Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1998, Blaðsíða 2
Gegn farsímasvindli
Nokkrir notendur NMT farslma-
kerfisins hafa lent í því að á síma-
reikningum þeirra er rukkað íyrir
símtöl frá Danmörku og Svíþjóð
sem þeir kannast ekki við. Lands-
síminn hefur því ákveðið að tak-
marka notkun íslenskra NMT síma
á hinum Norðurlöndunum. Þeir
sem óska geta fengið kóðalás og
opnað fyrir simtöl innan Norður-
landanna með því að slá inn lykil-
númer.
Fornleifauppgröftur
Fomleifauppgröftur á Eiríksstöð-
um í Haukadal hefur sýnt að tveir
inngangar voru í fomum víkinga-
skála sem stóð á bænum. Til stend-
ur að endurreisa bæ Eiríks rauða
eftir þeim vísbendingum sem fom-
leifafræðingar frnna á staönum.
Heimsókn
Sergio Balanzino, varaaöalfram-
kvæmdastjóri NATO, er staddur
hér á landi. Hann mun halda blaöa-
mannafund á mánudag.
Eftirlit
Lögreglan í
Reykjavík mun
á næstu vikum
herða eftirlit sitt
við löggæslu við
gmnnskóla
borgarinnar.
Sex ára böm
sem em að hefja
grunnskólanám hafa þegar fengið
umferðarfræðslu i gegnum Umferð-
arskólann ungir vegfarendur sem
starfræktur er í júní. Georg Kr. Lár-
usson er settur lögreglustjóri í
Reykjavík.
Vilja aöskilnað
Stjóm Félags ungra jafnaðar-
manna hefur samþykkt ályktun þar
sem krafist er aöskilnaðar ríkis og
kirkju. Félagið telur það ekki sam-
rýmast lýðræðislegum stjómarhátt-
um að ríkið sé að vasast í trúmálum
einstaklinga, eins og það er orðað í
ályktuninni.
Fagna ákvörðun
Yfirstjóm Landsbanka íslands
fagnar þeirri ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að auka hlutafé
bankans um 15% Hún telur rétt að
reyna frekar á rekstur hans í nýju
rekstrarformi áður en bankinn
verður einkavæddur.
Sköttum mótmælt
Stjómendur norrænna hags-
munasamtaka i verslun hafa sam-
þykkt ályktun þar sem hárri skatt-
byrði á verslun á Norðurlöndum
miðað viö önnur lönd evrópska
efnahagssvæðisins er mótmælt.
Þeir vilja úrbætur tO að bæta sam-
keppnisstöðu verslunarinnar.
Magga Stína á Vísi.is
verður í spjall-
inu á Vísi.is i
dag, laugardag,
milli kl. 16 og
17. Þar gefst
netverjum færi
á að spyrja
hana um fram- ...... _________
tíðaráform hennar, svo og spur
inga tengdu viðtali við hana
Fókusi í gær. Magga Stína steri
ur nú við dyr frægðarinnar 1
gaman veröur aö sjá hvað hi
hefur að segja. SpjaUið hefur ve
ið mjög vinsælt á Vísi.is eins -
flest efni vefsins en vefúrinn ei
mikiUi sókn. Slóðin er www.v
ir.is.
Harður árekstur varð á Miklubrautinni í gær með þeim afleiðingum að sendibíll valt. Hér má sjá þegar lögregla og
starfsmenn sjúkrabílsins reisa bflinn við. DV-mynd S
„Við munum ekki láta undan
fyrir sjálfstæðismönnum í þeim
málaflokkum sem við höfum for-
ræði yfir. Viðskiptaráðherra hefur
unnið í því og gert það með mjög
eðlUegum hætti. Hann mun skýra
frá því sjálfur," sagði HaUdór Ás-
grímsson við DV áður en hann
gekk inn á þingflokksfund fram-
sóknarmanna í morgun. Á blaða-
mannafundi Finns Ingólfssonar
viðskiptaráðherra, sem haldinn
var eftir rikisstjómarfund í gær-
morgun, kom þó í ljós, eins og DV
hafði greint frá, að sjónarmið sjálf-
stæðismanna, sem m.a. komu fram
á þingflokksfundi þeirra á Akur-
eyri fyrr í vikunni, hafa orðið ofan
á i sambandi við sölu ríkisvið-
skiptabankanna.
