Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Blaðsíða 6
6
MIÐVTKUÐAGUR 29. APRÍL 1998
Neytendnr
Endingagóöar buxur
Ef klofsaumar í bamabuxum er
saumaðir með siksakspori endast
buxurnar drjúgum lengur en ella
þótt mikið gangi á.
Gólflistar málaöir
Málaöu gólflista áður en allt
annað er málað. Haltu stinnum
pappír í kverkinni á milli listans
og gólfsins til þess að ekkert
sullist á gólfið.
Innstunguhengi
Ef fleiri en ein innstunga er að
staðaldri notuð í einfaldan tengil
er þægilegt að hafa krók í veggn-
um og hengja lausa innstungu á
hann. Þá liggur leiðslan ekki á
gólfinu fyrir fótum manna.
Skipt um perur
Ef hátt þarf að seilast til að
skipta um heitar perur er ekki úr
vegi að vinda þétt og fast kramar-
hús úr dagblöðum utan um per-
una til að skrúfa hana úr.
Stigi á hjólum
Ef til vill þarf að geyma stiga á
hliðinni. Þá er hægðarauki að
setja húsgagnahjól undir hann og
draga hann fram án þess að
skemma málningu á honum eða
öðru.
Áberandi verkfæri
Verkfæri týnast oft í grasinu.
Þau sjást betur og finnast fyrr ef
þau eru máluð í áberandi lit, t.d.
skærrauðum.
Ðlöörur blásnar upp
Blöðrur hressa upp á umhverf-
ið þegar fólk gerir sér glaðan dag
en það getur tekið langan tíma að
blása þær upp. Notiö fótpumpuna
frá vindsænginni til að blása
blöðrumar upp.
Nytsamlegar kryddhíllur
Hillusamstæða af því tagi sem
notuð er í eldhúsinu undir krydd
og annað slíkt getur einnig nýst
vel i svefnherberginu undir
snyrtivörur, saumadót, skartgripi
og þess háttar.
Ryklaus borun
Rykið breiðist um allt þegar
borað er í vegg. Rektu borinn í
gegnum tóman eldspýtustokk og
þrýstu stokknum að veggnum
áöur en borað er. Ryk og mylsna
safnast þá saman í stokknum í
staö þess að þyrlast um herbergið.
Lágar dyragættir
Sums staðar eru dyragættir
lægri en fólk á að venjast. Festu
borðtenniskúlu upp í dyrabitann,
þá muna allir eftir að beygja sig
áður en árekstur verður. -glm
Nýjungar í GSM-kerfinu:
Gífurleg fjölgun farsíma
Notendur farsíma á íslandi eru nú orönir yfir 70000 talsins.
Gífurleg fiölgun notenda GSM-
síma og annarra farsíma verður
hérlendis í hverjum mánuði. Sú
ólga sem ríkt hefur á raftækjamark-
aðnum hérlendis hlýtur að ýta und-
ir farsímaeign landsmanna því þar
hafa verið boðnir ails kyns gerðir af
farsímum á lægra verði en áður hef-
ur þekkst hér. íslendingar hafa tek-
ið vel við sér og jafnvel hefur legið
við handalögmálum sums staðar
þar sem farsimar hafa verið boðnir
á spottpris.
Samkvæmt upplýsingum Lands-
símans fiölgar notendum um meira
en þúsund manns í hverjum mán-
uði og er ísland í sjötta sæti hvað
varðar útbreiðslu farsíma í heimin-
um.
SMS-smáskilaboö
GSM-kerfið hefur verið starfrækt
hérlendis frá 1994 en allur hugbún-
aður er uppfærður á hverju ári.
