Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
Fréttir
Fimm menn úr Kópavogi og Hafharfirði sáu fyrstir flakið af flugvél þýsku feðganna:
Skelfileg aðkoma
- séö til þess aö menn fengju áfallahjálp þegár komið var heim
Aökoman á slysstað í klettabelti í
um 500 metra hæð í Eystra-Homi
þar sem flugvél þriggja þýskra feðga
brotlenti og brann var skelfileg fyr-
ir þá björgunarsveitarmenn sem
fengu það hlutskipti að kanna þar
aðstæður. Valinn fímm manna hóp-
ur úr hjálparsveitum í Kópavogi og
Hafnarfirði kom fyrstur á vettvang
og gengust menn undir áfallahjálp
þegar komiö var heim á höfuðborg-
arsvæðið seint í gærkvöld.
„Ég held að þetta sé það versta
sem við höfum lent í. Annars er það
misjafnt hvemig svona leggst í
menn. Þeir sem t.a.m. em feður
taka nærri sér að koma nálægt
bömum en aðrir taka annað inn á
sig.
I þessu tilviki hugsuðu menn til
fjölskyldu þessara feðga,” sagði Vil-
helm Gunnarsson í Hjálparsveitinni
í Kópavogi sem fór fýrir samtals
tuttugu manna leitarhópi.
Fundum fyrst dekkið
Fyrstu vísbendingar um hvar
flakið af flugvélinni væri komu um
hádegisbilið i gær þegar hópur Vil-
helms var við Eystra-Hom, skammt
norðan við radarstöðina á Stokks-
nesi.
„Við komum gangandi meðfram
fjörunni þegar við fundum dekk af
flugvél,” sagði Vilhelm. „Við hófum
að leita betur rétt í kring. Ég hélt að
vélin væri kannski í um hundrað
metra fjarlægð. Síðan gekk ég á að
giska 400 metra upp fjaflið. Þá hafði
ekkert brak fundist. Ég ákvað þá að
fá fleiri leitarmenn og við skiptum
liði. Síðan, um 50 metrum ofar, var
flakið af vélinni.”
Spurði menn hvort þeir
treystu sér
„Þetta tók auðvitaö á,” sagði Vil-
helm. „Það sem ég hafði gert neðar
í fjallinu var að velja þá menn úr
sem treystu sér til að koma að flak-
inu. Þegar við voram í bílnum
brýndi ég vel fyrir öllum í hverju
við gætum lent - ég fór út í ná-
kvæmar lýsingar á því sem við gæt-
um hugsanlega staðið frammi fyrir
í leit sem þessari.
Þegar við vissum að við voram
komnir á krítiskt svæði - að við
væram kannski að nálgast flakið -
og kannski ekki - leyfði ég mönnum
aö velja. Við voram aö komast í
kletta. Ég spurði menn hvort þeir
treystu sér áfram - hvaö þeir vildu
leggja á sig. Það er rosalegt að lenda
í þessu og tekur mikið á.
Við tilkynntum síðan að við vær-
Vilhelm bendir á
Eystra-Horn á leitar-
korti - staðinn þar
sem menn hans
fundu flakið í um
500 metra hæð í
gær. Hann segist
telja að aðkoman sé
það versta sem hóp-
ur hans hefur lent í.
DV-myndir Hilmar Þór
um búnir að finna
flakið og komnir að
því. Flakið lá dreift
um svæöið. Við
fimm sem fórum
alla leið sáum strax
að það var ekkert
hægt að gera gagn-
vart þeim sem í vél-
inni vora. Það sást
um leið og við kom-
um og sáum fyrstu
bútana af vélinni.
Það var ekki um
neitt slíkt að ræða
þama. Það haföi
enginn átt lífs von
sem lenti þama.
Síðan kom skipun
frá lögreglu um það
hvemig við ættum
Björgunarsveitamenn voru örþreyttir og búnir að vera undir miklu álagi í vel á
annan sólarhring. Smáhvfld var því kærkomin. DV-mynd Hilmar Þór
að athafna okkur
á staðnum. Það
var síðan ákveðið
að læknir kæmi á
svæðið.”
