Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Qupperneq 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
Afmæli
Jónas Elíasson
Jónas Elíasson, prófessor í verk-
fræði við HÍ, Búðagerði 5, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Jónas Janus fæddist í Hnífsdal.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1956, fyrrihlutaprófl í verkfræði frá
HÍ 1959, prófl í byggingaverkfræði
frá DTH í Kaupmannahöfn 1962 og
Lic.techn.-prófi 1973.
Jónas var verkfræðingur við
Laboratoriet for Havnebygning í
Kaupmannahöfn og stundaði
kennslu og rannsóknir við Tækni-
háskólann í Kaupmannahöfn
1962-64, var verkfræðingur hjá Vita-
og hafnamálaskrifstofunni 1964-65,
hjá Raforkumálaskrifstofuninni
1966-70, lektor við DTH í Kaup-
mannahöfn 1970-73 og prófessor i
straumfræði, vatnafræði, hafnar-
gerð og virkjanagerö við HÍ frá 1973.
Hann var jafnframt forstöðumaður
Straumfræðistöðvar Orkustofnunar
1973-82 og aðstoðarmaður iðnaðar-
ráðherra 1985-88. Þá var hann gisti-
prófessor, fagkennari og prófdómari
við Tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn 1974-80.
Jónas sat í stjóm Norræna vatna-
fræðifélagsins 1974-78 og formaður
þess 1974-76, formaður byggingar-
verkfræðiskorar HÍ 1976-83, stjórn-
arformaður Verkfræðistofunnar
Straums hf. frá 1978, stjómarfor-
maður Verkfræðistofunnar Vatna-
skila hf. 1981-85, stjórnar-
formaður Orkustofnunar
og Orkustofnunar erlend-
is hf. 1983-88, formaður
Herdísarvíkurnefndar HÍ
frá 1984, stjómarformað-
ur Jarðborana hf.
1986-90, formaður Vatna-
fræðifélags íslands um
skeið frá 1985, hefur setið
í hafnarstjóm Reykjavik-
urhafnar, í Fram-
kvæmdaráði Reykjavík-
urborgar, var formaður
orkunefndar Sjálfstæðis-
flokksins 1980-88 og í stjóm Full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík 1978-85.
Jónas hefur setið í ýmsum nefnd-
um og skrifað fjölda greina og rit-
gerða um verkfræðileg efni í inn-
lend og erlend tímarit.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 19.8. 1961 Ásthildi
Erlingsdóttur, f. 17.3. 1938, d. 2.12.
1993, lektor við KHÍ. Hún var dóttir
Erlings Þorsteinssonar, læknis í
Reykjavík, og k.h., Huldu Ólafsdótt-
ur húsmóður.
Böm Jónasar og Ásthildar era
Guðrún Helga, f. 6.12. 1963, sérfræð-
ingur hjá Jafnréttisráði, gift Kristni
Sigurbergssyni kennara og eiga þau
tvö böm; Erlingur Elías, f. 13.10.
1968, verkfræðingur við umhverfis-
deild vamarliðsins á Keflavíkur-
Jónas Elíasson.
flugvelli og á hann eina
dóttur.
Sambýliskona Jónasar er
Kristin Ema Guðmunds-
dóttir, f. 9.10. 1953, fram-
kvæmdastjóri hjá Stjá, -
sjúkraþjálfun. Hún er
dóttir Guðmundar Krist-
jánssonar, bónda í Amar-
bæli sem er látinn, og
Kamellu Sigríðar Áma-
dóttur kennara.
SonurJónasar og Kristín-
ar Ernu er Guðmundur
Arnar, f. 26.8. 1983, nemi.
Systkini Jónasar: Halldór Ingi-
mar, f. 16.7. 1939, prófessor í stærð-
fræði í HÍ; Þorvaldur Rósinkar, f.
9.7.1940, skólastjóri VÍ; Elías Bjami,
f. 13.3.1942, verkfræðingur í Reykja-
vík; Margrét, f. 13.12.1946, myndlist-
arkona í Reykjavík.
Foreldrar Jónasar voru Elías
Kristján Ingimarsson, f. 11.1.1903, d.
