Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 27 I>V Ráðgátu-Duchovny leysir frá skjóðunni: Einn koss yfir borðið og glaumgosinn bráðnaði David Duchovny þurfti ekki nema einn koss yfir borðið. Þar með bráðnaði hjarta hans endanlega og hann dreif kærustuna upp að altar- inu með fyrstu ferð. Piltur leikur aðalspæjarann í Ráðgátuþáttum sjónvarpsins, eins og kunnugt er, og var til skamms tima eftirsóttasti piparsveinninn í Hollywood. Og þótt víðar væri leit- að. Sú tíð er hins vegar liðin því David gekk í hjónaband með henni Teu Leoni fyrir ekki mjög löngu. Hún er lika leikkona, leikur í þátta- röðinni Nakinn sannleikur. Þau David og Tea höfðu ræðst við í síma um þriggja vikna skeið þegar þau ákváðu að tími væri nú kominn til að hittast. David flaug frá Vancouver, þar sem hann var við upptökur á Ráðgátum, til Los Angel- es þar sem Tea sótti hann á hótelið. „Við höfðum ekkert sést svo það var ekki laust við að ég væri dálítið smeykur við aö fara út með henni,“ segir David í viðtali við breskt æsifréttablað. „Við fórum á veit- ingastað og voru búin að sitja þar í tíu mínútur þegar hún sagði: „Heyrðu, það er enginn að horfa á okkur, mig langar til að kyssa þig núna strax.“ Eftir kossinn þann vor- um við Tea öllu afslappaðri," segir leikarinn. Aðeins íjórum mánuðum eftir kossinn voru þau orðin hjón. Þau David og Tea höfðu reyndar hist fyrir sex árum en ekki fór vel á með þeim þá. Þau áttu að koma fram saman í viðtalsþætti í sjón- varpi. Þau borðuðu saman hádegis- verð og er skemmst frá því að segja að hún samkjaftaði ekki. „Ég kom ekki að einu orði,“ segir David. Engu að síður var löngunin til að hittast alltaf fyrir hendi og þau létu sem sé verða af því. Tea tal- ar hins vegar alltaf jafn mikið. Sviðsljós Brando í síðasta hlutverkinu Kvikmyndaleikarinn Marlon Brando er búinn að velja sér síð- asta hlutverk- ið sitt, að því er hann segir sjálfur frá. Hlutverkið verður í kvik- mynd sem byggð er á bók nóbelsverð- launahöfund- arins Gabriels Garcia Marquez, Haust patríarkans. Að því er spænska blaðið E1 Periodico greinir frá varð % Brando mjög hrifrnn af handrit- inu og hitti höfundinn nýlega I París. Marquez á að hafa komið til móts við ósk Brandos um leik í myndinni. riii 2000 40++**■**- J Einn öflugasti smáauglýsingavefur á Norðurlöndum wwW.dv.is/smaauglysingar 2* TEIKNISAMKEPPNI LEITIN A£> JÓLAKORTI DV DV efnirtil teiknisamkeppni meðal krakka á grunnskólaatóri. Viðfangsefnið er jólakort DV oq þurfa ínnsendar myndir Ipví að vera í lít oq tengjaðt jóiunum. V'inningsmyndin verður notuð sem jólakort DV 1997. Glassileg verðlaun í boðí fyrir jólakort DV: 14.900 FYR5TU VEROLAUN: Skautadrottningin Katarina Witt stillti sér fallega upp fyrir Ijósmyndara þegar hún kom á frumsýningu myndarinnar The Jackal í Beverly Hills. í myndinni leikur Bruce Willis morðingja sem leigöur hefur verið til að fjarlægja einn af æöstu ráðamönnum Bandaríkjanna. Símamynd Reuter Kim Basinger var það Þau meinlegu mistök urðu á sviðsljóssíðunni á þriðjudag að ruglast var á leikkonunum Kim Basinger og Michelle Pfeiflfer í grein um hvemig leikkonur hafi grætt á því að leika hórur í kvikmyndum. Það er að sjálfsögðu Basinger sem leikur í myndinni L.A. Confidential. Lesendur og aðrir hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingcir á mistökunum. ÞRIOJU VERÐLAUN: CÖPIOMEER' Pioneer-heyrnatól — mjög vönduð, Hylja allt eyrað. PaeqWeq með úrvais hljómburði. Skilafrestur er til laugardagsins 20. nóvember nk. Utanáekrift er: Krakkaklúbbur DV, ^verholti 11,105 Peykjavík. llyj UrMSSQN HF Merkt: DV-jólakort Teiknisamkeppni **kv**&> 4.900 Ferðataski m/geislaspilara 2ja diska spilari, X- Bass kasetta, útvarp - FM,MW oq LW. ÖNNUR VEROLAUN: Vasadiskó m/útvarpi Utvarp: FM, MW, segulband X-bass, 3ja blöndu tónjafnari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.