Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997
25
Iþróttir
íþróttir
Bara rétt að byrja
- Stjarnan gerði góða ferð á Hlíðarenda og sigraði Val, 23-25
„Veturinn er nú bara rétt aö
byrja. Þetta var hörkuleikur í kvöld
og sem betur fer lenti sigurinn okk-
ar megin. Við höfum undanfarið
lagt mikla áherslu á vamarleikinn
á æfingum með smááherslubreyt-
ingum og það er engin spuming að
sú vinna er farin að skila sér og
menn hafa gaman af því. Auðvitað
er markmiðið að komast nær toppn-
um. Strákamir em ungir og efnileg-
ir og það kemur síðan bara í ljós
hve langt það nær,“ sagði Valdimar
Grímsson, leikmaður og þjálfari
Stjömunnar, við DV eftir góðan sig-
ur Garðbæinga á Valsmönnum að
Hlíðarenda í gærkvöldi, 23-25.
Leikur liðanna var fjömgur og
barátta beggja liða mikil. Fyrri hálf-
leikur var jafn á nánast öllum tölum
en í síðari hálfleik greikkuðu gest-
imir í Stjömunni heldur sporið án
þess aö Valsmenn næðu að fylgja
þeim almennilega eftir þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir á spennandi
lokamínútum.
Lið Stjömunnar er nú á mikilli
siglingu og hefur sigrað í síðustu
fjórum leikjum sínum. Liðið lék í
heild sinni vel og skynsamlega í
gærkvöldi en hjá Val vom Sigfús,
Einar og Guðmundur bestir enda
einu mennimir í liðinu sem ein-
beittu sér að öðm en aö nöldra í
dómurum leiksins.
-ÖB
„Skandall að vera
tekinn úr umferð“
- léttur sigur HK á Víkingi, 23-28
„Ég var mjög ánægður með vöm-
ina og baráttuna í siðari hálfleik. Ég
var hins vegar ekki að sama skapi
ánægður með sóknarleikinn sem
var alls ekki nógur beittur nánast
allan leikinn. Mér flnnst hálfgerður
skandall að maður á mínum aldri
skuli vera tekinn úr umferð allan
tímann," sagði Sigurður Sveinsson,
þjálfari og leikmaður HK, með bros
á vör, í spjalli við DV eftir leikinn
gegn Víkingum í Víkinni í gær-
kvöldi. HK fór með sigur af hólmi,
23-28, eftir að hafa leitt með
tveimur mörkum í hálfleik.
Suk-Hyung Lee varöi 20 stig í
Smáranum í gærkvöld.
Lítill mun-
ur lengi
- en 23-33 í lokin
Þaö var lengi vel ekki hægt að
sjá að næstefsta liðið, FH, væri
að spila viö það langneösta,
Breiðablik, í Smáranum í gær-
kvöld. Handboltinn var lengst af
á mjög lágu plani og það var
ekki fyrr en á síðustu 12 mínút-
unum að Hafnfírðingar tóku af
skarið, skoraðu sjö mörk í röð
og unnu að lokum þann stóra
sigur sem búast mátti við, 23-33.
FH-ingar virtust taka mótherj-
ana mátulega alvarlega og það
hefði hæglega getað komið þeim
í koli. Ef ekki hefði komið til góð
markvarsla hjá Suk-Hyung Lee
úr dauðafærum heföi Hafnfirö-
ingum verið refsað fyrir slakan
varnarleik. Auk Lee var Knútur
Sigurðsson líflegur í sókninni og
Valur Arnarson sýndi stór-
skemmtileg tilþrif seinni hluta
leiksins.
Blikar sitrja stigalausir á botn-
inum sem fyrr og sannast sagna
er ekki útlit fyrir að það breytist
mikið í vetur. Þeir sýndu þó af
sér talsverða baráttugleði lengst
af og hún gæti átt eftir aö skila
þeim einu og einu stigi. Banda-
ríkjamennimir Brown og Heath
sýndu stundum skemmtileg til-
þrif, sem og Brynjar Geirsson.
