Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Síða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
23-
íþróttir
Chile og Úrugvce gerðu 2-2 jafntefli 1
vináttulandsleik i knattspymu sem
fram fór í Santiago i fyrrinótt. Ivan
Zamorano og Marcelo Salas komu
Chilemönnum í 2-0 eftir 24 mínútna
leik en Úrúgvæar jöfnuðu metin í síð-
ari hálfleik.
Bandarikjamenn lögðu Kúveita, 2-0,
í vináttuleik sem fram fór i Portland
í fyrrinótt. Emie Stewart og Tab
Ramos gerðu mörkin fyrir Banda-
ríkjamenn sem hafa átt góðu gengi að
fagna í undirbúningi sínum fyrir
HM.
Tom Watson frá Bandaríkjunum
hrósaði sigri á PGA-móti atvinnu-
manna i golfi sem lauk í Texas í
fyrrinótt. Watson lék hringina fjóra á
265 höggum.
Landi hans Jim Furyk varð annar á
267 höggum og Jeff Sluman frá
Bandaríkjunum varð í þriðja sæti á
269 höggum.
Watson var þarna að vinna sitt
fyrsta mót f tæp tvö ár en þetta var
34. sigur hans á löngum keppnisferli.
Antonio Oliveira, þjálfari Porto í
Portúgal, sem leiddi lið sitt til sigurs
í deildarkeppninni og bikarkeppn-
inni hefur ákveöið að hætta með lið-
ið. Hann greindi frá þessu eftir 3-1
sigur Porto gegn Braga í úrslitaleik
bikarkeppninnar á sunnudaginn.
Ólafur Rafnsson var endurkjörinn
formaður Körfuknattleikssambands
íslands á ársþingi sambandsins sem
haldið var á fsafirði á dögunum.
Meö honum er í stjórn vora kosin
Ólafur Jóhannsson, Magnús Svavars-
son og Guðjón Þorsteinsson.
KKÍ skilaói 614.000 króna hagnaði
af rekstrinum. Samþykkt var á þing-
inu að sækja fram i körfuknattleik
kvenna og þá var ný reglugerð um
leikmannasamninga samþykkt en
hún ber mjög svipmót af reglugerð
KSÍ um leikmannasamninga.
Ólafur Rafnsson, formaöur KKÍ, og
Pétur Hrafn Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri KKÍ, sátu þing FIBA
sem haldiö var í Amsterdam á dögun-
um.
Á þinginu var gerð sú breyting að
Evrópu var skipt upp í tvö svæði og
eru leikmannaskipti innan þeirra
ótakmörkuð.
Pétur Hrafn var kosinn í unglinga-
nefnd FIBA til næstu fjögurra ára og
þá var formaður franska körfuknatt-
leikssambandsins kosinn forseti
FIBA.
Nikolaj Jacobsen, landsliðsmaður
Dana í handknattleik, sem lék með
Dormagen í vetur í þýsku 1. deildinni
í handknattleik, er genginn í raöir
þýsku deildar- og bikarmeistarar-
anna í Kiel. Hann skrifaði um
helgina undir þriggja ára samning
við þýska stórliðið.
Jacobsen er homamaður og skoraði
189 mörk fyrir Dormagen á nýliðnu
tfmabili en liöið féll í 2. deild eftir að
hafa tapaö einvígi gegn Schutterwald
um laust sæti í 1. deildinni.
Meölimir Blikaklúbbsins, stuðn-
ingsmenn Breiðabliks, ætla aö hittast
fyrir leikinn gegn Fylki í 1. deildinni,
í húsnæði Bilaleigunnar ALP aö
Skemmuvegi 20, miðvikudaginn 27.
maí kl. 18.30. Rútuferö verður síðan á
Kópavogsvöllinn eftir mótttökuna.
Stjórn Blikaklúbbsins hvetur alla
meölimi að mæta og era menn hvatt-
ir til að taka með sér gesti. -GH
Keila:
Sex fara
til Malmö
Karlalandsliðið í keilu tekur
þátt í Evrópubikarmóti landsliða
sem hefst í Malmö í Svíþjóð í
næstu viku.
