Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 16
16 1+ 17 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1998 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1998 íþróttir DV rs 9 9 8 500 m skautahlaup karla: 1. Hirogasu Shimizu, Japan . . . 71,35 2. Jeremy Wotherspoon, Kanad. 71,84 3. Kevin Overland, Kanad. . . . 71,86 Snjóbretti, stórsvig kvenna: 1. Karine Ruby, Frakklandi 2. Heidi Renoth, Þýskalandi 3. Brigitte Köck, Austurríki ískurl (Curling) kvenna: Kanada-Japan.................7-4 Bretland-Noregur ...........64 Bandaríkin-Þýskaland.........8-5 Svíþjóð-Danmörk..............5-4 Japan-Svíþjóð . .. . 6-12 Kanada-Danmörk .... 9-5 Bretland-Bandarikin .... 8-5 ískurl (Curling) karla: Kanada-Bretland . ... 10-3 Þýskaland-Svíþjóð .... 6-7 Bandaríkin-Noregur .... 7-6 Sviss-Japan .... 5-3 Íshokkí karla: A-riðill: Kazakhstan-Slóvakia .... 4-3 Italía-Austurríki .... 5-2 B-riðill: Hvíta-Rússland-Japan . . . . .... 2-2 Þýskaland-Frakkland .... 2-0 Kazakhstan og Hvita-Rússland unnu riðlana og fara í átta liða úrsiit- in ásamt stórþjóðunum sex sem nú mæta til keppni. Íshokkí kvenna: Kanada-Svíþjóð.............5-3 Skíðastökk af 90 m palli: 1. Jani Soininen, Finnlandi . .. 234,5 2. Kazuyoshi Funaki, Japan . . . 233,5 3. Andreas Widhoelzl, Austurr. 232,5 20 km skíðaskotfimi karla: 1. Halvard Hanevold....Noregur 2. Pier Alberto Carrara .Italíu 3. Aleksei Aidarov .... H-Rússlandi Risasvig kvenna: 1. Picabo Street, Bandar .... 1:18,02 2. Michela Dorfmeister, Aust. 1:18,03 3. Alexand. Meissnitzer, Aust. 1:18,09 Hólasvig kvenna: 1. Tae Satoya............Japan 2. Tatjana Mittermayer . . Þýskaland 3. Kari Traa...........Noregur Hólasvig karla: 1. Jonny Moseley . . Bandaríkjunum Féll á lyfjaprófi Kanadamaðurinn Ross Rebagliati, sem vann gull í svigi á snjóbrettum í Nagano sl. sunnudag, var gert að skila þeim í morgun þegar í ljós kom að hann hafði neytt maríjúna á leikunum. Lytjanefnd alþjóða ólympíunefndarinnar var ekki samstíga í ákvörðun sinni og ætla Kanadamenn að áfrýja mál- inu. -JKS Ikvöld 1. dcild karla i handbolta: KA-HK . 20.00 ÍR-Fram . 20.00 Haukar-Stjarnan . 20.00 ÍBV-Breiðablik . 20.00 Víkingur-FH . 20.00 Blak - bikar karla: Þróttur R.-ÍS . 20.00 Ný vinnubrögð = réttlæti Um fátt hefur verið meira talað und- anfarna daga en bikarúrslitaleik Fram og Váls og þann mikla gauragang sem varð undir leikslok. Kæra Framara, sem er að öllu leyti skiljanleg, hefur verið dómtekin hjá Dómstóli HSÍ og niöurstöðu er að vænta á næstu dögum. Og nái réttlætið fram að ganga munu liðin leika á ný um bik- armeistaratitilinn. Þaö liggur ljóst fyrir i þessu máli að jöfnunarmark Valsmanna var ólöglegt og því átti aldrei að koma til framleng- ingar. Einnig er Ijóst að sjö rauðklædd- ir Valsmenn voru á leikvellinum síð- ustu sekúndur leiksins. Siðan voru gerð gróf mistök við tímatöku undir lok venjulegs leiktíma. Það hefur löngum reynst erfitt að kæra einstaka dóma í kappleikjum og varla hægt að gera ráð fyrir því að dóm- stólar taki tillit til slíkra hluta. Öðru máli gegnir um framkvæmd leikja. At- riði þar sem segja má að yfirumsjón dómara leiksins sleppi. Allir hljóta aö vera sammála um að réttlætið hafi ekki verið haft í hávegum í umræddum bikarúrslitaleik. En hvað er til ráða? Hvað er hægt að gera til að koma i veg fyrir að þetta end- urtaki sig? Að brot gegn leilú-eglum á afdrifaríkasta augnabliki leiks skipti máli og sé leiörétt í 1 stað þess að leggja grunn- inn að sigri þess er brot- ið hefur af sér? Að mínu