Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
49
Ekki skyndiákvörðun:
Tekur þrjá
mánuði að velja
rétta bílinn
Menn eru lengi að ákveða sig
þegar þeir kaupa bíl eða svo segir
nýleg könnun bandaríska tímarits-
ins „Mens Health“.
Svör fengust frá 2.145 bílakaup-
endum og þar kemur fram að
„meðaimaðurinn" er þrjá mánuði
að velja rétta bílinn áður en harrn
ákveður að kaupa.
Ritstjórinn, Mike Lafavore, seg-
ir: „menn skoða bíla á svipaðan
hátt og reyndur veiðimaður eltir
bráð sína. Þeir eyða miklum tima í
að skipuleggja „veiðina", skoða
„bráðina" vel og leggja síðan til at-
lögu með réttu vopnin við hönd-
ina.“
Þeir sem svöruðu könnuninni
sögðu áreiðanlegustu heimildina
varðandi kaup á nýjum bílum vera
dagblöðin. Fyrri reynsla og reynsla
vina og vandamanna er líka mikil-
væg en umsagnir í blöðunum eru
mikilvægari.
Nissan:
Gerðum
fækkað úr
25 í fimm
Nissan í Japan ætlar að fækka
þeim gerðum sem fyrirtækið
framleiðm og stytta þróunartíma
nýira bíla venilega.
Að sögn Yoshikazu Hanawa,
aðalstjómanda Nissan, er ætlun-
in að fækka megingerðum bíla,
eða „grunnplötum", úr 25 í fimm
árið 2005 og stytta þróunartíma
úr 19 mánuðum í 12 árið 2000.
Þá hefur Nissan í hyggju að
auka notkun stiglausra sjálf-
skiptinga sem meö bensínvélum
með beinni innsprautun (GDI)
geti aukið sparneytni um 50%
miðað við bila dagsins í dag.
Þróunartíminn verður styttur
í 12 mánuði með notkun nýrrar
tölvutækni sem gerir einnig
kleift að draga verulega úr þró-
unar- og framleiðslukostnaði.
Af hálfu Nissan er stefnt að
því að auka markaðshlutdeild á
heimsvísu úr 4% í 6% á árinu
2000.
bílar
Toyota og Subaru sitja á toppnum til skiptis:
Eiga landshlutarnir sínar
uppáhaldstegundir?
Dreifast hinar ýmsu bíltegundir jafnt um landið? Eða á hver landshluti fyrir hvemig þetta skiptist. Við skulum lita aðeins á skiptinguna á 15 sölu-
sína uppáhaldstegund? Nýskráningum fólksbíla (þar undir flokkast líka hæstu tegundunum í hverjum landsparti. Rétt er að taka fram að þar sem
jeppar) er skipt eftir landshlutum þannig að auðvelt er að gera sér grein tegundir em jafnar í tölu er stafrófsröð látin giida:
Höfuðborg Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austurland Suðurland
Toyota 1164 Toyota 161 Toyota 67 Subaru 65 Subaru 57 Subaru 181 Toyota 57 Toyota 73
Volkswagen 887 Mitsubishi 105 Mitsubishi 61 Toyota 40 Toyota 42 Toyota 150 Subaru 55 Mitsubishi 67
Hyundai 548 Volkswagen 71 Subaru 61 Mitsubishi 23 Mitsubishi 28 Mitsubishi 97 Mitsubishi 40 Nissan 47
Subaru 543 Nissan 58 Nissan 32 Nissan 16 Volkswagen 18 Suzuki 58 Suzuki 40 Subaru 46
Mitsubishi 531 Opel 46 Hyundai 31 Hyundai 14 Nissan 17 Hyundai 56 Hyundai 23 Hyundai 37
Nissan 519 Hyundai 29 Opel 30 Volkswagen 13 Hyundai 16 Volkswagen 34 Nissan 23 Volkswagen 37
Opel 515 Subaru 29 Renault 29 Suzuki 12 Suzuki 11 Nissan 30 Volkswagen 13 Opel 32
Ford 367 Suzuki 21 Volkswagen 26 Opel 8 SsangYong 9 Opel 30 Opel 11 Suzuki 21
Suzuki 366 Renault 20 Suzuki 22 LandRover 6 Honda 7 Honda 26 Peugeot 10 SsangYong 17
Renault 311 Mazda 16 Peugeot 18 SsangYong 6 LandRover 4 Ford 25 SsangYong 9 Peugeot 14
Honda 267 Volvo 14 Honda 16 Skoda 4 Opel 4 Peugeot 24 Honda 6 Renault 12
Daihatsu 139 Honda 13 Isuzu 6 Volvo 4 Daihatsu 3 Renault 19 LandRover 5 LandRover 7
Mazda 112 SsangYong 8 LandRover 6 Honda 3 Chrysler 2 Chrysler 16 Daihatsu 3 Isuzu 6
Peugeot 100 Ford 7 Skoda 6 Mazda 3 Ford 2 LandRover 10 Mazda 3 Mazda 6
Peugeot 7 SsangYong 6 Peugeot 3
Ný dísilvál frá Peugeot:
Eyðir 40% minna en sambærileg bensínvél
Franski bílaframleiðandinn PSA
Peugeot Citroen, sem er leiðandi í
framleiðslu dísilvéla í Evrópu, til-
kynnti á dögunum um nýja dísilvél
og undirstrikaði um leið þá vissu
sína að dísilvélar ættu sér mikla
framtíð þrátt fyrir efasemdir um
mengunarvamir.
