Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritsýórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði l800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Vítahringur vangetu og hroka Birtingarmyndir hrokans eru margvíslegar. Stundum telja sumir gikkir nauðsynlegt að ganga svo langt í hrok- anum, að þeir missa stjórn á samhenginu og verða van- hæfir í starfi. Þannig hefur farið fyrir yfirmönnum fjár- málaráðuneytisins, sem eiga íslandsmet í hroka. Umboðsmaður Alþingis hefur kortlagt dæmi um þetta. í fjórtán mánuði svaraði ráðuneytið ekki bréfi hans út af lífeyrissjóði, sem fjármálaráðuneytið hafði skaðað. Með því að svara ekki bréfinu í fjórtán mánuði, magnaði ráðuneytið vísvitandi tjónið, sem það olli sjóðnum. Engar skýringar fengust frá ráðuneytinu, þótt eftir væri leitað. Þegar svar kom loksins, var það ófullnægj- andi. Þannig reyndi ráðuneytið að leggja stein í götu umboðsmanns Alþingis og draga úr líkum á, að réttlæt- ið kæmi þolanda rangindanna að gagni í tæka tíð. Umboðsmaður Alþingis hefur sent forseta Alþingis og forsætisráðherra álitsgerð, þar sem kemur fram, að íjár- málaráðuneytið sker sig úr öðrum stofnunum stjórnsýsl- unnar í hrokafullum viðbrögðum eða öllu heldur við- bragðaleysi við fyrirspurnum umboðsmanns. Umboðsmaðurinn segir, að borgarar ríkisins eigi rétt á, að stjórnvöld afgreiði mál þeirra, en liggi ekki á þeim langtímum saman, meðal annars til að vinna tíma til að framleiða nýjar leikreglur. Telur hann, að ráðuneytið geti orðið bótaskylt af völdum stærilætis síns. Álit umboðsmanns er mun harðorðara en tíðkast á vettvangi embættiskerfisins. Það beinist fyrst og fremst gegn fjármálaráðherra og ráðuneytisstjóra, sem bera beinasta ábyrgð á viðbrögðum ráðuneytisins við tilraun- um annarra stjórnvalda til að hafa vit fyrir þeim. í Kardimommubæ íslenzka þjóðfélagsins tekur forsæt- isráðherra við pappírum af þessu tagi, hummar kurteis- lega og stingur þeim undir stól. Hvorki fjármálaráðherr- ann né ráðuneytisstjórinn eru látnir taka pokann sinn eins og vanhæfir gikkir í stjórnkerfi annarra ríkja. Komið hefur í ljós, að stjómsýsla fjármálaráðuneytis- ins er í molum. Ekki er svarað mikilvægum bréfum, sem varða stöðu ráðuneytisins í tilverunni. Ráðamenn þess láta geðþótta leysa lög og reglur af hólmi. Þeir tefja réttlætismál meðan þeir eru að smíða nýjar leikreglur. Á sama tíma og ráðuneytið leggur sig í líma við að valda sumum vandræðum og fjárhagstjóni, fer það yfir lækinn að hjálpa öðmm aðila, sem stundað hefur mestu skattsvik aldarinnar. Ríkisendurskoðandi telur, að ráðu- neytið hafi með því valdið ríkissjóði miklu tjóni. Harðorðar greinargerðir tveggja embættismanna, sem eru óháðir stjórnsýslunni, gefa þá mynd af fjármála- ráðuneytinu, að þar fari saman vangeta og hroki. Upp- haflega framleiðir ráðuneytið vandræði með vangetu sinni og magnar þau síðan á vængjum hrokans. Engum, sem horfir á málflutning ráðherrans í sjón- varpi, dylst, að þar fer persónugervingur hrokans. Lang- ar setur hans í ráðuneytinu hafa magnað svipaðar til- hneigingar æðstu