Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 Afmæli Axel Eiríksson Axel Eiríksson rafvélavirki, Hraunbæ 50, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Axel fæddist á Vorsabæ á Skeiö- um og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Hann gekk í bamaskóla á Húsatóftum og í Brautarholti á Skeiðum, stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni í tvo vetur, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði rafvélavirkjun hjá Halldóri Ólafssyni, lauk sveinsprófi í þeirri grein og öðlaðist síðan meistararéttindi. Axel starfaði hjá Halldóri um skeið að námi loknu, vann síðan hjá ýmsum aðilum en starfaði lengst af hjá Vélamiðstöð Reykjavíkurborg- ar, eða um tuttugu og fimm ára skeið, þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Frá því Axel hætti störfum hefur hann stundað ýmis uppfinninga- og hönnunarstörf, auk þess sem hann hefur stundað viðgerðir er tengjast hans iöngrein. Axel er í Félagi ís- lenskra rafvirkja og í Fé- lagi íslenskra hugvits- manna. Fjölskylda Eiginkona Axels var Guðbjörg Eyjólfsdóttir, f. 14.3. 1932, d. 24.7. 1990, húsmóðir. Hún var dóttir Eyjólfs Þórarins Jakobs- sonar, f. 22.9. 1899, d. 12.10. 1985, bónda og tré- smiðs að Dyrhólum í Mýrdal, og k.h., Ólafar Sóleyjar Guðmundsdótt- ur, f. 28.3. 1912, d. 24.2. 1983, hús- freyju. Böm Axels og Guðbjargar em Ei- ríkur Axelsson, f. 29.9. 1953, iðnaðar- maður, búsettur í Reykjavík; Guð- brandur Rúnar Axelsson, f. 9.10. 1957, vagnstjóri hjá SVR, búsettur í Reykjavík, kvæntur Margréti And- relin og eignuðust þau tvö böm. Systkini Axels: Ragna, f. 13.8.1917, húsmóðir i Reykjavík, var gift Her- manni Bæringssyni vélstjóra, sem er látinn, og eignuðust þau þrjú böm; Sigursteinn, f. 14.5. 1919, d. 18.12.1934; Jón, f. 20.10. 1921, bóndi og fyrrv. odd- viti í Vorsabæ, kvæntur Emelíu Kristbjörnsdóttur og eiga þau fjögur böm; óskirður drengur, f. and- vana 12.6. 1925; Helga, f. 17.10. 1928, bóndakona í Vorsabæ; Friðsemd, f. 23.4.1932, húsmóðir á Sel- fossi, gift Þórkatli Björg- vinssyni og eiga þau sex börn; Sigríður Þóra, f. 29.8. 1936, húsfreyja í Birtingaholti, gift Ágústi Sigurðssyni, bónda þar, og eiga þau fimm börn. Foreldrar Axels voru Eirikur Jónsson, f. 13.4. 1891, d. 28.3. 1963, bóndi og oddviti í Vorsabæ, og k.h., Kristrún Þorsteinsdóttir, f. 19.2. 1894, d. 25.6. 1966, húsfreyja. Ætt Eiríkur var sonur Jóns, b. i Vorsabæ, Einarssonar, b. á Syðri- Brúnavöllum, Eggertssonar. Móðir Eiríks var Helga Ragnhildur, systir Vigdísar í Miðdal, ömmu Guðmund- ar frá Miðdal, föður Errós, en Vig- dís var einnig langamma Vigdísar forseta. Helga Ragnhildur vat' dóttir Eiríks, b. i Vorsabæ, bróður Mar- grétar, langömmu Sigríðar, móður Vigdisar forseta. Eiríkur var sonur Hafliða hins auðga, á Birnustöðum, Þorkelssonar. Móðir Helgu Ragn- hildar var Ingveldur, systir Ófeigs á Fjalli, afa Tryggva útgerðarmanns, afa Trygga Pálssonar, framkvæmda- stjóra í íslandsbanka. Ingveldur var dóttir Ófeigs ríka á FjaUi og ættfóð- ur FjaUsættarinnar Vigfússonar. Móðir Ingveldar var Ingunn Eiríks- dóttir, dbrm. og ættfóður Reykjaætt- arinnar, Vigfússonar. Kristrún var dóttir Þorsteins, smiðs á Sæbóli, Teitssonar, á Ein- arsstöðum á Eyrarbakka, Helgason- ar. Móðir Þorsteins var Guðrún Sig- urðardóttir, b. á Hrauni í Ölfusi, Þorgrímssonar, b. í Ranakoti, Bergssonar, í