Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Síða 60
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
68
idge
Hausdandsmót Bandaríkjanna 1997:
Góð landkynning Aðalsteins og Sigurðar
Aðalsteinn Jörgensen og Sigurð-
ur Sverrisson hafa gert garðinn
frægan á síðustu vikum og eins og
er eru þeir skærustu stjömumar á
íslensku keppnisslóðinni. Skemmst
er að minnast þess er þeir náðu
öðm sæti í geysisterku móti sem
haldið var af danska stórblaðinu
Politiken. Var þar boðiö til keppni
mörgum af bestu pömm heimsins.
t- Síðustu tvær vikumar hafa þeir
félagar keppt á haustlandsmóti
Bandarikjanna sem haldið var í St.
Louis i Missouri.
Fyrst tóku þeir þátt í opnum
flokki lífstíðarmeistara (Life Mast-
er) og náðu þar þriðja sæti eftir að
hafa barist um toppinn allan tím-
ann. Á meðan það gerðist var annar
kunnur íslenskur bridgemeistari,
Hjördís Eyþórsdóttir, að spila í
kvennaflokki lífstíðarmeistara. Hún
náði öðm sæti ásamt félaga sínum,
Lindu Pearlman, og tapaði reyndar
af fyrsta sætinu í síðustu umferð
þegar helstu keppinautarnir náðu
risaskor.
Siðan kom Reisinger-board-a-
match keppnin, sem er ein mesta
þrekraun sem bridgemeistarar kom-
ast í. Það gerir keppnisformið, en í
rauninni er hvert einasta spil
Umsjón
_
skák
keppni út af fyrir sig. Allir bestu
bridgemeistarar Bandaríkjanna
taka þátt í þessari keppni og er því
við ramman reip að draga. Sveitar-
félagar Aðcdsteins og Sigurðar vora
Gerard Sössler, John Mohan og Jim
Beckström. Þeir félagar náðu efsta
sæti eftir fyrstu umferð en urðu síð-
an að láta í minni pokann.
Blue Ribbon tvímenningskeppnin
var næst. Nú spilaði Aðalsteinn við
Gerard Sössler og Sigurður við
Hjördísi. Það reyndist ekki vel og
duttu bæði pörin naumlega út úr úr-
slitakeppninni.
Aðalsteinn og Sigurður tóku síð-
an þátt í tveimur útsláttarsveita-
keppnum, töpuðu annarri í úrslita-
leik en unnu hina, sem var 57 sveita
keppni (Swiss-knockout). Þar gekk
til liðs við þá félaga kjamorku-
kvendi, Kay Schulle, vel þekktur
bridgemeistari í Bandaríkjunum.
Aðalsteinn og Sigurður tóku
einnig þátt í vorlandsmóti Banda-
ríkjanna og spiluðu þar í hinni
frægu Vanderbiltsveitakeppni. Þar
duttu þeir út í 16 liða úrslitum þeg-
ar þeir mættu sveit sem Bandaríkja-
mennimir Boyd og Robinson voru í.
í haust mættu þeir aftur Boyd og
Robinson, nú í Reisingerkeppninni,
og fengu þá tækifæri til að hefna
harma sinna. Spiluð vom þrjú spil
milli þeirra og fengu þeir Aðal-
steinn og Sigurður hinn hanvæna
200-kall í fyrsta spilinu fyrir ekkert,
í öðm spili opnaði Sigurður á fjór-
um hjörtum, fékk það doblað og
vann, 790, og svo kom það þriðja.
A/0
* KD62
♦ 10763
* 109653
* 9875
VG9432
-4- K94
* Á
* ÁG3
«*ÁD7
-4 52
* KG874
* 104
«4 K10865
4- ÁDG8
* D2
Með Robinson og Boyd í n-s og
Sigurð og Aðalstein í a-v gengu
sagnir á þessa leið:
Austur Suður
1 gr. 2 ««
pass 3 4
pass pass
Vestur
pass
dobl
Norður
2 gr.
pass
Dobl Aðalsteins var tilboð en ekki
refsing, en Sigurður ákvað að passa.
Vömin var síðan miskunnarlaus.
Aðalsteinn tók laufás og skipti yfir I
spaðaníu. Boyd lét kónginn, Sigurð-
ur drap á ás og spilaði tígli. Aðal-
steinn fékk á kónginn og spilaði
meiri tígli. Boyd drap heima og spil-
aði laufdrottningu, sem Sigurður
drap með kóng. Hann spilaði nú
spaðagosa, sem Boyd drap í blind-
um. Hann reyndi að gera sér mat úr
laufinu, spilaði laufatíu, Sigurður
gcif og Aðalsteinn trompaði. Síðan
kom spaði, sem Boyd trompaði. Nú
biðu a-v eftir hjartaslögunum og
Boyd fékk aldrei meira en fmun
slagi á tromp og einn slag á spaða.
