Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Höfum notið trausts viðskiptavinanna
- segir Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu
„Paö hefur veriö okkar gæfa aö vera með rétta vöru á réttum tíma og á réttu veröi,“ segir Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu.
DV-mynd Hilmar Pór
„Þetta var mjög gott ár, eitt af
allra bestu árum Heklu. Bílamark-
aðurinn óx um fjórðung á milli ára
og við héldum okkar markaðshlut-
deild, 22,57%, og það erum við í
Heklu mjög ánægð með,“ segir Sig-
fús Sigfússon forstjóri.
„Takmark okkar var að ná 22%
markaðshlutdeild . Við viljum vera
á toppnum hvað þjónustuna varðar
en þegar kemur að markaðshlut-
deild sættum við okkur fyllilega við
okkar hlut. Hjá Heklu snýst ekki
allt um magn eða markaðshlut-
deild." Sigfús segir þetta vera eitt af
aðalmarkmiðum i stefnumörkun
fyrirtækisins.
„Aðaláherslan er á að þjóna við-
skiptavinunum, óskir og þarfir við-
skiptavinarins koma ávallt í fyrsta
sæti. Starfsfólk Heklu er mjög með-
vitað um þennan hugsunarhátt og á
raunar mestan þátt í að skapa hann.
Starfsfólkið veit að Hekla er þjón-
ustufyrirtæki þar sem komið er
fram við viðskiptavininn af sann-
gimi. Heiðarleiki í viðskiptum er
hin gullna regla. Auðvitað er þetta
skylda hvers fyrirtækis en það er
nú svo einfalt að okkar velgengni
byggir á þessum grundvallarþátt-
um; heiðarleika, þjónustu, sann-
gimi og jákvæðni. Viðskiptavinir
Heklu vita að starfsfólk fyrirtækis-
ins er áhugasamt og metnaðargjamt
og þetta kann fólk að meta. Þess
vegna höfum við notið trausts hjá
viðskiptavinum okkar. Bílamarkað-
urinn í heild hefur verið í lægð í
mörg ár. Það hefur verið okkar
gæfa að vera með rétta vöra á rétt-
um tíma og á réttu verði,“ segir Sig-
fús. „Við tökum ekki þátt í að
blekkja viðskiptavini okkar með því
að bjóða vildarkjör eða punktakerfi
eða þá „gefa“ sérpakka sem umboð-
in verðleggja sjálf á kannski tvöfalt
hærra verði en pakkarnir kosta um-
boðin. Samkvæmt öllum markaðs-
rannsóknum er það tilgangur gylli-
boða að fela hátt vöraverð. Við í
Heklu tökum ekki þátt í slíku. Við
lítum einnig þannig á málin að eðli-
legast sé að viðskiptavinurinn sjálf-
ur ákveði hvaða aukahluti hann kýs
að kaupa. Við höfum enga þörf fyr-
ir að ákveða slíkt fyrir fólk og þeg-
ar kemur að utanlandsferðunum
flnnst okkur einnig eðlilegast að
fólk ákveði sjálft hvenær það kaup-
ir sér ferðir til útlanda. Því að allt
kostar þetta náttúrulega peninga og
á endanum er það viðskiptavinur-
inn sem ber kostnaðinn, þaö segir
sig náttúrulega sjálft."
- En hvemig lítur Sigfús fram á
þetta ár?
„Við í Heklu reynum að vera
frekar raunsæ, en ég held að árið
veröi gott. Þó vil ég vera varkár.
Heildarsalan verður væntanlega
svipuð og i fyrra, en ef hún verður
meiri þá lítum við á það sem auka-
bónus fyrir fólkið í landinu því að
bílafloti landsmanna er orðinn of
gamall og dýr í rekstri. Með nýrri
tækni era bílar orðnir spameytnari
og mun hágkvæmari bæði fyrir um-
hverflð og eigendur sina.“
Tveir nýir bílar
„Við komum til með að kynna tvo
bíla á næstu vikum, Skoda og Gall-
oper, sem er framleiddur í Suður-
Kóreu. Þessi jeppi er byggður á
eldri gerð Pajero, veralega endur-
bættum. Þar á meðal má nefna nýtt
útlit og íburðarmikla innréttingu.