Brattsholti og ættfoð- ur Bergsættarinnar, Sturlaugsson- ar. Móðir Kristrúnar var Sigríður Eyjólfsdóttir, b. á Grímslæk, Eyj- ólfssonar. Axel Eiríksson. Magnús Þór Sverrisson Magnús Þór Sverrisson, fyrrv. út- gerðarmaður frá Grindavík, Vatnsnes- vegi 30, Keflavík, er sextugur í dag. Starfsferill Magnús fæddist í Brimnesi í Grindavík og ólst upp í Grindavík. Þar lauk hann almennri skólagöngu og stimdaði síðan nám við Héraðs- skólann í Reykholti í tvo vetur. Magnús var á vertíð á mb. Skími GK 1955. Hann stundaði síðan útgerð með föður sínum til 1964. Þá festi hann kaup á hlut föður síns og starf- rækti einn útgerðina tU 1972. Bjami Gunnarsson gekk þá tU liðs við Magn- ús en þeir stoöiuðu útgerðarfyrirtæk- ið Sverri hf. Þeir starfræktu fýrirtæk- ið tU 1979 en ágreiningur við Fisk- veiðisjóð varð þá tU þess að Magnús hætti í útgerð. Magnús hóf síðan störf hjá vamar- Uðinu á KeflavíkurflugveUi 1983 þar sem hann starfar enn. Fjölskylda Eiginkona Magnúsar er Þuríður Hrefna Sigurjónsdóttir Petersen, f. 6.2. 1938, húsmóðir. Þau hófu búskap 6.6. 1956. Þuriður Hrefna er dóttir Sigur- jóns Petersen og Valgeröar Bjama- dóttur sem bæði era látin. Böm Magnúsar og Þuríðar Hrefnu era Sigurjón Petersen Magnússon, f. 25.12.1957, sjómaður í Grmdavík, var kvæntur Rúnu Adólfsdóttur, f. 24.9. 1958, d. 12.11.1997, húsmóð- ur og gjaldkera hjá Spari- sjóði Grindavíkur, og era böm þeirra þrjú; Valgerð- ur Magnúsdóttir, f. 18.6. 1960, starfsmaður hjá vam- arliðinu í Keflavík, búsett í Njarðvík, hennar maður er Sigurður Guðbjömsson pípulagningarmaður; Sverrir Þór Magnússon, f. 14.4.1975, matreiðslunemi. Systkini Magnúsar: Þor- bergur, f. 13.4. 1924, nú lát- inn, sjómaður í Grindavík; Sigurbergur, f. 20.7. 1925, vélstjóri í Keflavík; Ema, f. 2.8. 1929, húsmóðir og verslunarmaður í Keflavik; Ólafur, f. 29.5. 1932, sjómaður og skipsfjóri í Grindavík. Hálfsystir Magnúsar, sam- mæðra, var Ólafia Sigur- geirsdóttir, f. 8.1. 1920, d. 24.12. 1940. Foreldrar Magnúsar vora Sverrir Sigurðsson, f. 24.7. 1899, d. 28.3. 1978, útgerð- armaður og fiskverkandi í Grindavik, og Guðmunda Ólafsdóttir, f. 18.5. 1901, d. 12.3. 1984, húsfreyja, frá Hæðarenda í Grindavík. Eiginkona Magnúsar, Þur- iður Hrefha, varð sextug þann 6.2. sl. Þau hjónin taka á móti gestum í tilefhi afinælanna í húsi Iðn- sveinafélagsins við Tjamargötu, laug- ardaginn 14.2., frá kl. 15.00-18.00. Þuríður H.S. Petersen Þuríður fæddist í Hafn- arflrði en ólst upp í Kefla- vik þar sem hún lauk al- mennri skólagöngu. Á unglingsárunum stundaði Þuríður fisk- vinnslu í Keflavík. Hún flutti til Grindavíkur 1956 þar sem hún varð ráðs- kona hjá tengdaföður sinum og eig- inmanni. Þau fluttu síð- an til Keflavíkur 1985 þar sem Þuríður hefur stund- að almenn verkamanna- störf. Fjölskylda Eiginmaður Þuríðar er Magnús Þór Sverrisson, f. 11.2.1938, fyrrv. útgerð- armaður. Hann er sonur Sverris Sigm-ðssonar og Guðmundu Ólafsdóttur sem bæði eru látin. Sonur Þuríðar er Guð- mundur Th. Ólafsson, f. 18.10. 1953, verslunarstjóri í Kefla- vík, kvæntur Þóreyju Brynju Jóns- dóttur og á hann fjögur böm, eitt bamabam og tvö fósturböm. Börn Þuríðar og Magnúsar eru Sigurjón Petersen Magnússon, f. 25.12. 1957, sjómaður í Grindavik, var kvæntur Rúnu Adólfsdóttur, f. 24.9. 1958, d. 12.11. 1997, húsmóður og gjaldkera hjá Sparisjóði Grinda- víkur, og eru böm þeirra þrjú; Val- gerður Magnúsdóttir, f. 18.6. 