Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Síða 41
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
imm 49 w
Skokkarar landsins sameinast
- mikil þátttaka á árshátíð skokkara
Vetrarmaraþon veröur haldið í fyrsta sinn hér á landi um páskana á komandi ári.
hátíðarinnar á næsta
ári. Það sem er
skemmtilegast við
árshátíðina nú er að
þetta er í fyrsta sinn sem allir
skokkarar landsins koma saman og
hittast.
Þama mættu skokkhópar hvað-
anæva af landinu, fjölmargir skokk-
hópar af Reykjavíkursvæðinu, hóp-
ar frá ísafirði, Neskaupstað, Akra-
nesi og fleiri stöðum, en ég saknaði
þess að sjá engan frá Akureyri. Ég
held að allir hafi skemmt sér rosa-
lega vel og gaman var að fylgjast
með því hve mikið skokkhópamir
31. desember:
Gamlárshlaup IR
Hlaupið hefst klukkan 13
við ÍR-húsið. Hlaupnir verða
:■ 9,5 km með tímatöku, flokka-
skipting fyrir bæði kyn. Upp-
| lýsingar um hlaupið gefa
;; Kjartan Ámason í síma 587
2361, Hafsteinn Óskarsson í
: síma 557 2373 og Gunnar Páll
; Jóakimsson í síma 565 6228.
31. desember:
Gamlárshlaup UFA
Hlaupið hefst klukkan 12
við Dynheima á Akureyri og
| hlaupnir verða 4 og 10 km
með tímatöku. Upplýsingar
um hlaupið gefur Jón Árna-
son í síma 462 5279.
ii
31. desember:
Gamlárshlaup KKK
Hlaupið hefst klukkan 13
við Akratorg á Akranesi.
Vegalengdir í hlaupinu eru 2
1 og 5 km. Upplýsingar um
hlaupið gefm- Kristinn Reim-
1 arsson i síma 431 2643.
lögðu á sig til að undirbúa skemmti-
atriði.“
Fálag maraþonhlaupara
„Á árshátíðinni var stofnað „Fé-
lag maraþonhlaupara". Bréf voru
send út til allra maraþonhlaupara
þar sem tilkynnt var um stofnun fé-
lagsins og við bjuggumst við því að
stofnfélagar yrðu um 30-40 manns.
Þátttakan fór hins vegar fram úr öll-
um vonum. Það mættu 60 manns og
skráðu sig í félagið. Fjölmargir
höfðu samband við okkur og vildu
skrá sig, en komust ekki á árshátíð-
ina.
Það geta allir orðið meðlimir sem
einhvern tímann hafa lokið við
maraþonhlaup í keppni. Við töldum
okkur hafa vitneskju um alla þá ís-
lendinga sem hlaupið hafa mara-
þon, en komumst að því að til eru
undantekningar. Ég frétti til dæmis
af einum þekktum hlaupara hér-
lendis sem vildi endilega ganga á fé-
lagið, en hafði ekki hugmynd um að
hann hafði nokkurn tímann á æv-
inni þreytt heilmaraþon. Hann
hafði hins vegar eitt sinn hlaupið
heilmaraþon erlendis, en sprakk í
því hlaupi þó að hann hefði klárað
það á endanum. Hann skammaðist
sín svo mikið fyrir tímann að hann
lét engan vita af hlaupinu - fyrr en
núna þegar hann vildi komast í fé-
lagið.
Farið V£ir yfir lög félagsins og kos-
in stjórn til næsta árs. Stjórnin
verður látin móta stefnuna á næsta
hlaupaári og falið það verkefni að
flnpússa lög félagsins. Nýskipuð
stjórn er skipuð Gísla Ásgeirssyni,
Gísla Ragnarssyni, Ólöfu Þorsteins-
dóttur, Ágústi E. Ágústssyni og mér
sem var kosinn til formennsku,"
sagði Pétur Ingi.
Aðsetur Félags maraþonhlaupara
verður hjá Reykjavíkur maraþoni í
Laugardalnum. Ágúst Þorsteinsson,
umsjónarmaður Reykjavikur mara-
þons, mun vísa öllum fyrirspurnum
um félagið til Péturs.
Ekkert árgjald
„Margir nýju félaganna vildu fá
að vita hvað árgjaldið yrði hátt fyr-
Umsjón
ísak ðm Sigurðsson
ir meðlimi félagsins og það vakti at-
hygli mína að flestir voru æstir í að
fá að borga eitthvað strax. Við tók-
um hins vegar þá ákvörðun að hafa
ekkert árgjald, alla vega til að byrja
með.
