Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 32
að.viwm ÍFRÉTTASKOTIÐ ilSÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 Lögreglan elti ökuníðing Lögreglan í Hafnarfirði gaf öku- manni bifreiðar merki um að stöðva þar sem hann hafði mælst á of mikl- um hraða á Álftanesvegi rétt fyrir i*-klukkan hálfþrjú í nótt. Maðurinn sinnti því engu, gaf allt í botn, ók á ógnarhraða inn í Hafnarfjörð og síð- an út úr honum aftur og inn í Kópa- vog. Lögreglan í Hafnarfirði elti og síðan bættust við bílar úr Kópavogi þegar þangað kom. Maðurinn hélt leið sinni áfram í átt til Reykjavík- ur. Á Kringlumýrarbraut sneri hann við þegar lögreglan kom á móti honum. Hasarinn endaði siðan með því að maðurinn hljóp út úr bíl sínum á Hafnarfjaröarvegi við Víf- ilsstaði og reyndi að stinga af á tveimur jafnfljótum. Lögreglan í Hafnarfirði hljóp manninn uppi og stakk honum í steininn. Hann verð- ur yfirheyrður í dag. -sv Enn finnst engin loðna DV, Akureyri: „Við höfum ekki fundið nokkra loðnu og þetta fer nú að verða háif- neyðarlegt," sagði Hjálmar Vil- hjálmsson, leiðangursstjóri um borð í hafrannsóknarskipinu Áma Frið- rikssyni, i morgun. Loðnuleit út af Suður- og Austur- ^tandi hefur nú staðið yfir í vikutíma án nokkurs árangurs. Loðnuskipið Ammassat er einnig á miðunum og sú litla „lóðning" sem þar fékkst í gærmorgun, og sumir héldu að gæti veriö byrjunin á einhverju meiru, reyndist ekkert vera þegar betur var að gáð í gærkvöldi. Við leitum skipulega á svæðinu, við munum fara austur og norður með skilunum á hlýja og kalda sjón- um og vonandi fer eitthvað að ger- ast. það er hins vegar heldur hvim- leitt að hafa ekki skip við svona leit sem gengur hraðar en 10-11 mílur,“ sagði Hjálmar. -gk Valt með pitsurnar Pitsabíll valt á Nýbýlavegi við Stórahjalla klukkan rúmlega tíu í gærkvöld. Ökumaður meiddist ekki en fjarlægja þurfti bílinn af vett- vangi með kranabifreið. -sv Einn á slysadeild Tveir bílar skullu harkalega sam- an á mótum Hólmasels og Seljaskóga um kl. 21 í gærkvöld. Flytja þurfti ökumann annarrar bifreiðarinnar á sjúkrahús. Hann var meiddur á fæti og bólginn á nefi. Bíl hans þurfti að ’fjarlægja með kranabifreið. -sv Leikrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, „Heilagir syndarar", var frumsýnt í Grafarvogskirkju í gærkvöldi. Hér sjáum við Þröst Leó Gunnarsson, sem leikur aðal hlutverkið, leikstjórann Magnús Geir Þórðarson og höfundinn Guðrúnu Ásmundsdóttur að lokinni aðalæfingu í fyrrakvöld. DV-mynd Hilmar Þói Sjómenn lögðu fram tilboð um frestun verkfalls: Allt fast vegna bókunar Fulltrúar Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, Sjómanna- sambands íslands og Alþýðusam- bands íslands gengu í gær á fund sáttasemjara og lögðu fram tilboð um frestun verkfalls til 15. mars. Tillagan þykir vera krókur á móti því bragði ríkisstjómarinnar að setja lög á deiluna. Tilboðið var háð því að útgerðarmenn samþykktu það óbreytt en þar er kveðið á um að skipuð verði þriggja manna emb- ættismannanefnd svo sem gert var ráð fyrir í frumvarpsdrögum ríkis- stjórnar. Nefndinni er ætlað að koma skikk á mál sem snúa að kvótairamsali og verðmyndun sjáv- arfangs. Karp í Karphúsi Útgerðarmenn og sjómenn mættu til fundar í Karphúsinu kl. 21 í gær- kvöld þar sem þrefað var um málið til klukkan hálfþrjú, þegar fundi var frestað, án þess að sátt næðist um tillögu sjómanna um frestun. Út- gerðarmenn vom að sögn Kristjáns Ragnarssonar hlynntir frestuninni Hér afhendir Sævar Gunnarsson, forseti Sjómannasambandsins, Þóri Einarssyni frestunartillöguna um- deildu í gær. DV-mynd Pjetur en vildu láta koma skýrt fram að rangt væri að þeir hafi óskað eftir því að lagasetning kæmi til lausnar deilunni. „Það eina sem við vildum taka fram var að það væri ekki að okkar ósk að til slíkrar lagasetningar kæmi. Meö einhverjum hætti sem við ekki skiljum gat það ekki geng- ið,“ sagði Kristján í morgun. Hann segir útvegsmenn hafa talið að tillaga sjómanna um frestun næði ekki nógu langt. Tíminn væri of knappur frá því nefndinni væri ætlað að skila af sér og þangað til verkfall skylli á að nýju. Á þau sjón- armið hafi sjómenn ekki fallist og því hefðu útgerðarmenn fallið frá kröfunni um lengri frest. „Þeir komu með eitthvert bréf sem þeir rituðu sáttasemjara og gerðu kröfu til þess að við árituðum það athugasemdalaust. Það hefur nú varla farið fram hjá neinum að við höfum átt að stjórna þingi, stjóma ríkisstjóm og rita lagatexta. Við vildum einungis árétta það að þetta væri ekki með þeim hætti,“ segir Kristján. Sáttasemjari reyndi í nótt að sætta fylkingar og í því skyni bauð hann sjómönnum að einnig væri bókað eftir þeim að þeir hafi ekki beðið um lög til lausnar deilunni. Allt kom fyrir ekki og var fundi slit- ið án þess að samkomulag næðist um frestun verkfalls. „Menn em bara ekki í neinu jafn- vægi, það var rækilega undirstrikað í nótt. Þaö var í raun enginn ágrein- ingur uppi og ekki verið að deila um neitt efnislega. Ég vona að menn nái áttum. Þetta er nánast aðhlát- ursefni og ekki skiljanlegt neinum rnanni," sagði Kristján. Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags íslands, sagði við DV í morg- un að nóttin hefði farið fyrir lítið. „Það fór allur tíminn í að karpa um orðalag. Þetta er deila um keis- arans skegg,“ sagði hann. Nýr fundur deiluaðila hefur verið boðaður klukkan 13 í dag þar sem tekist verður á um bókanir áfram. Líklegt er talið að verkfalli verði frestað eftir þann fund og skip kom- ist á sjó á morgun. -rt Veðrið á morgun: Suðaust- angola Á hádegi á morgun verður suðaustangola og dálítil él suð- austan til. Slydduél verða á Vest- urlandi en léttskýjað norðan- lands. Hiti verður 0 til 3 stig allra vestast en annars staðar 0 til 10 stiga frost, kaldast á Norðaustur- landi. Veöriö í dag er á bls. 29.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.