En þaö þarf meira til.
-VS
Leikurinn í heild sinni var slakur
og á köflum má segja að hann hafi
verið glórulaus. HK-liðið v£ir mun
betri aðilinn í leiknum og verð-
skuldaði sigurinn.
Óskar Elvar Óskarsson átti mjög
góðan leik fyrir HK og sömuleiðis
varði Hlynur Jóhannsson á köflum
vel í markinu. Sigurður Sveinsson
stendur enn í dag vel fyrir sinu og
er liðinu mikill styrkur.
Birgir Sigurðsson stóð upp úr í
liði Víkings. Liðið á erfiðan vetur
fyrir höndum.
DV, Eyjum:
Framarar skutust upp fyrir ÍBV í
deildinni með frábærri frammi-
stöðu í Eyjum, burstuðu
arfaslaka Eyjapeyja,
27-32. Það var engu líkara
en samansafn af þung-
lyndissjúklingum væri
mætt til leiks þegar Eyja-
menn hófu leikinn. Leik-
gleðina var hvergi að
finna og hraðinn, sem
hefur einkennt leik
þeirra i vetur, var fokinn
veg allrar veraldar. I stað
Formúlu 1 fengum við
boccia, sýnt hægt. Fram-
arar hafa reyndar tangarhald á
Eyjamönnum, slógu þá t.d. út í úr-
slitakeppninni í fyrra.
Maður leiksins var reyndar Eyja-
maður, Magnús Arngrímsson, sem
spilar með Fram. Hann fór á kost-
Breiðablik(ll) 23
FH (14) 33
I- 0, 1-3, 2-5, 6-5, 7-6, 7-9, 9-10, 9-12,
II- 13, (11-14), 11-16, 14-18, 15-20,
18-20, 19-23, 21-24, 21-31, 23-31, 23-33.
Mörk Breiöabliks: Derick Brown
6, Darick Heath 4, Sigurbjöm Narfa-
son 4, Brynjar Geirsson 4, Ragnar
Kristjánsson 3, örvar Arngrimsson 1,
Bragi Jónsson 1.
Varin skot: Elvar Guðmundsson
7, Sigurður E. Þorvaldsson 1/1.
Mörk FH: Knútur Sigurðsson 9/2,
Gunnar Beinteinsson 6, Hálfdán
Þórðarson 6, Valur Amarson 4, Guð-
mundur Pedersen 4/2, Guðjón Áma-
son 2, Gunnar Gunnarsson 1, Sigur-
jón Sigurðsson 1.
Varin skot: Suk-Hyung Lee 20.
Brottvfsanir: Breiöablik 8 mín.
(Sigurbjöm og Brynjar rautt), FH 2
mín.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þor-
lákur Kjartansson, mistækir.
Áhorfendur: Um 150.
Maður leiksins: Valur Arnar-
son, FH.
Víkingur (11)23
HK (13) 28
2-0, 2-3, 5-5, 8-6, 9-10, 10-12, (11-13).
13-17, 14-19, 16-21, 18-23, 21-24, 23-26,
23-28.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson
7/2, Hjalti Gylfason 4, Rögnvaldur
Johnsen 3/2, Hjörtur Amarsson 3,
Kristján Ágústsson 2, Davor
Kovacevic 2, Bjöm Guðmundsson 1,
Niels Carlsson 1.
Varin skot: Birkir Guðmundsson
10.
Mörk HK: Óskar Elvar Óskarsson
9, Sigurður Sveinsson 6/2, Hjálmar
Vilhjálmsson 4, Sindri Sveinsson 3,
Alexander Arnarson 2, Guðjón
Hauksson 2, Jón Bersi Erlingsen 1,
Már Þórarinsson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannsson
15.
Brottvísanir: Víkingur 6 mín. HK
8 min.
Dómarar: Stefán Amaldsson og
Rögnvald Erlingsson, mjög góðir.
Áhorfendur: 130.
