Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 6
6
lönd
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
stuttar fréttir
ETA sprengir
Skæruliðar ETA á Spáni skutu
til bana lífvörð stjórnmálamanns
og sprengdu bílasprengju í San
Sebastian í gær. Um var að ræða
hefndaraðgerð vegna handtöku
leiðtoga stjórnmálavængs ETA.
Jeltsín bjargar
Rússneskir þingmenn risu á
fætur í gær þegar forseti þeirra,
Borís Jeltsín, æddi brosandi inn í
neðri deild
þingsins í gær
til að bjarga
fjárlagafrum-
varpinu undan
árás kommún-
'ista. Jeltsín
sagði allan
heiminn fylgjast
með umræðunni vegna óróa á
íjármálamörkuðum. Nokkrum
mínútum seinna samþykkti neðri
deildin fjárlagafrumvarpiö en
kommúnistar höfðu hótað að
greiða atkvæði gegn því.
Bohta fær frest
Fyrrverandi forseti stjórnar
hvítra í S-Afríku, P.W. Botha, fær
tveggja vikna frest til að bera
vitni fyrir Sannleiks- og sátta-
nefnd landsins um mannréttinda-
brot.
Selja ekki olíu
írakar tilkynntu í gær að þeir
hygðust ekki flytja út olíu fyrr en
hætt yrði að tefja matvæla- og
lyfjasendingar til þeirra.
7 ára skaut 2 ára
Sjö ára drengur í Pennsylvaníu
í Bandaríkjunum fann lykil að
vopnaskáp foreldra sinna. Hann
tók fram byssu og miðaði á
tveggja ára stúlku í gæslu for-
eldra hans með þeim afleiöingum
að hún beið bana.
Hafna tóbaki
I kjölfar fundar með A1 Gore,
varaforseta Bandaríkjanna, ætlar
skemmtanaiðnaðurinn í
Hollywood að beita sér gegn tó-
baksreykingum í kvikmyndum
og í sjónvarpi.
Skuldar skatta
ítalska fjármálaráðuneytiö til-
kynnti í gær að stórsöngvarinn
Luciano Pavarotti, sem er einn
hæst launaði
tónlistarmaður
heims, hefði
ekki greitt
skatta af tekjum
upp á rúmlega
400 milljónir
króna. Um er að
ræða tekjur fyr-
ir tónleika utan Ítalíu á árunum
1989 til 1991 sem fullyrt er að
söngvarinn hafi ekki talið fram.
Pavarotti lætur sér fátt um finn-
ast.
Beit barn til bana
Rottweilerhundur stökk upp og
beit til bana nýfætt hollenskt
bam sem var í fangi móður
sinnar er sat í sófa. Reuter
Launamunur milli kynja:
Eykst í Danmörku
Munur á launum karla og kvenna
í sams konar vinnu fer vaxandi í
Danmörku. Stéttarfélag skrifstofu-
fólks í iðnaðinum hefur borið sam-
an laun félagsmanna sinna. í félag-
inu em alls um 50 þúsund manns og
athugun á launum um 35% hópsins
sýna svo ekki verður um villst að
laun karla hafa fariö fram úr laun-
um kvenna um 0,8% á einu ári.
í maímánuði 1996 vom meðallaun
kvennanna 17.676 d.kr á mánuöi, en
laun karlanna í félaginu hins vegar
18.990 d.kr. Laun karlanna vom
þannig 7,4% hærri þá.
í maímánuði á þessu ári vom með-
allaun kvennanna 18.034 d.kr. á mán-
uði en meðallaun karlanna orðin
19.515 d.kr. á mánuði og munurinn
þá 8,2%. Stéttarfélag skrifstofufólks í
iönaði, HK/Industri, ætlar aö taka á
þessu máli og em aðgerðir fyrirhug-
aöar með vorinu. Tilgangur þeirra er
að jafna út þennan mun. -SÁ
Ríkissaksóknari biður um endurupptöku Palmemálsins:
Eftir aö Pettersson var sýknaður hefur hann oft veriö kæröur fyrir ofbeldi.