Öllum viðræðum um sölu hluta-
bréfa í ríkisviðskiptabönkunum tU
SE-bankans sænska, til íslands-
banka og sölu Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins til sparisjóðanna
hefur verið slitið, að sögn við-
skiptaráðherra. Jafnframt á að
bjóða almenningi að kaupa 15%
heUdarhluti í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum. Ætlunin er að
bjóða í þessu skyni út nýtt hlutafé
í bönkunum tveimur. Þetta á að
gera strax í byrjun næsta árs.
Varasamt að versla á Netinu:
140 þúsund króna vísareikningur
- en hafði ekki eytt krónu
hraða sölu hlutafjár í Fjárfesting-
arbankanum og stefnir að því að
selja aUt hlutafé hans á árinu 1999.
Sérstaklega er stefnt að því að fá
erlenda fjárfesta tU að taka þátt í
kaupum á Fjárfestingabankanaum.
Svo virðist jafnframt sem ekki eigi
aö sameina bankann öðrum
bönkum, því í greinargerð
stjórnarinnar er rætt um að
tryggja sjálfstæði hans á sam-
keppnismarkaði.
Að loknum fundi ríkisstjómar i
gær kynnti Finnur Ingólfsson við-
skiptaráðherra blaðamönnum
stefnumótun ríkisstjórnarinnar
um sölumál bankanna.
Hann sagði að markmiðin sem
óhjákvæmilega yrðu að vera leið-
arljós í málinu væru í fyrsta lagi
að hámarka verðmæti bankanna. í
öðru lagi að leiða tU hagræðingar
sem aftur myndi leiða af sér lægri
vexti og minni vaxtamun inn- og
útlána en hér er nú. í þriðja lagi að
efla samkeppni á fjármagnsmark-
aði sem þegar hefði haft verulegan
ávinning i fór með sér fyrir lands-
menn. í íjórða lagi þyrfti að tryggja
dreifða eignaraðild að bönkunum
samhliða þvi að fá tU sögunnar
stóra kjölfestufjárfesta, einn eða
fleiri, innlenda sem erlenda. -SÁ
„Mér brá alveg rosalega því ég
hafði ekki notað kortið nema tU nauð-
synja hérlendis," segir imgur maður
sem fékk 140 þúsund króna reikning
frá greiðslukortafyrirtækinu Visa ís-
land. Samkvæmt reikningnum var
um að ræða erlendar úttektir hjá fyr-
irtækjum sem maðurinn hafði ekki
heyrt á minnst, hvað þá að hann hafi
verslað við þau. Hann hafði heldur
ekki verið í úUöndum. Maðurinn
hafði hins vegar einu sinni, mörgum
mánuðum fyrr, pantað sér tímarit af
Intemetinu og greitt fyrir það með
korti sínu.
Gervisíður
Með aukinni notkun almennings á
Intemetinu hefúr það farið vaxandi
að viðskiptavinir kortafyrirtækjanna
fái senda reikninga sem þeir ekki
kannast við. Menn sem em með ein-
hvers konar sölu á Netinu eiga mjög
auðvelt með að komast yflr korta-
númer neytenda og einnig era dæmi
Misnotkun á greiðslukortanúmer-
um á Netinu er stórt vandamál sem
allir verða að vera á varðbergi fyrir.
Lausn er þó f sjónmáli.
þess að svokallaðar gervisíður séu
settar upp, með það fyrir augum að
blekkja fólk til þess að gefa upp korta-
númer sín. Það er oft gert með gylli-
boðum ýmiss konar sem fólk lætur
freistast til þess að falla fyrir. Þrjótur-
inn sem setti upp síðuna hefúr upp úr
krafsinu fjölmörg kortanúmer sem
hann misnotar að vild en hinum
ólánssama kaupanda fara hins vegar
að berast rukkanir úr öllum áttum.