mati er ekki nema ein leið til þess. Þegar atvik eins og í umræddum bikar- úrslitaleik koma upp þurfa dómarar að hafa aðstöðu til að skoða um- rædd atvik í sjónvarpi, ein- ir og sér baksviðs, og koma síðan til baka með endanlega nið- urstöðu. Þetta þekkist erlendis í öðrum íþróttagreinum, ísknattleik og ruðningi, alla vega til skamms tíma. Um þetta þarf auðvitað að setja sérstakar reglur og skýrar. Meö tilkomu þessara reglna væri að lang mestu leyti hægt að út- rýma óréttlæti. f viðtölum við dómara leiksins hefur komið fram að þeir sáu hluti í sjónvarpi daginn eftir leikinn og leikkvöldið sem þeir sáu alls ekki þegar þeir voru að dæma umræddan úrslitaleik. Þá var hins vegar of seint að fara að endurskoða ranga og óréttláta hluti. Þessi atriði hefðu dómaram- ir séð á einni til tveim- ur mínútum baksviðs. Rétt niðurstaða hefði litið dagsins ljós og rétt- ir aðilar hefðu fagnað sigri. Auðvitað þarf að vanda sérstaklega vel til reglu- gerðar varðandi þessa hluti og ekki meiningin að dómarar leggist í sjón- varpsgláp í tíma og ótíma. Með þessum eina hætti er hins vegar hægt að koma í veg fyrir að rangir aðilar hirði sigur af þeim sem eiga hann skilið. Fyrir liggur að dómarar og eftirlits- dómari bikarúrslitaleiksins hafa viður- kennt mistök og yfirsjónir. Þeir eru meiri menn fyrir vikið. Þessir aðilar, sem lengi hafa starfað viö íþróttina, hafa sagt að þeir séu miöur sín vegna þess sem fyrir kom. Öllum geta orðið á mistök. Þessir þrír reyndu dómarar eru ekki minni menn eftir bikarúrslitaleik- inn. Þeir eru mannlegir sem betur fer og eiga vonandi eftir að starfa lengi enn við handknattleikinn. Skapa þarf starfsmönnum betri starfsaðstöðu. Allur óþarfa mannskapur þarf að vera eins fjarri og hægt er. Und- arlegur ágangur sjónvarpsvéla við rit- araborðið þarf að heyra sögunni til. Menn þurfa að hafa frið við sín störf. Ef þessi skilyrði verða ekki til staðar er hættunni boðið heim eins og dæmin sanna. Breytum vinnubrögðum og vinnuaðstöðu og tryggjum þar með framgang réttlætisins í framtíðinni. -SK l INGIAHP Varnarjaxlarnir Steve Bould og Nigel Winterbum framlengdu i gær samninga sina við Arsenal um eitt ár en þeir áttu að renna út í vor. Bould er 35 ára og Winterbum 34 en Arsene Wenger, framkvæmdastjóri, segir að báðir séu leikmenn í hæsta gæða- flokki og sterkir karakterar fyrir fé- lagið. Callum Davidson, vamarmaður með St. Johnstone og skoska 21-árs landsliðinu, var í gær seldur til Blackburn fyrir 200 milljónir króna. Tony Adams verður fyrirliði Eng- lands gegn Chile í kvöld og tekur við bandinu af Paul Ince. David Beckham hefur neitað öllum sögusögnum þess efnis að hann sé á forum til AC Mílan frá Man Utd. „Ég á enn eftir 3 ár af samningi mínum og mér líður vel hjá United," sagði Beck- ham. Chris Sutton, leikmaður Blackbum, neitaði að leika með b-liði Englend- inga gegn Chile i gærkvöld. Sutton var mjög ósáttur við að vera ekki val- inn í a-landslið Englendinga og hefur nú endanlega fyrirgert möguleikum sinum á sæti í HM-liði Englands í sumar. -VS/SK Tómas Ingi til Þróttara - nýliðarnir komnir með sex nýja Bandaríska stúlkan Picabo Street fær hér hamingjuóskir frá bronshafanum Alexöndru Meissnitzer eftir sigurinn í risasviginu í Nagano í nótt. Silfurverðlaunin féllu f skaut austurrísku stúlkunni Michaelu Dorfmeister. Mynd-Reuter Vetrarólympíuleikarnir i Nagano i nótt: Jani Soininen flaug upp á efsta þrepið - bandariskur sigur i risasvigi kvenna Nýliðum Þróttar í úrvalsdeild- inni í knattspyrnu hefur bæst