embættismanna þess og framkallað þá meinsemd, sem ráðuneytið er orðið í stjórnsýsluni. Hroki byrjar á þeirri ranghugmynd, að menn viti og geri betur en aðrir. Þegar hrokinn magnast, gerir hann þá ófæra um að taka ráðum og sönsum og leiðir þá út í ófærur. Afleiðingin verður fljótlega sú, að gikkirnir vita minna og skila lakara starfi en aðrir. Ráðuneytið er læst á vítahring vangetu og hroka, þar sem hvort leiðir af hinu. Vítahringurinn verður aðeins rofrnn með mannaskiptum á æðstu stöðum. Jónas Kristjánsson Ömurlegt aö sjómenn eru aö skipast í andstæöar fylkingar eftir veiðitegundum og stærö skipa, segir Gísli m.a. í grein sinni. Ahrif afnáms tvö- földunar línuafla Fyrir þremur árum afnam AI- þingi Islendinga lög um tvöföldun línuafla sem var á ákveðnu tíma- bili ársins, það var yfir hluta haust- og vetrarvertíðar. Án þess að riija það sérstaklega upp að einstökum aðilum var færður í hendur veiðiréttur sem nemur milljónum og tugum millj- óna þá stefndu einstakir aðilar ljóst og leynt að því á ákveðnu tímabili að afla sér eins mikilla viðmiðunarheimilda og þeir gátu, vitandi vits að þeir vildu síðan af- leggja línutvöföldunina. Þessir að- ilar gerðu sumir út báta með beitningavélum og sóttu gifurlega fast, af miklum dugnaði. Þessir sömu aöilar áttu þá tvo og upp í fimm báta sem þeir létu sækja viðmiðunarheimildir. Núna eru þekkt dæmi þar sem aflaheimildir hafa verið fluttar á milli skipa, heim- ildir seldar og sjómönnum fækkað, allt í nafni hagræð- ingar. hér er um rætt verður að laga því út úr þess- ari aðgerð varð mismunun. Hvernig ber aö lagfæra mistökin? Ég tel unnt að lagfæra mis- tökin í áföng- um. Dæmið verði reiknað að nýju. Sú viðmiðun sem notuð var við úthlutun afla- heimilda til landróðrarbáta verði FÆRÐ Kjallarinn Gísii S. Einarsson, 5. þingmaöur Vesturlands Munum eftir fólki í fiskvinnslunni! Þeir sem stunduðu veiðar með línu og reru úr landi með beitta línu á hefðbund- inn máta gjalda nú fyrir og hafa úr miklu minna að spila. Auk þess sitja nú fjölmargar smærri vinnslur, sem keyptu línufiskinn, uppi með vannýtt hús, það er: færra fólk, minna fiskmagn. Þær skrimta varla eða standa tæpt. Hér er á ferðinni eitt dæmi um mistök í fiskveiðistjórnunarkerf- inu. Allir voru settir við sama borð, hvort sem um smáa eða stóra báta var að ræða, hvort sem um útileguskip eða landróðrar- báta var að ræða. Hvort útgerðin var mjög atvinnuskapandi (beitn- ing í landi) eða ekki. Þetta sem „Eg hefheyrt menn segja að þeir hefðu aldrei trúað því upp á sjálfa sig að henda línufiski en neyð af völdum fiskveiðistjórn- unar þvingar menn til slíkra hluta...u TIL FYRRA HORFS og þeir sem í hlut eiga fái að hverfa til fyrri reglna í áföngum, þó ekki væri annað, og tvöfóldun kæmi að fullu á t.d. 3 árum fyrir aðra en þá sem áunnu sér veiðirétt á útilegubát- um. Aflinn sem á land barst á þess- um árum var allur afli úr sjó dreg- inn á línu. Núna eru menn famir að koma með verðmætasta hluta aflans vegna þess að þeir neyðast til að fá eins mikið og unnt er úr takmörkuðum afla, þvi er verð- minni fiski hent. Ég hef heyrt menn segja að þeir hefðu aldrei trúað því upp á sjálfa sig að henda línufiski en neyð af völdum fisk- veiðistjórnunar þvingar menn til slíkra hluta meðan ekki er miðað við verðmæti sem bátur má skila að landi. Einn möguleiki! Það út af fyrir sig er ekki stór vandi að taka viðmið- unarverð fyrir hvert ár sem liðið er og miða við þorskígildi og dæmið væri þá eftirfarandi: Bátur með 10 þorskígildistonn sl. ár með meðaltalsverð 100 kr. á kg má landa afla fyrir 1 milljón. Þó meöalverðið færi í 70 kr. fyrir kg þá yrðu tonnin bara fleiri. Ennfremur ber að huga að breyttum reglum þannig að bátar undir ákveðinni stærð megi veiða sem svarar verð- mætum tiu þorskígildis- tonnum/á tonn upp að 6 tn. stærðarmarki. Það gildi fyrir allan afla og miðist við rekstrargrunn útgerðareiningar. Smá- hefur stórlega vantað í á síðastliðnum árum fisk vinnslu vegna þess að menn koma ekki með hann að landi vegna verðsins. Undirritaður telur að það verði að vera rými fyrir öll þau útgerð- armynstur sem rekin eru hér á landi. Það er ömurlegt að sjómenn eru að skipast í andstæðar fylk- ingar eftir veiðitegundum og stærð skipa. Einnig verður að vinna að því að allur afli fái við- urkenningu og vottun fyrir góða umgengni og bestu umgengni FRÁ MIÐUM í MAGA! Gísli S. Einarsson Skoðanir annarra Forgangsröðun á sjúkrahúsum „Það blasir við að eitt af því erfiðasta sem stjóm- völd hafa glímt við á síðustu árum er að stöðva vöxt útgjalda til heilbrigðismála. Kosturinn við forgangs- röðun er að með henni er fengin aðferð til að bjóða upp á nákvæmlega þá þjónustu sem hið opinbera hefur getu til að greiða fyrir. Sem hagstjómartæki er slíkur listi tiltölulega einfaldur en frá stjómmála- legu sjónarhorni kann slíkur listi að vera kaleikur sem stjórnmálamenn vilja síður bergja á.“ Úr forsiðugrein 2. tbl. Vísbendingar. Myndavél í framhaldsskóla „Þetta er ekkert sem á að geta skaðað heiðvirt fólk. Það verður bara lesið úr þessu ef eitthvað kem- ur fyrir. Við emm fyrst og fremst að horfa til óboð- inna gesta og emm einkum með nætumar í huga... Viö bíðum ekki alltaf eftir fordæmum. Þetta er sett upp á vistinni til vamar. Það hefur komið fyrir að utanaðkomandi aðilar hafa vaðið inn á vistina og valdið spjöllum á t.d. slökkvibúnaði. Þar sem ekki er enn búið að tengja myndavélamar þá misstum við af því nýverið þegar slökkvitæki var tæmt.“ Jón Hjartarson skólastjóri í Degi 10. janúar. Barneignir ungs fólks „Ég tel að margt geti skýrt þessa háu tíðni. Þó að ýmislegt hafi verið gert til að bæta kynfræðslu í skólum þarf að sjá til þess að hún nái til allra. Þjón- usta varðandi getnaðarvamir fyrir ungt fólk hefur ekki miðast sérstaklega við þarflr þess. Samfélagið hefur lagt ríka áherslu á mörg börn. Takmarkaður aðgangur er að vissum getnaðarvörnum og verð þeirra of hátt... Á sama tíma og fæðingum hefur far- ið fækkandi í þessum aldurshópi þá hefur fóstureyð- ingum farið fjölgandi. Þetta þýðir að enn eru marg- ar þunganir meðal ungs fólks.“ Sóley S. Bender í Mbl. 10. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.