Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Side 23
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Wðtal 23
ingja sem strykju af elliheimili. Síðar
kom í ljós að bæði bókin og myndin
höfðu upp á eitthvað að bjóða sem fólk
vítt og breitt um heiminn skilur og
finnur sig í.“
Persónulegt jóga
Einar segir að hin mikla athygli
sem Englamir hafa fengið hafi frekar
haft jákvæð áhrif á hann en neikvæð.
Hann segir starfið byggjast að miklu
leyti á þolinmæði og seiglu. Menn
þekki það að stundum gerist ekkert
langa hríð en síðan meira eins og hjá
honum nú.
„Maður hefur lært að taka þessu.
Halldór Laxness sagði að þetta starf
byggðist á persónulegu jóga og ég held
að hver höfundur verði að iðka þetta
jóga á sinn hátt. Bæði velgengnin og
slæmt gengi geta átt sínar skuggahlið-
ar ef ekki er rétt haldið á spilum. Höf-
undur stendur alltaf á sama byrjunar-
reitnum, jafnvel þótt einhver bók hafi
gengið vel. í sumum störfum getur
maður lært hlutina og orðið góður. í
þessu starfi er sama hversu mikla
tækni maður kann, maður getur
vaknað óskrifandi einn morguninn.
Þetta kennir manni ákveðna hógværð
og lotningu gagnvart starfinu.“
Líklega framhald
Eins og alþjóð veit hefur Einar gef-
ið út ljóðabækur, skáldsögur, smásög-
ur, barnasögur, skrifað kvikmynda-
handrit, unnið við þýðingar og sinnt
mörgum öðrum ritstörfum. Hann seg-
ir að vissulega sé þarna nokkur tog-
streita á milli en upphaflega hafi hann
viljað skrifa á sem flestum sviðum til
þess að geta lifað á þessu. Þarna hafi
komið til samspil nauðsynjar og vilja.
„Siðan hefur þetta þróast þannig að
mér finnst þetta ágætt fyrirkomulag.
Hvert form hefur áhrif á annað. Ljóð-
ið er hinn eilífi skóli og maður lærir
mikið um skáldsöguna með því að
skrifa kvikmyndahandrit. Þar fyrir
utan er ekkert gott að vaða beint úr
einni skáldsögu í aðra. En af því að ég
hef þörf fyrir að vera sískrifandi er ég
ánægður að geta einbeitt mér að
mörgum sviðum ritlistarinnar. Ég er
orðaflkill."
Tæpar þrjár vikur eru síðan Fót-
spor á himnum kom út og segist Ein-
ar Már þessa dagana vera að aðstoða
börnin sín í próflestri. Hann segir
lokasprett bóka sinna yfirleitt mikla
törn og því þurfi hann aðeins að fá að
anda á eftir. Hann og Friðrik Þór eru
rétt að ljúka við kvikmyndahandrit að
Englum alheimsins og síðan eru það
bara skriftirnar áfram.
„Ég á allt eins von á framhaldi af
bókinni Fótspor á himnum. Ég hef
nægan efnivið og fólk er sífellt að
stinga að mér sögum sem ég mun nýta
mér. Hvenær næsta bók kemur út
verður hins vegar bara að koma í
ljós,“ segir Einar Már Guðmundsson.
-sv
Menn hristu höfuðið
Aðeins að Englum alheimsins og
þeim frábæru viðtökum sem bókin
hefur fengið. Höfundurinn hefur verið
á faraldsfæti, lesið upp úr bókinni og
kynnt hana á erlendum vettvangi.
Eins og áður segir hefur hún nú verið
gefin út á 15 tungumálum. Skyldi Ein-
ar hafa haft einhverjar sérstakar
væntingar um hana fyrirfram.
„Nei, síður en svo. Ég þagði lengi
yfir því að ég væri að skrifa hana en
þegar ég var kominn með hana á loka-
stig fór ég að segja frá þvf hvað ég
væri að gera. Þá lá við að menn færu
að biðja fyrir mér. Þetta þótti aldeilis
ekki spennandi, að skrifa um geð-
veika menn, hvað þá að einhver
myndi kaupa slíka vitleysu. Mitt mat
er þó, að þegar aðrir eru famir að
hrista höfuðið, í góðri meiningu oft á
tíðum, þá séu menn komnir inn á
sprengjusvæðið. Þá gerist oft hið
óvænta. Þannig var það lika með Böm
náttúrunnar. Menn hristu hausinn
hressilega þegar við sögðum að við
værum að vinna handrit um tvo gaml-
Samsunq SPR-919
900 MHzpráblaus sími sem dregur
allt að 400 m.
Sonk 7292 28" sjónvarp með Black FST-myndlampa,
40W Nicam Stereo, 2 Scart-tengjum, tengi fyrir
heyrnartól, textavarpi o.m.fl.
Samsung 6844 N 28” sjónvarp meb Black Standard-
myndlampa, 40 W Nicam Stereo, 2 Scart-tengjum, tengi
fyrir sjónvarpsmyndavél ab framan, textavarpi o.m.fl.
Samsung VP-A55 Hi-8 mm stereo-
sjónvarpsmyndavél meb 64x abdrætti,
0.7 lux, CCD-myndupplausn: 570.000
punktar, stafrænum titringsleibréttingar-
búnabi, 5 forstillingum á upptöku,
sjálfvirkri skerpu, fjarstýringu o.m.fl.
Vélin fyrir þá vandlátu!
Samsung CB-5073Z20" sjónvarp meb Black Matrix-myndlampa,
Scart-tengi, fjarstýringu o.m.fl.
Sama tæki meb textavarpi 33.900,- kr. stgr.
Samstmg CX-703 CN 28" sjónvarp meb hágæba Black Line
Super-myndlampa, 40 W Nicam Stereo, 2 Scart-tengjum,
textavarpi o.m.fl. Frábær myndgæbi!
Samsung VP-A50 Hi-8 mm stereo-
sjónvarpsmyndavél meb 16x abdrætti,
0.7 lux, CCD-myndupplausn: 470.000
punktar, 5 forstillingum á upptöku,
sjálfvirkri skerpu, fjarstýringu o.m.fí.
Samsung TVP-3350x 14" sjónvarp með innl
myndbandstæki, Scart-tengi, fjarstýringu o.
Sama tæki 20" 59.900,- kr. stgr.
Samsung CB-3373z 14" sjónvarp meb Black
Matrix-myndlampa, Scart-tengi, fjarstýringu o.fl.
Sama tæki meb textavarpi 26.900,- kr. stgr.
Samsung SV-200X 3 hausa mynd-
Sériega auðvát í notfain! /ÁÁ
Samsung M-63317 lítra örbytajuofn
meb snúningsdiski. 750 W, 6 forstiilingar.
Samsung SV-120X ervandab 6 hausa
Nicam Steneo myndbandstæki meb Long,
Play, flarstflinguo.fi.
Grensásvegi 11
Sími: 5 886 886
SJONVARP MEÐ INNB.VIDEO