4.8. 1965, útgerðarmaður, kaupfé-
lagsstjóri og frystihússtjóri í Hnifs-
dal, og k.h., Guðný Rósa Jónasdótt-
ir, f. 28.12. 1906, d. 22.3. 1987, hjúkr-
unarfræðingur.
Ætt
Bræður Elíasar: togaraskipstjór-
amir Bjami og Halldór í Reykjavík.
Elías var sonur Ingimars, útvegs-
bónda og oddvita í Fremri-Hnífsdal,
bróður Jóns, afa Kjartans Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins. Ingimar var sonur
Bjama, b. í Tannanesi í Önundar-
firði, Jónssonar og Rósamundu
Guðmundsdóttur, læknis í Nesdal,
Guðmundssonar.
Móðir Elíasar var Halldóra Hall-
dórsdóttir, b. í Fremri-Hnífsdal,
Sölvasonar, b. á Kirkjubóli í Skutuls-
firði, Sveinssonar, b. á Kirkjubóli,
Sigurðssonar, foður Rannveigar, ætt-
móður Thorsteinssonættarinnar,
langömmu Muggs og Katrinar, móð-
ur Péturs Thorsteinsson sendiherra,
og langömmu Halldóru, móður Auð-
ar Laxness og Ásdísar, konu Sigurð-
ar Thoroddsen verkfræðings.
Guðný var dóttir Jónasar, b. á
Bakka í Hnífsdal, Þorvarðssonar, b.
í Hrauni, Sigurðssonar, ættfóður
Eyrarættar, Þorvarðssonar. Móðir
Jónasar var Elísabet Kjartansdóttir,
b. í Hrauni, Jónssonar. Móðir Kjart-
ans var Sigríður Sigurðardóttir,
systir Sveins á Kirkjubóli. Móðir El-
ísabetar var Margrét Pálsdóttir, b. í
Amardal, Halldórssonar og Mar-
grétar Guðmundsdóttur, b. í Arnar-
dal, Bárðarsonar, ættfóður Arnar-
dalsættarinnar, Ulugasonar. Móðir
Guðnýjar var Guðný Jónsdóttir, b. á
Læk, Bjamasonar, b. á Rana, Sig-
mundssonar, bróður Sveins, langafa
Jensínu, móður Gunnars Ásgeirs-
sonar stórkaupmanns.
Jónas tekur á móti gestum í
Skipholti 70 í dag milli kl. 17.00 og
19.00. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Ólafur Tómasson
Ólafur Tómasson,
fyrrv. póst- og simamála-
stjóri, Þinghólsbraut 60,
Kópavogi, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Akur-
eyri. Hann lauk stúdents-
prófl frá MA 1948, verk-
fræðiprófi frá Edinborg-
arháskóla 1956 og sótti
auk þess ýmis framhalds-
námskeið í fjarskipta-
tækni og stjórnun.
Ólafur var verkfræðingur og
deildarverkfræðingur hjá Lands-
síma íslands 1956-61, stundaði eigin
rekstur 1961-63, yfirverkfræðingur
hjá Pósti og sima 1963-84, fram-
kvæmdastjóri tæknideildar 1984-86
og póst- og símamálastjóri 1986-97
er stofnuninni var skipt í Lands-
Ólafur Tómasson.
síma íslands hf. og ís-
landspóst hf.
Ólafur hefur verið þátt-
takandi og fulltrúi ís-
lands í ýmsum nefndum
og á ráðstefnum á vegum
Evrópu-eða alþjóðlegra
samtaka um póst- og fjar-
skiptamál, var formaður
NT, norrænnar stjórnar
um fjarskiptatækni,
1979-81, formaður
NORDPOST, samtaka
Norðurlanda um póst-
mál, 1987-88 og
NORDTEL, samtaka Norðurland-
anna um fjarskiptamál, 1989-91.
