Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 JjV
rir 15 árum
Kristín Sveinbjörnsdóttir med Oskalög sjúklinga í 15 ár - önnur fimmtán ár lidin sídan hún hætti:
í einstöku sambandi
í DV fyrir 15 árum, nánar tiltekiö
þriðjudaginn 2. nóvember 1982, var
sagt frá umsjónarmannaskiptum
með útvarpsþáttinn Óskalög
sjúklinga í Ríkisút-
varpinu sem var
fastur liður á hverj-
um laugardags-
morgni. Kristín
Sveinbjörnsdóttir var
þá að hætta eftir 15 ára
umsjón með þættinum
og Lóa Guðjónsdóttir,
starfsmaður á tónlistar-
deild, að taka við.
Nokkru áður hafði Ása
Finnsdóttir hætt sem var til
margra ára umsjónarmaður þáttar-
ins ásamt Kristínu. Um þessar
mundir eru því 30 ár liðin frá því
Kristín byrjaði með Óskalög sjúkl-
inga.
Áður en Rás 2 kom til sögunnar
1983 voru Óskalög sjúklinga, ásamt
Lögum unga fólksins, einhver allra
vinsælasti þáttur sem Ríkisútvarpið
bauð upp á. Hann var alltaf sendur
út i beinni útsendingu og það var
einmitt það sem var farið að gera
Kristínu erfiðara
um vik.
Nokkru
áður en
hún hætti
með þátt-
inn flutti
hún búferl-
um til
Kefla-
vík-
át«"v
ur og þurfti því alltaf að keyra á
milli.
„Ég treysti mér ekki lengur til að
aka Reykjanesbrautina í mis-
jöfnu veðri og
aðstæð-
um.
Þetta
var orð-
ið of
mikið
álag
með
annarri
vinnu,“ sagði
Kristín í samtali við helgar-
blaðið þegar hún var fengin til aö
riQa upp þessa tíma.
„Sjúklingarnir mínir"
„Upp úr minningunni stendur það
einstaka samband sem maður komst
í við hlustendur og „sjúklingana
mina“ sem ég kallaði svo. Ég fór á
sjúkrahúsin, ræddi við sjúklinga og
tók þættina oft upp þar. Ég fékk
fjöldann allan af þakklætisbréfum
og var í ___________
nánu
sam-
bandi við
fólkið.
Félags-
skapur-
inn
innan veggja Utvarps-
ins er líka ógleymanleg-
ur. Þetta var lítil stofn-
un þá og fylgdi henni
mikil hlýja. Skiljanlega
var erfitt að hætta en
aðstæður leyfðu mér
bara ekki lengur að
halda áfram,“ sagði
Kristín en hún bjó í
Keflavík til vorsins
1994. Fluttist þá austur
yflr fjall, nánar tiltekið
að Iðu í Biskupstung-
um, og býr þar ásamt
hundinum Skugga.
Eftir að Kristín hætti
var Lóa með þáttinn í
rúmt ár. Helga Þ.
Stephensen tók við af
henni og var síðasti
umsjónarmaðurinn.
Óskalög sjúklinga voru
tekin af dagskrá Rásar
2 á vormánuðum 1987
eða fyrir rúmum 10
árum.
„Ég er alveg sannfærð um að í dag
er grundvöllur fyrir útvarpsþætti
sem þessum. Ég hlusta mikið á út-
varp og tel
mig
vera
alætu
á tón-
list.
En oft
n M Om 9 B
Fimmtán árum síöar er Vigfús Ingvarsson enn aö sem tæknimaöur, nú f Efstaleitinu meö enn betri og flóknari græjur.
Kristín og Lóa heimsóttu hann nýlega og rifjuöu upp gömul kynni. Nokkru eftir aö Lóa hætti meö þáttinn 1983 fór
hún frá Ríkisútvarpinu til Borgarbókasafnsins og hefur veriö bókavöröur þar síöan. Frístundunum eyöir hún í mynd-
list og hefur frá 1991 veriö í námi viö MHÍ. DV-mynd S
Kristín Sveinbjörnsdóttir, tii vinstri, er hér í hljóö-
veri í gamla Útvarpshúsinu viö Skúlagötu aö lokn-
um sínum síöasta óskalagaþætti sjúklinga. Meö
henni er Vigfús Ingvarsson tæknimaöur og arftak-
inn, Lóa Guðjónsdóttir. DV-mynd Bjarnleifur
á tíðum fmnst mér tónlistin á Rás 2
fyrir neðan allar hellur. Maður fær
bókstaflega ekki ró. Með þætti í dag
fyrir sjúklinga er ég sannfærð um að
gömlu, góðu lögin koma upp aftur. Á
Rás 1 er verið að koma tU móts við
þessi sjónarmið, t.d. í þætti Gerðar
G. Bjarklind, en það má gera
meira,“ sagði Kristín.
