Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Qupperneq 26
34 MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 Afmæli Guðríður Haraldsdóttir Guöríður Haraldsdóttir, fulltrúi og útvarpskona, Hringbraut 78, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Guöríður fæddist í Reykjavik, átti heima í Stykkishólmi fyrstu þrjú árin en ólst siðan upp á Akra- nesi til þrettán ára aldurs. Hún var í Bamaskóla Akraness og síðan Austurbæjarskólanum, lauk lands- prófi frá Gagnfræðaskóla Sauðár- króks 1975 og stundaöi nám við öld- ungadeild Fjölbrautaskóla Akraness 1980-82. Guðríður starfaði hjá Frjálsri fjöl- miðlun 1982-89, hjá Gunnar Eggerts- son hf. 1989-90, hjá Búseta hsf, 1990-94, og hjá Húsnæðisstofnun ríkisins frá 1995. Guðríður hefur stundað dagskrár- gerð um árabil. Hún sá um barna- þætti á rás 2 1986-87, sá um helgar- þætti fyrir útvarpsstöðina Stjöm- una 1987-88 og hefur unnið við Að- alstöðina frá 1990, þar sem hún sá um bókmenntaþætti fyrstu árin, hafði síðan umsjón með morgun- þættinum Drög að degi 1994-95 og hefur nú síðustu misserin verið með þáttinn Kaffi Gurrí á laugar- dagseftirmiðdögum. Guðríöur hefur skrifað greinar, m.a. í Mannlíf og Helgarpóstinn, og var ritstjóri Valinna greina hjá Blindrafélaginu 1989. Hún sat í stjóm Búseta 1984-90. Fjölskylda Guðríður giftist 26.7. 1980 Einari Guðjónssyni, f. 17.2. 1958, bílstjóra. Hann er sonur Guðjóns Benediktssonar og Öldu Jóhannsdóttur. Guðriður og Einar skildu 1982. Sonur Guðríðar og Einars er Einar Þór, f. 12.4.1980, nemi. Systkini Guðríðar em Mínerva Margrét, f. 2.6.1955, skóla- stjóri Tónlistarskólans á Eiðum; Svanhildur Sif, f. 18.12. 1959, for- stöðukona; Guðmundur, f. 28.1.1962, leikari og framkvæmdastjóri. Svan- hildur og Guðmundur reka sumar- búðimar Ævintýraland í Reykja- skóla Hrútafirði. Háifsystir Guðriðar, samfeðra, er Helga Amfríður, f. 7.11.1967, sem er aö ljúka mastersnámi i áfallasál- fræði í Danmörku. Foreldrar Guðríðar eru Haraldur Jónasson, f. 1.12. 1930, lögfræðingur í Reykjavík, og Bryndís Jónasdóttir, f. 5.5. 1934, hjúkrunarkona í Reykja- vík. Þau skildu. Ætt Haraldur er bróðir Hjalta, fyrrv. skóiastjóra í Austurbæjarskólanum og í Seljaskóla. Annar bróðir Haralds var Guð- mundur kennari, faðir Jónasar, sýslumanns í Bolugnarvík. Haraldur er sonur Jónasar, ritstjóra á Akureyri og hreppstjóra og kennara f Flatey á Skjálfanda Jónassonar, verslunarstjóra í Flatey, bróður Jóhönnu Rakelar, móður Jóhönnu Bene- diktsdóttur, spákonu á Akureyri, ömmu Gutt- orms, kerfisfræðings hjá Ríkisspítölunum, og Péturs leikara Einarssona. Systir Jóhönnu var Sól- veig, amma Guðjóns Einarssonar fréttamanns. Jónas var sonur Jóns, b. á Finnastöðum á Látraströnd í Þingeyjarsýslu Péturssonar, Fló- ventssonar. Móðir Jónasar ritstjóra var Emilía Guðmunsdóttir, b. í Vík á Flateyjardal