Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 Spurrungin Fylgistu með sjónvarpsút- sendingum frá Alþingi? Ása Lára Þórisdóttir þjónn: Það geri ég cildrei. Ég er algerlega hlut- laus þegar kemur að pólitík. Jóhanna Viggósdóttir sjúkra- nuddari: Nei, ég hef ekki komist til þess. Almar Halldórsson kennari: Það er mjög sjaldgæft en það kemur fyr- ir. Silja Hrund Bjarkardóttir há- skólanemi: Ég horfi öðru hverju á þessar útsendingar. Haukur Júliusson sendibílstjóri: Nei, aldrei. Ég hef lítinn áhuga á pólitík. Anna Kristín Magnúsdóttir margmiðlari: Nei, ég hef engan áhuga á því. Lesendur Boðskapur Þór- bergs og Laxness - eitraöi margan mannshugann Rithöfundarnir „meistari" Þórbergur (Þórðarson) og Halldór Laxness. - Skiluðu sínu hlut- verki í íslensku samfélagi, segir í bréfinu. Gunnar Guð- mundsson skrifar: Ekki er minnsti vafi á því að sá boð- skapur sem þeirvrit- höfundamir Hall- dór Laxness og Þór- bergur Þórðarson létu ganga til lands- manna á fyrri hluta þessarar aldar hef- ur skilað sér til margra hér á landi. Þessir heiðursmenn (við skulum nefna þá svo), þótt ekki verði þeim heiður tryggður af sinni trú á kommún- ismann, skiluðu þeir sínu „hlut- verki“ í íslensku samfélagi. Þeir sáu ekkert athugavert við það, að hundruð þúsunda mannslífa færu forgörðum í Sovétríkjunum. En þeir voru ekki þeir einu. Hver sagði ekki í bænum sín- um: Sovét-ísland, óskalandið, hvenær kemur þú? Mér kom þetta í hug þegar ég horfði á sjónvarpsfréttir frá Rúss- landi og gamlir kommúnistar fetuðu sig áfram á Moskvugötum með „rauðan skúf í hendi“ eða annað ámóta, í tilefni byltingarinnar. Bylt- ingar sem rak á fjömr íslands sem víðar, þar sem fáfræðin var í önd- vegi. Því var auðvelt að klappa stein- inn. í áðumefndum fréttatíma var við- mælandi íslenskur spurður hvers vegna hann hefði gerst kommúnisti. Svarið var, að það hefði verið fyrir tilstiili Laxness og Þórbergs. Menn þóttust hafa spámenn í heimahögum. - Það var misskilningur, hrapalleg- ur, langvinnur misskilningur. Enn í dag eru þeir sem ættu að vita betur að hælast um af kynnum sínum við „meistarana". „Meistari Þórbergm-", segir t.d. annar af aðal- ritstjórum Morgunblaðsins. Meistari hvað? spyr ég á móti. Fyrir að standa á öðrum fæti? Eða fyrir að sprikla nakinn í fjörunni við Granda? Lengi má manninn reyna. Eða Halldór Laxness? Hefði hann fengið Nóbílinn án tilstilli sérstakra aðdáenda í Svíþjóð? Jú, jú, það má öllu nafn gefa. En þetta er liðin tíð. Berlínarmúrinn er fallinn og Rússar lifa nýja tíma undir nýjum hernnn sem vilja allt annað vita en fortíðina. Hún var Rússum voðaleg. Nú vill enginn Lilju kommúnismans kveðið hafa. Allir segja þeir „Ekki ég“. Hvemig geta Alþýðuflokksmenn og yngri Alþýðubandalagsmenn gengið í eina sæng með gömlu kommúnistunum, sem horfðu upp á það hlæjandi að fólk var lokað inni í löndum eins og Austur-Þýskalandi, og öðrum austantjaldsríkjum? Og var skotið í bakið ef það haföi kjark til að flýja? En hlátur íslenskra kommúnista var afrakstur boðskaps þeirra „meistaranna", Þórbergs, Laxness, Kötluskáldsins og enn fleiri draum- sóleyja alþjóðakommúnismans. Þeir myndu einskis irðast þótt þeir væm meðal okkar í dag. Ekki fremur en þeir sem núna leggja ofurkapp á að hindra sameiningu eftirlifandi vinstri manna í eina kös undir merki jafnaðarmanna. Bón mín er: Dæmið ekki Hólmfrlður Óskarsdóttir skrifar: Þegar slys verða rýkur ólíklegasta fólk upp og vill dæma. - Dæma þann sem lifði slysið af. Dæma án þess að þekkja aðstæður. Svo virðist fariö um K.S. sem skrifaði í DV 14. okt sl. vegna hörmulegs umferðarslyss. Vissulega er sorg okkar sem miss- um ástvini af slysfórum sár, en hat- ur getur aldrei sefað sorgina. Það getur fyrirgefningin ein. Hatur getur heldur ekki verið gott veganesti fyr- ir þann sem farinn er. Þaö eru að- eins góðar hugsanir sem styðja þá sem farnir eru fram á veginn í nýrri tilveru, þar sem dóttir mín lifír nú. Greinilegt er að K.S. hefúr aldrei kynnst því hvað það er að sjá bam hlaupa fyrir bíl og geta ekkert að gert, en sjá barnið svo sleppa. Það er hamingja. Gleðin sem fyllir hjarta manns er engu lík, nema þvi að sjá nýtt líf draga andann í fyrsta sinn. Hvemig er þá sorg þess sem horfði á bamið verða fyrir bílnum? Hún hlýtur að vera skelfileg. Mennimir álykta en Guð ræður. Öllum er