Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Qupperneq 24
32
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
Sviðsljós
Jagger í keliríi
með Umu sætu
Erkirokkarinn Mick Jagger
var staðinn að verki á dögunum.
Ljósmyndari kom að honum og
leikkonunni með löngu þuml-
ana, Umu Thurman, i hörkukel-
iríi í Viper Room-klúbbnum í
Hollywood. Ljósmyndarinn
smeúti af þeim mynd eða gerði
að minnsta kosti tilraun til þess.
Jagger brást hins vegar ókvæða
viö, að sögn breskra æsiblaða, og
lagði hendur á manninn. Ljós-
myndarinn kærði athæfið. Mick
vildi fyrir alla muni ekki að mál-
iö færi fyrir dómstóla til að
valda eiginkonunni, Jerry Hall,
og sjálfúm sér ekki meiri vand-
ræðum en nauðsynlegt var.
Popparinn náði því sátt viö ljós-
myndarann og allir eru kátir.
Villiprins mik-
ill sundkappi
Vilhjálmur prins er likm- móö-
ur sinni, Díönu sálugu
prinsessu, að því leytinu til að
hann hefur mikið dálæti á vatni.
Ekki til að drekka heldur til að
svamla í, eins og dæmin sanna.
Til þessa hefur þetta veriö leikur
einn en nú ætlar prinsinn aö
taka sundið alvarlega. Aðalá-
stæða þess er sú að hann setti
nýtt skólamet í Eton í 50 metra
sundi meö frjálsri aöferð. Svo
hratt synti prinsinn að tími hans
var aöeins þremur sekúndum
lakari en Bretlandseyjametið.
Vilhjálmur hefur því ákveðið að
láta allar aðrar íþróttagreinar
lönd og leiö og einbeita sér aö
sundtökunum.
I>V
Emma reið vegna
lygi um ástarfund
Breska leikkonan Emma Thomp-
son ætlar aldrei aftur til Svíþjóðar.
Fyrir nokkrum mánuðum var hún
ásamt móður sinni, Phyllida Law, í
Stokkhólmi þar sem þær voru að
kynna kvikmynd er þær leika sam-
an í. Að lokinni frumsýningu var
haldin stór veisla fyrir flna fólkið í
Stokkhólmi.
Nokkrum vikum seinna greindi
Michaela de la Cour, fyrrverandi
söngkona í Army of Lovers, frá því
að hún hefði átt ástarfund með
Emmu Thompson nóttina eftir
frumsýninguna í Stokkhólmi. Þær
hefðu hist í íbúð um miðja nótt og
hefði Emma afklætt sig. Síðan hefðu
þær kysst ástríðuþungið á sófa. Frá-
sögn Michaelu birtist fyrst í sænska
blaðinu Se&Hör og síðan í breska
blaðinu News of the World.
Fyrir nokkrum vikum seinna við-
urkenndi Michaela að frásögn henn-
ar hefði verið uppspuni. Það hefði
verið maður sem hún þekkir sem
hefði þvingað hana til að ljúga.
„Þetta er versta lygi sem ég hef
Emma Thompson ásamt leikaranum Adrian Lester á frumsýningu á mynd
þeirra Primary Colors. Símamynd Reuter
orðið fyrir barðinu á. En ég er búin
að fyrirgefa Michaelu. Ég vorkenni
henni hins vegar. Ég ætla aldrei aft-
ur til Svíþjóöar," sagði Emma, bál-
reið, í viðtali við blaðamann
sænska blaðsins Aftonbladet á dög-
unum.
Emma kvaðst aldrei hafa hitt
Michaelu og aldrei hafa heyrt talað
um Army of Lovers.
Þegar Emma var gift leikaranum
og leikstjóranum Kenneth Branagh
var stundum gefið í skyn í fjölmiðl-
um að um sýndarhjónaband væri að
ræða. Eiginlega hefðu þau bæði
meiri áhuga á fólki af eigin kyni.
Emma kvaðst ekki hafa neina skýr-
ingu á þessum vangaveltiun. Ef til
vill hefði það eitthvað með það að
gera að hún hefði eitt sinn lýst því
yfir að hún væri ekki reiðubúin að
eignast barn.
Bæði Emma og Kenneth hafa ver-
ið í sambandi við aðra aðUa eftir
skilnaðinn. Emma hitti leikarann
Greg Wise við tökur á kvikmynd-
inni Sense and SensibUity.
Þaö var mikiö um kossa á kvikmyndahátföinnl t Cannes um helgina. Meöal
þeirra heppnu sem fengu koss var breski leikarinn Peter Mullan og frá ekki
ósnotrari konu en Andie MacDowell. Mullan fékk verölaun sem besti leikar-
inn fyrir frammlstööuna í myndinni My Name Is Joe eftir Ken Loach.
Naomi Campbell
minnt á æskuna
Breska ofurfyrirsætan
Naomi CampbeU komst
við í Búkarest í Rúmen-
íu um daginn þegar hún
heimsótti tónlistarskóla
í borginni.
„Þetta minnir mig á
gamla skólann minn,
lyktin er sú sama,“ sagði
fýrirsætan fríða við
krakkana sem voru yfir
sig hrifin af þessum merkUega
gesti. „Þegar maður er fimm ára
hefúr maður ekki hug-
mynd um hvaö í vændum
er. Það er svo spennandi."
Naomi gerði meira en að
heimsækja tónlistarskól-
ann góða. Hún varð einnig
þess heiðurs aðnjótandi að
skóli á sjúkrahúsi fyrir al-
næmissjúk böm var nefnd-
ur í höfuðið á henni. Þar
geta böm sem þurfa aö
liggja á sjúkrahúsinu stundað nám
eins og aðrir jafnaldrar þeirra.
Launin hækkuðu
vegna sambands-
ins við DiCaprio
Bandaríska fyrirsætan Vanessa
Haydon, sem er vinkona hjarta-
knúsarans Leonardos DiCaprio,
þénar nú um 1,5 mUljónir króna á
dag. Hafa launin hennar hækkað
um 1,3 milljónir á dag eftir að það
fréttist að hún væri í tygjum við
leikarann fræga.
Vanessa er reyndar við nám í
innanhússarkitektúr og hefur í
hyggju að Ijúka náminu þrátt fyrir
velgengni í fyrirsætustarfmu. Að
sögn skólafélaga Vanessu getur hún
hins vegar vel hugsað sér að gerast
kvikmyndaleikkona.
Vanessa sýndi á tfskuviku f Ástralfu
á dögunum. Símamynd Reuter
/ SJÁVARÚTVEGUR
16 síðna aukablað um
sjávarútveg fylgir DV á morgun.
Rætt verður við forystumenn í
sjávarútvegi og rætt við
forstöðumenn fyrirtækja sem
starfa í greininni.
á morgun