Jónassonar. Móðir Haralds var Guðríður, systir Sigurðar, sparisjóðsstjóra á Siglufirði, fóður Þráins, útgerðar- manns á Akranesi, fóður Ólafar Guðrúnar, yfirkerfisfræöings hjá Reiknistofu bankanna. Guðríður veu- dóttir Kristjáns, b. á Skeiði i Svarfaðardal Sigurðssonar, b. i Kollugerði Davíössonar. Móðir Kristjáns var Helga Jónsdóttir, b. á Syðrahóli í Kaupangssveit Helga- sonar. Móðir Guðríðar var Dórothea Stefánsdóttir, b. á Þverá í Fjörðum Péturssonar og Guörúnar Ásgrímsdóttur. Bryndís er dóttir Jónasar, skó- smiðs í Reykjavík Jónassonar, b. á Helluvaði á Rangárvöllum Ingvars- sonar, b. í Ártúnum Runólfssonar. Móðir Jónasar á Helluvaði var Kristín Sigurðéu'dóttir. Móðir Jónasar skósmiðs var Elín Jónas- dóttir, b. á Oddsstöðum í Vest- mannaeyjum Þorgeirssonar, og Margrétar Halldórsdóttur. Móöir Bryndísar var Málfríður Mínerva, hálfsystir, samfeðra, Svövu, móður Jóhanns söngvara, fóður Kristjáns óperusöngvara. Mínerva var einnig hálfsystir Jónasar, skólastjóra Austurbæjar- skólans, foður Kára, fréttastjóra rík- isútvarpsins. Minerva var dóttir Jó- steins, b. í Naustavík í Hegranesi, hálfbróður Gísla skólastjóra, foðrn- Jónasar guðfræðiprófessors. Jó- steinn var sonur Jónasar, læknis í Hróarsdal Jónssonar og Steinunnar Jónsdóttur, b. í Kjartansstaðakoti Ólafssonar. Móðir Mínervu var Theodóra Guðmundsdóttir. Guöríður heldur afmælisveislu að vanda. Veislan verður að heimili hennar á afmælisdaginn og hefst kl. 16.00. Guðríður Haraldsdóttir. Aðalsteinn Jónsson Aðalsteinn Jónsson, fýrrv. bóndi og oddviti á Ormsstöðum í Norð- firði, er níutíu og fimm ára í dag. Starfsferill Aðalsteinn fæddist í Seldal í Norðfirði en á öðru ári flutti hann með foreldrum sínum að Ormsstöð- um í sömu sveit. Þar ólst hann upp við hefðbundin sveitastörf þess tíma. Auk þess vann hann ýmis störf utan heimilisins þar til hann tók við búið af foður sínu er hann hætti búskap. Aðalsteinn var kosinn í hrepps- nefnd Norðfjarðarhrepps 1930, að- eins tuttugu og sjö ára að aldri og sat þar óslitið til ársins 1982. Þá var hann oddviti hreppsnefndar á árun- um 1950-82, sat í stjóm Jarðræktar- félags Norðfjarðarhrepps 1936-86, var endurskoðandi Kaupfélagsins Fram 1936-86 og gegndi ýmsum örð- um nefndarstörfúm. Fjölskylda Aðalsteinn kvæntist 21.6. 1941 Maríu Katrínu Ármann, f. 25.4.1914, d. 6.8.1996, húsfreyju frá Skorrastað í Norðfirði. Foreldrar hennar voru Guðjón Ármann bóndi, og k.h., Sól- veig Lovísa Benediktsdóttir hús- freyja. Böm Aðalsteins og Mariu era Hulda Aðalsteinsdóttir, f. 25.9. 1942, húsmóðir og verslunarmaður, bú- sett í Hafnarfirði, gift Garðari St. Scheving hárskerameistara og era böm þeirra Aðalsteinn G. Scheving, f. 8.12.1970 og Ragnhildur Scheving, f. 16.10. 1973, en sambýlismaður hennar er Einar M. Gunnlaugsson; Jón Þór Aðalsteinsson, f. 2.2. 