Mats Wetterberg, landsliðs-
þjálfari, hefur valið sex leik-
menn í liðið og þeir eru eftirtald-
ir:
Bjöm Birgisson, KFR
Freyr Bragason, KFR
Halldór Ragnar Halldórsson, ÍR
Ingi Geir Sveinsson, ÍR
Jón Helgi Bragason, ÍR
Valgeir Guðbjartsson, KFR
-VS
Knattspyrna:
Evrópusæti
fyrir háttvísi?
Svo kann að fara að botnlið úr-
valsdeildar karla í knattspyrnu
hreppi sæti i UEFA-bikamum á
næsta ári - ef það verður efst í
háttvísimati deildarinnar.
Þrjár Evrópuþjóðir fá jafnan
aukasæti í UEFA-bikamum en
þau em gefin eftir háttvísimati
Knattspymusambands Evrópu,
UEFA, á landsleikjum og Evrópu-
leikjum viðkomandi þjóða. Þær
þrjár þjóðir sem best koma út í því
mati ár hvert fá þessi aukasæti.
Nú hefur UEFA skyldað aðildar-
þjóðir sínar til að vera með hátt-
vísimat í efstu deild. Ef þjóðin fær
aukasætið umrædda rennur það
til þess liðs sem er efst í hátt-
vísimatinu, óháð stöðu þess í
deildinni.
Eftirlitsmaður KSÍ á hverjum
leik í deildinni fyllir út skýrslu
fyrir háttvísimatið. KSÍ gefur
hverju liði einkunn út frá skýrsl-
unni og sú einkunnagjöf ræður
röð liðanna i „háttvísideildinni".
-VS
Útsendingar í knattspyrnu í höfn:
Betri þjónusta
viö landsmenn
- segir Ingólfur Hannesson hjá RÚV
Samningar um sjónvarpsútsending-
ar frá íslenskri knattspyrnu náðust í
gær og er samningur til fjögurra ára.
RÚV hefur sýningarréttinn en sjón-
varpsstöðin Sýn kemur einnig nálagt
pakkunum og mun einnig sýna frá
leikjum.
Ríkissjónvarpið mun meðal annars
sýna beint frá landsleikjum hér heima
sem er nýmæli. Einnig mun RÚV hafa
almennan rétt til upptöku á leikjum í
islenskri knattspymu og til beinna út-
sendinga í lokaumferð efstu deildar.
Stöðvarnar báðar munu sýna til
skiptis frá úrslitaleik karla í bikar-
meistaradeildinni og hefur það aldrei
verið gert áður. Sýn mun öðlast rétt-
inn til að sýna frá leikjum íslenska
landsliðsins erlendis ef forsvarsmenn
hennar kjósa.
Sýn mun einnig hafa rétt til að
sýna beint frá einum leik í hverri um-
ferð og mun fyrsta útsendingin verða
á fimmtudagskvöldið þegar Keflvik-
ingar og Eyjamenn leiða saman hesta
sína.
Samningurinn tryggir okkur
betri stöðu
„Fyrir hönd Sjónvarpsins er ég að
vonum mjög ánægður með að þessi
mál skuli vera komin í höfn. Þessi
samningur tryggir okkur betri
stöðu en við höfum áður verið í
gagnvart knattspyrnunni. Fyrst og
fremst tryggir þetta okkur beinar
útsendingar frá landsleikjum hér
heima og í því sambandi erum við
að tala um minnsta kosti 20 lands-
leiki á fjögurra ára tímabili. Það er
algjör bylting hvað varðar þjónustu
við landsmenn og þá sem ekki kom-
ast á völlinn. Að öðru leyti er ég feg-
inn að þessari hrinu skuli vera lok-
ið. Þetta hefur verið eitthvert snún-
asta og undarlegasta samningamál
sem ég hef staðið í á síðustu 10
árum,“ sagði Ingólfur Hannesson,
íþróttastjóri á RÚV, i samtali við
DV í gær.
-JKS
Charlton í úrvalsdeildina
Lundúnaliðið Charlton Athletic
tryggði sér í gær sæti í ensku úr-
valsdeildinni með því að sigra
Sunderland á Wembley í Lundún-
um. Charlton hefur ekki leikið í
efstu deild enskra knattspymu í
átta ár en liðið lék í 1. deild fjögur
ár í röð en féfl um vorið 1990. Flest-
ir hölluðust að því að Sunderland
myndi fara upp en liðið situr hins
vegar eftir með sárt ennið.