Billinn í heildina er mjög vel búinn
og hefúr komið okkur skemmtilega
á óvart. Bíllinn er framleiddur eftir
gæðastöðlum Mitsubishi í Japan
undir eftirliti japanskra tækni- og
gæðaeftirlitsmanna. Þessu má likja
við þegar Japanar senda hingað eft-
irlitsmenn tU að fylgjast með loðnu-
frystingunni hér hjá okkur," bætir
Sigfús við til gamans.
„Fyrstu tveir Galloper-bílarnir
vora kynntir fyrir starfsfólki Heklu
á mánudaginn og era nú til sýnis
fyrir almenning. Skoda er einnig að
koma og þar kynnum við Octavia,
Felicia með endurbættu útliti en
skúffubíllinn verður óbreyttur. Með
Octavia erum við að bjóða góðan bíl
sem er byggður á sama grunni og
nýi Golfmn og á mjög hagstæðu
verði. Skoda er í dag smíðaður eftir
gæðastöðlum Volkswagen og mikið
af hlutum frá VW er notað til smíði
þeirra. Við hlökkum til að takast á
við þetta verkefni og það er ljóst að
Skoda á hér á landi stóran og trygg-
an kaupendahóp. Bæði Skoda og
Galloper munu koma á markað í
apríl og söludeild þessara bíla verð-
ur í upphaflega Hekluhúsinu hér
við hliðina. Þegar véladeild flytur í
annað og rúmbetra húsnæði mun
rýmkast um þessa nýju biladeild, en
þröngt mega sáttir sitja þangað til
þær breytingar eiga sér stað.“
Nýr Golf
„Nýr Golf er líka á næstu grösum,
en fyrstu bílamir koma í mars.
Þetta er bíll sem hefur farið sigurför
um heiminn og þessa dagana anna
verksmiðjumar engan veginn eftir-
spum. Auk þess er margt spennandi
á leiðinni frá Volkswagen, þar á
meðal er ný „bjalla" sem verður
komin hingað til okkar á næsta
ári.“
Velaengni á öðrum
sviöum líka
„En Hekla selur fleira en fólks-
bíla,“ segir Sigfús. „Það er um of
einblínt á fólksbíla, en hvað varðar
sendibíla er Hekla í fararbroddi
með VW, sem náði 27,7% markaðs-
hlutdeild á síðasta ári, einnig í
vinnubilum með Mitsubishi L200
með 37,6% og eins í litlum hópferða-
bifreiðum en þar var VW með 48,7%
markaðshlutdeild.
Ekki má heldur gleyma vörubíl-
unum. Við emm til þess að gera ný-
komnir inn á þennan markað og er-
um komnir í annað sætið með
Scania í nýjum vörubílum með
26,9% markaðshlutdeild og ef við
horfum til innflutnings á notuðum
vörabílum, sem aðrir standa að en
Hekla, þá er Scania í fyrsta sæti.
Við eram líka hreyknir af því að
hafa selt SVR strætisvagna frá
Scania fram yfir aldamót.“
Neyslustýring er úrelt
hugtak
Breytingar á vöragjöldum í inn-
flutningi bifreiða hafa nokkuð verið
til umræðu að undanfomu. Hvað
segir Sigfús um þau mál?
„.Neyslustýring í formi gjalda
hafa verið við lýði cilllt frá haftatím-
anum og verið að taka breytingum í
áranna rás. Stjómvaldsaðgerðir á
hverjum tíma hafa haft mikil áhrif
á neytendur hvaða stærðir af bílum
vora keyptar í það og það sinn.
Neyslustýring þessi er óviðun-
andi, hvort sem litið er til innflytj-
enda og ekki síst almennings.
Reyndar fara hagsmunir neyíenda
og okkar saman i baráttu okkar til
að lækka gjöld ekki síst á stæmi bíl-
um, sem era traustari og öraggari í
umferðinni. Ég lít meira á þetta sem
kjarkleysi stjómvalda og áhugaleys-
is stjómmálamanna á þessum mála-
flokki að ekki skuli vera búið að
taka þessa neyslustýringu af. Fjár-
málaráðherrann okkar hefur reynd-
ar lýst því yfir að neytendur eigi að
taka sínar eigin ákvarðanir en ekki
að hafa einhvem „stóra bróður“ til
að taka ákvarðanir fyrir sig þegar
hann er að lýsa skoðun sinni á nú-
verandi fyrirkomulagi. Við höfum
jafnframt bent honum á að öryggis-
búnaður bifreiðanna, sem nú er
fluttur inn hefur verið að aukast og
má þar nefna ABS hemlakerfi, líkn-
arbeli o.s.fv., sem hafa verið tollaðir
með bílunum.
