Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998
Fréttir
Hitamál á Alþingi:
Yfirráð yfir hálendinu
Sveitarstjórnarlagafrumvarp Páls Péturssonar og sú hugmynd sem f þvf felst, aó skipta hálendinu upp í ræmur milli fámennra
aöliggjandi sveitarfélaga, er mesta atlaga aó almannarétti sfóan á landnámsöld, sagöi Rannveig Guömundsdóttir f Alþingi f gær.
Þrjú hitamál, öll tengd nýt-
ingu landsins og auðlinda þess,
voru til annarrar umræðu á Al-
þingi í gær. Það sem mestum
skjálfta veldur þessara þriggja
mála er frumvarp Páls Péturs-
sonar til sveitarstjórnarlaga.
Hin tvö eru þjóðlendufrumvarp
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra og frumvarp Finns Ing-
ólfssonar iðnaðarráðherra um
eignarhald og nýtingu auðlinda
í jörðu.
Öll þessi mál tengjast í
spumingunni um hver eigi að
hafa eignarhald og forræði
landsins með höndum, en
frumvarp félagsmálaráðherra
hefur vakiö hvað mesta at-
hygli, vegna þess að auk þess
að það taki til stjómunar sveit-
arfélaga, þá er jafhframt verið
að framlengja lögsögu sveitar-
félaganna sem liggja að miðhá-
lendinu inn á afréttina.
Með þessu er í raun verið aö
skipta upp hálendi íslands eins
og það leggur sig milli þeirra 42
sveitarfélaga sem land eiga að
hálendinu. Því verður þannig
skipt upp í 42 skákir ef frumvarp fé-
lagsmálaráðherra verður að lögum
óbreytt.
Fyrirvarar fjögurra þingmanna
Frumvarpið var til annarrar um-
ræðu á Alþingi í gær og fylgdi Magn-
ús Stefánsson áliti meirihluta félags-
málanefndar úr hlaöi. Meirihlutinn
mælir með því að frumvarp félags-
málaráðherra verði samþykkt, en
fjórir nefndarmanna skrifa þó undir
álit nefhdarinnar með fyrirvara.
Tveir þeirra, þau Siv Friðleifsdótt-
ir og Pétur Blöndal, hafa þann fyrir-
vara á að þau telja rangt að skipta
skipulags- og byggingamálum hálend-
isins upp á miúi 42 sveitarfélaga sem
í mörgum tilvikum ganga þvert á
landslagsheildir, svo sem á jökla,
hraunbreiður, sanda og gróöurbelti.
Réttara væri að miðhálendið, svæði
innan línu dreginnar milli heima-
landa og afrétta, væri ávallt skipulagt
sem ein heild og aö fulltrúar allra
landsmanna taki þátt í ákvörðun um
það skipulag.
Enn fremur rituðu þau Kristín Ást-
geirsdóttir og Ögmundur Jónasson
undir álit meirihluta félagsmála-
nefndar meö fyrirvara um að gera
þurfl breytingar á skipulags- og bygg-
ingarlögum samhliða því að frum-
varpið verði afgreitt sem lög, eigi
skipulag hálendis íslands að verða
meö ásættanlegum hætti. Þær breyt-
ingar verði aö fela í sér á afdráttar-
lausan hátt að miöhálendið verði
skipulagt sem heild og að fleiri komi
að þeirri vinnu og ákvarðanatöku en
aðliggjandi sveitarfélög. Hér eiga
þingmennimir tveir við fulltrúa til-
nefnda af samtökum sveitarfélaga í
öllum landshlutmn og fulltrúa ríkis-
ins fyrir hönd þjóðarinnar allrar.
Þorrí þjóöarinnar áhrifalaus
Samkvæmt frumvarpinu munu
þau sveitarfélög sem land eiga að há-
lendi íslands skipta því upp i hlutfalli
við lengd hreppamarka meðfram af-
réttinn. Þessir 42 hreppar sem þannig
eru staðsettir eru flestir fámennir.
