Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
Fréttir
Formaður útvarpsráðs telur fréttastjóra Sjónvarps hafa verið vanhæfan:
Fréttastjóri hefði
átti að taka sér hlé
„Mér finnst aö vegna tengsla
fréttastjóra Sjónvarpsins við R-Iist-
ann þá heföi verið affarasælast fyr-
ir hann að taka sér hlé frá störfum
vegna vanhæfis síðustu vikur kosn-
ingabaráttunnar. Ég tel að hann
hefði átt að gera það og flnna það
upp hjá sjálfum sér,“ sagði Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson, for-
maður útvarpsráðs, í samtali við
DV í gær.
Gunnlaugur sagði að tengslin
væru þau að Helgi H. Jónsson
fréttastjóri væri giftur Helgu Jóns-
dóttur, nánasta samstarfsmanni
borgarstjórans, og hann væri jafn-
framt jafntengdur Gesti Jónssyni,
lögfræöilegum ráðgjafa borgarstjór-
ans.
„Ef maður vísar í ummæli ríkis-
endurskoðanda út af „Lalla mági“
(Lárusi Ögmundssyni), sem telur
mikil mistök hjá sér aö hafa dregið
hann inn í mál Sverris Hermanns-
sonar, þá fmnst mér þessi tengsl
vera æpandi," sagði Gunnlaugur.
Eiginkona mín er ópólitísk
Helgi H. Jónsson, fréttastjóri
Sjónvarps, sagði við DV að sér fynd-
ist miður hvernig Gunnlaugur
drægi eiginkonu hans inn í kosn-
ingamálin.
„Eiginkona mín er ópólitískur
embættismaður hjá Reykjavíkur-
borg. Þaö er alveg rétt,“ sagði Helgi.
„En það breytir engu til eða frá um
mína fréttastjórn. Ef formaður út-
varpsráðs er að gefa eitthvað slíkt
til kynna þá er það alveg af og frá.
Mér finnst mjög miður að verið sé
að draga eiginkonu mína inn í
þetta,“ sagði Helgi.
Helgi H. Jónsson fréttastjóri. For-
maður útvarpsráðs telur aö hann
hefði átt að taka sér hlé frá störfum
fyrir kosningar vegna vanhæfis.
DV-mynd GVA
)
Davíö haröorður
Davíð Oddsson forsætisráðherra
var harðorður í garð ríkisfjölmiðl-
anna í fréttum Sjónvarpsins á sunnu-
dagskvöld og reyndar einnig í umræð-
um forystumanna stjórnmálaflokk-
anna á kosninganótt. Davíð sagði jafn-
framt í DV i gær að „fjölmiðladýrkun
á R-listanum undanfarin fjögur ár
hefði verið með ólíkindum".
Helgi H. Jónsson segist hafa orðið
hissa á þessum ummælum gagnvart
ríkisfjölmiðlunum um helgina:
„Mér finnst ómaklega vegið að
starfsmönnum ríkisfjölmiðlanna og
þekki þá ekki af öðru en að vinna
sín störf af mikilli kostgæfni. Öllu
tali um hlutdrægni Sjónvarpsins
vísa ég á bug, það er algjörlega af og
frá. Við reynum að vinna eins vel
og við frekast megnum. Ég fullyrði
það fyrir hönd þeirra sem hér
vinna,“ sagði Helgi H. Jónsson.
Ekki náðist samband við Davíð
Oddsson. -Ótt
Þeir voru glaðbeittir forsvarsmenn Sjálfstæðisflokks og Akureyrarlista þegar þeir settust að viðræöuborðinu í gær f
húsakynnum Sjálfstæöisflokksins. Sigurður J. Sigurösson og Kristján Þór Júlíusson, vinstra megin á myndinni,
hófu fundinn á því aö bjóöa Oktavíu Jóhannsdóttur og Ásgeiri Magnússyni upp á sterkt kaffi áður en sest var yfir
pappírana. DV-mynd gk
Akureyri:
Meirihlutinn er að fæðast
Ríkisbankaskýrslur:
Óvíst um
skil fyrir
þinglok
Enn hefur ekki veriö ákveðið
hvort Ríkisendurskoðun muni
skila skýrslum sínum um Bún-
aðarbanka og Seðlabanka sam-
an eða sinni í hvoru lagi, að því
er heimildir DV greina. Sömu
heimildir segja að vinnu við
skýrslu um laxveiði og risnu-
kostnað Búnaðarbanka sé að
mestu lokið en sama verður víst
ekki sagt um Seðlabankaskýrsl-
una.