Þess má geta að Kristín var í út-
varpi í nokkur ár á undan Óskalög-
um sjúklinga. Var þá með Jónasi
Jónassyni á laugardögum við að
kynna útvarpsdagskrána. Hún hafði
líka ekki langt að sækja útvarps-
mennskuna. Bróöir hennar, Úlfar
Sveinbjömsson, var sá fyrsti sem sá
um Lög unga fólksins og annar bróð-
ir, Helgi, var á Sjónvarpinu. Með út-
varpsmennskunni vann Kristín
ýmis störf, var m.a. ritari í dóms-
málaráðuneytinu og á lögmanns-
stofu og starfaði í Fríhöfninni.
Á meðan hún bjó í Keflavík var
hún á kafi í golfinu, leiðbeindi böm-
um í Leimnni og stofnaði öldunga-
flokk kvenna, Áfram stelpur. Enn er
samnefnt mót haldið árlega á Sel-
fossi auk þess sem Kristínarmót er
haldið á hverju sumri í Leirunni
fyrir böm og unglinga. -bjb
bókaormurinn
Valgerður Úlafsdóttir læknaritari er sannkallaður bókaormur:
Frá Kína til Álandseyja
„Ég á margar uppáhaldsbækur og
les mjög mikið. Þessa dagana er ég
að lesa Villta svani eftir hana Jung
Chang. Stór og mikil bók og afskap-
lega áhrifamikil. Kemur manni
virkilega á óvart. Bókin er vel skrif-
uð og hún segir skemmtilega frá.
Þegar ég verö búin með Villta svani
þá er ég að hugsa um að glugga í
skáldsöguna Fjallaþorpið eftir Jeh
Tsjún-Tsjen. Þá bók hef ég lesið aft-
ur og aftur og ég ætla enn einu
sinni að lesa hana. Hún kom út sem
kilja hjá Máli og menningu árið
1961 og er mjög skemmtileg. Höf-
undurinn gerir Kína að einu þorpi
og segir sögu landsins með þeim
hætti,“ segir Valgerður Ólafsdóttir,
læknaritari og sannkallaður bóka-
ormur, sem tók áskoran Margrétar
Gestsdóttur, kennara í MR.
Hún segist gera mikið af því að
grípa til sígildra bókmennta í bóka-
hillunni, bóka sem hún hefur oft
lesið áður. í þeim hópi er m.a. Svert-
ingjadrengurinn, sannsöguleg
skáldsaga eftir blökkumanninn Ric-
hard Wright sem ólst upp við erfið-
ar aðstæður í suðurríkjum Banda-
ríkjanna fyrr á öldinni.
„Ég vil helst hafa bækurnar
þannig að maður geti lesið þær aft-
ur og aftur. Það er allt of mikiö til
af bókum sem maður les bara einu
sinni og gleymir síðan. Mér fmnst
mjög gaman af bókum er segja frá
menningu annarra landa, samanber
kínversku bækumar. Sjá hvemig
aðrar þjóðir hugsa og hafa það,“
segir Valgerður.
Katrín úrTímanum
Tvær bækur era í sérstöku uppá-
haldi hjá bókaormi okkar. Önnur
þeirra nefnist Katrin eftir Sally Sal-
minen og inniheldur sögu frá
Álandseyjum. Þar er sagt frá bónda-
dóttur í Austurbotnum. Bókina
keypti Valgerður á
fornbókasölu á 250 krónur fyrir
nokkram árum. Á yngri árum hafði
hún klippt söguna úr Tímanum sál-
uga er hún birtist þar sem fram-
haldssaga.
Hin uppá-
haldsbókin er
Hringir í
skógi eftir
Dalene
Matthee
sem kom
út árið
1985 í ís
lenskri
þýðingu.
