Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Blaðsíða 10
io menning MIÐYIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 JjV Ágústína Jónsdóttir. Einar Már Guðmundsson. Fimm tilnefningar í bókmenntum Húmor, ljóðræna og spenna „Við erum afar montnar af því að svona margar stelpur skyldu komast með,“ segir Gerður Kristný um tilnefningar til DV-verð- launanna í bókmenntum. Þrjár bækur eftir konur eru tilnefndar og tvær eftir karla. Nefndin byrjaði á að velja úr útgefnum bók- um síðasta árs um það bil helming sem þau lásu öll og ræddu á fundum sínum. Fáeinar bækur flökkuðu inn og út af listanum en góð samstaða varð um hann að lokum. - Var þetta erfitt verk, Gerður Kristný? „Við þurftum að halda vel á spöðunum en fyrir þann sem hefur gaman af bókum er þetta einstaklega skemmtilegt verkefni." Þessar bækur hlutu tilnefningu: Elskan mín ég dey eftir Kristínu Ómarsdóttur: Elskan mín ég dey fjallar um eftirlætisefni Kristínar, dauðann og ástina. Sagan segir frá stórri íjölskyldu þar sem sumir eru lifandi, aðr- Kristín Ómarsdóttir. ir dánir og enn aðrir að fara að deyja. í meðförum Kristinar verður dauðinn eftir- sóknarvert og bráð- skemmtilegt hlut- skipti. Hún kann þá list aö umvefja ógn- vænlega atburði hlýju og kímni, gerir það undarlega eðlilegt, sorgina að gleði og gæðir ljótleikann feg- urð. Furðulegur húmor og kostulegur söguþráður gera þetta að hennar besta verki til þessa. Guöbergur Bergsson. Faðir og móðir og duhnagn berns- kunnar eftir Guöberg Bergsson: Höfundur ferðast á bernskuslóðir sínar í Grindavík og stefnir saman litla dregnum Guðbergi og full- orðna Guðbergi sem saman reyna að muna, skilja og skil- greina. Fortíðin rís úr djúpinu í þeirri mynd sem tilfinning- in litar ekki síður en sannleikurinn. Útkoman •er einlæg og áhrifamikil frásögn af daglegu amstri hversdagsfólks og samskiptum barna og foreldra sem eru ekki alltaf eins og minnið helst vildi hafa þau. Hér mætast skemmtilegustu höfundareinkenni Guð- bergs: húmor, leiftrandi stíll og næmt auga fyrir undarlegheitum mann- lifsins. Lífakur eftir Ágústínu Jónsdóttur: Ágústína spinnur ljóðavef sinn úr finlegum þráðum myndmáls og tilfinninga. Tengsl nátt- úrumynda og kennda eru því áberandi i ljóðum hennar og ljóðaveröld hennar er heilsteypt. Kvæðin einkennast af naumum ljóðstíl sem er í senn hljóðlátur, viðkvæmur og ljóðrænn en kveikir með lesanda ljúfsárar kenndir. Útlit bókarinnar er óvenju glæsilegt en það er hann- að af höfundi sem einnig er myndlistarmaður. Þórunn Valdimarsdóttir. Fótspor á himnum eftir Einar Má Guómundsson: Fótspor á himnum er ættarsaga úr Reykjavík. Meginviðfangsefni verksins er fátæktin og erfið lífsbarátta íslenskrar alþýðu á fyrri hluta þess- arar aldar. Sagt er frá þeim mörgu og smáu sem voru vélarafl sögunnar. Þeir stíga ljóslifandi fram á sjónarsviðiö sem eftirminnilegar persón- ur í þjáningu sinni og kvöl svo og barnslegri hlýju og ást. Textinn mótast af sterkustu höf- undareinkennum Einars, hugarflugi og ljóðræn- um stíl. Alveg nóg eftir Þórunni Valdimarsdóttur: Spennandi og dramatísk saga um tveggja barna móður sem hverfur á vit óvissunnar í von um betri tíma. í nýju landi kynnist hún allsnægtum og eldheitri ást en einnig efasemd- um, ótta og botn- lausri sorg. Heit- ar tilfinningar og sterk samlíðunar- kennd einkennir textann sem er í senn átakanlegur og ólgandi af lífs- gleði. Sekt, sak- leysi, vonir og vonbrigði - allt er þetta spunnið saman af innsæi svo úr verður sannfærandi og grípandi saga af nútímakonu í leit að lífsfyllingu. í verðlaunanefnd DV um bókmenntir sátu Gerður Kristný, rithöfundur og blaðamaður, Sigríður Albertsdóttir gagnrýnandi og Skafti Þ. Halldórsson gagnrýnandi. Yen, dollarar, pund, mörk og krónur Leikprufur í Borgar- leikhúsinu 1 Ungt fólk, takið eftir! 1 Um helgina, nánar tiltekið : 14.-17. febrúar, verða haldnar j söng-, dans- og leikprufur í Borgar- leikhúsinu þar sem sérstaklega í verður leitað að ungu hæfileika- fólki, 16 ára og eldra. Til stendur j að setja upp söngleikinn Grease í • sumar en sem kunnugt er gerist hann í menntaskóla og fjallar um j ungar ástir sem ganga svona og svona. Fyrirhugað er aö frumsýna Gre- 1 ase á stóra sviði Borgarleikhússins ! í júnUok og á Kenn Oldfield að i setja hann upp. Síðasti smeUur : hans hér á landi var Galdrakarlinn í Oz. Jón Ólafsson mun annast tón- j listarstjóm. Og þá er bara j að bursta dansskóna 1 og ræskja sig vel, ' krakk- . ar... Olivia Newton John og John Travolta léku aðalhlutverkin í hinni geysi- vinsælu bíómynd, Grease, 1978. Á íslandi gengu þau undir nöfnunum Ólafía níutíutonn og Jón til trafala. : Færeyskir tónlistar- menn í heimsókn Tónlistarfélagið í Færeyjum hef- ur skipulagt tónleikaför tveggja kunnra þarlendra tónlistarmanna tU íslands og Danmerkur. Þetta eru píanóleikarinn Jóhannes Andreassen, sem hefúr haldið tón- leika víða um lönd og leikið inn á hljómplötur, og fiöluleikarinn Ossur Bæk. Félagarnir halda tvenna tón- leika á íslandi. Þeir fyrri eru í Tón- listarskólanum í Keflavík þriöju- daginn kemur, þeir síðari í Nor- ræna húsinu að kvöldi miðviku- dagsins 18. febrúar kl. 20.30. Þeir félagar ætla að leika verk eftir Mozart, Stravinsky og Brahms. Að reykja eða ekki Félagar í Stoppleikhópnum hafa nú farið um allt land með leikritið Á-kafi eftir Valgeir Skagförð og sýnt það unglingadeUdum grann- skóla. Um 8.000 ungmenni hafa séð verkið og nú er röðin komin að höfúðborgarsvæðinu. Þau byrja í Kópavogi í dag, verða í Hafnarfirði á morgun og í Seljaskóla í Reykja- Frómur maður gaf íslenskum tímaritum nafn fyrir ahþónokkru. Hann kaUaði þau kláðarit. Nafngiftin byggðist á því að efni blaðanna vekti langanir hjá lesendum sem aðeins brot þeirra gat fullnægt broti af. Sala blaðanna var háð draumhyggju kaupandans. Hún fylgir svo aftur súluriti þorskstofnsins. Maðurinn er nefnUega ekki veruleikafirrtari en svo að hann dreymir jafnvel í samræmi við stööu þjóðarbúsins. Til að mæta draumhruni lesenda urðu kláða- ritin að snúa við blaöinu. Greinar um hluti viku fyrir greinum um fólk. Viðtölin voru ekki að- eins við fegurð, frægð og fé heldur fengu