Fjölskylda
Ólafúr kvæntist 28.8. 1954 Stefan
íu Maríu Pétursdóttur, f. 16.8. 1931
húsmóður og fyrrv. forseta Kvenfé
lagasambands íslands. Hún er dótt
ir Péturs Björnssonar, f. 25.10. 1897
d. 11.5.1978, kaupmannsp Sigluflrði
og síðar fulltrúa í Reykjavík, og
k.h., Þóra Jónsdóttm-, f. 20.10. 1902,
d. 20.12. 1987, húsmóður og bindind-
isfrömuðar.
Böm Ólafs og Stefaníu Maríu era
Tómas Bjöm, f. 14.5.1955, verkfræð-
ingur, búsettur i Kópavogi, kvænt-
ur Hólmfríði Aðalbjörgu Pálmadótt-
ur kennara og eru börn þeirra
Kristín María, f. 28.8. 1983, Ólafur
Bjöm, f. 13.3. 1991, og Ingibjörg
Ásta, f. 13.11. 1994; María, f. 15.7.
1960, læknir í Linköping í Sviþjóð,
var gift Magnúsi Steen Friðrikssyni
lækni og eru böm þeirra Einar Búi,
f. 16.1. 1986, og Una, f. 23.1. 1990;
Hallfríður, f. 12.7. 1964, flautuleik-
ari, búsett í Garðabæ, gift Ármanni
Helgasyni og er dóttir þeirra Gunn-
hildur Halla, f. 27.5. 1997; Kristín
Anna, f. 6.11. 1965, liffræðingur, bú-
sett í Ósló, gift Kristni Þorbergs-
syni, lækni og tannlækni, og eru
böm þeirra Stefanía María, f. 21.12.
1992, og Kári, f. 1997.
Systir Ólafs: Kristín Tómasdóttir,
f. 14.11. 1924, húsmóðir.
Foreldrar Ólafs: Tómas Björns-
son, f. 8.1. 1895, d. 27.10. 1961, kaup-
maður á Akureyri, og Margrét Þórð-
ardóttir, f. 21.2. 1889, d. 12.6. 1983,
húsmóðir.
Ætt
Tómas var sonur Bjöms Jóhanns
sonar, b. og trésmiðs á Ljósavatni í
Ljósavatnshreppi í Suður-Þingeyjar-
sýslu, siðar ráðsmanns við Gagn
fræðaskólann á Akureyri, og k.h.
Kristínar Maríu Benediktsdóttur
húsmóður.
Margrét var dóttir Þórðar Stef-
ánssonar Thorarensen, gullsmiðs og
skartgripasala á Akureyri, og k.h.,
Önnu Jóhannsdóttur Thorarensen
húsmóður.
Ólafur verður í útlöndum.
Ólafur Sigmar Pálsson
ÓMur Sigmar Pálsson rafvirkja-
meistari, Birkihlíð 12, Sauðárkróki,
varð sextugur í gær.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Starrastöðum í
Lýtingsstaðahreppi og ólst þar upp.
Hann stundaði nám við Iðnskólann
á Akureyri og á Sauðárkróki, lærði
rafvirkjun og lauk sveinsprófi í
þeirri grein 1965.
Ólafur var línumaður hjá RARIK
og Landssíma íslands 1955-61, hefur
stundað rafvirkjun á Sauðárkróki
frá 1965 og er nú einn af eigendum
Rafsjár hf. á Sauðárkróki og stjórn-
arformaður fyrirtækisins.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 31.8. 1963
Hjörtínu Dóra Vagnsdóttur, f. 11.4.
1943, verslunarmanni. Hún er dóttri
Vagns Gíslasonar og Fjólu Stefáns-
dóttur, ábúenda á Minni-Ökrum í
Akrahreppi.
Sendi öllum þeim sem sýndu mér vinar- og hlýhug
á 90 ára afmæli mínu þann 15. maí, mínar bestu
þakkir fyrir blóm, gjafir og skeytin frá ykkur öllum.
Guð blessi ykkur öll.
Soffía Jónsdóttir
Börn Ólafs og Hjörtínu
Dóra eru Páll Arnar
Ólafsson, f. 6.7. 1963, raf-
virki hjá Rafveitu Sauðár-
króks, kvæntur Ásdísi
Guðmundsdóttur, for-
manni Verkakvennafé-
lagsins Öldunnar á Sauð-
árkróki, og eru böm
þeirra Valdís Dröfn Páls-
dóttir, f. 19.8.1984, og Ólaf-
ur Starri Pálsson, f. 29.12.