- Hvemig líður
þínum mönnum
eftir aðkomuna á
slysstað?
„Það fá auðvit-
að einhverjir sál-
ræna hjálp þegar
við komum í bæ-
inn á eftir. Það
verður hugsan-
lega byrjað á
presti og síðar
einhverju meira.
Þetta fer eftir því
hvað menn eru
sterkir. Ég held
að enginn okkar
hafi lent í því að
koma að flugslysi
áður. Menn hafa
hins vegar komið
að snjóflóöum,
farið í sprangur,
komið að hruni
úr fjalli og öðra,”
sagði Vilhelm.
-Ótt
Guðbrandur Jóhannsson hrósar björgunarsveitarmönnum:
Sumir sváfii á fjalli um hánóttina
Guðbrandur Jóhannsson, formað-
ur svæðisstjómar björgunarsveita í
A-Skaftafellssýslu, segist telja að
um fjögur hundrað björgunarsveit-
armenn víða af landinu hafi í raun
unnið þrekvirki við að komast yfir
gríðarlega erfitt leitarsvæði í ná-
grenni Hafnar i gær og í fyrradag.
„Leitarsvæðið spannaði yfir sam-
tals um 100 ferkílómetra,” sagði
Guðbrandur við DV á Höfn síðdegis
í gær, orðinn lúinn og svefnlítill.
„Skyggnið fór niður í nánast núll á
mánudagskvöld og þriðjudagsmorg-
un. Það var leitað fram yfir mið-
nætti á mánudagskvöld og raunar
hölluðu menn úr einum hópnum sér
uppi á fjalli. Þetta vora menn af
Vesturlandi. Menn voru komnir svo
hátt að þeir vildu bara halda strax
áfram um leið og birti.
Um 270 manns vora síðan ræstir
út klukkan fjögur í morgun (í gær-
morgun) og fór þá hver á sitt leitar-
Guðbrandur Jóhannsson segir
björgunarsveitarmenn hafa unnið
þrekvirki á mjög erfiðu leitarsvæði.
svæði. Þegar líða tók á morguninn
vora um 350 manns á fjalli. Viö telj-
um að samtals hafi á fimmta hund-
rað manns komið að leitinni í dag (í
gær).
Klukkan 12.10 fannst hjól af flug-
vélinni. Menn héldu síðan hærra í
flallið, fundu þar annað hjól, síðan
mótorinn úr vélinni og síðan flakið
nokkra ofar. Skrokkurinn var mjög
illa farinn,” sagði Guðbrandur.
Munaði aðeins hundruðum
metra
Guðbrandur sagði að þegar vél
þýsku feðganna var flogið áleiðis að
flugbrautinni á Homafjarðarflugvelli
á mánudag hefði henni í raun verið
sveigt í um 90 gráður austar en lega
brautarinnar er. Með öðrum orðum
tilgátur séu uppi um að þegar flug-
stjórinn hafi áttað sig á að hann var
ekki á réttri stefnu hafi hann sveigt
til austurs í þeim tilgangi að taka
hring og reyna aftur.
Vélinni var síöan flogið yfir fjall-
garðinn íyrir norðan og austan Höfn.
Yfir Náttmálatind kom „síðasti punkt-
ur” á radar. Þetta þýðir ekki að vélin
hafi farist þar eins og mörgum hefúr
skilist á fréttum heldur náði radar í
flugtumi ekki „geisla” frá vélinni þar
sem fjöllin vom nú farin að skyggja á.
„Síðan tók vélin hægri beygju,”
sagði Guðbrandur. „Flugstjórinn hélt
síðan væntanlega áfram að beygja til
að fara hring.”
