Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Qupperneq 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998 I>V
Ekki aftur í
skotgrafirnar
Það voru bara ein skila-
boð sem ég fékk
frá öllum - „við
förum ekki í
skotgrafirnar
hvert gegn
öðru eftir hálft
ár“.“
Sighvatur
Björgvinsson
alþingismaður, í DV.
Að vera umhverfis-
vænn
„Þegar djöflagangurinn
hefst á bændum í Mývatns-
sveit í vor er nauðsynlegt að
sérstök fréttaskýring fylgi
með um merkingu þess hvað
er að vera umhverfisvænn.“
Kristinn Pétursson fiskverk-
andi, í DV.
Sameiginleg
framboð hrynja
„Sameiginleg
framboð eru að
hrynja, sama
hvar á þau er
litið.“
Davíð Oddsson
forsætisráð-
herra, í DV.
íslensk kvik-
myndagerð
„Ef íslensk kvikmyndagerð
væri hús, þá var skóflustung-
an tekin fyrir um tuttugu
árum en byggingin ekki orðin
fokheld enn.“
Ásgrímur Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður, í Landi
og Sonum.
Liðsheildin
„Liðsheild er hlutur sem
allir eru að
glíma við og
allir vilja fá
svör við. Ef
það væri hægt
að svara því í
stuttu máli
hvað liðs-
heild er þá
væru allir búnir
að leysa gátuna."
Guðjón Þórðarson lands-
liðsþjálfari, í Degi.
Lífið á íslandi
„Það sem einkennir líflð á
íslandi er að því er stöðugt
slegið á frest. Það er líkt og
hér ríki önnur eðlisþyngd eða
sólarhringurinn innihaldi
ódrýgri stundir. Ástand sem
helgast af því að á íslandi
dugir vinnan ekki til fram-
færslu. Það er hreinlega ekki
ætlast til þess.“
Pétur Gunnarsson
rithöfundur, i DV.
Búrfell og Helgafell
Eitthvert skemmtilegasta
göngusvæði í nágrenni Reykjavík-
ur og Hafnarfjaröar er Búrfellsgjá
og Búrfell. Gönguna má byrja við
Hjallenda og fara niður stigann
sem liggur niður Hjallann og í
gegnum hlið sem nú stcndur eitt
eftir. Er þá komið að misgengis-
stalli. Þegar lengra er gengið er
komið að Gjárétt sem er hrunin
að hluta. Búifellsgjá er engin gjá í
vanalegri merkingu þess orðs
heldur hraunrás frá þeim tima er
Búrfell gaus fyrir um 7200 árum.
Einnig má ganga á Búrfell frá
Kaldárseli og svo eftir dalnum í
átt að Búrfelli.
Önnur ganga sem hægt er að
hefja frá Kaldárseli er Helgafell-
Valahnúkar-Helgadalur. Stefnt er
að Hlíðarhorni og er þá brátt
komið að gígaröð frá þvi um árið
1075. Auðveldast er að ganga á
Helgafell að norðaustan, eða frá
Valahnúkum. Á þeirri leið er hvergi ágætt að fara um Helgadal og líta á Heimild: Gönguieiðir á íslandi eftir
bratt. Á leiðinni aftur í Kaldársel er hellana. Einar Þ. Guðjohnsen.
Kristján Helgason, Evrópumeistari áhugamanna í snóker:
Atvinnumennska í haust
Stutt er síðan fram fór Evrópu-
meistarakeppni áhugamanna í
snóker. Tveir íslenskir keppendur
voru meðal þátttakenda og var ann-
ar þeirra Kristján Helgason sem
tvisvar sinnum hefur verið i öðru
sæti í þessu móti. Kristján komst
alla leið í úrslitin og gerði nú betur
en áður, hann sigraði andstæðing
sinn á sannfærandi hátt og varð nýr
Evrópumeistari. Kristján er kominn
heim eftir frægðarför. Hann var í
stuttu viðtali fyrst spurður hvort
það hefði ekki verið ánægjulegt að
sigra loksins: „Jú, það er ekki hægt
að segja annað. Ég hef í raun stefnt
að þvi að vinna mótið í hvert skipti
sem ég hef farið og því var það
ánægjulegt að það skyldi loks
takast. Ég æfði mig ekkert sérstak-
lega fyrir þetta mót, fór aðeins yfir
leik minn, þá sérstaklega tækni-
legu hliðina, og bjó mig vel undir
mótið andlega og mætti í það
ákveðinn i að sigra."
Kristján hefur nú unnið til flestra
stærstu titla sem áhugamenn geta
unnið, er Evrópumeistari og fyrr-
verandi heimsmeistari unglinga og
hefur því sem áhugamaður að litlu
að keppa áfram. „Næsta skreflð er
atvinnumennskan. Ég er búinn að
vinna mér rétt til að taka þátt í at-
vinnumannamótaröðinni í snóker
sem hefst í haust og ég ætla svo
sannarlega að notfæra mér það
tækifæri. Þetta eru átta mót, þau
fara öll fram í Englandi og er það
fyrsta í ágúst. Ég ætla að nota tím-
ann vel þangað til, æfa og hugsa vel
um sjálfan mig, stunda sund og aðra
líkamsrækt. Ég ætla líka að fara til
Englands í sumar að æfa, það er
hætta á stöðnun ef maður er alltaf
að æfa á móti sömu mönnunum. Ný-
lega var fækkað þeim þátttakendum
sem hafa rétt til að keppa sem at-
vinnumenn, þeir eru nú 192 og það
gefur því augaleið að samkeppnin
er mikil. Til að komast eitthvað
áfram þýðir ekkert annað en að
vera í toppformi."