Leikur liðanna í gær var
æsispennandi en að loknum venju-
legum leiktíma var staðan 8-3 og
eftir framlengingu 4-4 og varð því
að knýja fram úrslit í vítaspyrnu-
keppni. í henni hafði Charlton bet-
ur og urðu lyktir leiksins 7-6.
Clive Mendonca skoraði þrjú af
fjórum mörkum Charlton og Ric-
hard Rufus eitt. Niall Quinn skor-
aðu tvö mörk fyrir Sunderland og
þeir Kevin PhUlips og Nicky Sum-
marbee eitt hvor.
-JKS
Draumaliðið af stað
Eftir nokkrar tafir
er draumaliðsleikur
DV kominn af stað.
Fyrstu tvær umferðir
úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu hafa ver-
ið færðar inn á
draumaliðstölvuna og
staða efstu liða ásamt
liðsskipunum er nú að
finna í draumaliðssím-
anum, 904 1015.
Enn fremur er stöðu
efstu liða í leiknum í
heild og í hinum ýmsu
landshlutum að finna
á íþróttavefnum á Vis-
ir.is.
Hér á eftir koma
nokkur lið sem ekki
höfðu birst í blaðinu.
Á bls. 22 er síðan fjall-
að nánar um drauma-
liðsleikinn.
04697 Mitt liö
04729 Stelkur
04730 Bíókallarnir
04785 Trausti Jóhanness.
04877 Ölla reynsla
04925 BB Simply the Best
04973 THGHS
04985 Bimbó boltastrákur
05033 Draumalið Kristins
05268 FC Eyvindur
05334 Da Funk
05358 Gump
05430 Jókerinn
05435 Mafíósamir
05446 Úrvalsmenn
05337 Lið Sölva Zanetti
05526 Hreimur FCCP
05590 White Sox
05657 Simmi og Nilli
05659 Oggi 98
05728 Húrí Gúrí
05746 Bert Ljung
05759 Úrvalslð Jörundar-
holts 110
05842 FC 47
05994 FC Fjóla Guðmunds-
dóttir
05997 Fuzzmanaz
06236 Hvaö með kvenna-
boltann?
06369 Jói Solskjær
06490 Lambrasco
06502 Mattheo
06749 Málarafélagiö
Michael Jordan er hér að skora 2 af 28 stigum gegn Indiana í nótt. Þau dugðu skammt því Indiana sigraði og jafnaði í einvígi
iiöanna, 2-2. Sigurliðið mætir Utah Jazz í úrslitum um titilinn en fjóra sigurleiki þarf til aö komast í úrsiitaleikinn.
Indiana jafnaði metin gegn Chicago í nótt:
Sigurkarfa frá Miller
Indiana jafnaði metin í 2-2 í
einviginu gegn meisturum Chicago um
réttinn til að mæta Utah Jazz í
úrslitum um NBA-meistaratitilinn í
körfuknattleik. Lokatölur urðu 96-94
og skoraði Reggie Miller sigurkörfuna
með þriggja stiga körfu fáum
sekúndubrotum áður en leiktíminn
rann út. Miller gekk ekki heill til
skógar í leiknum en hann lék
draghaltur eftir að hafa snúið ökklann.
Hefði ekki átt að vera inni á
„Ég hefði í raun ekki átt að vera inni
á þarna í lokin því ég sagði fyrir
leikinn að ég gæti bara leikið hálfan
leikinn. En Larry Bird þjálfari var á
öðru máli og lét mig leika svona á mig
kominn. Ég veit ekki hvers vegna en ég
er núna mjög glaður að hann skyldi
hafa tekið þessa ákvörðun," sagði
Miller glaður í bragði eftir leikinn.
Michael Jordan átti lokaskotið í
leiknum af löngu færi og ekki munaði
miklu að það færi ofan í. Áður en
Miller skoraöi sigurkörfuna misnotaði
Scottie Pippen tvö vítaskot fyrir
Chicago og Indiana vann boltann þegar
2,7 sekúndur voru til leiksloka.
