsstöðum, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Þráinn fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp.
Hann stundaði nám við
Gagnfræðaskólann við
Lindargötu og við Iðn-
skólann í Reykjavík, lærði
prentiðn hjá Herberts-
prent og síðan Hilmi, lauk
sveinsprófi í prentun 1961 og
öðlaðist meistararéttindi 1972.
Þráinn stundaði prentiðn í
Svíþjóö og Danmörku 1961-63,
starfaði við prentsmiðjuna Hilmi
Þráinn
Skarphéðinsson.
nær óslitið frá 1963-72
er hann flutti á
Egilsstaði.
Á Egilststöðum stofnaði
hann Héraðsprent,
ásamt konu sinni 1972 og
hafa þau starfrækt
prentsmiðjuna síðan eða
í tuttugu og fimm ár.
Þráinn stofnaði þjóð-
dansafélagið Fiðrildin á
Egilsstöðum 1974 sem
enn er starfrækt af
mikilli grósku. Hann var
formaður þess 1974-94.
Þráinn sat í stjórn
Rotaryklúbbs Héraðsbúa og hefur
sinnt öllum trúnaðarstörfum
klúbbsins, frá stallara til forseta.
Fjölskylda
Þráinn kvæntist 19.6. 1971 Önnu
Gunnhildi Ingvarsdóttur, f. 12.1.
1953, prentsmið. Hún er dóttir
Ingvars Friðrikssonar, bónda í
Steinholti við Egilsstaði, og k.h.,
Önnu Bjargar Sigurðardóttur
húsfreyju.
Böm Þráins og Önnu Gunnhildar
era Ingunn Anna, f. 24.9. 1971,
bókagerðarmaður í Gutenberg í
Reykjavík; Skarphéðinn, f. 2.9. 1972,
vélvirki á Egilsstöðum; Hanna
Gyða, f. 28.7. 1973, húsmóðir í
Reykjavík, en maður hennar er
Valgeir Brynjar Hreiðarsson og eru
böm þeirra Jakob Þráinn og Embla
Líf.
Sonur Þráins frá því áður er
Þorvaldur, f. 8.11. 1963.
Albróðir Þráins er Bragi
Skarphéðinsson, f. 1934, jámsmiður
á Sauðárkróki.
Hálfbróðir Þráins, samfeðra, er
Ómar Skarðhéðinsson, f. 1949,
umsjónarmaður skíðalyftunnar í
Oddsskarði, búsettur á Nes-
kaupstað.
Foreldrar Þráins voru Skarp-
héðinn Vermundsson, f. 18.8. 1911,
d. 31.12. 1979, bóndi i Tjamarkoti í
Grímsnesi og síðar verkamaður og
sjómaður í Reykjavík, og Jórunn
Einarsdóttir, f. 23.2. 1905, d. 23.9.
1978, húsfreyja og verkakona.
Þráinn og Anna Gunnhildur taka
á móti vinum og vandamönnum í
Golfskálanum að Ekkjufelli að
kvöldi afmælisdagsins.
Tll hamingju
með afmælið
25. september
90 ára
Jónanna Jóns-
dóttir frá Staðar-
björgum, Hofsósi,
Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Maður hennar var Jósafat
Sigfússon sem lést 1990.
Soffia Gisladóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
85 ára
Sigurður Bjarnason,
Hjallabrekku 21, Kópavogi.
80 ára
Ása Lilja Arnórsdóttir,
Nönnugötu 14, Reykjavík.
Sólveig Jónsdóttir,
Lindasíðu 4, Akureyri.
Eva Sæmundsdóttir,
Vallarbraut 2, Njarðvík.
75 ára
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Sólvangi, Hafnarfirði.
Ása Guðrún Jónsdóttir,
Hásteinsvegi 13, Vestmeyjum.
70 ára
Karl Steingrímsson,
Skarðshlíð 31 D, Akureyri.
Benoný Amórsson,
Hömram, Reykdælahreppi.
Jónína Þórðardóttir,
Bjargi, Eyjafiarðarsveit.
Jón Sigvaldason,
Ausu, Andakilshreppi.
60 ára
Halldór V. Þorsteinsson,
Hólsgerði 3, Akureyri.
Rósa Lárusdóttir,
Möðrufelli 7, Reykjavík.
Einar Karlsson,
Höfðagötu 19, Stykkishólmi.
Hann er aö heiman.
50 ára
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir,
Hraunbæ 36, Reykjavík.
Jóhann Kristófer Ólafsson,
Amarhrauni 18, Hafnarfirði.
Þuríður Dan Jónsdóttir,
Hverafold 36, Reykjavík.
Gylfi Borgþór Guðfinnsson,
Esjuvöllum 19, Akranesi.
Þórirnn H. Kristjánsdóttir,
Fáfnisnesi 3, Reykjavík.
Óla Helga Sigfinnsdóttir,
Sigtúni 35, Reykjavík.
Einar Jóhannsson,
Smárabraut 21, Höfn.
Guðmundur Sigurjónsson,
Fífumýri 5, Garðabæ.
Ámi Baldursson,
Vesturbraut 6, Hafharfirði.
Sigríður Gróa Jakobsdóttir,
Álftamýri 52, Reykjavík.
Brandur S. Eggertsson,
Huldulandi 1, Reykjavík.
40 ára
Ester Ásbjömsdóttir,
Fögrabrekku 18, Kópavogi.
Helgi Þór Hermannsson,
Lyngholti 4, Keflavík.
Rut Bergsteinsdóttir,
Sólvallagötu 68, Reykjavík.
Hallfriður Baldursdóttir,
Birkimel 10 A, Reykjavík.
Anna Helga Schram,
Vesturgötu 71, Reykjavík.
Inga Lóa Guðmundsdóttir,
Lyngholti 22, Keflavík.
Guðrún I. Bjamadóttir,
Hrísateigi 3, Reykjavik.
Anna Jóna Karlsdóttir,
Einarsnesi 42, Reykjavík.
Ásta Kristín Siggadóttir,
Álakvísl 18, Reykjavík.
Ingibjörg H. Halldórsdóttir,
Logafold 119, Reykjavík.
Sigmundur Jóhannesson,
Syðra-Langh. III, Hrunamhr.
Jón Halldór Guðmundsson,
Múlavegi 7, Seyðisfirði.____