Maður dagsins
Það er mikUl kostnaður við að taka
þátt í atvinnumótaröðinni: „Það má
segja að erfiðasti hjallinn hjá mér
verði að fá kostnaðaraðila tU að
standa á bak
við mig.
Kristján æfir sig lungann úr deg-
inum: „Ég spUa og æfi mig í eina
sex, sjö klukkutíma á dag, er yfir-
leitt á billiardstofunni í Lágmúlan-
um.“
Kristján byrjaði að keppa í
snóker 1989 og varð heimsmeistari
unglinga árið 1993. Hann segir að
hann hafi aUtaf jafngaman af þessu:
„Maður er alltaf að læra eitthvað
nýtt. Eftir að ég náði að verða
heimsmeistari unglinga kviknaði
strax hjá mér sú löngun að verða at-
vinnumaður og nú er sá draumur
loks að rætast. Það
fer síðan eftir
því hvernig
mér gengur
hvort ég
flyst út til
Englands
eða held
áfram að
búa hér
heima.
-HK
Öll
mótin eru
í Englandi og
þangað
þarf ég að
komast í
hvert mót
og þaö
kostar sitt,
auk þess
sem ég verð
að lifa.“
Kristján Helgason.
Lifa og skrifa
fyrir börn
Dagskrá með rithöfund-
unum Kre Bluitgen frá Dan-
mörku, Maikki Harjanne
frá Finnlandi, Iben
Sandemose frá Noregi og
myndskreytinum Mati Lepp
Bókmenntir
frá Svíþjóð verður í Nor-
ræna húsinu í dag, kl.
16-18. Rithöfundamir munu
bjóða upp á fjölbreytta
kynningu á störfum sínum í
heimalandinu með upp-
lestri, frásögn og mynda-
Vsýningum. Bækur þeirra
verða til sýnis á staðnum.
Rithöfundamir Olga Guð-
rún Árnadóttir og Sjón
munu kynna hina norrænu
gesti.
Rithöfundarnir starfa
þessa viku í bókmennta-
smiðju í Norræna húsinu
ásamt 6 höfundum frá Suð-
ur-Afríku og 15 islenskum
bömum. Bókmenntasmiðj-
an er liðm- í stóra sam-
vinnuverkefni á vegum
Norrænu ráðherranefndar-
innar sem hefur þann til-
gang að opna fyrir menn-
ingarstrauma milli þessara
fjarlægu heimshluta.
Myndgátan
Fer með opinbert fé
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Malangatana er álitinn einn besti
málari í Afríku.
Hlið sunnan-
vindsins
Meðal myndlistarsýninga sem
efnt hefur verið til á Listahátíð í
Reykjavik er sýning í Ráðhúsi
Reykjavíkur sem hefur yfirskrift-
ina Hlið sunnanvindsins. Þar
sýna myndlistarmennirnir
Chissano, Mucavela og Ma-
langatana sem allir eru frá Mó-
sambík. Þeir hafa litla formlega
menntun og fluttust ungir að
heiman til borganna þar sem at-
vinnumöguleikar voru meiri. í
borgum uppgötva þeir listir og
kynnast listamönnum. Þessi áhrif
verða til þess að þeir hefja sjálf-
stæðan feril.
heimsþekktur og ekki aðeins álit-
inn einn besti málari Mósambik
heldur Afríku allrar. Hann vinnur
með olíu og vatnslitum en hefur
lagt gjörva hönd á fleiri tegundir
myndlistar. Myndhöggvarinn Al-
bert Chissanio er sjálfsagt þekkt-
asti listamaður Mósambík. Verk
hans eru gott dæmi um þann sam-
runa sem verður með afrískri
hefð og evrópskri hugmyndafræði
í listum. Myndir Estevao
Mucavele eru naívar að vissu
marki og sprettur myndefnið oft
úr landslagi. Sýningin stendur til
7. júní.
Bridge
Franska parið Catherine d’Ovidio
og Paul Chemla náðu öðru sætinu á
Evrópumóti para í Aachen nú í vor.
Hér er eitt spil úr mótinu þar sem
d’Ovidio-Chemla fengu mjög góða
skor. Sagnir gengu þannig, austur
gjafari og AV á hættu:
4 ÁK94
44 K9
4 K974
* G84
s * * ÁD109752
4 DG652
44 5
♦ DG8652
* 3
Austur Suður Vestur Norður
1 * 14 2 » 4 4
54 5 4 dobl p/h
Eitt af Bols-heilræðunum frægu
hljómar þannig: „Fimmta sagnstigið
tilheyrir andstæðingunum". Suður
ákvað að fara ekki eftir því heilræði
og fékk að sjá eftir þvi. Fimm lauf
eru alltaf einn niður en spurningin
var hve vel
franska par-
inu tækist
upp í vörn
gegn 5 spöð-
um. Útspilið
hjá Chemla
var lauf-
kóngurinn sem d’Ovidio yfirdrap á
ás og lagði niður tígulásinn. Að því
loknu spilaði hún hjartatvistinum
yfir á ásinn hjá Chemla. Chemla var
að vonum hissa á þessari vörn sem
benti til þess að vestur vildi fá tígul-
trompun. Gat það virkilega verið
svo að suður ætti falinn 6 spila lit í
tígli? Að lokum ákvað Chemla að
treysta félaga sínum, spilaði tígli og
tryggði þannig 300 fyrir tvo niður í
spilinu. ísak Öm Sigurðsson
4 107
44 ÁDG8643
4 103
4 K6