Kristín Benediktsdóttir hjá Visa ís-
landi starfar við það að taka niður
kvartanir vegna viðskipta erlendis og
hún segir að þriðjungur þeirra kvart-
ana sem hún fær séu af þessu tagi.
„Það sem við bendum viðskiptavinum
okkar á að gera, er að hafa samband
við bankann sinn og leggja þar fram
skriflega kvörtun. En fyrst og fremst
reynum við að uppfræða fólk um að
það aö setja kortanúmer sitt inn á
Netið er stóralvarlegt mál,“ segir
Kristín og bætir því við að ungi mað-
urinn sem um ræðir hér að ofan hafi
fengið lausn sinna mála og ekki þurft
að greiða reikninginn.
Viðvaranir
Þórður Jónsson, forstöðumaður
þjónustudeildar Visa íslands, segir
fyrirtækið oftsinnis hafa varað kort-
hafa sína við því að gefa upp korta-
númer sín á Netinu fyrr en búið verð-
ur að fmna til þess öruggar aðferðir.
„Þessar ömggu aðferðir, sem vonandi
verða teknar upp sem fyrst, byggjast á
því að fólk fær ákveðinn hugbúnað á
sínar einkatölvur. Upplýsingar em
sendar brenglaðar inn á Netið þannig
að aðeins réttur viðtakandi getur les-
ið þær. Undirskrift sem send er með
upplýsingunum verður á stafrænu
formi sem tryggir það að henni verð-
ur ekki breytt á leiðinni." segir Þórð-
ur. Hann segir ennfremur að notast
verði við stafræn skírteini sem send
em yfir Netið til þess að sanna að
bæði kaupendur og seljendur séu þeir
sem þeir segjast vera.
„Þó að færslumar séu í langflestum
tiifellum endursendanlegar og fólk
þurfi ekki að greiða þær, þá er þetta
til mikilla óþæginda fyrir alla. Því
hvetjum við greiðslukortaeigendur til
þess að sýna aðgætni," segir Þórður.
-ÞHS
Alþingismennirnir Ólafur Örn Haraldsson, Siv Friðleifsdóttir og Gunnlaugur
Sigmundsson fylgjast með samtali Halldórs Ásgrímssonar við blaðamenn.
Þar gerði hann grein fyrir þvf að sala ríkisbankanna væri blásin af.
í þessu útboði verða starfsmönn-
um bankanna boðin sérkjör. Á
hinn bóginn er öllum öðmm sölu-
hugmyndum varðandi Landsbanka
og Búnaðarbanka slegið á frest til
ársins 2000. Ríkisstjómin ætlar að
Sjúkragögn í seldri tölvu:
Kolólöglegt
- segir landlæknir
„Þetta er kolólöglegt og ég
hef leitað upplýsinga um þetta
I mál. Ef svo er, svo sem ýjað er
I aö í fréttinni, að tölvan komi
| frá læknastofu þá er héma um
i að ræða klárt brot á landslög-
um. Upplýsingar sem þessar á
að fjarlægja áður en tölvur em
seldar. Þetta verður krufið til
mergjar," segir Ólafur Ólafsson
landlæknir vegna máls sem DV
greindi frá í gær þar sem kona
á Reykjanesi, Erla Guðmunds-
dóttir, keypti notaöa tölvu.
I Konan sagði í samtali við DV
| að tölvan hefði haft að geyma
urmul sjúkraupplýsinga frá
læknastofu. Hún eyddi gögnun-
um af harða diskinum þar sem
hún taldi upplýsingamar sér
óviðkomandi. -rt
* *
★
2 ★
★
**»•
fréttir
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1998
'k k
Viðræðum vegna sölu ríkisbankanna slitið svo sem DV greindi frá::
Sjónarmið sjálfstæðis-
manna urðu ofan á
- almenningi boðið að kaupa 15% í Búnaðarbanka og Landsbanka
stuttar fréttir
Endurkjörínn
Vilhjáimur Þ.
Vilhjáimsson
var endurkjör-
inn formaður
Sambands sveit-
arfélaga á lands-
fundi sambands-
ins á fóstudag.
Að sögn Bylgj-
unnar urðu töluverð átök bak við
fjöldin um stjómarkjör í samband-
inu.