í gögnum ríkissaksóknara Sví-
þjóðar, sem í gær lagði fram beiðni
um endumpptöku Palmemálsins
gegn Christer Pettersson, em til-
greind fjögur ný vitni sem segjast
hafa séð Pettersson við Sveavagen í
Stokkhólmi um það leyti sem Olof
Palme, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar, var myrtur. Palme
var skotinn til bana á Sveavágen 28.
febrúar 1986 er hann var að koma
úr bíói ásamt Lisbet konu sinni.
Hún benti á Pettersson sem morð-
ingjann.
Pettersson var dæmdur fyrir
morðið í undirrétti 1989 en síðan
sýknaður í hæstarétti. Búist er við
að ákvörðun um hvort réttarhöld
fari fram á ný verði tekin eftir 3 til
4 mánuði.
Eitt nýju vitnanna kveðst hafa
séð Pettersson við bíóið sem Palme
fór í klukkan 21 morðkvöldið. Ann-
að vitni sá Pettersson einnig við
bíóið og fyrir utan verslun skammt
frá morðstaðnum. Bæði vitnin
þekkja Pettersson vel og þess vegna
þykir ljóst að það var hann sem þau
sáu. Þriðja vitniö kom akandi eftir
Sveavágen á milli 23 og 24 morð-
kvöldið og sá Pettersson hlaupa út á
götuna fram fyrir bílinn með byssu
í hendinni. Fjóröa vitniö á að hafa
séð Pettersson hlaupa eftir nærliggj-
andi götu.
Það hversu vitnin gáfu sig seint
fram þykir veikja framburð þeirra.
Sum útskýrðu seinaganginn með
því að þau hefðu verið hrædd þegar
orðrómur var á kreiki um að
hryðjuverkasamtök væru á bak við
morðið. Önnur báru við persónuleg-
um ástæðum sem hefðu breyst frá
því að morðið var framið.
I gögnum ríkissaksóknara eru
einnig tilgreind tvö vitni sem eru
látin. Annað er Lasse Tingström
sem fékk viðurnefnið sprengjumað-
urinn eftir að hafa verið dæmdur
fyrir tvær sprengjuárásir. Rétt fyrir
andlát sitt sagði Tingström lög-
manni sínum, Pelle Svensson, að
Pettersson hefði starfað með sér.
Tingström bað um aö ekki yrði
greint frá þessu fyrr en 10 árum eft-
ir morðið. Tingström kvaðst hafa
lagt á ráðin um morðið úr fangels-
inu til að hefna sín á þjóðfélagi sem
hann hataði. Auk Petterssons hefðu
tveir aðrir verið með í ráðum. Fjór-
menningarnir ætluðu fyrst og
fremst að myrða Karl Gústaf kon-
ung. Það hefði verið tilviljun að
Palme var myrtur á undan.
Spilavítiseigandinn Sigge
Cedergren sagði á dánarbeði sínum
að hann heföi afhent Pettersson
byssu skömmu fyrir morðið á
Palme. Sjálfur kvaðst Pettersson
hafa verið á heimleið frá því að
reyna að kaupa amfetamín þegar
Palme var myrtur.
Kona datt
ofan úr himin-
geimnum
Lögreglan í Orlando á Flór-
ida hefur enn enga skýringu á
því hvaðan konan kom sem datt
ofan úr himingeimnum síðast-
liðinn þriðjudag. íbúar í fjölbýl-
ishúsi í Orlando heyrðu þá allt
i einu mikinn skell. Þegar þeir
litu út um gluggann sáu þeir
Isvartklædda konu með sitt
svart hár. Líkami konunnar
var svo illa brotinn að augljóst
þótti að hún hefði fallið úr mik-
illi hæð. Enginn veit hins vegar
hvaðan.
Lögregluna grunar að konan
hafi stokkið úr flugvél eða ver-
ið fleygt út úr flugvél. Ekki er
talið útilokað að konan hafi
reynt að fara um borð í flugvél
sem laumufarþegi og síðan dott-
ið eftir að misst takiö. Reyndar
er 20 hæða hátt fjölbýlishús í
grenndinni en hin látna lá það
langt frá húsinu að hún hefur
ekki getað fallið út um glugga á
því eða ofan af þaki þess.
Svipaðir atburðir hafa gerst
áður. í maí í fyrra fannst illa út-
leikið lík I Miami. Hinn látni
hafði misst takið á hjóli far-
þegaflugvélar. í sömu viku fann
lögreglan í New York lík ann-
ars laumufarþega sem hafði
hrapað í sjóinn.