1949, bóndi og búfræðingur á Ormsstöð- um, kvæntur Magneu M. Jónsdótt- ur húsmóður og era böm þeirra Jón Aðalsteinn, f. 26.4. 1977, en sambýl- iskona hans er Salný Guðmunds- dóttir, og María Katrin, f. 14.3.1980, en sambýlismaður hennar er Grétar Sigfinnsson, auk þess sem stjúpdætur Jóns Þórs og dætur Magneu era Sigrún Jóhannesdótt- ir, f. 8.11. 1970, og á hún eina dóttur, Ólöfu Ósk Einarsdóttur, og Lilja Guðný Jóhannesdóttir, f. 9.10. 1972, en sambýlis- maður hennar er Ágúst E. Sturlaugsson og eiga þau einn son, Jón Þór. Fóstursonur Aðalsteins og Maríu er Jakob Sig- finnsson, f. 24.8. 1936, bifreiðastjóri, búsettur á Ormsstöðum. Dóttir Aðalsteins og stjúpdóttir Maríu er Aðalheiður Malmquist, f. 16.2. 1930, húsmóðir í Neskaupstað, gift Finni Malmquist vélstjóra og era böm þeirra Þorgerður Malmquist, f. 8.6. 1959, gift Ragnari Sverrissyni og eiga þau fjögur böm, Jóhönnu Kristínu, Karen, Ömu Mekkín og Hugin, og Björn Malmquist, f. 24.4. 1964, kvæntur Kristínu Briem og er sonur þeirra Finnur Helgi. Systkini Aðalsteins era Sigríður, f. 1905, d. s.á.; Sigrún, f. 1907, d. 1928; Jó- hann Ingi, f. 1910, d. 1988, lengst af starfsmaður ÁTVR í Reykjavík; Bald- ur, f. 1912, d. 1997, lengst af starfsmaður Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík; Bjami Guðlaugur, f. 1914, d. 1996, bóndi á Þrastalundi í Nor- firði. Foreldrar Aðalsteins era Jón Jónsson, f. 1876, d. 1956, bóndi og bú- fræöingur á Ormsstöðum, og k.h., Sigurlaug Jónsdóttir, f. 1876, d. 1935, húsfreyja. Aðalsteinn veröur að heiman á af- mælisdaginn. Aðalsteinn Jónsson. Til hamingju með afmælið 12. ágúst 80 ára Guðrún Jónsdóttir, Víðilundi 13, Akureyri. 75 ára Guðmundur Skarphéðinsson, Grundartanga 50, Mosfellsbæ. 70 ára Hörður Jakobsson, Hamarsgötu 14, Fáskrúðsfirði. Jenný Haraldsdóttir, Langagerði 60, Reykjavík. Jóhannes P. Kristinsson, Sundlaugavegi 14, Reykjavík. Valgerður Sigurðardóttir, Álftahólum 6, Reykjavík. 60 ára Baldur Hjörleifsson, Austurvegi 24, Hrísey. 50 ára Guðmundur Magnússon, Doffaborgum 38, Reykjavík. Gunnborg Gunnarsdóttir, Grandargerði 5 D, Akureyri. Þórunn S. Kristinsdóttir, Hjallabraut 15, Hafharfirði. 40 ára Daði Jónsson, Hverafold 118, Reykjavík. Friðjón Kristján Þórarinsson, Flúðum, Egilsstöðum. Garðar Pétursson, Gnoðarvogi 60, Reykjavík. Guðrún Stefania Bjamadóttir, Baldursgötu 31, Reykjavík. Hafsteinn Þór Svavarsson, Grandarhúsum 13, Reykjavik. Hallgrímur Helgason, Tjarnargötu 41, Reykjavík. Heimir Guðmundsson, Vesturvegi 10 B, Vestmeyjum. Ingunn Steinþórsdóttir, Sveighúsum 7, Reykjavík. Jónas Jakobsson, Hraunbæ 178, Reykjavík. Líney Kolbeinsdóttir, Lækjargötu 4 C, Siglufirði. Rósa Þorsteinsdóttir, Báragötu 37, Reykjavík. Sigríður J. Sigurfinnsdóttir, Hrosshaga II, Biskupsthr. Þorvaldur Magnússon, Austurvegi 21 B, Selfossi. FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.