Umhverfisvænar vélar hafa kom-
iö á markaðinn, t.d. GDI-vélin frá
Mitsubishi, sem er byltingarkend
hönnun á vél og framlag Mitsubishi
til móður náttúru. Bíll með þessari
vél er tollaður eins og hver annar.
Því miður hafa litil viðbrögð ver-
ið frá ráðherra og víðsýni skortir
þegar til lengri tíma er litið. Al-
menningur, FÍB, Neytendasamtök-
in, innflytjendur og tryggingafélög
verða að ganga í lið saman og opna
augu ráðherra og alþingismanna að
breytinga sé þörf, við þurfum ekki
forræðishyggju frá ríkisvaldinu.
Við viljum fá að velja og hafna án
aðstoðar ríkisvaldsins.
Ríkið sem á í basli með heil-
brigðiskerfið og þau fjölmörgu al-
varlegu umferðarslys sem verða hér
á landi á ári hveiju kosta samfélag-
ið mikla fjármuni og er okkur dýrt.
Þessar upphæðir yrðu lægri ef þess-
ari neyslustýringu yrði hætt. Ég hef
jafnframt trú á að iðgjöld trygginga-
félaga myndu lækka þars em slys á
fólki yrðu minnL Það er bæði skyn-
semi og réttlætismál að lækka gjöld,
hætta þessari neyslustýringu og
draga þannig beint og óbeint úr
kostnaði samfélagsins. Fjármálaráð-
herra.s em hefur reyndar setið
lengst allra fjármálaráðherra, verð-
ur að taka á þessu máli, því breyt-
inga er þörf. þjóð sem er að ganga
til móts við nýtt árþúsund verður
að losna frá þessari forræðishyggju
og líta til framtíðar."
Dísilskatturinn
Nokkuð hefur verið fjallað um
þungaskatt á dísilbílum og afnám
hans að undcuiförnu. Sér Sigfús
fram á að það gangi eftir?
„Það er búið að tala um þetta í
mörg ár og gera ótal ráðstafanir í þá
vera en ekkert orðiö úr fram-
kvæmdum. Einhverra hluta vegna
hefur fjármálaráðherra ekki tekið
af skarið og hrint þessu í fram-
kvæmd þótt þjóðhagslega sé þetta
verulega hagkvæmt. Ég get nú ekki
séð þetta gerast á næstunni," segir
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu að
lokum. -JR
Smátt
GM er að endurhanna Sierra-
skúffubílinn sem er söluhæsti bíll
þeirra en von er á þessum bíl í sölu
í árslok. Meðal nýjunga eru 30%
bjartari ökuljós.
Hjá Pontiac er byrjað að smíða
fyrstu Grand Am-bílana af 1999-ár-
gerð. Helstu keppinautar á Banda-
rikjamarkaði verða Honda Accord
og Toyota Camry. Meira en ein
milljón eldri Grand Am-bíla eru enn
í umferð að mati GM.
Hjá sportbílaframleiðandanum
Aston Martin, sem í dag er í eigu
Ford, er byrjað að smíða sportbíl
sem kallast Project Vantage og
kemst frá 0 upp í 100 km hraða á 4
sekúndum. Það kemur kannski ekki
á óvart þegar það er haft í huga að
bíllinn er búinn 550 hestafla vél.
1999-árgerðin af Porsche 911 Carr-
era er komin með nýtt útlit og nýja
V6-vél með tveimur yfirliggjandi
kambásum.
Hóstasaftin getur
I verió hættuleg
IEins og flestir vita getur verið hættulegt að taka inn sumar tegundir
lyfja og aka bU á eftir því virkni lyfja getur orsakaö skerta hæfni tU
aksturs ökutækja.
Lyf eiga þátt í fjórða hverju umferðaróhappi í Þýskalandi samkvæmt
upplýsingum umferðaryfirvalda þar í landi.
í orðsendingu frá þeim kemur fram að það era ekki aðeins þau lyf
| sem læknar skrifa upp á sem geta orsakað skerta hæfni tU aksturs því
: tU þess að gera „skaðlaus" lyf, eins og hóstasaft, nefdropar og höfuð-
f verkjartöflur, geta haft áhrif á aksturshæfnina.