Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
(
<
<
i
i
í
„Við getum ekki annað en horft
með bjartsýni fram á veginn," segir
Júlíus Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílheima hf. og Ing-
vars Helgasonar hf., „á þremur
árum höfum við aukið hlutdeild
okkar á islenska bílamarkaðnum og
vorum á síðasta ári með 25% mark-
aðshlutdeild samtals í fólksbílasölu.
Mikil aukning var í sölu á
Subaru, sem kom sterkur inn á
markaðinn með nýjan bíl og mjög
gott verð.
Opel hefur einnig verið í stöðugri
sókn og frá upphafi verið að bæta
við sig.
Við horfum því fram á markað-
inn á þessu ári með bjartsýni, því
hagvöxtur upp á 3,5% og 5,2% aukn-
ing kaupmáttar ráðstöfunartekna
samkvæmt Þjóðhagsstofnun eiga
einnig að gera sitt til að þetta geti
gengið eftir.
Ég vona líka að yfirstandandi
verkföll verði leyst á farsælan hátt
því það ástand sem fylgir verkföll-
um eða hættu á þeim hefur alltaf
áhrif á bílasölu.“
Hátt markaðshlutfall
ekki keppikefli
„Það er ekki keppikefli okkar að
hafa háa markaðshlutdeild, miklu
frekar að veita góða þjónustu og
halda okkar stöðu á markaðnum. 20
eða 25% skipta ekki höfuðmáli en
það bendir hins vegar ekkert til
þess að hlutdeild okkar verði ekki
áfram góð þegar upp er staðið."
• Bílheimar hf. og Ingvar Helgason
hf. eru rekin samhliða í glæsilegri
aðstöðu fyrirtækjanna við Sævar-
höföann en auk sölu nýrra bíla eru
„Viö leggjum á þaö meiri áherslu aö veita góöa þjónustu og þjóna viöskiptavinum okkar vel, frekar en að halda
hárri markaöshlutdeild," segir Júlíus Vífill Ingvarsson, sem heldur um stjórnartaumana í Bílheimum hf. og Ingvari
Helgasyni hf. meö bræörum sínum, Guömundi Ágústi og Helga, en samtals voru fyrirtækin tvö með um 25% af
heildarsölu fólksbila á síöasta ári.
þar til húsa þjónustudeildir auk
bilasölu fyrir notaða bíla og véla-
deildir Ingvars Helgasonar sem sel-
ur m.a. Massey Ferguson-dráttarvél-
ar.
Ingvar Helgason hf. er með um-
boð fyrir Nissan og Subaru en BO-
heimar hf. með umboð fyrir Opel,
Isuzu og Saab, auk þess sem þeir
selja bila frá höfuðstöðvum General
Motors í Bandaríkjunum. Fyrirtæk-
in eru í eigu Ingvars Helgasonar og
fjölskyldu hans en dagleg stjórn fyr-
irtækjanna er i höndum þriggja
sona hans, þeirra Helga, Guömund-
ar Ágústs og Júlíusar Vífils, sem
eru framkvæmdastjórar fyrirtækj-
anna.
Nýr Saab hjá Bílheimum
„Ef við horfum til þess sem er
fram undan hjá Bílheimum þá ber
það hæst að eftir tvær til þrjár vik-
ur frumsýnum við nýjan bíl frá
Saab í Svíþjóð, Saab 9-5, sem er nýr
bíll frá grunni en byggir á arfleifð
frá Saab 9000. Þessi nýi bíll er svip-
aðrar stærðar og Saab 9000 en
tæknilega séð miklu fullkomnari.
Skömmu síðar kynnum við enn
annan nýjan Saab, 9-3, sem byggir
að mestu á gamla 900-bílnum og er
mjög svipaður honum í útliti. Hér
er það sama uppi á teningnum, því
þessi nýi 9-3 er tæknilega miklu full-
komnari en fyrirrennarinn.
Nýr Isuzu Trooper birtist einnig í
apríl. Bíllinn er að mestu svipaður
þeim sem er á markaði í dag en með
nýju útliti á framenda og nýjum vél-
um.
Af Opel er það helst að segja að í
marsmánuði munum við kynna
nýja lúxusútgáfu af Opel Vectra
1600 CD. Þessi nýja Vectra er miklu
betur búin en núverandi 1600 GL.