snauð- ir inni líka. Þannig buðu blöðin blandaðan mat- seðU þar sem mannlegi þátturinn var meðlæti allra rétta. Nú ertu þau ekki eingöngu, heldur veittu líka huggun. Úr þessum garði átti enginn von á að upp sprytti tímarit sem skapaði sér eigið tegundar- heiti; sníkilrit. Þau höfðu lengi verið tU í útlönd- um, en menn vUdu trúa að hér væri hvorki markaður né andrúmsloft fyrir þau. Rangt. Séð & Heyrt er eitt mest selda tímarit landsins. Sníkilrit einkennast af fréttum af einkalífi fólks sem er hinum almenna lesanda svo fjar- stætt að hann getur enga samsömun fundið með viðkomandi. Ennfremur greinir fréttin yfirleitt frá atburði í lífi ofurstjömunnar sem hefur eng- in áhrif út fyrir veggi heimilis hans/hennar. Hún vekur ekki forvitni og seður heldur enga, því bæði upphaf og endi vantar, það birtast að- Fjölmiðlar Auður Haralds eins skyndimyndir sem aldrei raðast saman í lifandi manneskju með mannleg einkenni, sem þá væri orðin eins og við hin. Tegundarheitið kemur tU af því, að ritið er sníkill á einkalifi viðfangsefna sinna, á meöan lesandinn reynir að lifa í háskalegri hæð Í gegnum þá sem hafa náð upp tU stjamanna. S&H reynir þó að gera betur. Það er vits- munalegt viðtal í síðasta hefti við Guðrúnu Ás- mundsdóttur, leikkonu og leikritahöfund, en af ótta við að fæla lesendur frá er fyrirsögnin „Ég hef elskað of oft!“ Viðtalið fjallar ekki um ásta- mál hennar og þaðan af síður fjöllyndi. Mat blaðsins á hugarástandi þjóðar lýsir sér í öðrum fyrirsögnum. „Gæti orðið miUjóner" um skíðaiðkanir, „mikla peninga" um söngleik, ...gerir engan ríkan“ um djass, „miUjarðamær- ingur“ í sagtenntri, rauðri bólu hjá Oprah Win- frey, sem fær „flott með nýja hárgreiðslu" sem aðalfyrirsögn um helför hennar í hendur tex- anskra kúabænda. íslensk sjónvarpsstjarna eignast barn, en gæfa þeirra hjóna er ekki fólg- in í hraustum strák sem þeim geðjast persónu- lega að, heldur því að hann kemur í heiminn á fæðingardegi Jimi Hendrix. Þau heppin, sér- staklega ef pilturinn verður alveg eins og Jimi. Heilsíðumynd af Fíölni nöktum væri góð á ís- skápshurðir heima hjá mörgum mjúkholda manninum, þó þeir fái varla tveggja mUljóna króna úr fyrir smá aðhald. Upphrópunarmerki eru á annað þúsund í blaðinu og aðeins eitt annað rit nálgast S&H í notkun upphrópunarmerkja. Það er Vaknið! Gefið út af Vottum Jehóva. Katrín Þorkelsdóttir: Að reykja eða ekki - þar er efinn. vík á fóstudag og svo framvegis. Almennar sýningar eru einnig | áætlaðar en verða kynntar síðar. í verkinu er fjaUað um skaðsemi j tóbaksreykinga og Eggert Kaaber I leikari sagði að fyrir kæmi að ein- í mitt þeir sem þyrftu mest á því að I halda að heyra boðskap verksins I reyndu að komast hjá því. En Ikennai'ar og samnemendur hafa gætt þess vel að enginn skrópaði! Aðeins tveir leikarar fara með öU hlutverkin fjórtán, Eggert og Katrin Þorkelsdóttir. Höfundur tónlistar og leikstjóri er Valgeir Skagfjörö. Á-kafi er samvinnuverk- efni Stoppleikhópsins, Krabba- meinsfélagsins og Tóbaksvarna- nefndar. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.