Verði ákveðið að skila skýrsl-
unum sitt í hvoru lagi er því út-
lit fyrir að Búnaðarbankaskýrsl-
unni verði skilað fyrir þinglok,
og hún væntanlega rædd þar, en
miöað er við aö Alþingi ljúki í
síðasta lagi á sjómannadaginn
sem ber upp á 7. júni. Verði
skýrslurnar aftur á móti spyrtar
saman og skilað samtímis, eins
og upphaflega var fyrirhugað, er
eins víst aö þingi verði lokið og
umræður verði að bíða fram á
haust.
Ekki náðist í Ólaf G. Einars-
son, forseta Alþingis, sem form-
lega mun veita skýrslunum mót-
töku, en hann verður erlendis til
5. júní. -phh
DV, Akureyri:
„Ég er bjartsýnn maður að eðlis-
fari og ég er bjartsýnn á að við náum
niðurstöðu í þessum viðræðum, við
gefum okkur bara til þess þann tíma
sem þarf,“ sagði Kristján Þór Júlíus-
son, oddviti sjálfstæðismanna á Ak-
ureyri, í gær þegar meirihlutavið-
ræðum Sjáifstæðisflokksins og Ak-
ureyrarlistans var fram haldið.
Svo var að heyra á mönnum í
gær að fátt gæti komið í veg fyrir
að nýr meirihluti væri að fæðast,
enda bauð málflutningur frambjóð-
enda D og F-lista í kosningabarátt-
unni ekki upp á mikinn ágreining.
Bæði framboðin lögðu höfuðá-
herslu á að átak yrði gert í at-
vinnumálum í bænum og að
hraustlega yrði tekið til hendinni i
skólamálunum. -gk
Hrannar ákveður að víkja
„Á þessum fyrsta sameiginlega
fundi nýs meirihluta Reykjavíkur-
listans tilkynnti ég samverka-
mönnum mínum og meðframbjóð-
endum minum um þá ákvörðun
mína, í ljósi stööu minnar eftir
þessa ófrægingarherferð og þann
fjölda útstrikana sem tengdust
mínu nafni í kosningunum, að ég
muni ekki taka að mér opinber
trúnaðarstörf fyrir Reykjavíkur-
listann og ekki setjast í borgar-
stjóm fyrr en ég hef hreinsað
mannorð mitt og niðurstaða hefur
fengist í þau mál sem eru til með-
ferðar hjá skattayfirvöldum," sagði
Hrannar B. Amarsson, nýkjörinn
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans,
í samtali við DV í gær.
Aöspurður um viðbrögð annarra
borgarfulltrúa við þessari ákvörð-
un, sagði Hrannar að henni hefði
verið tekið á þann veg að hann
hefði enn fullan stuðning meðfram-
bjóðenda sinna og þeir hefðu sýnt
fullan skilning á að þetta þyrfti að
gerast „áður en ég get á heilum mér
tekið í stjómmálastörfum. Ég vil
líka sýna þeim kjósendum, sem
strikuðu mig út, þá virðingu sem
stjómmálamönnum ber að sýna
kjósendum. Ég vil ekki sitja í borg-
arstjórn í skjóli félaga minna, ég vil
vera kosinn þar á eigin forsendum".
Hrannar sagðist ekki vita hvenær
rannsókn skattrannsóknarstjóra lyki,
hann hefði margtoft ýtt á eftir henni,
en embættið hlyti að hafa sinn gang í
málinu. Hver það væri sem tæki sæti
hans í borgarstjórn, sagðist Hrannar
ekki vita, um það hefði engin ákvörð-
un verið tekin á fundinum, enda
langt í að fyrsti formlegi fundur yrði
haldinn í borgarstjórn. „Mér fyndist
eðlilegt að varamaður minn, Pétur
Jónsson, taki mitt sæti,“ sagði Hrann-
ar. Um hvort það kæmi til greina að
listinn færðist allur upp og Anna
Geirsdóttir kæmi þá inn, sagði
Hrannar að um þetta hefði engin
ákvörðun verið tekin.
- En var þetta þá fyrsti og eini
fundur þinn með meirihlutanum
þar til formlegur botn er fenginn í
þín mál?