Þetta þýðir að 42 skipulagsnefndir
munu fjalla um skipulag á hálendinu.
Þessar nefndir eru hins vegar kjöm-
ar af miklum minnihluta þjóðarinnar
og þau sveitarfélög þar sem þorri
þjóðariimar býr munu engin áhrif
hafa á .skipulag og framkvæmdir á
hálendi landsins af þessum sökum.
Þeirra á meðal era Reykvíkingar,
Reyknesingar og Vestfirðingar.
Þjóölendur þjóöareign
í gær var einnig þjóðlendufram-
varp forsætisráðherra tekiö til ann-
arrar umræðu, en samkvæmt því era
þjóðlendur og þar með sameign þjóð-
arinnar þau svæði sem era utan eign-
arlanda, þó að einstaklingar eða lög-
aöilar kunni að eiga þar takmörkuð
eignarréttindi. Samkvæmt framvarp-
inu er það forsætisráðherra sem fer
með málefni þjóðlendna sem ekki era
lögð til annarra ráðuneyta sam-
kvæmt lögum.
Verði bæði frumvörp Davíös og
Páls að lögum þá verður miöhálend-
ið sameign þjóöarinnar en rúmlega
70% þjóðarinnar munu lítil áhrif
geta haft á það hvemig þeirri eign
verður ráðstafað af innan við 30%
þjóðarinnar.
í annarri grein þjóðlendufram-
varpsins segir að íslenska ríkið sé
eigandi lands og hvers konar lands-
réttinda og hlunninda í þjóðlendum
sem ekki era háðar einkaeignarrétti.
í þriðju grein segir svo: Til að nýta
land og landsréttindi innan þjóðlendu
að öðra leyti en greinir í 2. mgr. þarf
leyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar."
Leyst úr ágreiningi
Magnús Stefánsson sagði þegar
hann fylgdi áliti meirihluta félags-
málanefndar úr hlaði að frumvarpinu
væri m.a. ætlaö að leysa úr ágrein-
ingi um stjómsýslumörk og önnur
mörk á miðhálendinu. Hann sagöi að
meirihlutinn hefði talið að heildstætt
skipulag væri eðlilegt á miöhálend-
inu og mikilvægt að afréttir og þjóð-
lendur þar yrðu svæðisskipulögð sem
ein heild.
Magnús vitnaði í 6. grein skipu-
lags- og byggingarlaga þar sem fram
kemur að á svæðum þar sem ágrein-
ingur er milli sveitarstjóma um land-
notkun eða þar sem stefnumörkun í
landnotkun varðar verulega hags-
muni þeirra sem búa utan viðkom-
andi svæðis, geti umhverfisráðherra
skipað sérstaka nefnd til að gera til-
lögur að svæðisskipulagi. Slíkt svæð-
isskipulag geti náð til hluta lands
innan marka viökomandi sveitarfé-
lags. „Að mati meirihlutans getur
ráðherra þannig ákveðið að fulltrúar
t.d. allra landshlutasamtaka sveitar-
félaga, þar með talið höfuðborgar-
svæöisins, geti átt aðild að þeirri
nefnd og þar með að skipulagi miðhá-
lendisins," sagði Magnús.
Magnús Stefánsson sagði aö það
væri algjör misskilningur að kalla
sveitarstjórnarfrumvarp félagsmála-
ráðherra „hálendisfrumvarpið". Það
væri algjör rangtúlkun á þeim hluta
þess sem tæki til stjórnsýslu á miðhá-
lendinu. -SÁ
Eimskip bauð upp á býtti
■ ■■
Af mörgu því sem Sverrir
Hermannsson hefur látið frá
sér fara að undanfomu í
krafti réttlætis og maklegra
málagjalda, era fullyrðingar
hans um þá Eimskipafélags-
menn, Hörð Sigurgestsson og
Indriöa Pálsson um að þeir
hafi beitt pólitísku offorsi til
að fá Landsbankann til að
setja Samskip á hausinn.