Maður leiksins: Óskar Elvar
Óskarsson, HK.
um og skoraði mörk í öllum regn-
bogans litum. Bindindismaðurinn
Magnús þekkti formúluna að Sig-
mari Þresti í marki ÍBV, sem reynd-
ar varði ekki skot fyrstu
10 mínútumar. Og þá er
ekki von á góðu hjá læri-
sveinum Þorbergs.
Framarar höfðu leikinn i
hendi sér frá upphafi til
enda. Vamarmúrinn var
svo öflugur að flugskeyti
frá Saddam Hussein
hefði ekki komið gati á
hann. Samvinna Magnús-
ar og Olegs Titovs í sókn-
inni er rómuð og þeir
vora illviðráðanlegar.
Daði Hafþórsson, með sinn ég er
lentur stíl, var einnig öflugur.
Framarar era að komast á gott
skrið og verða án efa í toppslagnum
í vetur. Hins vegar verða Eyjamenn
að hugsa sinn gang. -ÞoGu
ÍBV (12) 27
Fram (16) 32
0-1, 3-3, 4-4, 5-7, 6-9, 8-11, 10-14,
12-16; 12-17,14-19,16-21,18-24,20-27,
22-29, 26-29, 26-32, 27-32.
Mörk ÍBV: Robert Pauzuolis 6/1,
Zoltan Belanýi 5/3, Sigurður Braga-
son 4, Guöfmnur Kristmannsson 4,
Erlingur Richardsson 3, Ingólfur Jó-
hannesson 3, Hjörtur Hinriksson 1,
Emil Andersen 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 11. Reynir Páisson 1.
Mörk Fram: Magnús Amgríms-
son 7, Daði Hafþórsson 6, SigurpáU Á.
Aðalsteinsson 6/3, Njörður Ámason
5, Oleg Titov 4, Guðmundur Pálsson
3, Gunnar Berg Viktorsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson
10/1. Þór Bjömsson 2/2.
Utan vaUar: ÍBV 8 mín., Fram 14
mín.
Áhorfendur: Um 280.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson. Arfaslakir.
Maður leiksins: Magnús Am-
grimsson, Fram.
-RR
Boccia í stað
formúlu eitt
- frábær vörn Fram í Eyjum og sigur, 27-32
Oleg Titov var
sterkur að venju.
Valur (13) 23
Stjarnan (14)25
1-0, 1-1, 66, 1610, 12-12, 12-14, (1314).
13-15, 15-17, 1619, 22-24, 23-24, 23-25.
Mörk Vals: Einar Jónsson 6, Jón
Kristjánsson 5/3, Sigfús Sigurðsson 3,
Ari Allansson 2, Davíð Ölafsson 2,
Freyr Brynjarsson 2, Kári Guð-
mundsson 1, Ingi R. Jónsson 1, Theo-
dór Valsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 14.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar
Grímsson 8/4, Heiðmar Felixson 6,
Amar Pétursson 4, Hilmar Þórlinds-
son 3/1, Magnús Agnar Magnússon 2,
Hafsteinn Hafsteinsson 2.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 8.
Brottvlsanir: Valur 6 mín, Stjam-
an 14 mín.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og
Guðjón L. Sigurðsson, hafa átt betri
leik.
Áhorfendur: Tæplega 200.
Maður leiksins: Heiðmar Felix-
son, Stjömunni. Sterkur bæði í
sókn sem vöm og smellur vel inn í
Stjömuliðið.
Ámi Gautur Arason:
„Bjartsýnn á að
gangi saman“
Ámi Gautur Arason, markvörður
Stjörnunnar í knattspyrnu, dvaldi
um vikuskeið hjá norska liðinu Ros-
enborg fyrir
skemmstu. Nú standa
yfir viðræður á milli
aðila og sagðist Ámi
Gautur vera bjart-
sýnn á að um semdist
en það skýrðist á
næstu dögum.
„Það er ekkert öraggt fýrr en skrif-
að hefur verið undir. Það standa yfir
viðræður og ég er bjartsýnn. Þetta er
virkilega spennandi dæmi enda hef-
ur Rosenborg mjög sterku liði á að
skipa,“ sagði Ámi Gautur í samtali
við DV í gærkvöldi.