Kýr sökkti bát
í mars á þessu ári sökk jap-
anskur fiskibátur eftir að kýr
Ihafði hrapað á hann. Talið var
að skipverjar, sem var bjargað,
væru að Ijúga og að um trygg-
ingasvindl væri að ræða. Viku
seinna kom sannleikurinn í
ljós. Flugliðar rússneskrar
flutningavélar höfðu tekið með
sér kú sem þeir sáu á beit við
flugbraut í Austurlöndum fjær.
Kýrin var ekki ánægð og gekk
berserksgang. Flugliðar losuðu
sig því við kúna með fyrr-
greindum afleiðingum, að því
er segir í sænska blaðinu Dag-
ens Nyheter.
Dularfullar neðan-
jarðarleiðslur
Um tólf þúsund erlendir verka-
menn vinna nú við lagningu dular-
fullra leiðslna í eyðimörkinni í Lí-
býu. Þar er verið að grafa steypt
rör, sem eru 4 metrar í þvermál,
ofan í sandinn.
Yfirvöld í Libýu segja að um sé að
ræða framkvæmdir til að dreifa
vatni um eyðimörkina svo að hún
geti blómstrað í framtíöinni. Þrír
verkfræðingar, sem unnið hafa við
framkvæmdimar en þora ekki að
koma fram undir nafni, segja hina
opinberu skýringu ósennilega eða
ófullkomna. \Þá grunar að neðan-
jarðarleiðslumar og vatnsgeymam-
ir, sem verið er að smíða að mestu
með amerískum tækjum, eigi að
þjóna leynilegum hernaðarlegum
tilgangi, að þvi er fram kemur í
Intemational Herald Tribune.
Leiðslumar eru svo stórar að her-
bílar geta auðveldlega ekið um þær.
Þær eru meira að segja nógu breið-
ar fyrir járnbrautarteina. Verka-
mennimir eiga að leggja 3.200 kíló-
metra af leiðslum og munu þær ná
frá Túnis til Egyptalands. Til suö-
urs munu þær næstum ná til Súd-
ans og Tsjads.
Risastórar geymslur em reistar
með 80 til 100 kílómetra millibili við
leiðslurnar. Verkfræðingarnir segja
að geymslumar séu margbrotnari
en nauðsyn þykir til að geyma
vatn.
Með slíku leiðslukerfi fær Mo-
hamed Gaddafi, leiðtogi Líbýu, gríð-
arlegt tækifæri til að fela herflutn-
inga fyrir bandarískum njósna-
hnöttum sem fara yfir land hans á
hverjum degi.
Sérfræðingar hafa áhyggjur af því
að leiðslurnar em lagðar í gegnum
fjallið Tarhuna. Bandariskir og evr-
ópskir njósnarar segja að þar sé
Gaddafi að reisa verksmiðju fyrir
efna- og sýklavopn.
Dario Fo vill
miðdegislúr
við nóbels-
hátíðina
Nóbelshátíðin stendur nú fyr-
ir dymm í Stokkhólmi. I ár
veröa veislugestimir í Ráðhús-
inu fleiri en
venjulega
eða 1346.
Hver verð-
launahafí
má hafa með
sér 15 gesti
og em þá
nánustu fjöl-
skyldumeð-
limir meðtaldir. Verðlaunahaf-
inn i læknisfræði, Stanley B.
Prasiner frá Kalifomíu, vildi
koma með 73 ættingja og vini
en varð að sætta sig við kvót-
ann, að þvi er kemur fram í
Dagens Nyheter.
Verölaunahafinn í bók-
menntum, Dario Fo, kom
einnig á framfæri sérstakri ósk.
Hann vill fá nokkmra klukku-
stunda hlé um miðjan daginn
til að geta fengið sér lúr. En
Dario ætlar aö mæta í veisluna
um kvöldið.
Lundastofninn
að deyja úr elli
DV Ósló:
Fimmta áriö í röð komst eng-
in lundakofa úr holum sínum í
Noregi í sumar. Með þessu
áframhaldi deyr stofninn út á
næstu árum og er breyttu fæðu-
vali í sjónum kennt um. Yngstu
lundar í Noregi em fæddir vor-
ið 1992. Nú er talið að lunda-
stofninn í Noregi hafi minnkað
um meira en helming ásíöustu
15 árum. -GK