Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1998, Qupperneq 32
V I K I N C
FR ETTAS KOTIÐ
@5 SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ1998
Alþingi kom saman á ný í gær eftir stutt hlé vegna sveitarstjórnarkosninganna. Það er Svavar Gestsson sem býður
Guðlaug Þór Þórðarson, varaþingmann Vesturlands og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavfk, velkominn á
Alþingi í fyrsta sinn í vetur en Guðlaugur lenti m.a. í umræðu um áskorun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
um frestun hálendisfrumvarpsins til hausts. DV-mynd ÞÖK
Tap Lindar slagar hátt í milljarð króna:
Loðin svör
- verð sem púkinn á Qósbitanum, segir Sverrir
Atkvæði lát-
ins manns
tekið gilt
Maður sem greiddi atkvæði utan
'1F kjörstaðar í borgarstjórnarkosning-
unum í Reykjavík lést í lok síðustu
viku, skömmu fyrir kosningar. DV
leitaði álits hjá dómsmálaráðuneyt-
inu á því hvemig farið væri með at-
kvæði látins manns.
„Kjörskrá er það sem gildir. Það á
að leiðrétta kjörskrár alveg fram á
kjördag. Ef fólk deyr áður þá á að
fella það út af kjörskrá. Til þess
þurfa menn að hafa vitneskju um
andlátið. Ef ekki er vitneskja um
andlátið er lítið hægt að gera. Hafi
atkvæði þessa manns verið afhent
og menn ekki vitað af andláti hans
þá hlýtur það að hafa verið tekið
gilt,“ segir Ólafur Walter Stefánsson
hjá dómsmálaráðuneytinu, aðspurð-
■fcur um málið.
-RR
Frá slysstað.
DV-mynd S
Kona slasaðist
alvarlega
Kona slasaðist alvarlega á hægri
fæti á gatnamótum Hofsvallagötu og
Grenimels í gær.
Konan var farþegi í bil sem ók á
kyrrstæðan og mannlausan bíl. Við
það missti ökumaður stjóm á bif-
reiðinni sem fór yfir Hofsvallagöt-
una og hafnaði á steinvegg. Konan
féll út úr bílnum og klemmdist illa
j^á hægri fæti. Áverkar sem konan
hlaut á fætinum em taldir alvarleg-
ir, samkvæmt upplýsingum lög-
reglu.
-RR/S
17 ára tekinn
fyrir fjölda rána
Lögreglan handtók 17 ára pilt í
Reykjavík í gær vegna fjölda grip-
deilda og rána.
Lögregla hefur upplýst um 10
gripdeildir og rán sem pÚturinn hef-
ur játað að hafa framið. Ránin og
gripdeildirnar hafa átt sér stað á
_Laugavegi, í Þingholtunum og mið-
"^worginni frá því í febrúar sl.
-RR
„Skýrsla sú sem Ríkisendurskoðun
gerði að beiðni bankaráðs Lands-
banka íslands um málefni Lindar kom
til mín í apríl 1996,“ sagði Finnur Ing-
ólfsson viðskiptaráðherra aðspurður í
tilefni af svari sem hann gaf á Alþingi
við fyrirspum Ástu Ragnheiðar Jó-
hannesdóttur alþingismanns um mál-
efni Lindar þann 3. júní 1996.
í fyrirspum sinni innti þingmaður-
inn ráðherrann eftir því hvert tap
Landsbankans vegna Lindar hefði
verið. Orðrétt spurði þingmaðurinn:
„Er það rétt að tap Landsbankans
vegna Lindar hafi verið á milli 600 og
700 milljónir kr.? Ef svo er hvernig er
bankanum ætlað að ráða við þetta
mikla tap miðað við erfiða eiginfjár-
stöðu bankans...?“
í svari Finns Ingólfssonar við-
skiptaráðherra kom fram að hann
heföi ekki upplýsingar um tap á ein-
stökum fyrirtækjum í eigu bankans:
„Herra forseti: Þær upplýsingar
sem hv. þm. var með um tap Lands-
bankans á einstökum eignarfyrirtækj-
um bankans eða einstökum viðskipta-
mönnum bankans þekki ég ekki. Það
hefur hins vegar oft komið fram á Al-
þingi hvert tap Landsbankans hefur
verið í heild sinni
á undanfornum
árum. Þær upplýs-
ingar liggja allar
fyrir í þingskjölum
og eru hverjum og
einum þingmanni
opinberar, sem og
öðrum.
Nú veit ég, hv.
þm„ að bankaráð
Landsbankans er
að fjalla um útlánatöp bankans á und-
anfórnum árum. Ég býst fastlega við
að málefni Lindar sem og töp annarra
aðila sem Landsbankanum tengjast
verði skoðuð í því samhengi," sagði í
svari Finns Ingólfssonar í júní 1996.