Þrír niður og 500 til a-v.
Raunar var þetta samt besta spil
þeirra í setunni, því á hinu borðinu
töpuðu félagar Aðalsteins og Sigurð-
ar einnig 500, í tveimur spöðum
dohluðum, þannig að spilið var
jafnt.
Þrír íslendingar tefla á heimsmeistaramótinu
Kasparov og Kramnik sniðganga keppnina
Á mánudaginn hefst heimsmeist-
arakeppni alþjóðaskáksambandsins
í Groningen í Hollandi.
Keppnin er nú í fyrsta sinn með
útsláttarfyrirkomulagi. Eitt hundr-
að keppendur hefja leikinn og tveir
og tveir tefla einvígi þar til aðeins
heimsmeistarinn stendur eftir.
es k
fv.
i m o
model management
Fyrirsœtu & framkomunámskeið
Eskimo er nú oröin stærsta umboösskrifstofa landsins
eftir sameiningu Eskimo og Módei 79. Skráning er nú
þegar hafin á námskeiðin sem hefjast í Janúar.
• Tískusýningarganga
• Föröun
• Innsýn í störf fyrirsæta erlendis
• Fíkniefnafræðsla
• Pósur
• S/H myndataka
• Efling á sjálfstrausti
Starfandi fyrirsætur koma í heimsókn og gefa góð ráð
• Stór tískusýning I lok námskeiðsins,
sýnd verða föt frá þekktri tískuverslun
Þessar stúlkur eru starfandi fyrirsoetur hjó Eskimo efrir aðhafa sótt
Fyrirsœtu & framkomunómskeið
ATH! Gjofakort á Fyrírsœtu & framkomunámskeið
eskimo er frábœr jóiagjöf.
Nánari upplýsingar hjá Eskimo í síma 552-8012.
Þetta fyrirkomulag heimsmeistara-
keppninnar er mnnið undan rifjum
forseta FIDE, Kirsans Iljumzhinovs,
sem hefur lagt fram vilyrði fyrir 5
milljóna dala verðlaunafé - yflr 350
milljónum íslenskra króna.
Sterkustu skákmennimir eru þó
allt annað en ánægðir með fyrir-
komulag keppninnar. Aðstaða Ana-
toly Karpovs, sem er núverandi
handhafi heimsmeistaratitils FIDE,
er þeim þymir í augum. Sem heims-
meistari fær hann strax sæti í loka-
úrslitum mótsins og mætir þá and-
stæðingi sem verður eflaust lúinn
bæði á líkama og sál eftir 6 smáein-
vígi og mánaðarlanga útivist. Þetta
getur varla talist annað en ósann-
gjamt, enda blandast engum hugur
um að bæði Kasparov og jafnvel
fleiri séu öflugri en Karpov um
þessar mundir.
Af þessum ástæðum var
Kasparov fljótur að gefa út þá yfir-
lýsingu að hann tæki ekki þátt í
mótinu. Hins vegar hefur hann látið
þau boð út ganga að hann muni
skora á sigurvegara úr sérstöku
áskorendamóti og leggja titil sinn
að veði - þ.e. heimsmeistaraititl
sinna eigin samtaka. Enn er þó allt
óljóst með framkvæmd þessarar
ímynduðu áskorendakeppni.
Vladimir Kramnik lét þau boð út
ganga nýlega að hann yrði heldur
ekki með. Þetta sagðist hann hafa
ákveðið fyrir löngu en hann vildi
ekki gera ákvörðun sína heyrin-
kunna fyrr en nú, svo að Iljum-
zhinov fengi ekki þá afsökun að
hætta við keppnina! Mótið verður
vitaskuld rýrara án Kasparovs og
Kramniks og jafnvel hlýtur að telj-
ast álitamál hvort réttlætanlegt sé
að tala um heimsmeistarakeppni.