„í hvert skipti sem ég skýt vonast ég
til að boltinn fari í körfuna og svo var
einnig um þetta skot. Ég var hissa að
boltinn skyldi ekki detta ofan í körfuna
en það var margt í þessum leik sem
kom mér á óvart,“ sagði Michael
Jordan eftir leikinn.
Ótrúlegur endir
„Þetta var ótrúlegur endir á
leiknum og minnti mig á úrslitaleikinn
á Ólympíuleikunum 1972 þegar
Sovétmenn lögðu Bandaríkjamenn,"
sagði Phil Jackson, þjálfari Chicago,
eftir leikinn.
Stig Indiana: Smits 26, Miller 15,
D.Davis 12, Best 10, Jackson 8, A.Davis
8, Rose 8, Mckey 6, Mullin 3.
Stig Chicago: Jordan 28, Kukoc 18,
Harper 13, Pippen 12, Longley 10,
Wennington 4, Rodman 4, Kerr 3,
Burell 2. -GH
Heimsmeistaramótið í þolfimi:
Góður árangur hjá
Halldóri og Jóhönnu
Snóker:
Jóhannes og
Kristján leika
til úrslita
Það verða þeir Kristján Helga-
son og Jóhannes B. Jóhannesson
sem leika til úrslita um íslands-
meistaratitilinn í snóker þriðja
árið í röð. 1 undanúrslitunum
sem leikin voru um helgina
vann Kristján öruggan sigur á
Ingva Halldórssyni, 7-1, og Jó-
hannes B. lagði Arnar Richards-
son, 7-3.
Kristján Helgason gerði 100
skor í leiknum gegn Ingva og
Arnar náði 102 í viðureigninni
gegn Jóhannesi.
Úrslitaleikur þeirra Kristjáns,
nýbakaðs Evrópumeistara
áhugamanna, og Jóhannesar fer
fram í Snóker- og Poolstofunni
Lágmúla 5 klukkan 13 á laugar-
daginn.
-GH
íslendingar náðu góðum árangri á ný-
afstöðnu heimsmeistaramóti í þolfími.
Halldór B. Jóhannsson náði 8. sæti og
Jóhanna Rósa Ágústsdóttir hafnaði í 26.
sæti.
Hafldór hefur stöðugt veriö að nálgast
þá bestu og var þetta mót engin undan-
tekning. Hann bætti árangur sinn frá
HM 1997 verulega en þá varð hann í 15.
sæti. Halldór hlaut 14,65 stig fyrir æfing-
ar sínar en stærsti frádrátturinn var að
mismunur í erfiðleikaæfingum var of lít-
ifl. Sjö efstu sætin komust í úrslit þanng
að Halldór rétt missti af þeim en hann
gat nú samt ekki verið annað en ánægð-
ur með frammistöðu sina enda sýndi
hann miklar framfarir. Sigurvegari í
karlaflokki var Canacla frá Spáni og
hlaut hann 17,95 stig í eikunn.
Jóhanna Rósa var að keppa í fyrsta
sinn í einstaklingskeppninni en hún
keppti á HM ‘96 í hópakeppninni. Ekki
er hægt að segja annað en hún hafi stað-
ið sig einstaklega vel en hún varð í 26.
sæti af rúmlega 40 keppendum. Yoriko
Ito frá Japan sigraði í kvennaflokki.
Jóhanna og Halldór voru bæði mjög
ánægð með árangur sinn og sögðu
einnig að fram væru að koma sífellt
fleiri og betri þolfimikeppendur á ís-
landi.
Langþráður sigur hjá
Ungverjunum
Loksins, loksins, sagði ungverska tríó-
ið, sem kom hingað til lands í vor í til-
efni afmælis'FSÍ. Eftir langa bið náðu
þeir gullinu í hópakeppninni en undan-
farin ár hafa þeir verið á verðlaunapaUi
en aldrei náð að sigra. -AIÞ
íþróttir
Frábær frammistaða Amar Ævars Hjartarsonar á golfmóti í Skotlandi:
Skalf eins
og hrísla
- frammistaöa íslenska kylfingsins vakti mikla athygli
Öm Ævar Hjartarson,
kylfingur í Golfklúbbi
Suðurnesja, varð í 21.
sæti á St. Andrews Links
Trophy-móti áhuga-
manna í golfi.