Síðar í svari ráðherrans segir orðrétt:
..Ég hef reyndar heyrt eins og hv.
þm. í fjölmiðlum að tap bankans hafi
verið mikið vegna tiltekins fyrirtækis
en treysti mér ekki til að fullyrða að
þær upplýsingar séu réttar.“ sagði
viðskiptaráðherra ennfremur tæpum
tveimur mánuðum eftir að hann fékk
skýrslu Rikisendurskoðunar um mál-
efni Lindar til skoðunar.
Samkvæmt þessu var ráðherranum
kunnugt rnn tap Landsbanksns vegna
óreiðumála Lindar
hf. þegar tveimur
mánuðum áður en
hann svaraði þing-
manninum. Að-
spurður um þetta
atriði sagði Finnur
Ingólfsson í sam-
tali við DV í morg-
un að í svari hans
hefði falist að hann
þekkti ekki þær töl-
ur sem þingmaðurinn spurði um.
„1 skýrslu Ríkisendurskoðunar sem
Landsbankinn lagði fram kemur fram
að ábyrgðirnar sem Landsbankinn
hafði gengið i séu 400 milljónir króna.
Þingmaðurinn spurði um 600 til 700
milljónir króna og í svari minu er ég
að vísa til þess að þær tölur þekkti ég
ekki,“ sagði Finnur Ingólfsson i morg-
un.
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, sem vakið
hefur athygli á málum Lindar, sagði í
viðtali við netmiðilinn Vísi í gær: „í
þessu máli ætla ég að vera á fjósbitan-
um.“ Nánari fréttir af máli þessi eru á
vefslóðinni www.visir.is
-rt
Veiðar næsta ár:
32 þúsund
tonnum meiri
þorskur
Hafrannsóknastofnun hefur lagt til
að veiðikvóti á þorski verði aukinn
um 15% og fari í 250 þúsund tonn á
næsta fiskveiði-
ári. Þetta er um 32
þúsund tonna
aukning frá því
sem leyft er að
veiða á yfirstand-
andi fiskveiðiári.
Talið er að hinn
aukni þorskkvóti
muni skila ríkis-
sjóði 700-800 millj-
óna króna tekju-
auka fari sjávarútvegsráðherra að til-
lögu Hafrannsóknastofnunar.
„Það var tekin upp sérstök nýting-
arstefna fyrir tveimur árum sem virð-
ist hafa gengið mjög vel. Þar fyrir
utan höfum við verið svo lánsöm að
loðnustofninn hefur verið mjög sterk-
ur. Þegar hann stendur vel þá dafnar
þorskurinn vel,“ sagði Jakob Jakobs-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
við DV í morgun.
Jakob sagði að aðstæður í sjónum
skiptu verulegu máli. „Hefði loðnu-
stofninn hrunið um það leyti sem nýt-
ingarstefnan var tekin upp þá hefði
ekki náðst þessi árangur," sagði Jak-
ob enn fremur. -SÁ
Magnús Gunnarsson:
Sóiin skín í
Hafnarfirði
„Það má segja að þessi staða hafi
komið mjög brátt upp. Auðvitað von-
uðumst við eftir góðum sigri en áttum
kannski ekki von á að komast í þessa
lykilstöðu. Við þurfum auðvitað að
fylgja góðum sigri eftir. Mér líður
ágætlega því við höfum gengið frá.
þessum samstarfssamningi Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks. Sólin
skín í Hafnarfirði," sagði Magnús
Gunnarsson, oddviti sjálfstæðis-
manna - næsti bæjarstjóri í Hafnar-
firði. Jafnframt var frá því gengið í
gærkvöld að Þorsteinn Njálsson, odd-
viti Framsóknarflokks, yrði formaður
bæjarráðs og Valgerður Sigurðardótt-
ir úr Sjálfstæöisflokki yrði forseti
bæjarstjórnar. -Ótt
Meirihluti í
Reykjanesbæ
Gengið var frá samkomulagi um
meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í Reykjanesbæ í
gærkvöld. Ellert Eiriksson verður
áfram bæjarstjóri. Skúli Þ. Skúlason,
oddviti framsóknarmanna, verður for-
seti bæjarstjórnar
,-RR
Finnur Ingólfs-
son.
Ásta R. Jóhann-
essdóttir.
Jakob Jakobs-
son.
'\92.
—• .-í-.
*>
%
Veðrið á morgun:
Áfram
léttskýjað
Á morgun býst Veöurstofan við
hægri norðvestlægri átt. Víðast
verður léttskýjað en þokuslæð-
ingur verður þó við norður- og
vesturströndina. Hiti verður á
bilinu 6 til 15 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ ÞINNI WPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
oppurmn
á ísiuim