Einnig var ákveðið að halda hér
vetrarmaraþon í fyrsta sinn, sem
fer fram í Reykjavík um næstu
páska. Fram hefur komið sú hug-
mynd að velja 10 km langan hring
og hlaupa hann (rúmlega) íjórum
sinnum til þess að spara fyrirhöfn
og halda starfsliði i lágmarki. Þá
þarf ekki að vera nema með tvær
drykkjarstöðvar. Að öllum líkind-
um verður það niðurstaðan og að-
eins er eftir að velja leiðina. Á árs-
hátíðinni var jafnframt rætt um
framkvæmd 10 km hlaupanna á
næsta hlaupaári, en stefnt er að því
að bjóða skokkurum upp á heildar-
tímatöku I 10 tilteknum 10 km
hlaupum.
Töluvert var rætt um það hvern-
ig virkja beri hinn almenna
hlaupara til þátttöku. Við ætlum
ekki endilega að leggja aðaláhersl-
una á að verðlauna þann sem verð-
ur númer eitt (með besta heildar-
tímann í 7 af þessum 10 hlaupum).
Það getur vel verið að við veitum
ekkert siðri verðlaun fyrir þann
hlaupara sem hefur 17. besta tím-
ann. Keppnin um fyrsta sætið verð-
ur sjaldan annað en einvígi fárra
einstaklinga, en það væri gaman að
geta búið til stemningu um verð-
laun fyrir sæti sem er miklu neðar.
Manneskja sem hefur ef til vill
reykt í 20 ár ákveður skyndilega að
hætta þeim ósið og byrjar að æfa
skokk. Hún nær kannski þeim
áfanga að taka þátt í 2-3 hlaupum á
árinu - sá árangur er ekkert minni
sigur fyrir þá persónu heldur en þá
sem er að keppa um verðlauna-
sæti,“ sagði Pétur.
Meiðsli fátíð
Pétur Ingi Frantzson er einn
þeirra skokkara sem æfa alla daga
vikunnar og dálkahöfundi lék for-
vitni á að vita hvort hann þyrfti
ekki að glíma við álagsmeiðsli.
„Fyrir mér eru hlaupin afskaplega
góð hreyfing og allra meina bót.
Auðvitað er hægt að æfa of mikið,
en fæstir skokkarar ná þvi nokkurn
tímann. Tökum til dæmis
hlauparann Jón Guðmundsson sem
dæmi. Hann er á sjötugsaldri, hefur
DV
••903 * 5670 ••
Aðeins 25 kr. minutan. Sama verð fyrir alla landsmenn
hlaupið flesta daga vik-
unnar áratugum sam-
an og hann gefur lítið
eftir.
Ég held þó að hóflð
sé best í öllu en það er
hægt að skokka mikið
og reglulega ef skyn-
samlega er staðið að
málum. Ég hef það til
dæmis fyrir vana að'
setja júgursmyrsl é
lappirnar á mér fyrir
öll hlaup, æfingar sem
keppni. í lengri vega-
lengdum set ég einnig
barnapúður í hlaupa-
skóna. Það er afskap-
lega fátítt að ég fái
blöðrur eða önnur
mein á fæturna.
Það er varla hægt að
bera skokk saman við
margar aðrar íþrótta-
greinar. Álagsmeiðsli í
knattspyrnu, hand-
bolta eða öðrum við-
líka greinum eru mun
algengari en hjá þeimi.
sem stunda skokk, því
álagið á líkamann í
þeim greinum er mun
meira,“ sagði Pétur.
Pétur Ingi Frantzson er nýkjörinn
formaður Félags maraþonhlaupara.
Laugardaginn 29.
nóvember var í fyrsta
sinn haldin árshátíð
skokkara (á skemmti-
staðnum írlandi i
Kringlunni) og er það
í fyrsta sinn sem
skokkarar landsins
koma saman til
skrafs og ráðagerða.
„Þátttakan var fram-
ar öllum vonum og
vel á þriðja hundruð
manns mætti á árshá-
tíðina. Það er strax
orðið ljóst að árshátíð
skokkara verður ár-
legur viðburður í
framtíðinni," sagði
Pétur Ingi Frantzson,
einn skipuleggjenda
árshátíðarinnar. Pét-
ur, sem er meðal
þekktustu skokkara
landsins, hefur verið
í forsvari fyrir skokk-
ara Námsflokka
Reykjavíkur.
„Ég geri ráð fyrir
að á næsta ári verði
fyrirkomulag árshá-
tíðar skokkara svipað
og það er á árshátíð-
um hjá HSÍ, að ein-
stök félög muni sjá
um framkvæmdina.
Þannig muni tveir
eða þrír skokkhópar
á landinu sameinast
um framkvæmd árs-