„Nei, ég nýt fúlls trausts þessa
fólks og mun fylgjast með borgar-
málunum og taka þátt í störfum
Reykjavíkurlistans og taka þátt í
fundum með þessu fólki. En ég mun
ekki gegna opinberum trúnaðar-
störfum fyrir listann eða setjast í
borgarstjórn fyrr en þessu er lokið.
Ég tel að það sé ekkert í minni for-
tíð sem komi í veg fyrir að ég geti
gegnt störfum stjómmálamanns að
rannsókn lokinni," sagði Hrannar.
-phh
Stuttar fréttir x>v
Húmanistar þakklátir
Húmanistar þakka þeim 392
manneskjum
sem greiddu
flokknum at-
kvæði í borgar-
stjómarkosning-
unum í Reykja-
vík. Hvert ein-
asta atkvæði er
yfirlýsing, ósk
um öðravísi stjórnmál, öðruvísi
þjóðfélag og öðravísi framtíð segir
í yfirlýsingu frá Methúsalem Þór-
issyni, efsta manni H-listans.
Klipptaf
í gær var byrjaö að klippa
númer af bílum sem ekki hefur
verið greiddur af þungaskattur
og bifreiðagjöid. Alls era um 218
milijónir króna þessara gjalda í
vanskilum, þar af á þessu ári 78,5
milljónir króna.
Tryggingasamningur
í gær var undirritaður trygg-
ingasamningur milli SVFÍ og
Landsbjargar annars vegar og
Sjóvár-Almennra hins vegar um
að tryggja björgunarsveitarmenn
og búnað þeirra. Samningurinn
er upp á 7 milljónir króna.
Engin tregða
í frétt frá BSRB segir að ekki
hafi staðið á samtökunum að
þiggja að lægstu laun yrðu 80 þús-
und á mánuði eins og borið hefði
á að orð Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur og Árna Sigfússonar í
umræðuþætti í útvarpi hefðu ver-
ið túlkuð. Ekki hefði samist um 80
þúsund kr. lágmarkslaun vegna
fyrirstöðu atvinnurekenda.
Utandagskrárumræður
Fjöldi beiðna um utandag-
skrárami-æður
liggur fyrir hjá
forseta Alþing-
is, Ólafl G. Ein-
arssyni. Meðal
þess sem þing-
menn vilja
ræða er skýrsla
um risnukostn-
að í Seðlabankanum og Búnaðar-
bankanum, sem væntanleg er í
vikunni, Schengen-samkomulag-
ið, heilbrigðismál o.fl. Bylgjan
sagði frá.
Helmingaskipti
Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokkur virðast vera að skipta
með sér völdum í flestum sveitar-
félögum landsins, að Reykjavík
og Akureyri undanskildum. í
Hafnarfirði var gengið frá slíku
meirihlutasamstarfi í gærkvöld
og verður Magnús Gunnarsson,
oddviti sjálfstæðismnanna, nýr
bæjarstjóri.
Líffræðileg fjölbreytni
Fjórða þing alþjóðasamnings
um líffræðilega fjölbreytni er ný-
afstaðið í Bratislava. Fulltrúar
180 ríkja sóttu þingið og sam-
þykkt var rammaáætlun um
verndun líffræðilegrar fjöl-
breytni í fersku vatni og sjálf-
bæra nýtingu.
Fýrsta bjallan
Jóhannes Jónsson, kaupmaður
í Bónusi, hefur fengið fyrsta ein-
takið af hinni nýju Volkswagen
bjöllu sem komið er til landsins.
Billinn veröur ekki í almennri
sölu hérlendis fyrr en effir næstu
áramót. Morgunblaðið segir frá.
Laumufarþegar
Þrír menn fundust í einu skipa
Eimskips í Sundahöfn aðfaranótt
iaugardags. Þeir era Júgóslavar
og ætluðu að komast með skipinu
til Bandaríkjanna eða Kanada.
Hægri umferð 30 ára
í dag era 30 ár síðan hægri um-
ferð var tekin
upp hér á landi.
Umferðarráö
hélt sérstakan
fund af þvi til-
efni í hádeginu
í dag þar sem
Þorsteinn Páls-
son dómsmála-
ráðherra rakti sögu umferðarör-
yggismála á þessu tímabili sem
liðið er og um markmiö nánustu
framtíðar. -SÁ/JHÞ