Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Qupperneq 20
40 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 Iþróttir > [£í) ENGLAND Nottingham Forest ætlar að styrkja liöið fyrir baráttuna í úrvalsdeildinni á næsta tímabili en liðið tryggði sér um síðustu helgi sæti í deild þeirra bestu. Forest mun i vikunni ganga frá kaupum á belgiska vamarmanninum Stijn Vreven frá Gent en hann þykir mjög sterkur leikmaður. lan Wright lék sinn fyrsta leik í fjóra mánuði þegar hann lék fyrsta klukkutímann með varaliði Arsenal gegn West Ham i fyrrakvöld. Wright var ánægður eftir leikinn og sagðist ekki hafa fundið til neinna meiðsla. Hann sagðist vonast eftir því að fá tæki- færi meö aðallið- inu i einhverjum L af þeim leikjum J sem liðið ætti «1 eftir en hann vildi samt ekki setja neina ” pressu á Arsene Wenger, stjóra liðs- ins. Uwe Rösler, Þjóðverjinn sem leikið hefur með Manchester City undanfar- in ár, er á förum frá félaginu. j*. Rösler hefur neitað að gera nýjan samning og hefur City ákveðið að hann megi fara og það strax. Joe Royle, stjóri City, ætlar ekki að njóta krafta Röslers á sunnudaginn þegar liðið mætir Stoke i sannkölluðum fallbaráttuslag. David Ginola á ekki mikla mögu- leika á að kom- ast i franska landsliðshópinn sem leikur á HM ef marka má orð landsliðsþjálfarans Aime Jacquet. Jacquet segir að hann eigi til mun betri leikmenn en Gin- ola og þetta hafi hann sagt Christian Gross, þjálfara Tottenham. Roy Evans, stjóri Liverpool, vandaði leikmönnum sínum ekki kveðjumar eftir 4-1 tapið gegn Chelsea um síð- ustu helgi. Evans sagði að sínir menn hefðu nánast hent hvita handklæðinu inn á völlinn til merkis um uppgjöf og að leikmenn liðsins hefðu verið kjark- lausir og ekki tilbúnir að beijast. Evans mun fá 1,7 milljarða króna til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil og ekki veitir af, segja stuðningsmenn félagsins sem era orðnir langeygir eftir titlum. Sol Campbell, Tottenham, Matt Elliott, Leicester, og Markus Babbel, leikmaður Bayern Múnchen, eru efstir á óskalista Evans fyrir næsta tímabil og þá hefur hann mik- inn áhuga á aö fá Emile Heskey, sóknarmanninn skæða hjá Leicester. Margir stuöningsmenn Liverpool vilja losa sig við Roy Evans og segja aö hann valdi ekki starfi sinu. Þeir segja að hann hafl stjómað liðinu í fjögur ár og árangurinn sé mjög slak- ur. „Evans er mjúki maðurinn sem öllum líkar við en það gengrn1 einfald- lega ekki upp að vera þannig í þessu starfi," segja stuðningsmennimir. Steve McManaman er enn og aftur orðað- ur við Barcelona en forráðamenn spænska liðsins ætla seint að gef- ast upp að reyna að krækja i pilt- inn. Börsungar era reiðubúnir að greiða 1,3 millj- arða króna fyrir McMan- aman. McManaman hefur ekki skrifað und- ir nýjan samning og getur því í sum- ar fengið fijálsa sölu frá Liverpool undir formerkjum Bosman-dómsins. Liverpool mun losa sig viö eitthvað af leikmönnum sínum fyrir næsta tímabil. Nær öruggt er aö Patrik Berger fer frá félaginu, markvörður- inn David James mun leita fyrir sér á öðrum miðum og Neil Ruddock hef- ^ ur verið settur á sölulista. Henning Berg, sem Man.Utd keypti frá Blackbum fyrir 5 milljónir punda, er sagður á fórum til síns gamla fé- lags en Berg hefur átt erfitt uppdrátt- ar hjá félaginu og ekki vænkaðist hagur hans þegar United festi kaup á Jaap Stam. -GH * -------------------------------------- Úrslitakeppni NBA í nótt: Fjórði sigur Miami í New York frá upphafi - Lakers tapaöi og Seattle komiö í vandræöi Shaquiile O’Neal, leikrnaöfnÆm sterki hjá Los Angeles Lakers, WW atkvæðamikill í nótt. Hann skoraði 36 stig og tók 16 fráköst en það dugði skammt því Lakers tapaði. Shaq gekk hins vegar illa af vftalínunni og hitti aðeins úr 4 skotum af 12. Fjórir leikir voru í úrslita- keppni NBA í nótt og urðu úrslit- in þessi: Austurdeild: New York-Miami .... 85-91 (1-2) Houston 27, Johnson 27, Childs 16 - Lenard 28, Hardaway 27, Murdock 11. Atalanta-Charlotte . . . 96-64 (1-2) Blaylock 16, Smith 15, Henderson 11 - Mason 12, Divac 11, Phills 9. Vesturdeild: Minnesota-Seattle.... 98-90 (2-1) Peeler 20, Gamett 19, Mitchell 19 - Payton 26, Baker 17, Schrempf 16. Portland-LA Lakers .... 99-94 (1-2) Rider 18, Stoudamire 18, Williams 17 - Shaq 36, Fox 15, Ficher 13. Lið Seattle er komið i veruleg vandræði eftir tap gegn Minnesota sem getur með sigri á fimmtudagskvöldið tryggt sér áframhaldandi þátttöku í úr- slitakeppninni. Það var frábær leikkafli í síðasta leikhlutan- úm sem tryggði Minnesota sig- urinn en í upphafi hans skoraði liðið 15 stig gegn 2 frá Seattle. Shaq slakur á vítaiínunni Isaiah Rider var sterkur á lokakaflanum þegar Portland náði að leggja LA Lakers að velli. Hann skoraði 5 stig á síðustu 2 mínútunum og alls 18 í leiknum. Leikmenn Portland réðu litið við Shaquille O’Neal sem skoraði 36 stig og tók 16 fráköst. Honum gekk þó afleitlega af vítalínunni og setti aðeins 4 skot niður af 12. Metjöfnun hjá Charlotte Frábær vamarleikur hjá Atlanta var lykillinn að sigri liðsins gegn Charlotte. Leikmenn Charlotte skoruðu aðeins 64 stig í leiknum og það er metjöfnun í úrslitakeppni NBA. Varnarmenn Atl- anta náðu að halda Glen Rice algjörlega niðri og skoraði hann aðeins 8 stig í leiknum en er jafnan stigahæsti leikmaður liðsins. Miami vann góðan útisig- ur á New York og á alla möguleika á að fara áfram. Voshon Lenard og Tim Hardaway voru í miklu stuði, Lenard með 28 stig, Hardaway 27. Þetta var aðeins fjórði sigur Miami í Madi- son Square Garden-höll- jfc inni í New York og hann kom svo sann- arlega á góðum tíma. Allan Houston var stigahæstur hjá New York með 27 stig en honum gekk illa á lokakaflanum og skoraði ekki stig í síðasta leikhlut- anum. -GH Bland í poka Stefan Kuntz, leikmaður Armenia Bielefeld og þýska landsliðsins í knattspymu, mun ganga í raðir Bayer Leverkusen fyrir næstu leik- tíð. Alen Boksic og Jose Chamot munu báðir missa af úrslitaleikjum Lazio í itöisku bikarkeppninni og í UEFA- keppninni. Þeir meiddust báðir í leiknum gegn Parma um síðustu helgi og verða frá í einn mánuð. Lazio mætir AC Milan í síðari úr- slitaleiknum í itölsku bikarkeppn- inni í kvöld en Milan vann fyrri leik- inn á heimavelli, 1-0. Þann 20. maí leikur svo Lazio til úrslita i UEFA- keppninni gegn Inter Milan. Real Madrid vill fá Svíann Sven Göran Erikson, þjálfara Lazio, til að taka við þjálfarastarfinu af Þjóðverj- anum Jupp Heynckes. Spænska blað- ið Ásinn skýrði frá þessu í gær og sagði að Erikson fengi formlegt tilboö eftir úrslitaleik Real Madrid og