Þetta gekk jafnvel svo
langt, segir Sverrir, að Eim-
skipsmenn hættu að bjóða
Sverri í laxveiði í Þverá i
Borgarfirði. Og er þá mikið
sagt, því forstjórar Eimskipa-
félagsins gátu ekki gengið
lengra í óþverraskapnum og
hefnigiminni en einmitt þaö
að hafa af bankastjóranum
veiðina í Þverá.
Nú er að vísu erfitt að sjá
hvers vegna Sverrir Her-
mannsson kýs að koma höggi
á þá hjá Eimskip. Ekki vora
það þeir sem ráku hann úr
bankanum. Ekki voru þaö
þeir Hörður og Indriði sem
kjöftuðu frá risnunni og ekki
hafði nokkur maður minnst
einu orði á laxveiðiferðir á
vegum Eimskips. Engu að
síður leggur Sverrir, fyrram
bankastjóri, lykkju á leið
sina til að saka forstjórana
hjá Eimskip um lögbrot og
gerræði og pólitískt ofstæki.
Vesling Hörður og Indriði
vita ekki hvaðan á sig stend-
ur veðrið. Þeir hafa veitt í
finum ám og boðið enn þá
finni gestum og boðið upp á
kaffi og kraðerí og engum
hefur dottið í hug að reka þá
eða krefjast afsagnar og það
hefur sömuleiðis hvílt nafn-
leynd yfir gestalistum Eim-
skips og þetta var allt í hinu
besta lagi hjá þeim Herði og
Indriða þegar Sverrir slettir
allt í einu úr klaufunum á þá
blásaklausa!
Líklegasta skýringin er
sennilega sú að þetta sé auga
fyrir auga hjá Sverri. Úr því
Eimskipsforstjóramir fóru
að hefna sín á Sverri ætlar
Sverrir að hefna sín á þeim.
Það kemst enginn upp með
það eftirmálalaust að hætta
að bjóða sjálfum Lands-
bankastjóranum í Þverá sem
er dýrlegust veiðistaða og
Sverrir hefur ekki sjálfur
efni á að veiða þar, nema
þegar Landsbankinn býður
honum eða Eimskip og það
er sárt fyrir góðan veiði-
mann á borð við Sverri Her-
mannsson að sitja heima og
fá ekki boð, þegar hann veit
aö Eimskip er með gesti í
Þverá og það er gengið fram-
hjá honum af hreinum
skepnuskap.
Hann er enn þá sár hann
Sverrir og getur ekki gleymt
þessari ósanngimi.
Hitt er annað mál að mun-
urinn á Sverri Hermanns-
syni og Eimskipsforstjórun-
um er sá að Sverrir verður
að segja af sér og svara til
saka gagnvart þjóðinni, með-
an þeir hjá Eimskip eru hafn-
fr yfir öll lög og allt siðferði
og geta veitt í þeim ám sem
þeim sýnist og boðið þeim
sem þeim sýnist, án þess að
nokkur þori að spyrjast fyrir
um veiðiferðimar eöa lögin
sem þeir brjóta þegar þeir
beita pólitísku offorsi gagn-
vart Landsbankastjóra, sem
hefur þegið laxveiðiboð á
vegúm Eimskips.
Annaðhvort er mönnum
boðið og þeir gegna síðan þvi
sem Eimskip segir þeim að
gera, eða þeim er ekki boðið
aftur. Annaðhvort gera boðin
gagn eða ekki. Heldur Sverr-
ir virkilega að Eimskip hafi
boðið honum án þess að fá
neitt út á það?
Ef bankastjórar setja ekki
samkeppnisaðila Eimskip á
hausinn, þá er þeim ekki
boðið aftur. Þetta skildi
Sverrrir ekki. Þess vegna er
hann hættur en Eimskipsfor-
stjóramir ekki.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Fæðing í fiskikeri
Sjúkrahús Akraness hefur
komið sér upp keri til vatnsfæð-
inga. Fyrsta barnið fæddist í
kerinu 2. aprU sl. Kerið er upp-
haflega smíðað sem fiskiker en
hefur verið breytt í þessu skyni.