-JKS
Knattspyma:
Andri Sigþórs
hjá Zwickau
Andri Sigþórsson, knattspyrnu-
maður úr KR, hélt í gær áleiðis til
þýska 2. deildar liðs-
ins Zwickau. Andri
mun skoða aðstæður
hjá liðinu og æfa með
því í nokkra daga.
Zwickau, sem kemur
frá austurhluta
Þýskalands, hefúr
vegnað illa það sem af er keppnis-
timabilinu og er í neðsta sæti deild-
arinnar. Liðið hefur einungis hlotið
sjö stig og vantar tilfinnanlega
markaskorara.
Andri fór til Þýskalands fyrir
nokkra og hugðist æfa með Stuttgart.
Það fór fyrir ofan garð og neðan.j^g
Pétur Marteinsson á leið til Middlesbrough?
Stóð sig vel
Pétur H. Marteinsson átti góðan
leik með varaliði enska knatt-
spymufélagsins Middlesbrough í
fymakvöld. Það góðan að forráða-
menn Boro vOja ólmir sjá hann í
öörum slíkum á mánudaginn, gegn
Leicester.
Middlesbrough sigraði Notts
County, 4-2, í keppni varaliðanna.
Pétur lék sem miðvörður og fékk
góða dóma í blaðinu Evening
Gazette News i gærkvöld.
Gordon McQueen, fyrrum lands-
liðsmaður Skota, sem nú er þjálfari
Middlesbrough, sagði í viðtali viö
blaðið: „Strákurinn stóð sig vel en
það er ekki hægt að taka ákvörðun
eftir einn leik. Við verðum endi-
lega að fá hann í leikinn við
Leicester."
Hammarby, lið Péturs í Svíþjóð,
gaf Middlesbrough leyfi til að nota
Pétur í þessum eina leik en nú
verður óskað eftir því við Svíana
að hann fái að spila gegn Leicester.
Pétur á að hitta Bryan Robson,
framkvæmdastjóra Middlesbrough
í dag.
Ekki búinn aö semja
Frá Svíþjóð bárust reyndar þær
fréttir í gærkvöld að Pétur væri
þegar búinn að semja við Boro en
DV fékk staðfest að svo væri ekki.
Hann hefur gert nýjan samning við
Hammarby en hefur svigrúm til
næstu mánaðamóta til að breyta
til.
-VS
Karim Yala stekkur upp fyrir framan vörn Haukanna og er ekki sýnd nein miskunn eins og myndin ber með sér.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Blaitd i pokci
Sádi Arabía tryggði sér I gær sæti I
lokakeppni HMi knattspymu með
1-0 sigri á Qatar.
Tveir nýliöar, Dieter Hamann frá
Bayem og Thomas Linke írá Schalke
hafa veriö valdir í landsliðshóp Þjó6
verja í knattspymu. Þeir mæta Su6
ur-Afriku í vináttuleik á laugardag.
Gary Neville, bakvörður Manchester
United, leikur ekki með enska lands-
liðinu gegn Kamerún nk. laugardag
vegna meiðsla á hásin.
Cesar Menotti lét af störfum sem
framkvæmdastjóri Sampdoria eftir
aðeins fimm mánuði í starfinu. Vuja-
din Boskov, sem þjálfaði liðið 1986-92,
er talinn llklegur arftaki Menottis.
Olympiakos beið sinn fyrsta ósigur I
meistaradeild Evrópukeppninnar í
körfubolta í Moskvu í gærkvöldi þeg-
ar liðið beið lægri hlut fyrir CSKA,
77-58.
Hamburg, lið Guðmundur Bragason-
ar, komst áfram í þýska bikamum í
körfuknattleik í gærkvöldi með því
að leggja Paderbom, 73-78, á útivelli.
Jónathan Bow og félagar í Bayeruth
komust einnig áfram, sigruðu
Limburg, 76-75, á útivelli.
-JKS
Körfubolti:
Gríski risinn
með gegn
Keflavík?
