Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1998
7
Fréttir
Klofin fjölskylda
í nýútkomnu blaði framsókn-
armanna í Garðabæ er viðtal
við ungan og efnilegan fram-
bjóðanda, Össur Brynjólfsson
flugkennara, sem
skipar þriðja
sæti B-lista til
sveitarstjórnar-
kosninga. Við-
talið ber yfir-
skriftina „Bú-
stýran farin að
eldast“ og vís-
ar til þreyttrar
forystu sjálfstæðis-
manna í bænum. Það má lesa út
úr viðtalinu að framsóknar-
menn ætla sér stóra hluti í
slagnum við sjálfstæðismenn
um lýðhyllina. Viðtalinu fylgir
mynd af Össuri ásamt unnustu
og dóttur. Það sem ekki kemur
fram er að unnustan, Ingibjörg
Lind Karlsdóttir, er í framboði
fyrir höfuðandstæðinginn og á
sæti á D-listanum. Fjölskyldan
er því klofrn þó ekki sé hún stór.
Johnsen og 118
í Suðurlandskjördæmi er
Árni Johnsen frægur fyrir
hversu mikið hann hringir í
kjósendur sína um allt land.
Sjálfur hefur hann sagt í viðtöl-
um að hann nái
stundum 40-70
símhringingum
til þeirra á dag.
Hann þarf því
gjarnan að leita
á náðir upplýs-
inga í númeri
118 þar sem
vinna tugir
þjónustulipurra
kvenna. í Eyjum þora menn að
leggja höfuð sitt að veði fyrir
því að Ámi þekki hverja ein-
ustu þeirra með nafni um leið
og þær svara ...
Leifur á rás 2
Innan Sjónvarpsins er ekki
búið að taka ákvörðun um
hvernig Dagsljósi verður hagað
næsta vetur en umsjónarmaður
þáttarins, Svanhildur Konráðs-
Sdóttir er hætt.
Einn af liðsmönn-
um þáttarins,
Leifur Hauks-
son, hverfur í
i sumar á gamlar
I vígstöðvar hjá
I rás 2 en er ekki
1 búinn að gera
® upp við sig
nvar hann ræður sig í
skiprúm á vetri komanda. Þor-
gerður Gunnarsdóttir, yfirmað-
ur rásar 2, mun hins vegar hafa
mikinn áhuga á þvi að fá Leif til
að koma aftur til að sjá um sið-
degisútvarpið sem hefur ekki
beinlínis farið með himinskaut-
um siðustu misseri...
Góðskáldin botna
Lára Margrét Ragnarsdóttir
hvatti menn í DV á mánudag til
að ná sáttum um gagnagrunns-
frumvarpið og leitaði til tveggja
þjóðskálda sér til halds og trausts
í greinarlok: „Um
svo veigamikið og
víðtækt mál er
nauðsynlegt að ná
almennri sátt,
sátt milli almenn-
ings, vísinda og
viðskiptahags-
muna. Vísindin
efla alla dáð en aðgát
höfö í nærveru sálar.“
Lesandi einn stóðst ekki freist-
inguna að prjóna framan við
vísubotn skáldanna:
Köld eru jafnan karlaráð,
Kári Imbu dró á tálar.
Þótt vísindin efli alla dáð,
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Magnesíumverksmiöja á Suðurnesjum:
Skapar þúsund ný störf
- segir Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ
DV, Suðurnesjum:
„Líkur á byggingu magn-
esíumverksmiðju hafa aukist
mjög með hlutabréfakaupum
Ástralanna. Ég tel að líkur séu
miklar á að byggt verði. Skipu-
lagsnefnd Reykjanesbæjar og
bæjaryfirvöld eru að búa sig
undir að verksmiðjan verði
reist. Það munu 350-400 manns
fá vinnu við verksmiðjuna. Okk-
ar mat er að margfeldisáhrifin
verði mikil. Verksmiðjan muni
skapa þúsund ný störf,“ segir
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar.