Þar
er á ferðinni
þroskasaga ungs manns T
S-Afríka og segist Valgerður hafa
lesið bókina margsinnis.
„Loks langar mig að segja að ég
hef afskaplega gaman af endurm-
inningabókum, eins og t.d. Tryggva
Emilssonar og Huldu Á. Stefánsdótt-
ur. Þau vora uppi á sama tíma,
hann bláfátækur og hún vel efnuð.
Þær bækur keypti ég eftir að hafa
fengið þær á bókasafni. Þannig vel
ég mér yfirleitt bækur ef mér finnst
þær skemmtilegar," segir Valgerður
Ólafsdóttir.
Hún sendir boltann aftur til MR
og skorar á Þór Stefánsson, mág
sinn, ljóðskáld og
frönskukennara, sem
næsta bókaorm. -bjb
Valgeröur Ólafsdóttir
heillast af bókum er
segja frá menningu
annarra landa. í
vinnunni veröur hún
hins vegar að vera
meö starfssviö
læknaritara á
hreinu!
DV-mynd E.ÓI.
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Helen Reldlng: Bridget Jone's Diary.
2. Terry Pratchett: Hogfather.
3. Dick Francls: To the Hilt.
4. Mlchael Crlchton: Airframe.
5. Arthur C. Clarke: 3001: The Rnal
Odyssey.
6. John Grisham: The Partner.
7. Cathrlne Cookson: The Bonny Dawn.
8. Stephen Klng: Wizard and Glass.
9. Wllbur Smith: Birds of Prey.
10. Tom Clancy: Politika.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Paul Wilson: The Little Book of Calm.
2. Blll Bryson: Notes from a Small Island.
3. Frank McCourt: Angela's Ashes.
4. Scott Adams: The Dilbert Principle.
5. Howard Marks: Mr. Nice.
6. Dalsy Goodwin(ed): The Nation's
Favourite Love Poems.
7. Penny Stalllngs & Davld Wlld:
Previously on Friends
8. Alec Guinness: My Name Escapes Me.
9. Blll Watterson: It's a Magical Worid.
10. John Gray: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Terry Pratchett: Jingo.
2. Andy McNab: Remote Control.
3. Patricla D. Cromwell: Unnatural
Exposure.
4. Dlck Francls: 10-lb Penalty.
5. P.D. James: A Certain Justice.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Mlchael Palln: Full Circle.
2. Blll Bryson: A Walk in the Woods.
3. Dlckle Bird: My Autobiography.
4. Andrew Morton: Diana: Her True
Story in Her Own Words.
5. Francls Gay: The Friendship Book
1998.
(Byggt á The Sunday Times)
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Politika.
2. Stephen King: Wizard and Glass.
3. Steve Martlnl: The List.
4. Davld Baldaccl: Total Control.
5. Kaye Glbbons: Ellen Foster.
6. Kaye Gibbons: Virtuous Woman.
7. John Grisham: The Rainmaker.
8. James Patterson: Jack & Jill.
9. Mlchael Crlghton: Airframe.
10. Dlana Gabaldon: Drums of Autumn.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Rlchard Carison: Don't Sweat the
Small Stuff.
2. Rlc Edelman: The Truth about Money.
3. Ýrnsln Chicken Soup for the Teenage
Soul.
4. Ýmsln Chicken Soup for the Mother’s
Soul.
5. Ýmslr: The World Almanac and Book of
Facts 1998.
6. Stephen E. Ambrose: Undaunted
Courage.
7. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
8. Robert Atkln: Dr. Atkin’s New Diet
Revolution.
9. Carmen R. Berry og Tamara Traeder:
Girifriends.
10. James McBride: The Colour of Water.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Charles Frazier: Cold Mountain.
2. James Patterson: Cat & Mouse.
3. Domlnlck Dunne: Another City, not My
Own.
4. Danlelle Steel: The Ghost.
5. Jonathan Kellerman: Survival of the
Fittest.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. John Berendt: Midnight in the Garden
of Good and Evil.
2. Ýmslr: Joy of Cooking.
3. Seymour M. Hersh: The Dark Slde of
Camelot.
4. Frank McCourt: Angeia's Ashes.
5. Stephen E. Ambrose: Citizen Soldiers.
(Byggt ð Washington Post)