Landsíminni kynnir þessa dagana
ýmsar nýjungar í þjónustunni sinni
við farsímanotendur Þar má nefna
svokölluð smáskilaboð sem láta vita
þegar skilaboð liggja í talhólfi,
lægra gjald fyrir SMS-sendingar og
ný vefsíða með upplýsingum um
GSM-þjónustu. Þessa dagana er ver-
ið að kynna fyrir ákveðnum hópi
farsímanotenda sem jafnframt hafa
talhólf hvernig SMS-smáskilaboð
geta látið vita ef skilaboð liggja í tal-
hólfinu. Þjónustan virkar þannig að
ef farsímanotandinn fær ný skila-
boð í talhólfið sitt eru sjálfkrafa
send SMS-smáskilaboð í farsíma
viðkomandi um að eitthvað liggi í
talhólfinu. Farsímanotandinn fær
því vitneskju um skilaboðin um leið
og kveikt er á símanum. Þjónusta
þessi er ókeypis.
Kostnaöur viö skilaboðin
Allar nýrri gerðir af GSM- símum
geta sent og tekið á móti SMS-skila-
boðum. Nú hefur verið ákveðið að
gjald fyrir þessa þjónusta, þ.e. að
senda frá sér skilaboð, lækki um
helming hjá Landsímanum þann 1.
maí. Þá mun kosta 10 krónur að
senda skilaboð í farsíma og 14 krón-
ur að senda skilaboð í faxtæki.
Frá tölvu til GSM-síma
Á næstunni verður einnig sett
upp ný vefsíða um GSM-þjónustuna
þar sem hægt verður að fá ýmsar
upplýsingar um símana, útbreiðslu
kerfsins og möguleika þess. Slóðin
er www.gsm.is. Vefsíðan verður
tengd heimasíðu Landssímans. Þar
verður boðið upp á þann möguleika
að senda smáskilaboð, að hámarki
160 stafi, frá tölvu í GSM- síma.
Síðar á árinu verður einnig boðið
upp á svokallaða SMS-upplýsinga-
þjónustu í samvinnu við ýmsa aðila.
Þar verður t.d. hægt að fá stuttar
fréttir á skjá GSM-símans, upplýs-
ingar um veður og færð, úrslit úr
íþróttaleikjum eða nýjustu lottótöl-
ur.
Noröurlöndin efst
Notendum farsíma hefur fiölgað
mjög hratt hérlendis eða um 74% á
árinu sem leið. Eins og áður sagði
eru íslenskir farsímanotendur nú
orðnir yfir 70000 talsins. Þó eru
GSM-notendur einungis um 45000 af
þeirri tölu.
GSM-kerfið býðst nú í um fimm-
tíu ríkjum víðs vegar um heiminn.
Farsímaeign er hvergi almennari en
á Norðurlöndum og erum við ís-
lendingar í sjötta sæti hvað varðar
útbreiðslu farsíma í heiminum.
GSM-kerfið hefur þó ekki verið
stcirtrækt hér nema í tæp fiögur ár
og því má búast við því að íslensk-
um farsímanotendum eigi enn eftir
að fiölga.
-glm
Fljótlegt og gott ítalskt brauð
Næstkomandi laugardag hefi-
ast ítalskir dagar í bakaríum um
allt land á vegum Landssam-
bands bakarameistara og Sam-
taka iönaðarins. Af því tilefni
birtmn við hér uppskrift, ættaða
frá Ítalíu, af hinum vinsælu Ci-
abatta-bollum sem mörgum finn-
ast ómissandi með morgunkaff-
inu.
í uppskriftina þarf:
700 g af hveiti
75 g sigtimjöl
40 g ólífuolíu
15 g salt
15 g ger
500 g vatn
Öllu er blandað saman í hræri-
vél (notið hnoðara) og hnoðað
hægt í tvær mínútur og síðan að-
eins hraðar í fimm mínútur. At-
hugið að deigið á að vera mjög
blautt. Deighitastig u.þ.b. 24 C.
Látið deigið hefast í minnst
níutíu mínútur. Hellið deiginu á
hveitistráð borð, stráið hveiti
ofan á deigið og skiptið með
spaða í hæfilega stór brauð og
flytjið á plötu. Bakið við 230 C í
u.þ.b. tuttugu minútur.
Alls kyns ítölsk
brauö og bakkelsi
veröa sífellt vin-
sælli hér á landi.