1960, starfsmaður hjá varnarliöinu í Keflavík, búsett í Njarðvík, 'en hennar maður er Sigurður Guð- bjömsson pípulagningarmaður; Sverrir Þór Magnússon, f. 14.4.1975, matreiðslunemi. Systir Þuríðar er Ingibjörg Guð- rún Sigurjónsdóttir, f. 21.10. 1939, búsett í Bandaríkjunum. Foreldrar Þuríðar voru Sigurjón Petersen, f. 28.9.1904, d. 1.2.1947, og Valgerður Bjamadóttir, f. 20.9. 1915, d. 6.5. 1997. Fósturfaðir Þuríðar var Guð- mundur Guðmundsson, f. 15.9. 1915, d. 25.8. 1997. Eiginmaður Þuríðar, Magnús Þór, er sextugur í dag. í tilefni afmælanna taka þau hjónin á móti gestum í húsi Iðn- sveinafélagsins við Tjamargötu laugardaginn 14.2., milli kl. 15 og 18. Þuríöur Hrefna Sigur- jónsdóttir Petersen hús- móðir, Vatnsnesvegi 30, Keflavík, varð sextug á fóstudaginn. Starfsferill Þurföur Hrefna Sigurjónsdóttir Petersen. Bridge Spilaður var tölvureiknaður Mon- rad-barómeter með þátttöku 30 para 30. janúar. Spilaðar vora 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Efstu pör voru: 1. Halldór Þórólfsson-Andrés Þór- arinsson 89 st. 2. Guðbjöm Þórðar- son-Jón H. Hilmarsson 88 st. 3. Sæv- in Bjamason-Bogi Sigurbjörnsson 86 st. og 4. Guðjón Bragason-Her- mann Friðriksson 54. Föstudagsbridge BR er spilað öll fóstudagskvöld og byrjar spila- mennska kl. 19. Spilaðir era eins kvölds tölvureiknaðir tvimenningar. Þriðjudagsbridge BR 3. febrúar var spOaður eins kvölds tölvureiknaður Monrad-barómeter með þátttöku 30 para. SpOaðar voru 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Efstu pör voru: 1. Sturla Snæbjörnsson-CecO Har- aldsson 119 st. 2. ísak Örn Sigurðsson -Hrólfur Hjaltason 85 st. 3. Guðjón Jónsson-Þorvaldur Finnsson 55. Aðalsveitakeppni BR 1998 Staða efstu sveita eftir 2 kvöld af 6 er þannig: 1.-2. Nota bene 110 st. 1.-2. Máln- ing 110 st. 3. Öm Amþórsson 109 st. 4.-5. Grandi 108 st. 4.-5. Roche 108. Bridgefélag Breiðfirðinga 5. febrúar var spOaður eins kvölds HoweU-tvimenningur með þátttöku 14 para. Efstu pör voru: 1. Gunnlaugur Sævarsson-VU- hjálmur Sigurðsson jr. 193 st. 2. Guðrún Jóhannesdóttir-ísak Örn Sigurðsson 186 st. 3. Guðmúndur Baldursson-Guðbjörn Þórðarson 177. Ættfræðigreinar síðustu 10 ára eru á www.dv.is DV Til hamingju með afmælið 11. febrúar 70 ára Þórarinn Heiðar Þorvaldsson, Safamýri 48, Reykjavík. Jón Tryggvi Valentínusson, Grænumýri 8, Seltjarnamesi. Sigurður Jóhannsson, Norðurbyggð 4, Akureyri. 60 ára Bima Ketilsdóttir, Austurbyggð 1, Akureyri. 50 ára Þórir Ágústsson, Laugateigi 9, Reykjavík. Halldór Björnsson, Bæjarholti 7B, Hafnarfirði. Sigþór Bjarnason, Akurgerði 11C, Akureyri. 40 ára Hallgrímur Baldursson, Lyngrima 8, Reykjavík. Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir, Austurströnd 10, Seltjamamesi. Sigmjón Sveinn Rannversson, Lindasmára 54, Kópavogi. Tryggvi Þór Ólafsson, Lækjarsmára 104, Kópavogi. Guðleif Bergsdóttir, Norðurvöllum 58, Keflavík. Valur Þór Guðjónssson, Vesturgötu 46, Keflavík. Sigurður Ingvarsson, Hafnargötu 23, Bakkafirði. Anna Margrét Ingólfsdóttir, Álfhólahjáleigu, Vestur-Landeyjahreppi. og greiöslukorta- afsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smáauglýsingar ITST*1 550 5000 IJrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun sem lifír mánuðum og árumsaman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.