Þessi nýja dísilvél, sem nýtir nýj-
ustu tækni, er bæði spameytnari og
mengar miklu minna en eldri gerð-
ir dísilvéla.
„Við erum fullvissir um kosti
dísilvéla," segir Jean-Martin Folz,
stjómarformaður PSA, en hann tók
við af Jacues Calvet, sem stýrt hafði
PSA um árabil, í október síðastliðn-
um. „Báðar gerðimar menga um-
hverfið. Dísilvélamar senda frá sér
öragnir en bensínvélarnar loftteg-
undir sem eiga sinn þátt í að auka
gróðurhúsaáhrifln. “
Dísilvélar senda frá sér miklu
meira af örögnum en bensínvélar en
valda miklu minni áhrifum á and-
rúmsloftið í heild. Öragnirnar setj-
ast að í lungunum og eru taldar
hættulegar heilsu manna af alþjóð-
legum heilbrigðisyflrvöldum.
„Gróðurhúsaáhrifin ein sér eru næg
ástæða til þess að við viljum snúa
okkur meira að dísilvélum," segir
Folz. „Keppinautar okkar í Þýska-
landi hafa snúið sér i auknum mæli
að þróun betri dísilvéla og í Japan,
þar sem menn eru frekar á varð-
bergi gagnvart dísilvélum, er hafln
framleiðsla á bílum með dísilvélum
í auknum mæli. Jafnvel í Banda-
rikjunum hefur varaforsetinn, A1
Gore, beðið bílaframleiðendur að
skoða dísilvélamar betur.
Að sögn Folz er nú unnið að þró-
un hreinsibúnaðar, eða síu, fyrir
öragnimar í útblæstri dísilvéla og
er reikaö með því að hann verði til-
búinn árið 2000.
Eyðir og mengar minna
Þessi nýja dísilvél, sem búin er
nýjum háþrýstum innsprautunar-
búnaði fyrir eldsneytið, er þróuð í
samvinnu við Bosch í Þýskalandi.
Hún er sögð eyða um 20% minna en
eldri gerðir dísilvéla og um 40%
minna en sambærileg bensínvél.
Hönnuðir vélarinnar einbeittu
sér að tveimur atriðum sem fara í
taugarnar á þeim sem nota dísilvél-
ar: hávaða þegar þær fara í gang og
reyknum sem þær senda frá sér.
Að sögn þeirra er hávaðinn miklu
minni og nú á að hafa tekist að
koma í veg fyrir reykskýið sem köld
disilvél sendir frá sér þegar hún er
sett í gang á köldum morgni. í
reynd á hvorki hávaði né sýnileg
mengun að vera meiri en frá hefð-
bundinni bensínvél i dag.
Framleiðsla hefst í október á
þessari nýju dísilvél. í byrjun verða
framleiddar um 400 vélar á dag en
um 2000 þegar kemur fram á sumar
1999. í byrjun verða framleiddar 2,0
og 2,2 lítra vélar. Þær munu fyrst
sjást í Peugeot 406 og Citroén
Xantia.
Peugeot er ekki fyrstur til að
senda frá sér nýja hátæknidísilvél á
markaðinn en þessi vél að taka hin-
um mikið fram hvað varðar tækni-
leg atriði, að sögn Jean-Martins
Folz.
í Frakklandi er mikil umræða í
gangi um mengun frá bílvélum, og
þá sérstaklega reykinn frá dísilvél-
um, en samt eru 41 til 42% nýrra
bíla sem seldust þar í landi á síðasta
ári með dísilvél
20% bílanna valda
80% af menguninni
„Við erum fullvissir um það að
stór hluti umræðunnar um mengun
frá dísilvélum kemur til vegna
gömlu reykspúandi bUanna sem eru
í umferðinni í dag og geta ekki
mætt þeim mengunarvörnum sem
bílar með hvarfakúta gera í dag,“
segir Folz. „Tölulegar staðreyndir
sýna að það eru um 20% af bílaflot-
anum í dag sem senda frá sér um
80% af menguninni."
Að sögn Folz er mun hag:
kvæmara að losna við þessa gömlu
bUa úr umferðinni en að einblina
um of á þá lausn að draga örlítið úr
mengun frá nýjum bUum og þá með
óheyrUegum kostnaði.
Þá þarf einnig að endurbæta elds-
neytið enn betur, að sögn Folz, og
framleiða bensín með minna
brennisteinsinnihaldi. „Því það
þjónaði litlum tUgangi að endur-
bæta sífeUt bilvélamar ef olíufélög-
in kæmu ekki jafnframt fram með
betra bensín." Reuter
Kynnstu töfrum Suzuki
Finndu hve rýmið er gott
Baleno Wagon er aflmikill og hagkvæmur í rekstri,
hefur einstaklega góða aksturseiginleika
og býður upp á allt að 1.377 lítra farangursrýmii
SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
j Skeifunni 17. Sími 568 51 00
AFL OG
ÖRYGGI
BALENO WAGON GLX: 1.445.000 KR
WAGON GLX 4x4: 1.595.000 KR
$ 8UZUKI ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM.