Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1998, Qupperneq 28
48 kvikmyndir MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1998 Charíes Dickens og kvikmyndir Kvikmyndun klassískra bók- mennta hefur átt miklu fylgi að fagna á síðustu árum og nú er röðin komin að vinsælasta höfundi Vikt- oríutímabilsins, Charles Dickens (1812- 1870). Þrátt fyrir að 17 kvik- og sjónvarpsmyndir hafi verið gerð- ar eftir sögum hans á síðustu tíu árum hefur engin þeirra notið mik- illar velgengni og í Hollywood hafa menn veriö áhugalausir um sögur hans þar til nú. Great Expectations í nýjustu kvikmynd leikstjórans Alfonso Cuarón er ein þekktasta skáldsaga enska sagnameistarans færð í nú- tímasam- hengi. Great Ex- pectations naut mik- illa vin- sælda þeg- ar hún var fyrst gefln út árið 1861 og á þessari öld sést áhugi manna á henni best því að snúna Öskubusku. Þroskasaga Pips felst í því að í lokin lærist honum að álfkonan góða, Miss Havisham, er í raun nornin og prinsessan, Estella, er köld og grimmlynd. Merkasta kvik- myndin sem gerð hef- ur verið eftir þessari frægu sögu er í leik- stjóm David Lean frá 1946. Upphafssenan, þar sem Pip (Anthony Wager) hittir fangann Magwitch (Finlay Currie) í kirkjugarðin- The Great Expections, 1946. A myndinni eru Anthony Wager, John Burch, Grace Denbigh- Russell, Hay Petrie, Freda Jackson og Bernard Miles t hlutverkum sínum. a hún hefur verið kvik- mynduð a.m.k. átta sinnum á siðustu 80 áium. Líkt og í svo mörgum bókum Dickens er söguþráðurinn mótaður af gömlu ævintýraminni um lágstéttarhetj- una sem reynist vera prins eða prinsessa. í Great Expectations örl- ar þó á íróníu, því Dickens snýr út úr hinum miklu væntingum Pips og segir sögu sem helst minnir á öfug- Oliver, 1968. Þessi söngleikjaútgáfa af Oliver hlaut mörg óskarsverölaun. Á myndinni er leikstjórinn Carol Reed aö leiöbeina hinum unga Mark Lester sem lék Oliver. um, er löngu oröin klassísk í kvik- myndasögunni og myndin fangar vel þann siðferðisboðskap sem bók- in hverfist um. Óvæntur frami Pips gerir það að verkum að hann getur hafnað lágum uppruna sínum og blandað geði við fólk úr efri hluta samfélagsins. Fortíðin ásækir hann þó og sú spuming vaknar hvort TðPP 20 í Bandaríkjunum - aösókn dagana 24.-26. apríl. Tekjur í mllljónum dollara og heildartekjur - Aðsókn í lágmarki í'Sfe- Aösókn aö kvikmynda- húsum í Bandaríkjun- um er ekki mjög mikil þessa dagana og er þetta árlegur viöburö- ur, nokkurskonar milli- bilsástan þar til stóru sumarmyndirtnar fara aö koma á markaöinn í maí. Vinsælasta kvik- myndin um síöustu helgi var The Big Hit og sjálfsagt má aö miklum hluta rekja vinsældirnar til aöalleikarans, Mark Wahlberg, sem sló eftirminnilega í gegn í Boogie Nights. í myndinni leikur hann ungan framagjarnan glæpamann sem fenginn er til aö ræna ríkri stúlku en tekur of seint eftir því aö hann hefur veriö leiddur í gildru. Auk Wahlberg leika í myndinni Lou Diamond Philip og China Chow. Hin stórfenglega heimildamynd Everest heldur áfram aö fylla þá kvikmynda- sali sem hún er sýnd í, en hún er eingöngu sýnd í IMAX sýningarsölum , er hún meö langbestu nýtinguna á hvern sal. blm:-HK 1. <-) The Big Hit Tekjur 10.809 Heildartekjur 10.809 2. (i) Clty of Angels 9.010 46.556 3. (2) The Object of My Affection 5.161 17.094 4. (4) Titanic 4.938 560.615 5. (5) Paulle 4.382 10.789 6. (3) Lost in Space 4.012 58.090 7. (7) The Odd Couple II 2.477 14.072 8. (8) Mercury Rising 2.158 27.891 9. (9) The Players Club 2.034 17.351 10. (-) Scream 2 1.790 98.104 11. (6) Species II 1.573 16.633 12. (-) Tarzan and the Lost City 1.110 1.110 13. (11) As Good as it Gets 1.054 143.536 14. (15) Good Will Hunting 1.033 133.038 15. (-) The Spanish Prisoner 0.876 1.812 16. (14) Barney's Great Adventure 0.851 8.690 17. (-) Sliding Doors 0.834 0.834 18. (12) Primary Colors 0.833 36.379 19. (18) Everest 0.735 9.204 20. (10) Major League: Back to the Minors 0.662 3.181 irm hann sé hefðarmaður eða jámsmiður í finum fötum. Með önnur helstu hlutverk í mynd Lean fara: John Mills, Valerie Hobson, Jean Simm- ons, Bernard Miles, Martita Hunt og Alec Guinness. Great Expectations var kvikmynduð fyrir sjónvarp árið 1974 í leikstjóm Joseph Hardy. í henni fara Michael York (Pip), Sarah Miles (Estella), Margaret Leighton (Miss Havisham) og James Mason (Magwitch) með helstu hlutverk. Þessi útgáfa er að öllu leyti síðri. Einnig er til þáttaröð frá 1989 í leik- stjóm Kevins Connors. Sú útgáfa er meingölluð og í raun fyrst og fremst skemmtileg fyrir þá sök að þar leikur Jean Simmons hina gömlu Miss Havisham, en 43 árum áður var leik- konan í hlutverki Estellu i kvikmynd Lean. Oliver Twist og A Christmas Carol: Aðrar sögur sem oft hafa verið kvikmyndaðar em Oliver Twist (10 sinnum) og A Christmas Carol (18 sinnum). David Lean leikstýrði Oli- ver Twist árið 1948 í eftirminnilegri kvikmynd þar sem Robert Newton (Bill Sikes), John Howard Davies Oliver Twist, 1947. Alec Guinness lék Fagin í þessari frægustu kvikmyndaútgáfu af Oliver Twist. í hlutverki Olivers var John Howard Davies. (Oliver Twist), Alec Guinness (Fag- in) og Kay Walsh (Nancy) fara með veigamestu hlutverkin. Vinsæll söngleikur hefur verið gerður eftir sögunni um þennan frægasta mun- aðarleysingja heimsbókmenntanna. Jólaævintýri Dickens (A Christmas Carol) hefur kom- ið út i mörgum eftirminnilegum útgáfum, en þeirra best er án efa Scrooge (1951) í leikstjóm Brian Desmond Hurst þar sem Alastair Sim leikur nirfil- inn og meinhomið Ebenezer Scrooge. Aðrar skemmti- legar kvikmynd- anir sögunnar eru Blackadder’s Christmas Carol og Scrooged (1988) og The Muppet Christmas Carol (1992). Aðrar kvik- myndanir Dickens: Vonlaust er að rekja sögu Dick- ensmynda að nokkru ráði í svo stuttu máli sem hér. Vinsælustu sögur hans em til í fjölmörgum gerð- um og til viðbótar nægir að nefna David Copperfield (3 sinnum), A Tale of Two Cities (7 sinnum) og Nicholas Nickleby (4 sinnum). Árið 1981 leikstýrðu John Caird, Jim Goddard og Trevor Nunn 8 klukku- tíma uppfærslu á Nicholas Nickleby fyrir sjónvarp og er það að mínu mati ein glæsileg- asta þáttaröð sem gerð hefur verið eftir 19. aldar skáldverki. Þættimir vom sýndir í Sjónvarpinu fyrir fjöldamörgum árum og kjörið væri að taka þá til endursýningar. -ge Regnboginn - Great Expectations: Prinsessan á bauninni Great Expectations segir frá óvæntum frama ungs manns sem á sér dulinn velgjörðarmann. Kvik- mynd Cuarón færir sögusviðið frá Englandi 19. aldar til Bandaríkja samtímans. Finegan Bell (Pip sög- unnar) býr hjá systur sinni og eigin- manni hennar Joe (Chris Cooper) í smábæ i Flórída. Þegar Finegan er aðeins bam að aldri gerast tveir at- burðir sem eiga eftir að móta lif hans. Hann kemur fanga á flótta til hjálpar (Robert De Niro) og er feng- inn til þess að skemmta hinni auð- ugu og sérvitru fröken Dinsmore (Anne Bancroft). Dinsmore, sem lok- aði sig inni í stórhýsi sínu eftir að unnusti hennar yfirgaf hana við alt- arið hefur sagt karlkyninu stríð á hendur. Skjólstæðingi hennar, hinni fógra Estellu, er ætlað að kremja sem flest karlahjörtu. í nokkur ár kemur Finegan vikulega í heimsókn til Dinsmore og Estellu. Hann hrífst af stúlkunni, en hún hefur lært lexíurnar sínar vel og er köld sem ís. Þegar Estella (Gwyneth Paltrow) er orðin fullvaxin heldur hún til Evrópu án þess svo mikið sem kveðja Finegan (Ethan Hawke). Hann er sjómaður þar til honum er sagt að ónefndur velgjörðarmaður hafi ákveðið aö styrkja hann til þess að setja upp sýningu á málverkum sínum í New York. Finegan, sem hefur teiknað frá því að hann man eftir sér, tekur boðinu og er fullviss um að hér sé Dinsmore aö verki. í New ★★i KVIKMYMA iifiMiny York hittir hann Estellu á nýjan leik. Kvikmynd Cuarón er að mörgu leyti afbragðsvel gerð og sögusviðið er sannfærandi. Leikaramir standa sig allir með prýði, en bestur þótti mér þó De Niro i hlutverki fangans Lustigs. Helsti galli myndar- innar felst í áherslunni á ástarsöguna. Við það tapast sú íróníska sýn sem litar sögu Dickens og samfélags- ádeilan fer fyrir lítið. Þetta er falleg mynd sem kom mér á óvart. Leikstjóri: Alfonso Cuarón. Aðalhlutverk: Ethan Hawke, Gwyneth Paltrow, Anne Bancroft og Robert De Niro. Guðni Elísson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.