góð- ur liðsauki. Tómas Ingi Tómasson, framlínumaður, hefur ákveðið að ganga til liðs við félagið en hann hefur undanfarin tvö ár leikið með Raufoss í norsku 2. deildinni. Tómas Ingi hefur lengst af sínum ferli leikið með ÍBV en hefur einnig leikið með KR og síðast með Grindavík hér á landi. Tómas er sjötti nýi leikmaðurinn sem Þróttarar fá í lið sitt. Þeir hafa fengið Daða Dervic frá Leiftri, Hrein Hringsson frá Þór, Ás- mund Haraldsson frá FH, Kristján Jónsson frá Elfsborg og Martein Hilmarsson frá Þrótti Nes- kaupstað. Tveir leikmenn sem léku með liðinu í 1. deild- inni á síðustu leiktíð eru famir í önnur félög. Heiðar Helguson (áður Sigurjónsson) er kominn til norska 1. deildarliðsins Lilleström og Sigurð- ur Ragnar Eyjólfsson gekk í raðir ÍA. Leyndarmál rákanna Hollenskir skautahlauparar vöktu mikla athygli í skautakeppni Ólympíuleikanna á dögunum þegar þeir notuðu „hraðskreiðarí hettur“ með því markmiði að setja þrjú heimsmet í sömu greininni. Rákirnar, sem festar eru á hetturnar, ryðja frá sér lofti og draga þannig úr mótstööuaflinu sem annars myndi hægja á ferð skautamannsins. Sigurður „Ravanelli" Hall varðsson lýsti þvi yfir haust að hann myndi leggja skóna á hilluna en hann hefur æft vel að undanfórnu og aldrei að vita nema að hann verði með Þrótturum í sum- ar. „Ég held að það verði m ekki meiri breyting á ’ hópnum nema að eitt- hvað óvænt detti inn er hóflega bjartsýnn en við ætlum að Meiningin er að á borð. Eg fyrir sumarið standa okkur. Memmgm er koma vel undirbúnir til leiks og partur i því er æfmgaferð sem við fórum um páskana til Hollands," sagði Willum Þór Þórsson, þjálf- ari Þróttar, við DV í gær. -GH Iþróttir Gustaf á út- eið? fer líklega til Willstátt í Þýskalandi Flest bendir til þess að Gústaf Bjamason, lands- liðsmaður úr Haukum, verði næsti íslenski hand- boltamaðurinn sem gerir strandhögg í Þýskalandi. Sam- kvæmt heimildum DV í Þýska- landi gengur hann til liðs við 2. deildarlið Willstátt fyrir næsta tímabil en með því leikur Magnús Sigurðsson, fyrrum Stjörnumaður. Gústaf hefur átt marga góða leiki með íslenska landsliðinu undanfarin ár og var fyrirliði þess á alþjóðlega mótinu í Svíþjóð i ársbyrjun. Hann er sennilega „feitasti bitinn“ sem eftir er í 1. deildinni hér heima og bætist væntanlega í fríðan hóp íslenskra leikmanna í þýska handboltanum. Willstatt er nú í 10. sæti af 18 liðum í suður- riðli 2. deildar og hefur dalað nokkuð eftir góða byrjun i vetur. Þar er hins vegar mikill metnaður í gangi og félagið ætlar sér stóra hluti og sæti í 1. deild innan tveggja ára. Magnús öflugur með Willstátt Magnús Sigurðsson hefur verið í aðalhlut- verki hjá Willstátt í vetur. Um síðustu helgi gerði hann 8 mörk í jafntefli gegn Solingen, 23-23. Honum hefur gengið mjög vel og skorar að jafnaði 8-12 mörk í leik og er einn af markahæstu leikmönnum i 2. deild. Ein rák hettunni. Finninn Jani Soininen innbyrti önnur gullverðlaun Finna á vetrar- ólympíuleikunum i Nagano í nótt. Soininen sigraði með glæsibrag í skíðastökkskeppni af 90 metra palli eftir hörkuskemmtilega og jafna keppni viö heimamanninn Kazuyus- hi Funaki. Finninn flaug til sigurs og á efsta þrep en hann hlaut alls 234,5 stig fyrir stökkin tvö. Soininen var í öðru sæti eftir fyrri umferðina með stökk upp á 90 metra slétta en alls hófu 62 stökkvarar keppni en 30 efstu í þeim komust áfram eftir fyrri um- ferðina. Það var hins vegar Japan- inn Masahiko sem var í efsta sæti eftir fyrri umferðina en þegar upp var staðið varð hann að