Skessuhorn sagði frá.
Lyfjaverslun íslands
Miklar breytingar urðu á
stjóm Lyíjaverslunar íslands á
aðalfundi um helg-
ina. Nýr formaður
er Grímur Sæ-
mundsen. Aðrir í
aðalstjórn eru
Sverrir Sverrisson,
Frosti Bergsson, Jóhann Öli
Guðmundsson og Margeir Pét-
ursson. Viðskiptavefur netmið-
ilsins Vísis sagði frá.
Engin ioðna
Loðnuvertíöin brást Siglfirð-
ingum að þessu sinni. Aðeins
3900 tonnum var landað í bæn-
um á móti 47 þúsund tonnum á
síðustu vertíð. Þetta þýðir mik-
ið tekjutap fyrir bæjarfélagið og
siglfirsk fyrirtæki að sögn Hell-
unnar á Siglufirði.
Tulip á hausinn
Hollenska tölvufyrirtækiö
hefur fengið greiðslustöövun
meðan leitaö er leiða til að
bjarga fyrirtækinu. Tulip-tölvur
hafa verið ein mest selda tölvu-
tegund á íslandi um árabil. Ný-
herji, sem selt hefur Tulip-tölv-
ur, hefur vegna erfiðleika Tulip
lagt aukna áherslu á IBM-tölvur
aö undanfomu.
Léleg þátttaka
Útvegurinn, fféttabréf LÍÚ,
undrast lélega kosningaþátt-
töku sjómanna um miölunartil-
lögu sáttasemjara. Þrátt fyrir að
allur flotinn væri í höfn hafi að-
eins um 40% sjómanna tekið
þátt í atkvæöagreiðslunni. Af
5030 sjómönnum hafi 3020 setið
heima.
Fiskaheiti á kínversku
í nýju tölublaöi tölffæðiupp-
lýsingaritsins Facts and Figures,
sem íslenskar sjáv-
arafurðir gefa út ár-
lega, eru heiti
helstu nytjafiska ís-
lenskra prentuð á
kínversku, jap-
önsku og rússnesku auk tíu ann-
arra tungumála. Þetta er gert
vegna mikilla og vaxandi við-
skipta ÍS við Japan, Kína og
Rússland. Benedikt Sveinsson er
forstjóri ÍS.
Margir vilja erföagreina
Nokkrir öflugir erlendir aðil-
ar vilja byggja upp erfðarann-
sóknir á íslandi, aö sögn for-
stöðulæknis rannsóknadeildar
Landspítalans. Læknirinn segir
litið saka þótt gagnagrunns-
framvarpið frestist til hausts.
Það sé meingallað.
Umferöarátak
Dagana 5.-12. maí verður lög-
regluliðið á Suðvesturlandi með
umferðarátak sem sérstaklega
er beint að hjólreiðafólki og
hjólreiöum. Jafnframt verður
hugað að hjólbörðum bíla en
bannað er að viðlögðum sektum
að aka lengur um á negldum
dekkjum.
Fyrirmyndarforvarnir
Læknablaðið segir að for-
varnir gegn augnsjúkdómum,
sem leitt geta til blindu hjá syk-
ursjúkum, séu til fyrirmyndar á
íslandi. í erlendu lækhatímariti
sé greint frá því að verði farið
að dæmi íslendinga geti það
leitt til þess að útrýma blindu
meðal sykursjúkra.
Risna í lágmarki
Gunnar Birgisson, forseti bæj-
arstjómar Kópavogs, segir að
risna hafi farið
lækkandi hjá núver-
andi meirihluta sem
tók viö árið 1990.
Það sé stefna hans
að fara vel með fé
skattborgara í bænum og gæta
hófsemdar. Vogar í Kópavogi
segja frá. -SÁ