Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 23« Sviðsljós Cindy skoðar nýjustu tísku Indlands Bandaríska ofurfyrirsætan Cindy Crawford notar hvert tæki- færi sem gefst til að kynna sér stefnu og strauma í tískunni, sama hvort hún er heima eða heiman. Um daginn var stúlkan á kynn- ingarferð um Indland fyrir úra- framleiðandann Omega og svo skemmtilega vildi til að þá var einmitt haldin tískuvika í höfuð- borginni Nýju-Delhi. Cindy gat náttúrlega ekki á sér setið og brá sér að sjá alla dýrðina. Cindy hitti að sjálfsögðu fullt af fallegu fólki á ferð sinni. Þar skal sérstaklega nefna indversku feg- urðardrottninguna Díönu. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli. Cindy sæta hittir sætt fólk. Viltu flytja - eitthvað All Saints rótburst- Anthony ekki til klerk- anna Stórleikarinn aldni Anthony Quinn hefur afþakkað boð um að heimsækja íran sem gestur kvik- myndahátíðarinnar í Teheran. Quinn sagðist ekki getað komið til lands ajatollanna af persónu- legum ástæðum. Fjölmargar mynda Anthonys hafa verið sýndar á kvikmynd- hátíðinni sem hófst í lok janúar. Jack Nicholson er alltaf samur við sig, skyggir á jafnvel fegurstu konur. Ekki er þó annaö að sjá en henni Rebeccu Broussard, kærustu ieikarans, líki það vei. Að minnsta kosti horfði hún full aðdáunar á hann þegar þau mættu til af- hendingar kvikmyndaverölauna í New York. Nicholson fékk verölaun fyrir leik sinn í myndinni As Good as it Gets. Fyrir þann leik er hann einnig til- nefndur til óskarsverðlaunanna. uðu Ný stelpugrúppa, All Saints, burstaði Kryddpíumar þegar bresku Brit tónlistarverðlaunin voru afhent á mánudagskvöld. Nú eru menn í bransanum þeirrar skoðunar að stórveldistími Kryddpí- anna sé senn á enda og að All Saints taki við. Þær Melanie Blatt, Shaznay Lew- is og systurnar Nicole og Nat App- leton grétu af gleði þegar tilkynnt var að þær hefðu hlotið verðlaun fyrir hæði besta myndbandið og bestu smáskífuna, Never ever. Keppinautamir, Kryddpíumar, fengu engin verðlaun í hefðbundn- um flokkum. Aðstandendur tónlistarhátíðar- innar veittu þeim samt aukaverð- laun fyrir sérstakt framlag á al- þjóðavettvangi. Þaö var gert til að Mel B. og vinkonur hennar yrðu Kryddpíurnar ekki leiðar, að því er erlendir fjöl- miðlar fúllyrða. „Það var rétt ákvörðun. Kryddpí- umar áttu skilið að verðlaun líka. Margir halda að það sé stríð á milli All Saints og Kryddpíanna. Það er bara vitleysa," sagði Nicole App- leton eftir tónlistarhátíðina. Helsti sigurvegarinn á hátíðinni var þó The Verve sem kjörin var besta hljómsveitin. The Verve fór einnig með sigur af hólmi er valin var besta breiðskífan, Urban hymns, og í vali á besta framleiðandanum. En The Verve mætti ekki á hátíðina. Hljómsveitin kaus að spila á góð- gerðartónleikum í staðinn. „Okkur fannst betra að afla fjár fyrir heimilislausa i London en að standa á sviði fyrir framan fjölda fólks í bransanum," útskýrði All Saints uröu sigursælar á bresku tónlistarhátíöinni í London. söngvarinn Richard Achcroft. Emma Thompson á von á barni Orðrómur er á kreiki um að breska kvikmyndaleik- konan Emma Thompson eigi von á bami. Emma er sögð hafa hætt við að leika guð í myndinni Dogma. Hafa erlend slúðurblöð það eftir leikstjóranum Kevin Smith að leikkonan eigi von á barni og þess vegna þurfi að leita að nýj- um guði. Kærasti Emmu er Greg Wise og það er auðvitað hann sem talinn er eiga von á baminu með Emmu. Emma varð ástfangin af honum er hún lék í kvik- myndinni Vonir og vænt- ingar árið 1995. Vegna ást- arinnar á Greg yfirgaf hún eiginmann sinn, leikarann og leikstjórann Kenneth Branagh. Aukablað um bíla mun fylgja DV miðvikudaginn 18. febrúar. Meðal efnis í blaðinu verður kynning á úrvali nýrra fólksbíla og jeppa sem í boði eru 1998. Einnig verður fjallað um ýmislegt er tengist bílum og bílavörum. Umsjón efnis: Sigurður Hreiðar og Jóhannes Reykdal í síma 550 5000. Umsjón auglýsinga: Gústaf Kristinsson í síma 550 5731. Síðasti pöntunardagur auglýsinga er fimmtudaginn 12. febrúar. Gabrield (höggdeyfar) GSvarahlutir Hamarshöföa 1-112 Reykjavík Sími 567 6744-Fax 567 3703

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.