Örn Ævar lék sem
kunnugt er annan hring
mótsins af fjórum á
aðeins 60 höggum og rak
alla í rogastans er það
skor leit dagsins ljós.
Næstu tvo hringi lék Öm
Ævar á 75 og 76 höggum
og holumar 72 samtals á
290 höggum sem er mjög
góður árangur.
Aðrir íslenskir
kylfingar á mótinu náðu
ekki að komast gegnum
niðurskurðinn eftir 36
holur. Sigurvegrarinn
lék á 276 höggum.
Á 28 höggum seinni
9 holurnar
Vallarmetið sem Örn
Ævar Hjartarson setti
um helgina síðustu
verður lengi í minnum
haft.
Fyrri 9 holurnar lék
hann á 32 höggum sem
eitt og sér er frábær
árangur. Hvað má þá
segja um seinni 9
holurnar sem hann lék á
aðeins 28 höggum. Á
holunum 18 lék hann 9
holur á einu höggi undir
pari og eina holuna á
tveimur höggum undir
pari. Samtals lék hann
hringinn á 11 höggum
undir pari.
Skalf á lokaholunni
Á lokaholunni á
draumahringnum segist
Örn Ævar hafa skolfið
eins og hrísla og varla
getað hitt boltann.
Hann var í þokkalegri
stöðu til að leika
lokaholuna á einu höggi
undir pari og hefði þá
komið inn á aðeins 59
höggum. En parið var
staðreynd og varla hægt
að vera óánægður með
það.
Frammistaða Arnar
Ævars vakti mikla
athygli og skoskir
fjölmiðlar stóðu á
öndinni er 60 höggin
voru staðreynd og metið
glæsilega kom svo
sannarlega á óvart.
Eldra met
áhugamanna á vellinum
var 67 högg en met
atvinnumanna var 63
högg.
-SK
tfi ENGLAND
Fabrizio Ravanelli hefur hafnað til-
boði frá skoska stórliðinu Glasgow
Rangers. Rangers bauð 5 milljónir
punda 1 kappann og vikulaun upp á
1,5 mfiljónir punda.
Patrick Kluivert, hollenski fram-
herjinn sem lék með AC Milan f vet-
ur, vill fara frá félaginu og spila á
Englandi á næsta tímabili.
Kluivert segist ekki hafa verið
ánægður með vistina á Ítalíu og
knattspyrnan hafi ekki fallið honum f
geð. „Ég er spenntastur fyrir þvf að
fara til Arsenal eða Manchester
United,“ segir Kluivert.
Roberto Baggio vill einnig fara frá
Ítalíu og spila á Englandi. Hann seg-
ist vera mikill aðdáandi ensku knatt-
spymunnar og segist vera mjög hrif-
inn af landinu.
Manchester United, Arsenal og
Tottenham eru öll sögö hafa áhuga á
að fá Baggio til liðs við sig en þessi 31
árs gamli miðju- og framllnumaður
lék vel með Bologna í vetur sem
tryggði honum að nýju sæti í ítalska
landsliðinu.
Arsenal hefur boðið franska liöinu
Auxerre 3,8 miHjónir punda í fram-
herjann Stephane Guivarch en á dög-
unum bauð Newcastle 3 miUjónir
punda f kappann. Hann hefur verið á
skotskónum með Auxerre og skorað
47 mörk f 57 leikjum.
Steinar Guögeirsson lék aUan leik-
inn meö ÍBV gegn ÍA í úrvalsdeUd-
inni í knattspyrnu á sunnudag en fór
ekki af veUi eins og sagt var í blað-
inu. Jóhann Sveinn Sveinsson kom
hins vegar inn á fyrir Hjalta Jóhann-
esson og Ingi Sigurðsson fyrir Kristin
Lárasson.