Vélin virðist hafa átt verulega stutt
eftir til að ná út fyrir Eystra-Hom í
því skyni að fljúga aftur suður fyrir
Höfh og síðan áleiðis að flugbraut 03
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Flugstjóranum auðnaðist hins vegar
ekki að fara nokkur hundruð metrum
utar. Vélin lenti því utan í klettabelt-
inu á Eystra-Homi með fyrrgreindum
afleiðingum. -Ótt
Stuttar fréttir dv
Vill þá burt
Bryndís
Hlöðversdóttir,
alþingismaður
Alþýðubanda-
lags, vifl Stein-
grím J. Sigfás-
son og Ögmund
Jónasson burt
úr þingflokki Al-
þýðubandalags og óháðra þar sem
þeir vinni að framboði gegn Al-
þýðubandalaginu. Dagur sagði frá.
65% vilja ekki selja
Notendur Netfréttamiðilsins Vís-
is.is virðast flestir lítið hrifnir af
þeim hugmyndum að selja eignar-
hlut rikisins í Landsbankanum til
útlendinga. 65% þeirra sem tóku
þátt í atkvæðagreiðslu um málið
töldu að ekki ætti að selja en 35%
vom þvl fylgjandi. Nú hefur verið
sett ný spurning í skoðanakönnun
Vísis.is og er spurt hvort veita eigi
einhverjum einum aðila einkaleyfi
á gagnagranni á heilbrigðissviði.
Nýir veglyklar
Nýir veglyklar að Hvalfjarðar-
göngunum em væntanlegir næstu
daga. Þegar þeir koma verða afslátt-
armiðar sem klippt er af aflagðir.
Bylgjan sagði ffá.
Aukið samstarf
Davíð Odds-
son og Jonathan
Motzfeldt, for-
maður græn-
lensku lands-
stjómarinnar,
hafa ákveðið, í
samráði við lög-
mann Færeyja,
að efiia til reglubundinna samráðs-
funda þeirra þriggja í því skyni að
efla samstarf hinna vestlægu Norð-
urlanda.
20 miiijónir í torfbæ
Ríkisstjómin hefúr ákveðið að
leggja 20 milljónir króna í það að
byggja upp bæ Eiríks rauða í Græn-
landi og gefa samtímis út sérstakt
Leifs Eiríkssonar fr ímerki á íslandi
og Grænlandi. Hvomtveggja á að
gerast árið 2000.
Aldamótalandkynning
Leiðtogar íslands og Grænlands
hafa ákveðið að þjóðimar sameinist
um kynningarátak vegna siglingar
vikingaskipsins Islendings til New
York árið 2000. Gera á kennslu- og
margmiölunarefhi fyrir böm um
víkingaöldina og sögu íslands og
Grænlands.
Lægri kvöldtaxti
Landssíminn ætlar að lækka sím-
taxta eftir kl. 19 á kvöldin og um
helgar um 25% gegn 300 króna við-
bótargjaldi á mánuði. Tilboðið geng-
ur í gildi 1. september og er hugsað
fyrir þá sem nota síma og Intemet á
Jæssum tímum. Viðskiptablaðið
sagði ffá.
Smuguveiðar
Sjávarútvegs-
ráðherra Nor-
egs, Peter Ang-
elsen, ætlar að
ræða smugu-
veiðar íslend-
inga við rúss-
neska ráða-
menn. Hann
segir íslendinga nota ólögleg veiðar-
færi þar. Helgi Ágústsson, ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu,
raeddi í gær við sendiherra Rússlands
á íslandi um Barentshafsveiðar.
Bruni á Akureyri
Mikið tjón varð þegar eldur kom
upp í húsinu Hömrum 2, norðan við
Kjamaskóg á Akureyri, á þriðju-
dagskvöld. Slökkviliðið á Akureyri
fékk tilkynningu um eldinn stuttu
fyrir kl. 19.00 en hann var að mestu
slokknaður af sjálfúm sér þegar
slökkvilið kom á staðinn nokkrum
mínútum síðar. Ekki er búið 1 hús-
inu en það er Skátafélagið Klakkur
sem á það.
Kominn til UN
Menntamálaráðherra, Bjöm
Bjamason, hefur ráðið Steingrím
Ara Arason í stöðu ffamkvæmda-
stjóra Lánasjóðs íslenskra náms-
manna. Aðrir umsækjendur vom
Henrý Þór Granz, Hjálmar Kjartans-
son og Pétur Rasmussen. -JHÞ/SÁ