Juventus í meistaradeildinni 20. maí. Michael Klim, sem vann til sjö verð- launa á heimsbikarmótinu í sundi i janúar, varð öðra sinni á jafnmörg- um dögum að játa sig sigraðan á ástr- alska meistaramótinu sem nú stend- ur yfir. Klim varð að láta sér lynda annað sætið í 100 m flugsundinu á tímanum 53,51 sek. en Geoff Huegiil kom fyrst- ur í mark á 53,20 sek. Þá vann hinn 15 ára gamli Ian Thope sigur í 200 metra skriðsundi en Klim varð ann- ar. Susie O'Neill ólympíu- og hehns- meistari sigraði í 200 metra skrið- sundi á tímanum 2:00,60 og var þetta 29. titillinn sem hún vinnur á ástr- alska meistaramótinu sem er met. Sam Riley, fyrram heimsmeistari, vann sigur í 200 metra bringusundi á timanum 2:28,66 min. -GH Sjö leikir í deildarbikarnum Sjö leikir fara fram í 16-liða úrslitum deildabikarkeppinnar í knattspyrnu í kvöld. Leikirnir eru: KR-Tindastóll...KR-völlur 18.00 FH-Fylkir......Ásvellir 18.30 Keflavik-ÍA....Garðskagi 19.00 Leiftur-Þróttur, R . . Leiknisv 19.00 Valur-Fram . . . Tungubakkar 19.00 Breiðablik-lR .... Vallagerði 19.00 Stjarnan-Haukar . . . Ásvellir 20.30 Sigurliðin komast í 8-liða úrslitin sem leikin verða um helgina. -GH Snóker: Jóhannes og Kristján hafa í nógu að snúast Snókerspilaramir Kristján Helga- son og Jóhannes B. Jóhannesson verða á faraldsfæti næstu vikurnar. Um helgina keppa þeir í Belgíu um sex laus sæti í mótaröð atvinnu- manna sem samanstendur af 9 stigamótum. 186 bestu atvinnu- menn í snóker taka þátt í mótaröð- inni en i mótinu í Belgiu verða keppendur 24. Frá Belgíu halda þeir til Finn- lands til þátttöku á Evrópumótinu þar sem keppa bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kristjáni hefur gengið vel á þessu móti undanfarin tvö ár og komist í úrslit. -GH Jóh.irmcs B. Jóhannosson oq Krisljan I lclqason slíinclo i sfröngu ruoHlu o vikum on jjoir takn þátt i tvcimur fincikorinótuin ci Karl-Heinz Rummenigge, fyrrum landsliösmaður Þýskalands: Vill Mattháus í landsliðið - það yrði grátlegt ef hann yrði ekki með i Frakklandi, segir Rummenigge Karl-Heinz Rummenigge, vara- forseti Bayem Múnchen og fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja í knatt- spyrnu, vill að Lothar Mattháus, hinn 37 ára gamli fyrirliði Bæjara, verði valinn að nýju í þýska lands- liðið og leiki með því stöðu aftasta varnarmanns í heimsmeistara- keppninni í Frakklandi í sumar. „Lothar hefur leikið hreint frá- bærlega á síðustu misserum með Bayern og það yrði grátlegt að mínu mati ef hann yrði ekki með landsliðinu í Frakklandi," segir Rummenigge. Segist vera tilbúinn ef kallið kemur Sjálfur segist Matthaus, sem er leikjahæsti leikmaður þýska lands- liðsins frá upphafi, vera tilbúinn að taka kallinu ef það kemur en hann segir möguleikana á því ekki vera ýkja mikla. Nokkur pressa hefur verið sett á Berti Vogts landsliðsþjálfara að velja Matthaus að nýju í hópinn en hann var ekki í þýska landsliöinu sem varð Evr- ópumeistari á Englandi sumariö 1996. Berti Vogts er sem stendur ekki með Mattháus inni í sínum plön- um. Hann segist gera ráð fyrir því að Olaf Thon muni spila i stöðu aftasta varnarmanns svo framar- lega sem hann verði búinn að ná sér af hnjámeiðslum sem hrjáð hafa hann upp á síðkastið. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.