Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Síða 72
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
.... sólarhringinn.
13 550 5555
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Akureyri:
Banaslys í
Slippstöðinni
DV, Akureyri:
Banaslys varð í Slippstöðinni á
Akureyri í gærmorgun þegar 42 ára
gamall maður lést þar við eftirlits-
störf.
Eftirlitsmaðurinn var að fara yfir
vinnu á skipinu Gullver NS 12 og
fór ofan í rými sem kallað er „keðju-
kassi“ og geymir m.a. ankeriskeðj-
ur. Strax þegar maðurinn var kom-
inn þar inn hné hann niður vegna
loftleysis. Annar maður sem var þar
nærri fór inn og reyndi að bjarga
hinum en hné einnig niður. Þriðji
maðurinn sem þarna var viðstadd-
ur náði hins vegar að teygja sig inn
í „kassann“ og ná taki á hendi þess
sem hafði farið inn á eftir og gat
dregið hann út.
' Maðurinn hresstist fljótlega en
þeim sem fyrr hafði farið inn í
„kassann" varð ekki bjargað út fyrr
en slökkviliðið kom með súrefnis-
grímur en maðurinn reyndist þá lát-
inn. Rannsóknarlögreglan gat ekki
gefið upp nafn hans í gær. -gk
dagar til jóla
Eftirvæntingin leyndi sér ekki í andliti þessa barns sem skoðaði í búöarglugga í miöbænum í gær. 18 dagar eru nú
til jóia og „börnin fara að hlakka til“, eins og segir í kvæðinu. DV-mynd ÞÖK
Útvarpsstjóri:
Ævar sækir um
Ævar Kjartansson, dagskrárgerð-
armaður á Ríkisútvarpinu, hefur
sótt um stöðu útvarpsstjóra. Hann
segist búa yfir 25 ára starfsreynslu
innan RÚV sem geti nýst honum vel
til að takast á við starfið.
„Ég hef verið
hér um langan ald-
ur og nú þykir mér
ástæða til að starfs-
reynsla mín njóti J
sín í starfi útvarps- ]
stjóra,“ segir hann.
Umsóknarfrest-
ur um starfið renn-
ur út þann 18. des-
ember. Ævar, sem
er eini umsækjand-
inn enn sem komið er, hefur starfað
við dagskrárstjóm og þularstörf á
Ríkisútvarpinu undanfarin 25 ár. Þá
hefur hann unnið nokkuð fyrir Sjón-
varpið.
„Ég tel mig orðið þekkja þessa
stofnun vel og er tilbúinn til að taka
á mig ábyrgð af rekstri hennar,“ seg-
ir Ævar.
Ævar Kjartans-
son dagskrár-
gerðarmaður.
Dómur yfir Heiömerkurtvíburunum:
Dæmdir í 16 og 8 ár
- fórnarlambið baöst vægðar meö orðunum „ekki meiða mig“
Sigurður Júlíus Hálfdánarson
var dæmdur í 16 ára fangelsi og
Ólafur Hannes Hálfdánarson í 8
ára fangelsi fyrir að bana
Lárusi Ágústi Lárussyni með
hrottalegum hætti í Heiðmörk 1.
október sl. Dómurinn yfir tví-
burabræðrunum var kveðinn
upp í Héraðsdómi Reykjaness í
gær.
Tvíburabræðrunum, sem eru
25 ára, var gefið að sök að hafa
í félagi ráðið Lárusi bana og
rænt hann síðan peningaveski
sínu. í dómnum segir að verkn-
aður Sigurðar hafi verið ógn-
vekjandi og valdið hörmulegum
dauðdaga. Ljóst er af framburði
beggja ákærðu að Lárus hafði
verið yfirbugaður líkamlega í
þeim tilgangi að ræna hann þeg-
ar hrottafengin árás Sigurðar
átti sér stað. Af framburði
bræðranna kemur fram að Lár-
us hafi beðið sér vægðar með
orðunum „ekki meiða mig“.
Ólafur Hákon Hálfdánarson, sá
tvíburanna sem fékk vægari dóm.
„Dómurinn vel rökstuddur“
Sigurður tók stóran steinhnull-
ung og lét hann falla a.m.k.
Tvíburabræöurnir Siguröur Júlíus
(mynd til vinstri) og Olafur Hákon
Hálfdánarsynir, leiddir úr dóm-
salnum í gær. DV-myndir Pjetur
tvisvar í höfuð Lárusar, þar sem
hann lá vamarlaus. Ólafur fékk
vægari dóm þar sem sannað þykir
að Lárus hafi verið látinn er Ólaf-
ur ók bifreiðinni yfir líkama
Lárusar. í dómnum segir að því
skorti á það hlutræna efnisskil-
yrði að Ólafur hafi orðið manni að
bana með háttalagi sínu.
„Skjólstæðingur minn mátti
eiga von á 16 ára fangelsi eða vera
talinn ósakhæfur vegna andlegs
ástands hans. Læknirinn vildi
ekki úrskurða hann ósakhæfan en
bætti því við að refsing fyrir hann
myndi ekki hafa mikla þýðingu
þar sem hann mundi ekki skynja
hana. Mér finnst dómurinn í heild
vel rökstuddur," sagði Örn
Clausen, verjandi Sigurðar, eftir
að dómurinn hafði verið kveðinn
upp.
„Þeir eru ákærðir sem sam-
verkamenn og að því leyti kemur
mér það á óvart hversu mildari
dóm Ólafur fékk, þó að hann hafi
gefið sig fram,“ sagði Þórir Odds-
son saksóknari í málinu.
Ákæruvaldið hefur 8 vikur til
að áffýja dómnum til Hæstaréttar.
Verjendur bræðranna hafa 4 vikur
til að áfrýja. Bræðumir hafa setið
í gæsluvarðhaldi síðan 3. október
sl. og kemur gæsluvarðhaldsvistin
til frádráttar dómnum. Bræðurnir
voru einnig dæmdir til að greiða
ekkju Lámsar og þremur börnum
þeirra rúmar níu og hálfa milljón
króna í skaðabætur. -RR
Veðrið á morgun og mánudag:
Snjókoma norðanlands
Á morgun verður norðaustan- og síðar norðanátt, viða allhvöss eða Á mánudaginn verður minnkandi norðvestanátt og él norðaustanlands,
hvöss. Rigning suðaustan- og austanlands, en snjókoma eða él og vægt en snýst í austanátt með slyddu eða snjókomu sunnanlands. Frost 0 til 8
frost norðan- og norðvestanlands. stig, kaldast norðanlands. Veðrið í dag er á bls. 73
Mánudagur
iplýsingar frá Veöurstofu íslands
Sunnudagur