Þrír íslenskir stórmeistarar hafa
unnið sér keppnisrétt á mótinu, þeir
Helgi Áss Grétarsson, Jóhann Hjart-
arson og Margeir Pétursson. Helgi
Áss mun tefla við spænska stór-
meistarann fllescas í fyrstu umferð,
Jóhann teflir við Litháann Sulskis
og Margeir teflir við Oll frá Eist-
landi. Tefldar verða tvær einvígis-
skákir. Verði þá jafnt er bætt við
tveimur atskákum og takist enn
Umsjón
Jón LÁmason
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eðaltré, í hæsta gæðafiokki og prýða pau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
>■*-' 10 ára ábyrgð Eldtraust
10 stærðir, 90 - 370 cm ** Þarfekki að vökva
Stálfótur fylgir **■ Islenskar leiðbeiningar
t* Ekkert barr að ryksuga >*■ Traustur söluaðili
>*■ Truflar ekki stofublómin **■ Skynsamleg fjárfesting
SNORRA8RAUT 60
ekki að kreista fram úrslit verður
tefld hraðskák.
Athyglisvert er að teflt verður
með Fischer-klukkunni og verða
tímamörkin nýstárleg -100 mínútur
á 40 leiki og til viðbótar bætist hálf
mínúta við umhugsunartímann við
hvem leik. Á 40 leikja skák verður
heildartimi til íhugunar því 2
klukkustundir. Þetta gerir það að
verkum að skákmaðurinn fær ávallt
nægilegan tíma til að framkvæma
leikina og jafnvel skoða stöðuna
stundarkom. Áhorfendur eiga þó
kannski eftir að sakna handagangs-
ins í öskjimni þegar líf og dauði
snýst um skákklukkuna.
Heimavinnan
skilar árangri
Tyrkir hafa ekki getað státað af
miklum skákmeisturum nú í seinni
tíð en hafa nú eignast öflugan stór-
meistara sem heitir Suat Atalik. Á
næsta stigalista FIDE er líklegt að
hann skríði yfir 2600 stiga múrinn
en hann hefur náð mjög góðum ár-
angri á árinu.
Nýlega lauk sterku opnu móti i
Heraklion á Krít þar sem Atalik
sigraði með 5,5 vinningum af 9
mögulegum. Lemhit Oll - væntan-
legur mótherji Margeirs í Gron-
ingen - hlaut jafnmarga vinninga
en var lægri á stigum. í 3. sæti varð
enski stórmeistarinn Tony Miles
með 5 vinninga.
Eftirfarandi skák tefldi Atalik á
mótinu. Mótherjinn er ungverski
stórmeistarinn snjalli Guyla Sax.
Þeir þræða afbrigði af Nimzo-ind-
verskri vöm sem hefur átt vinsæld-
um að fagna á stórmóttnn nýlega.
Atalik hefur unnið heimavinnima
vel og hristir nýjung fram úr erm-
inni, sem við fyrstu sýn virðist ekki
ýkja merkileg. Fljótlega kemur þó í
ljós hvað býr að baki.
Hvítt: Suat Atalik
Svart: Guyla Sax
Nimzo-indversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 d5 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 Re4 7.
Dc2 Rc6 8. e3 e5
Upphafið að miklum flækjum,
sem einu sinni þóttu hagstæðar
hvíttun.
9. cxd5 Dxd5 10. Bc4 Da5+ 11.
b4 Rxb4 12. Dxe4 Rc2+ 13. Ke2
Del+ 14. Kf3 Rxal 15. Bb2
Lakara er 15. Dxe5 Be6 16. Bxe6
sem svartur svarar með 16. - 0-0!
o.s.frv. Hvítur vonast til þess að
fanga riddarann á al. Hvítur á þó
eftir að þróa stöðu sína kóngsmegin,
sem sýnt er að taki nokkra leiki.
15. - 0-0 16. Kg3 Kh8
Þessi nýlega hugmynd hefur leyst
af hólmi 16. - h6 17. h4 Kh8 18. Kh2
Dxf2 19. Bxal Bf5 20. Rh3 með væn-
legu tafli á hvitt en þannig tefldist
ungversk skák frá árinu 1969. Hætt
er við að Sax hafi þekkt til þessa og
nú vill hann spara sér h7-h6 leik-
inn. Hann hótar nú f7-f5.
17. dxe5! Be6
18. Rf3! Dxhl 19. Rg5 g6 20.
Rxf7+!!
Svartur á ekkert betra en að
þiggja þessa fóm.
20. - Hxf7 21. Bxe6 Hg7 22.
Bf7!!
Rúsínan í pylsuendanum. Svartur
er ótrúlega bjargarlaus.
22. - Hxf7 23. e6+ Kg8
Ef 23. - Hg7 24. De5 Hag8 25. e7 og
hótar 26. Dxg7+ Hxg7 27. e8=H mát.
24. Dd4 Kf8 25. exf7 Kxf7 26.
Dd7+.
- Og svartur gafst upp. Ástæðan
liggur ekki strax í augum uppi. Jú,
eftir 26. - Kf8 27. BfB! fær svartur
ekki varist mátinu.