DV, Suðurnesjum:
Flest bendir til þess að gríski
körfuboltamaðurinn Konstantin
Tsarsakis leiki með Grindvík-
ingum gegn Keflavík í úrvals-
deildinni næsta fimmtudag.
Tsarsakis kom til Grindavíkur
í haust en félag hans í Grikk-
landi neitaði honum um félaga-
skipti. Nú hafa tekist samningar
um leigu á honum og leikheim-
ildin er væntanleg á næstu dög-
um.
Tsarsakis er nýorðinn 18 ára
og er 2,07 metrar á hæð. Hann er
nú í keppnisferð í Bandaríkjun-
um meö Evrópuúrvali unglinga
sem segir sitt um hæfileika
hans. Með hann innanborðs
veröa Grindvíkingar ekki
árennilegir það sem eftir er vetr-
ar en þeir hafa enn ekki tapað
leik í úrvalsdeildinni.
-ÆMK
Sá fjórði í röð
- góð fyrirheit hjá Aftureldingu, 30-23 gegn ÍR
Afturelding vann i gær sinn 4
sigur í röð er það lagði ÍR, 30-23, og
situr nú í efsta sæti eftir 8 leiki.
Liðið sýndi oft á tíðum góða takta
og gaf góð fyrirheit fyrir komandi
Evrópuleik á sunnudaginn.
Þaö sem réð mestu um gang
leiksins var hrikalegur kafli ÍR-inga
í byrjun fyrri hálfleiks. Þá léku þeir
9 sóknir án marks í röð, fengu á sig
6 hraðupphlaupsmörk og staðan
breyttist úr 1-2 fyrir ÍR í 8-2 fyrir
Aftureldingu. Hvort það var
hávaðinn sem samanstóð af dynj-
andi trommuslætti, kúabjöllum og
ærandi tónlist, er setti ÍR-liðið út af
laginu í þessum leik veit enginn en
19 tapaðir boltar hjá liðinu vora
staöreynd eftir leik.
Afturelding spilaði fasta fram-
liggjandi vöm sem oft skilaði
hraðupphlaupsmörkum sem urðu
alls 9 í leiknum. „Þetta var góður
sigur og nú vonumst við eftir fullu
húsi og áframhaldi á frábærri
stemningu á sunnudaginn," sagði
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftur-
eldingar, eftir leikinn. -ÓÓJ
Þurfum aö taka til
- Haukar og KA deildu stigum í æsispennandi viöureign
Haukar og KA, liðin sem léku til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinn á síð-
ustu leiktíð, deildu með sér stigunum
í æsispennandi leik í Hafnarfirði í
gær. Úrslitin verða að teljast sann-
gjörn en segja má þó að KA-menn hafi
verið nær sigri. Þeir vora yfir, 22-24,
þegar fjórar mínútur vora td leiksloka
en Haukamenn jöfnuðu með tveimur
mörkum á skömmum tíma og fengu
tækifæri til að komast yfir. En skot
Rúnars Sigtryggssonar hálfri mínútu
fyrir leikslok fór yfir. KA-menn tóku
í kjölfarið leikhlé og réðu ráðum sín-
um en tókst ekki að tryggja sér sigur
því Bjami Frostason varði skot Vla-
dimirs Goldins á lokasekúndum.
„Jú, þetta vora kannski sanngjöm
úrslit en ég er hundóhress með leik
okkcir og við þurfum svo sannarlega
að taka til hjá okkur enda að leika
langt undir getu. Mikil þyngsli voru í
sóknarleiknum, vömin var í lagi og
markvarslan ágæt en ég er bara
svekktur yfir okkar frammistöðu,"
sagði Gústaf Bjarnason, fyrirliði
Hauka, við DV eftir leikinn.
Haukamir hafa ekki náð að sýna
sitt rétta andlit í upphafi móts og era
langt frá því að vera eins sterkir og í
fyrra þrátt fyrir að vera með sama
mannskap. Sóknarleikurinn var mjög
ráðleysilegur og lítil ógnun í leik liðs-
ins. Aron Kristjánsson, Rúnar Sig-
tryggsson og Halldór Ingólfsson fundu
sig engan vegin og Gústaf Bjamason
var í mjög strangri gæslu á línunni.