gera sér flmmta sætið aö góðu. I siðari um- ferðinni náði hann sér ekki á strik. Soininen stökk alls 89 metra í síð- ara stökkinu og þaö nægði honum til sigurs. Japaninn Funaki hlaut alls 233,5 stig í öðru sæti og í þriðja sætinu hafnaði Austurríksmaður- inn Andreas Widhoelzl. Norðmenn ná sér ekki enn á strik Besti árangur Norðmanna í nótt var 8. sætið en í því hafnaði Kristi- an Brenden. Ólympíumeistarinn frá Lillehammer, Espen Bredesen, var langt frá sínu besta og lenti í 36. sætið eftir fyrri umferðina og komst þar af leiðandi ekki áfram í síðari umferðina. Bandaríska sjnilkan Picabo Street vann gullverðlaun í risastórsvigi í nótt en fresta varð þessari keppni á fyrstu dögum leikanna vegna snjó- komu. Michela Dorfmeister frá Austurríki varð önnur, en hún haföi rásnúmerið 18 af 44 kepp- endum, og landa hennar, Alexandra Meissnitzer, krækti sér í bronsverð- launin. Kvennaknattspyrna: Reynir ekki með Reynir úr Sandgerði hefur dregið lið sitt út úr úrvalsdeild kvenna í knattspymu. Reynis- stúlkumar sigraðu í 1. deildinni á síðasta timabili og áttu að leika í fyrsta skipti í efstu deild næsta sumar. Þetta er vegna manneklu en nokkrir af sterkustu leikmönn- um liðsins hafa gengið til liðs við önnur félög. Fjögur félög koma til greina í úrvalsdeildina „Reynismenn hafa staðfest þetta við KSÍ og málið er nú í höndum mótanefndar, eins og reglugerð segir til um. Við höf- um skýrt þeim félögum sem komust í úrslitakeppni 1. deildar í fyrra, Sindra, Hvöt og Fjölni, frá stöðu mála, og ennfremur ÍBA, sem féll í fyrra. Mótanefnd mun síðan ákveða hvaða félag tekur sæti Reynis eftir að hafa heyrt viðbrögð þessara félaga," sagði Birkir Sveinsson, starfs- maður KSÍ, við DV í gærkvöld. -VS Þrjú keppa i Eskilstuna Þrír íslendingar taka þátt í sænska meistaramótinu í frjáls- um íþróttum innanhúss sem fram fer í Eskilstuna um næstu helgi. Heimsmethafinn Vala Flosa- dóttir keppir að sjálfsögðu í stangarstökki og þar verður líka Þórey Edda Elísdóttir úr FH en hún á nú næstbesta árangur árs- ins á Norðurlöndum, á eftir Völu. Þá fer Einar Karl Hjartarson úr ÍR utan og keppir í hástökki. Einar Karl, sem er aðeins 17 ára, setti íslandsmet á meistaramót- inu um síðustu helgi þegar hann stökk 2,16 metra og reynir ef- laust að bæta það. -VS IR hársbreidd frá sigri ÍR var hársbreidd frá óvænt- um sigri í Grindavík í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöld. ÍR, sem ekki hefur fengið stig í vetur, var 18-27 yfir í hálfleik og leiddi í lokin. Á síðustu sekúnd- unni skoraði hins vegar Rósa Ragnarsdóttir og tryggði Grinda- vík nauman sigur, 45-44. Birna Valgarðsdóttir skoraði 13 stig fyrir Grindavík og Svan- hildur Káradóttir 12 en Stella Kristjánsdóttir gerði 14 stig fyrir ÍRog Guðrún A. Sigurðardóttir 13. -VS Neira tryggði Chile sigur Fjórtán þúsund áhorfendur sáu Manuel Neira tryggja b- landsliði Chile öraggan sigur gegn b-liði Englendinga á Villa Park í Birmingham í gærkvöld. Lokatölur urðu 1-2. Neira skoraði bæði mörk Chile á 70. og 82. mínútu. Það var svo Emile Heskey, leikmaður Leicester City, sem skoraði mark Eng- lands á síðustu mínútu leiksins. Úrslitin verða eflaust til þess að hleypa illu blóði í leikmenn a- liðs enskra sem mætir Chile í vináttuleik í kvöld. -SK Tranmere Rovers sigraði Swindon Town í 1. deild ensku knattspymunnar I gærkvöld, 3-0. Undarlegar yiirlýsingar Jerry Krause, fram- kvæmdastjóra Chicago Bulls, hafa sett allt á annan endann hjá félaginu. Krause sagdi á dögunum að Phil Jackson, þjálfari