Þá verður einnig kynnt ný útgáfa
af Opel Corsa, bæði í 3ja og 5 hurða
útgáfu, með nýrri 90 hestafla, 16
ventla ECOTEC-vél.“
Nýr Patrol frá Nissan
„Ef við horfum til Nissan þá ber
þar hæst að nýr Nissan Patrol verð-
ur kynntur í byrjun mars. Þetta er
nýr bíll frá grunni. Yflrbygging er
mjög glæsileg, miklu rýmri og mun
betur búin en fyrirrennarinn. Fjöðr-
unin byggir þá áfram á sama grunni
og meðal annars má gleðja alla
jeppaáhugamenn með þvi að hann
er áfram með heilli hásingu að
framan, sem gerir allar breytingar
mun auðveldari. Fjöðrunin hefur
verið endurbætt mikið, sem gerir
Júlíus Vífill Ingvarsson, framkvæmdastjóri Bílheima og Ingvars Helgasonar hf.:
Keppikefli að veita góða þjónustu
- samtals voru fyrirtækin tvö með fjórðung sölu fólksbíla á landinu á síðasta ári
Svona vinnur stöðug-
leikastýringin
Stöðuleikastýring heitir á ensku
„Electronic stability program",
skammstafað ESP. Það vinnur með
öðrum öryggiskerfum bifreiðarinn-
ar, svo sem ABS (hemlalæsivöm),
ASR (spólvörn) og EBR (hemlalæsi-
vörn þegar slegið er af) og myndar
þannig virkt öryggiskerfi sem eyk-
ur stöðuleika bifreiðarinnar við öll
akstursskilyrði.
Hemlalæsivörnin, sem sagt er frá
annars staðar i þessu blaði, varnar
því að hjólin læsist við hemlun á
hálum vegum og notar til þess sér-
stakan skyn- og stjórnbúnað sem
stjórnar hemluninni á hvert hjól
fyrir sig.
Spólvömin fylgist með veggripi
hjólanna og kemur í veg fyrir að
þau spóli (skriki) við akstur á
hálum vegi eða við kröftuga hröðun
(inngjöf). Stjórnunin fer fram með
sérstökum skyn- og
stjórnbúnaði (að
stóram hluta
þeim sama og
ABS notar) sem
stjómar átakinu
til drifhjólanna þeg-
ar þau hafa tilhneigingu
til að spóla (skrika). Hemlalæsivöm
við hreyfilhemlun kemur í veg fyrir
að driíhjólin skriki (læsist) þegar
slegið er af á hálum vegi. Stöðug-
leikastýringin nýtir með samteng-
ingu stjómstöðva virkni framantal-
inna öryggiskerfa þegar hún vinnur
en kemur í veg fyrir að bifreiðin
FMB
BILRUÐUR • ISETNINGAR • GLERFYLLINGAR
{ 21 ár.
VzYfgpa am aót/n/J
&etnúyru.
Sími: 587 0022
Fax: 587 0021
verði undir- eða yfirstýrð í beygjum
(sjá mynd).
Þegar bifreið er ekið t.d. í vinstri
. beygju og þær aðstæður
v, skapast að framhjólin
byrja að skrika (missa
grip) stefnir framendi
hennar út úr beygj-
unni og kallast það að
WiOSTÖÖ bifreiðin sé undirstýrð.
Við þessar aðstæður dregur
stöðugleikastýringin úr vélaraflinu
(sé bifreiðin framdrifin) og hemlar
vinstra afturhjól (eftir nákvæma út-
reikninga) til þess að rétta af stefnu
bifreiðarinnar svo að hún fari eðli-
lega í gegnum beygjuna.
Þegar afturhjól bifreiðarinnar
missa veggrip, t.d. í vinstri beygju,
skríður afturendi bifreiöarinnar út
á við og kallast það að bifreiðin sé
yfirstýrð. Við þessar aðstæður dreg-
ur stöðugleikastýringin úr vélarafl-
inu (sé bifreiðin afturdrifin) og
hemlar hægra framhjól (eftir ná-
kvæma útreikninga) til þess að
rétta af stefnu bifreiðarinnar svo að
hún fari eðlilega í gegnum beygj-
una.
Þetta eru aðeins einföld dæmi á
virkni búnaðarins en segja má að
stöðugleikastýringin fylgist með
allri hegðun bifreiðarinnar í akstri
og stjómi átaki og hemlun hjólanna
til að ná fram sem öruggustum
akstri við allar aðstæður.
Frá Fræðslumiðstöð bílgreina.
Dæmi A. Undirstýrö bifreiö í
vinstri beygju.
Bifreiöin leitast við aö fara
beint og eykur við þaö skriö-
horn framhjólanna. Hemlun
á vinstra afturhjóli er beitt
með hárréttu átaki til leið-
réttingar. a) Fyrirhuguð akst-
ursstefna. b) Hemlandi hjól.
c) Snúningsátak tii stefnu-
leiöréttingar. d) Stefna undir-
stýrörar bifreiöar.
A
d
Dæmi B. Yfirstýrö bifreiö í
vinstri beygju. Afturendi bif-
reiöarinnar leitar út á viö.
Hemlun á hægra framhjóli er
beitt meö hárréttu átaki til
leiðréttingar. a) Fyrirhuguö
akstursstefna. b) Hemlandi
hjól. c) Snúningsátak til
stefnuleiöréttingar. d) Stefna
yfirstýrörar bifreiöar.
í
i
í
í
i
í
i
í
i