Þorkell Magnússon var langsprækasti
leikmaður Hauka i sókninni og Magn-
ús Sigmundsson stóð vel fyrir sínu i
markinu.
Það er ekki hægt annað en að hrósa
KA-mönnum fyrir góða baráttu, Þeir
léku án þriggja sterkra leikmanna og
misstu Sverri Bjömsson, mikilvægan
hlekk í vöminni, út af með rautt
spjald þegar 17 mínútur vora eftir.
Sigtryggur Albertsson átti enn einn
stórleikinn á milli stanganna hjá KA,
leikstjómandinn ungi, Halldór Sigfús-
son, lék vel og sömuleiðis Jóhann G.
Jóhannsson. Rússinn Vladimir Gold-
in virkaði nokkuð þungur og var
fullragur viö að skjóta á markið og
það hlýtur að búa meira í þessum leik-
manni en hann sýndi í gær. Karim
Yala byrjaði nokkuð vel en eftir 10
mínútna leik var allt púður úr honum.
„Maður getur kannski ekki verið ann-
að en ánægður með að ná í þetta stig
miðað við allt sem á undan er gengið
og að þetta var leikur á milli Evrópu-
leikja sem era alltaf erfiöir. Ég var
samt svekktur að við skyldum ekki
hafa þetta því staðan var vænleg fyr-
ir okkur undir lokin,“ sagði hinn
stórefnilegi Halldór Sigfússon.
-GH
Haukar (11) 24
KA (12) 24
1-0, 2-4, 4-6, 5-8, 9-8,10-11, (11-12),
14-12,15-15,17-15,18-19,22-24, 24-24.
Mörk Hauka: Þorkell Magnússon
5, Sigurðiu- Þórðarson 4, Petr
Baumruk 3, Rúnar Sigtryggsson 3,
Gústaf Bjamason 3/1, Aron Kristjáns-
son 3, Daði Pálsson 1, Halldór Ing-
ólfsson 1, Jón Freyr Egilsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
16/1, Bjarni Frostason 4/1.
Mörk KA: Halldór Sigfússon 6/1,
Jóhann G. Jóhannsson 5, Vladimir
Goldin 5, Sævar Ámason 3, Sverrir
Bjömsson 2, Karim Yala 2, Kári Jóns-
son 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
20/2.
Brottvísanir: Haukar 2 mín., KA 8
mín. (Sverrir Bjömsson fékk rautt
þegar 17 min. vom eftir). Dómarar:
Egill Már Markússon og Lárus H.
Lámsson, sluppu fyrir hom.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Sigtryggur Al-
bertsson, KA.
Aftureld. (14)30
IR (9) 23
1-0, 1-2, 8-2, 9-4, 12-6, 13-8, (14-9), 159,
1511, 16-12, 1615, 2616, 2620, 3623.
Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfs-
son 8/2, Einar Einarsson 5, Sigurður
Sveinsson 4, Skúli Gunnsteinsson 4,
Jason Ólafsson 3, Branislav Dimitri-
jevic 2, Þorkell Guöbrandsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 15/1
Mörk ÍR: Ragnar Óskarsson 9/2,
Frosti Guðlaugsson 4, Erlendur Stef-
ánsson 3, Jens Gunnarsson 2, Ólafur
Sigurjónsson 2/1, Bjartur Sigurðsson
1, Ólafur Gylfason 1, Brynjar Stein-
arsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 1,
Baldur Jónsson 14/1.
Brottvlsanir: Afturelding 16 mín.,
ÍR 10 min.
Dómarar: Hlynur Leifsson og Ant-
on Pálsson. Vom í lagi en flautuðu
oft of fljótt.
Áhorfendur: 400. Mikill hávaði.
Maöur leiksins: Páll Þórólfsson
Aftureldingu.