liðsins, væri á fórum frá fé- laginu. Hann sagðist jafn- framt vonast til þess að Michael Jordan yrði áfram hjá félaginu. Michael Jordan hefur lýst því margoft yfir að hann fari frá Chicago ef Jackson hætti sem þjálfari. Jackson hefur skilað Chicago 5 meistaratitlum á undan- fömum árum. Stjarnan komst í gærkvöld í bikarúrslit karla í blaki með ömggum 0-3 sigri gegn KA á Akureyri. Hrin- urnar enduðu 9-15,14-16 og 5-15. Þróttur R. og ÍS eiga enn eftir aö leika í 8-liöa úrslit- um keppninnar og er sá leikur í kvöld. Sigurliðið mætir síðan Þrótti frá Nes- kaupstað í undanúrslitum. Aston Villa hefur klagað Atletico Madrid til Alþjóða knattspyrnusambandsins fyrir að ræða á ólöglegan hátt við Savo Milosevic. Mallorca er komið í und- anúrslit spænsku bikar- keppninnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Athletic Bilbao. Liðin voru þar með jöfn, 2-2, en Mallorca fer áíram á marki á útivelli. Marc Baumgartner, sviss- neska stórskyttan í hand- boltanum, fer frá Lemgo til Winterthur í Sviss eftir þetta tímabil. Lemgo samdi í gær við Hvít-Rússann Genadij Kha- lepo hjá Nettelstedt og hann á að leysa Baumgar- tner af hólmi. Bjarki Gunnlaugsson sagði í viðtali í Morgun- blaðinu í gær að hann myndi ekki leika framar með landsliö- inu á meðan Guðjón Þórö- arson væri þar við stjórn. -SK/VS m KEILA 1. deild kvenna: Skutlurnar-Tryggðatröll ......2-6 Flakkarar-KR .................6-2 Afturgöngur-Keilusystur.......44 Keiluálfar-Ernir .............8-0 Staða efstu liða: Afturgöngurnar................lio Flakkarar ....................108 Tryggðatröll...................72 Veikir Valsarar - frestað vegna flensu Mótanefnd HSÍ ákvað í gær að fresta leik Aftureldingar og Vals sem fram átti að fara í 1. deild karla í handbolta í kvöld. Ástæðan er sú. að sex leikmenn Valsliðsins eru veikir og fékk nefndin í hendur læknisvottorð þar að lútandi, með beiðni um frestun frá handknatt- leiksdeild Vals. Sexmenningamir eru Jón Krist- jánsson, Júlíus Gunnarsson, Val- garð Thoroddsen, Theodór Valsson, Sigfús Sigurðsson og Daníel Ragn- arsson. -VS NBA í nótt: Toronto stóð í Chicago - Phoenix marði sigur á heimavelli gegn Sacramento Leikmenn í NBA tóku upp þráð- inn að nýju eftir körfuboltahátíð- ina i New York um síðustu helgi. í nótt voru háðir 12 leikir og urðu úrslit sem hér segir. Indiana-Orlando .............85-66 Miller 16, Smits 16 - Anderson 16, Grant 12. New York-Charlotte ..........99-91 Starks 26, Houston 24 - Maxwell 22, Wesley 13. Cleveland-Miami..............81-91 Henderson 18, Kemp 14 - Mashburn 21, Mourning 16. New Jersey-Dallas............90-81 Cassel 26, Van Hom 17 - Finley 26, Reeves 24. Houston-Seattle.............97-83 Drexler 19, Johnson 14 - Payton 20, Baker 15. Milwaukee-Atlanta ........100-108 Allen 28, Robinson 24 - Smith 27, Bla- ylock 20. Chicago-Toronto.............93-86 Kukoc 21, Jordan 18 - Stoudamire 19, Slater 16. Denver-Boston..............112-99 Newman 34, Ellis 19 - Mercer 19, Billup 15. Utah-LA Clippers...........106-98 Malone 29, Hornacek 21 - Robinson 22, Piatkowski 18. Phoenix-Sacramento.........88-86 Kidd 21, Chapman 16 - Williamson 26, Stewart 14. Portland-LA Lakers.......117-105 Rider 24, Trent 19 - O’Neal 31, Bryant 17. Golden State-Washington . . . 87-99 Smith 36, Marshall 12 - Murry 50, Strickland 21. Chicago þurfti að hafa fyrir sigrinum gegn Toronto en það var þáttur Toni Kukoc á lokakaflanum sem kom sigri Bulls í örugga höfn. -JKS t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.