skammtaöur tími hér í heimi. Sumum langur, öðrum skammur. Svo var um dótfrir mína, hennar tími var skammur. Frá unga aldri vissi hún það og sætti sig við það. Hennar hlutverk var að búa okkur sem eftir eram undir áfallið, kenna foreldrum, systkinum og bömum að meta lífið og þakka fyrir það góða, en sætta okkur við hitt. Ef við lítum aðeins kringum okk- ur, er þetta þá ekki svo með flesta þá sem ungir eru kallaðir héðan úr heimi? Era þeir ekki sendir til að bæta mannfólkið hér á jörð? Era þeir ekki kcillaðir heim þegar þeirra hlutverki er lokið? Það er bón mín að fólk dæmi ekki. - Að minnsta kosti ekki án þess'að þekkja allar aðstæður og hafa reynt þær sjálft. Glæpsamlegt athæfi Ragnar skrifar: Það hefur færst í vöxt að óaldar- lýður eyöileggi húseignir, handrið og hvað annað sem þeir fara fram hjá með því að krota eða sprauta lit- arefni á þessi mannvirki. Hér er um glæpsamlegt athæfi að ræða og ætti fólk að taka sig saman um að láta lögregluna vita ef íbúar verða ekki sjálfir varir við óskundann. Víða eru húsveggir illa famir og nánast óbætanlegir. Þannig sá ég hið fallega hús, Hallveigarstaði, á homi Túngötu og Garðastrætis og svo handrið þýska sendiráðsins rétt hjá. Ég bendi DV á að taka mynd af skemmdunum til birtingar. - Málið er oröið alvarlegt víða í borginni. Neðri hluti Hallveigarstaða og innfelld mynd af gangstéttarhandriði þýska sendiráðsins við Túngötu. i kjólfötum og strigaskóm - á sinfóníutónleikum Hermann skrifar: Er það ekki hálfhjákátlegt að skikka hljóðfæraleikara Sinfón- iuhljómsveitarinnar til að mæta prúðbúna til leiks, karlar í kjól- fotum og konur í svörtum kjól- um, á meðan áheyrendur geta komið á tónleikana nánast klæddir tötrum. Algengt er að sjá áheyrendur á gallabuxum og strigaskóm, sem er auðvitað til skammar, mest þeim sjálfum. Sinfóníutónleikar er menningar- viðburður hvenær sem tónleikar em haldnir og það er við hæfi að tónleikagestir sýni af sér þann manndóm og virðingu gagnvart listinni og listamönnunum að mæta sæmilega upp færðir. Er hann glæpa- maður? Friðrik hringdi: Mér var brugðið þegar ég barði hið annars ágæta DV aug- um í gær (mánudag). Þar gaf að líta forsíðumynd af Júlíusi Haf- stein, fyrrv. borgarfulltrúa og formanni Ólympíunefndar ís- lands, undir yfirskriftinni „Siö- leysi". Ég gagnrýni ekki umfjöll- un blaðsins af meðferð fjármuna, vanskilum á greiðslum og annað í þeim dúr sem fjallað var um á bls. 27. En forsíöumynd!! Er ekki vani að bíða með myndbirtingu þar til dómur hefúr gengið, ef um sakamál er að ræða? Mynd- birting af óbótamönnum og árás- armönnum á saklaust fólk er hins vegar mjög æskileg og mætti vera regla. Minni herbergi - lægra verð Geir skrifar: Ég er fyllilega sammála Jóni Ragnarssyni veitingamanni sem svarar ummælum í DV sl. mánu- dag um þann valkost að bjóða annan og meiri valkost i hót- elgistingu en hingað til hefur þekkst hér á landi. Það er hár- rétt að það eru nýir tímar í hót- elrekstri sem öðrum greinum. í Evrópu, t.d. í Frakklandi, má nú kaupa gistingu i svokölluðum mini-herbergjum þar sem öllu er haganlega fyrir komið í litlu her- bergi og meira aö segja baði, þar sem maður dvelur blánóttina og borgar samkvæmt því. Minni herbergi - lægra verð hjá sér í Lykil hótel Cabin, eins og Jón orðar það réttilega. Jón er einn helsti ffumkvöðull í hótel- og veitingarekstri hér á landi og hefur sýnt dugnað og kjark eins og hann á kyn til. Kveðja til Sig. Lárussonar - kysst á vöndinn Jóhann Guðmundsson hringdi: Ég vitna í lesendabréf frá Sig- urði Lárussyni í DV 10. nóv. sl. undir fyrirsögninni „Miskunnar- leysi og mannorðsspjöll". - Ég hélt svo sannarlega að íslending- ar væm hættir að kyssa á vönd- inn. Og þá allra síst á vendi Steingríms seðlabankastjóra og Ólafs biskups eins og þeir hafa þó vissulega gefið tilefni til. Fyrirframum- ræða betri Bjarni Valdimarsson skrifar: Eftir frétt og mynd í DV 5. nóv. sl. geta Almannavamir og ráðamenn á Vestfjörðum ekki sagt að berghlaup úr Óshymu kæmi á óvart. Umhverfismat er í tísku. Mæla þarf rúmtak berg- fyllunnar, fallhorn og áhrif falls hennar á sjóinn og umhverfið. Fyrirframumræða er betri en þögn, ásakanir og málaferli eftir ár. - Önnur frétt um að fjárfest- ar séu að kaupa Vestfirði er einkar jákvætt framlag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.