Þýski handboltinn:
Ólafur og Róbert
atkvæöamiklir
Öll Islendingaliðin í þýska hand-
boltanum töpuðu leikjum sínum í
gærkvöldi. Wuppertal tapaði á úti-
velli fyrir Wallau Massenheim,
20-16, en í hálfleik hafði Wuppertal
forystu, 8-10. Ólafur Stefánsson var
markahæstur í liði Wuppertal með
7 mörk. Geir Sveinsson gerði 2
mörk og Dagur Sigurðsson eitt.
Róbert Sighvatsson var marka-
hæstur hjá Bayer Dormagen með
fimm mörk en liðið lá fyrir Flens-
burg á heimavelli, 23-29.
Essen tapaði fyrir Grosswald-
stadt, 28-19, og skoraði Patrekur
Jóhannesson eitt mark fyrir Essen.
Önnur úrslit. Lemgo-Magdeburg,
22-21, Rheinhausen-Minden, 28-28,
Eisenach-Niederwúrsbach, 20-28,
Nettelstedt-Hameln, 34-26.
-JKS
Bland í poka
Real Madrid sigraði Compostela,
2-3, í spænska boltanum í gærkvöldi.
Real hefur 24 stig ásamt Celta Vigo
sem sigraði Mallorca, 1-0. Barcelona
er efst með 25 stig en leikur gegn
Ahletic Bilbao í kvöld.
Frakkar unnu Skota, 2-1, í vináttu-
landsleik í knattspymu i St. Etienne.
Pierre Laigle og Youri Djorkaeff skor-
uðu fyrir Frakka en Gordon Duire
mark Skota.
Ajax er enn ósigrað í hollensku
deildinni. í gærkvöldi sigraði Ajax liö
Twente, 1-0.
Bjarki Sigurösson og félagar í
Drammen unnu Kragerö, 30-29, í
norsku úrvalsdeildinni í handbolta i
gærkvöld.
Runar, sem mætir Aftureldingu á
sunnudag, vann nauman sigur á
Hercules, liði Hrafnkels Halldórsson-
ar, 32-30.
Bad Schwartau, sem Sigiu-ður
Bjamason leikur með, tapaði fyrir
Nordhom, 28-19, i 2. deild þýska
handboltans í gærkvöldi. Liðið held-
ur áfram efsta sætinu með 20 stig því
helsti keppinautur þess, Duderstadt,
tapaöi fyrir Flensburg-Handewitt.
-JKS/VS
I*
I. DEILD KARLA
Afturelding 8 7 0 1 216-190 14
FH 8 6 1 1 232-194 13
KA 8 5 1 2 236-204 11
Haukar 8 4 2 2 224-208 10
Stjaman 8 5 0 3 226-210 10
Valur 8 4 1 3 181-180 9
Fram 8 4 0 4 215-213 8
ÍBV 8 3 1 4 231-233 7
HK 8 3 0 5 205-204 6
ÍR 8 3 0 5 202-212 6
Vikingur 8 1 0 7 193-220 2
Breiðablik 8 0 0 8 186-248 0
Valgarö Thoroddsen lék ekki með
Valsmönnum 1 gærkvöldi gegn
Stjömunni. Þetta var annar leikur-
inn í röð sem Valgarð missir af vegna
ökklameiðsla og ekki er von á honum
aftur alveg á næstunni.
Sœþór Ólafsson lék ekki með Stjöm-
unni í gærkvöldi vegna prófa í skól-
anum.
Stjörnumenn hófu síðari hálfleikinn
gegn Val tveimur mönnum færri en
náöu engu að síður að skora fyrsta
mark hálfleiksins.
Stjarnan hefur nú unnið fjóra leiki i
röð og elstu menn í Garðabæ muna
ekki annaö eins.
Ragnar Óskarsson, leikstjómand-
inn efnilegi hjá ÍR, hefur nú skorað
36 mörk I sföustu þremur leikjum
Breiðhyltinga.
Alsírbúinn Karim Yala slapp með
skrekkinn snemma í fyrri hálfleik
þegar hann þrumaði knettinum í
andlit Magnúsar Sigmundssonar,
markvarðar Hauka.
-GH/ÖB