1995; Eva Hjörtína Ólafs-
dóttir, f. 23.12. 1995, hjúkr-
unarfræðingur á Húsavík.
Ólafur Sigmar
Pálsson.
Systkini Ólafs era Sigurður Páls-
son, f. 20.11.1940, bifreiðarstjóri hjá
Ölgerð Egils Skallagrímssonar, bú-
settur í Kópavogi; Jóhann Reynir
11.7. 1913,
um en nú
Pálsson, f. 8.7. 1945,
húsasmíðameistari í
Varmahlíð í Skagafrrði;
Ingimar Pálsson, f. 24.6.
1946, tamningamaður og
starfrækir reiðskóla á
Sauðárkróki; Eyjólfur
Svanur Pálsson, f. 23.11.
1952, bóndi að Starra-
stöðum í Skagafirði.
Foreldrar Ólafs: Páll
Ólafsson, f. 15.5. 1910, d.
12.1. 1990, bóndi að
Starrastöðum, og Guð-
rún Kristjánsdóttir, f.
húsfreyja að Starrastöð-
búsett á Sauðárkróki.
Hl hamingju
með afmælið
26. maí
90 ára
Guðrún Þorleifsdóttir,
Garðvangi, Garði.
85 ára
Kristján Jósefsson,
Hjallabrekku 43, Kópavogi.
80 ára
Erna J. Helgadóttir,
Aðalstræti 8, Reykjavík.
Hjörtur Leó Jónsson,
Káragerði, Eyrarbakka.
Rósa Pétursdóttir,
Miðnesi 2, Höfðahreppi.
Sigríður S. Hallgrímsdóttir,
Hraunbæ 50, Reykjavík.
75 ára
Friðfmnur Gíslason,
Sæborg, Akureyri.
70 ára
Páll Helgason,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Sigurður Finnbogason,
Vallarbarði 2, Hafnarfirði.
Hann er að heiman.
Skúli Andrésson,
Framnesi,
Borgarfjarðarhreppi.
50 ára
Ámi Emil Bjamason,
Austurströnd 10,
Seltjarnamesi.
Herdis Halldórsdóttir,
Furulundi 9 C, Akureyri.
Jakobína S. Sigurðardóttir,
Stekkjarhvammi 30,
Hafnarfirði.
Jenný Sigurðardóttir,
Leirubakka 12, Reykjavík.
Kristín Jóhannesdóttir
Amdal,
Garðhúsum 4, Reykjavík.
Hún er að heiman.
40 ára
Einar Gunnarsson,
Heiðargerði 17, Reykjavik.
Guðlaug M.C.
Halldórsdóttir,
Keilufelli 26, Reykjavik.
Guðrún Hákonardóttir,
Heiöarbakka 8, Keflavík.
Jóhannes Ari Arason,
Eyktarsmára 2, Kópavogi.
Jóna Jóhannsdóttir,
Miðbraut 8, Hrísey.
Lilja Arnardóttir,
Blikahólum 8, Reykjavík.
Magnea G. Sverrisdóttir,
Bæjargili 113, Garðabæ.
Óskar Albert Torfason,
Holtagötu 5, Drangsnesi.
Páll Pálsson,
Strandgötu 11, Ólafsfírði.
Pétur Óskar Aðalgeirsson,
Norðurvöllum 56, Keflavik.
Sigurbjörg Steindórsdóttir,
Dalhúsum 5, Reykjavík.
Tómas Láms Vilbergsson,
Akurgerði 7 B, Akureyri.
Unnsteinn Einarsson,
Sílatjöm 9, Selfossi.
Þorleifur B. Hólmsteinsson,
Þorleifsstöðum, Akrahreppi.
Þelr tlska sem róa. Þelr flska sem róa .. Þelr ílska sem róa... Þeli
. 11': I K. /k /k /k / K
I YRSTIIH MEI) IRÉTTIRNAR