Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 5 Pétur Blöndal á toppnum Pétnr H. Blöndal, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er tekjuhæsti stjórnmálamaður landsins skv. úttekt DV. Hann hefur um 760 þús- und krónur á mánuði í tekjur en Gunn- laugur M. Sigmundsson, alþingismaður Framsóknarflokksins og framkvæmda- stjóri Kögunar hf., mun hafa svipaðar tekjur skv. nýjasta hefti Frjálsrar versl- unar um tekjur 1200 íslendinga. Pétur mun auk starfs sín sem þingmaður sinna ýmsum verkefnum tengdum fjár- festingum. Næstur á eftir Pétri er Dav- íð Oddsson forsætisráðherra. Hann hef- ur um 538 þúsund krónur á mánuði sem er svipað og hann hafði í fyrra. Næst á eftir Davíð kemur borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og hafði hún um 473 þúsund á mánuði í tekjur á síðasta ári. Næstur henni er Friðrik Sophusson, alþingismaður og fyrrv. fjármálaráðherra, sem hefur um 463 þúsund á mánuði. Mun hann hækka um rúmlega helming þegar hann tekur við nýju starfi sem forstjóri Landsvirkj- unar. Geir H. Haarde, nýskipaðm' fjár- málaráðherra og fyrrv. formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, kemur á eft- ir Friðriki og hefur um 405 þúsund á mánuði. Jón Kristjánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjár- laganefndar Alþingis, hefur um 367 þús- und króna á mánuði. Ögmundur Jónas- son, þingmaður í þingflokki Alþýðu- bandalagsins og óháðra, er sjötti með 284 þúsund og Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, er á eftir honum með tekjur upp á tæp- lega 280 þúsund á mánuði. Leiðtogar A- flokkanna sk. eru svo síðastir á listan- um: Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, hefur tæplega 245 þús- und á mánuði og Margrét Frímanns- dóttir, formaður Alþýðubandalagsins, hefur um 236 þúsund á mánuði. í úrtaki DV er miðað við tekjur út frá álagning- arskrá fyrir áriðl997. Úrtak DV miðast ekki við hæstu eða lægstu einstaklinga, margir gætu bæði verið fyrir ofan og neðan efstu og neðstu einstaklinga í út- tektinni. -HB fpyjl Tekjur tíu stjórnmálamanna Pétur H. Blöndal. Alþingismaður Davíö Oddsson. Forsætisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Borgarstjóri Friðrik Sophusson. Fyrrv. fjármálaráðherra Geir H. Haarde. Fjármálaráðherra vM/ ■\rmj #rjyy lón Kristjánsson. Alþingismaöur Ögmundur Jónasson. Alþingismaöur mm Heimir Már Pétursson. Frkvstj. Alþýðub. m-nl Sighvatur Björgvinsson. Formaður Alþýöufl. 2r}.5!Ju Margrét Frímannsdóttir. Form. Alþýðub. 235.u31 Fréttir MiUiuppgjör Flugleiða: Kemur þann 20. - segir Einar Sigurðsson Hálfs árs milliuppgjör Flug- leiða verður birt þann 20. ágúst að sögn Einars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleið- um. Milliuppgjörsins er beðið með talsverðri eftirvæntingu. Þau fyrirtæki sem skráð eru á Verðbréfaþingi íslands hafa að undanfomu skilað inn milliupp- gjöri sínu en samkvæmt reglum þess rennur frestur tU að skila hálfs árs uppgjöri út um næstu mánaðamót. Samkvæmt heim- Udum DV mun mUliuppgjörið sýna góða afkomu á hinni nýju flugleið félagsins tU Minneapol- is. Sömu heimUdir herma að ekki sé sömu sögu að segja af heildarafkomu félagsins. Hún einkennist af áframhaldandi tap- rekstri. -SÁ ÁLFELGUR - HEILSÁRSDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI Vökva/veltistýri • Rafmagn í rúðum og speglum 2 loftpúðar • Aflmikil 16 ventla vél • Dagljósabúnaður Styrktarbitar í hurðum • Samlitaðir stuðarar Hæðarstillanleg kippibelti • Upphituð framsæti BALENO SEDAN EXCLUSIVE frá 1.265.000 kr.„ BALENO WAGON 4X4 EXCLUSIVE 1.595.000 kr. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is $ SUZUKI wár SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. SÍÐUSTU EINTÖKIN AF BALENO SEDAN OG WAGON 4X4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.