Ellert var í stjórn íslenska
magnesíumfélagsins hf. Með til-
komu nýju hluthafana, Australi-
an Magnesium Investment, Ellert Eiríksson bæjarstjóri. DV-mynd Ægir Már
þurfti Ellert að gefa eftir sæti
sitt ásamt öðrum stjórnarmanni.
Ástralir eiga nú 2 stjórnarmenn
í félaginu. Gert er ráð fyrir að
verksmiðjan hefji framleiðslu
2002 ef hún verður að veruleika.
Þá mun íbúum í Reykjanesbæ
fjölga töluvert.
„Fólk mun flytja til bæjarins
og við erum tilbúin að taka við
öllum sem vilja koma og vitum
hvað þetta þýðir fyrir bæinn.
Við eigum nú þegar lóðir fyrir
190 rúmgóðar íbúðir fyrir um
600 manns. Þá erum við einnig í
undirbúin varðandi þjónustu.
Verið er að byggja nýjan grunn-
skóla fyrir 500 börn. Nýr leik-
skóli verður byggður og annar
fyrir árið 2005,“ sagði Ellert í
samtali við DV. -ÆMK
Sveitarstjórnarfrumvarpiö:
Útlendingar
fái kosn-
ingarétt
í umræðum um sveitarstjórnar-
frumvarp félagsmálaráðherra lagði
Kristinn H. Gunnarsson til að út-
lendingum sem starfa á íslandi yrði
veittur kosningaréttur og þeir hefðu
kjörgengi til sveitarstjórnarkosn-
inga eftir tiltekinn búsetutíma á ís-
landi, t.d. þrjú ár.
„Það er vaxandi fjöldi útlendinga
í vinnu hér. Þeir eru þarfir þegnar
sem greiða skatta til sveitarfélaga til
fulls á við íslendinga en eru ekki
kröfuharðir á þjónustu sveitarfé-
lagsins. í hópi sveitarstjórnarmanna
eru þeir því taldir góðir skattgreiö-
endur,“ sagði Kristinn H. Gunnars-
son við DV. Hann sagði að þetta
væri sanngirnismál sem hefði hlotið
góðar undirtektir í þinginu. -SÁ
77
/
e9
hvat
d
tnn
rautna-
prtnsinn
'/ww.fjolnet i5. '■.varid
Smelltu þér á netið
Æ
Einstaklingsþjónuata
iuöætaÖB iB)Í2fi9j2] liiyt luÖBnnsrl - JJidubiyjlaJöit nnitiibBJöiriiöi1!
JávamJBmJláJ bJín9v ðr sililoiJa A JO.S "v
BQ9cj 1 Bt g0 0060111)10 liiyt iBÖuqJJoJ 'v
BJQ9q2 go 1U6Ú1 IBOJnbtBÍl Nf
iti9)lu2m9id 28A v
mo ð,0S :öærig9V 'v
tiibBJöiriiö
íBQnizæJmBZ 'v
goineulz go oiövöyJI 'v
Í)læJuJl932B)l go qievJÚ \
m £d.S :tsflJöjH 'v
mSXd.r :öæH ,mS\.r :bbi9i8 ,mSS.A :bgogJ N
oorr ose :imis
28A ðsm -.000.58S.S :Bnulöp S Ö19V
-.000.08 16)20)1 q n i J q í )l z t J b j 2
Sr^Þ dðÞ :z ,zJ9öL bJb2bJi8 :iu61öjts21 • S8(?r r£L :z
rros r\Þ :z ,n6J626J9VÚ8 go bJi8 rfiöeJzzJigJ «
:~iBJíÖB2ÖodmU
,i9vJia :29n6i)IA • ÞfOS rðÞ :z ,iubJöH :iiy9iu>IA
0os:r rSA :a .neJgniulBjia .0.8 :Hiv6J19>1