Guðni Rúnar á ný
til Eyjamanna
- leikur meö Völsungi til 15. júlí
Guðni Rúnar Helgason er genginn til liðs við íslandsmeistara ÍBV í knatt-
spyrnu á nýjan leik og hefur gengið frá þriggja ára samningi við þá. Guðni
Rúnar leikur þó til að byrja með á heimaslóðum á Húsavík en hann spilar
með Völsungi í 2. deildinni til 15. júlí og fer eftir það til Eyja.
Guðni var fastamaður í liði ÍBV og 21-árs landsliðinu I fyrra en fór síðan
til þýska 2. deildar liðsins Wattenscheid í vetur. Dæmið gekk ekki upp og
veikindi settu strik í reikninginn hjá Guðna. Hann styrkir enn frekar lið
Eyjamanna fyrir átökin seinni part timabilsins.
_YS Guöni Rúnar Helgason.
Hannes Tómasson varö á laugardag-
inn íslandsmeistari karla í grófri
skammbyssu. Hannes sigraði i karla-
flokki með 563 stig, Carl J. Eiríksson
varð annar með 551 stig og Scott
Thomas þriðji með 544 stig.
Kristína Siguröardóttir varö ís-
landsmeistari kvenna í sömu grein
en hún hlaut 527 stig. ÞórhUdur Jón-
asdóttir varð önnur með 514 stig og
Ingibjörg Ásgeirsdóttir þriðja með
505 stig.
Eintracht Frankfurt komst á ný í
þýsku úrvalsdeUdina í gærkvöld. Tvö
sæti I úrvalsdeUdinni eru laus en um
þau berjast á næstunni Núrnberg,
Freiburg, Gutersloh og St. Pauli.
Michelle de Bruin, sem vann þrjú
guUverðlaun á ÓL i Atlanta, stendur
frammi fyrir lífstíðarbanni. Grunur
er um að sýnum, sem tekin vora úr
henni, hafi verið breytt eftir mót í
Barcelona.
Erlingur Richardsson
genginn I Stjörnuna
Eyjamaðurinn Erlingur Ric-
hardsson er genginn til lið við 1.
deildar lið Stjörnunnar í hand-
knattleik.
Erlingur er öflugur varnar- og
línumaður sem styrkir Garðabæj-
arliðið en brotthvarf hans er um
leið talsverður missir fyrir lið
ÍBV.
-VS
Halldór og Jóhanna eru hér með ungverska liöinu sem fagnaöi sigri í
hópakeppninni.
Knattspyrna:
Bikarinn í gang
Bikarkeppni KSÍ er farin af
stað og í gærkvöld og fyrrakvöld
fóru fram 11 leikir í fyrstu um-
ferð og voru skoruð 49 mörk í
þeim. Úrslit í þeim urðu
eftirfarandi.
Sindri-Leiknir F .............0-1
Neisti H.-Nökkvi..............0-2
Höttur-Einherji...............5-2
Hvöt-KS.......................0-2
Bruni-Haukar..................1-2
Fylkir 23-Ármann..............4-0
TindastóU-Magni...............1-0
Huginn-Þróttur N..............1-7
Ægir-GG.......................6-1
Afturelding-Keflavík 23.......5-0
Þróttur Vogum-KR 23 ..........0-9
-JKS
Hún hefur síðan frá því í Atlanta
legið undir gran um að neyta
ólöglegra lyfla tU aö auka getu sína.
Ekkert kom hins vegar fram í sýnum
á ÓL.
Alberto Zaccheroni tók formlega við
þjálfarastarfinu hjá AC MUan í gær
og skrifaði undir tveggja ára
samning.
Argentina sigraði S-Afriku, 2-0 í
landsleik í knattspyrnu í Buenos
Aires í gær með mörkum frá
Batistuta og Ortega. -JKS/VS
íkvöld
MeistaradeUd kvenna í knattspymu:
Akranes-KR .................20.00
Haukar-Fjölnir..............20.00
Breiðablik-ÍBV .............20.00
Valur-Stjaman ..............20.00
Sveinn Mnrgeirsson stórbætti árangur sinn og einnig
rtiiulega 40 ára iinglingainet í 3000 m lilaupi. Grindavik,
IBV, Kefiavik og KR iinmi sina leiki i Lamlssimarieildinni.
www.itn.is/leppin
+