Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1998, Blaðsíða 9
^ Takið þátt í \
krakkapakkaleik
Kjöris og DV!
Klippió út Tlgra og límið á
þátttökuseðil sem fæst á næsta
sölustað Kjöris krakkapakka.
Sendið svo inn ásamt
strikamerkjum af
V krakkapökkum. ^
Nöfn vinningshafa
birtast (DV
á miðvikudögum.
KLIPPTUÚT
i I
VEISTU
AF HVERJU
VIÐ FÁUM
HRUKKUR
MEÐ
ALDRINUM?
Húbin misslr smátt
og smátt þann
elglnlelka ab framlelba
Q10 - efnlb sem heldur
húbinnl sléttrl.
HIVEA
LAUGARDAGUR 29. ÁGUST 1998
INNANHÚSS- ios
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátt-
töku. Spennandi atvinna eða aðeins tit eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýs-
ingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm,
skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, veggklæðningar,
vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, húsgagnaefni og glugga-
tjöld ásamt hagsýni o.fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn.................................
Heimilisfang________________________
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
í fyrste skfpti er nú
kegt sft fá Q10
í nýja kreminu frá
Nivee Vlsage
og húbln fier á ný þah
sem hún þarfnast.
Hjálmar
Finnsson var
umboðsmaöur
Loftleiða í Bandaríkjun-
um þegar áætlunarflug
þangað hófst fyrir hálfri öld.
Hér heldur hann á afriti af
flugleyfinu sem forseti Bandarfkjanna, Harry S. Truman, undirritaði í júní
1948. Hjálmar gerði sér ferð til Bandarfkjanna fyrir 11 árum til að leita að
gögnum er tengdust upphafi Ameríkuflugs Loftleiða og fann m.a. flugleyfið.
DV-mynd Pjetur
Hálf öld liðin frá því Ameríkuflug Loftleiða hófst:
Geysir lenti í hitabylgju
IvLislnsmiðjsm keramilfcMs
Höfum flutt starfsemi okkar úr Hafnarfirði ,..
í Skeifiina 3a Reykjavík. Verið veTkomin /vff1 1
„ -nát sin
108 Reýkjavík
Simi: 588-2108
Q10 kremlb frá Nlvee Vlsage
- endlltskrem sem vlrfcar.
Nú í vikunni, nánar tiltekið þann
25. og 26. ágúst, voru 50 ár liðin frá
því að áætlunarflug milli íslands og
Bandaríkjanna hófst. Geysir, Dou-
glas Skymaster-vél Loftleiða, hóf sig
til flugs frá Reykjavíkurflugvelli 25.
ágúst 1948 og daginn eftir var lent á
Idlewiid-flugvellinum í New York,
síðar Kennedy-flugvelli, með miili-
lendingu á Nýfundnalandi. Flugvöll-
urinn hafði nokkrum dögum áður
verið tekinn í notkun og vakti lend-
ing vélarinnar frá íslandi mikla at-
hygli þar vestra.
Flugið stóð yfir í tæp tvö ár, féll
niður um hríð en Loftleiðir hófu aft-
ur vikulegt áætlunarflug þangað í
júni 1952. Bandaríkjafluginu hefur
verið haldið uppi óslitið síðan, af
Loftleiðum til ársins 1973 og Flugleið-
um eftir það við sameiningu Loft-
leiða og Flugfélags íslands sama ár.
Nú eru áfangastaðimir í Bandaríkj-
unum og Kanada orðnir sex.
Að þvi er segir í fréttatUkynningu
frá Flugleiðum var flugstjóri í þessu
fyrsta áætlunarflugi Aifreð Elíasson,
flugmaður var Kristinn Olsen en þeir
tveir ásamt Sigurði Ólafssyni áttu
fnunkvæði að stofnun Loftleiða. Aðr-
ir í áhöfhinni voru Axel Thoraren-
sen, Bolli Gunnarsson, Halldór Guð-
mundsson, Hólmfríður Mekkinós-
dóttir og Sigríður Gestsdóttir. Sig-
urður Magnússon, blaðafulltrúi Loft-
leiða, var einnig með í for. í bókinni
Fimmtíu flogin ár segir m.a. svo frá
þessari ferö:
„Fyrsta feröin var farin 25. ágúst
1948 og vakti koma Geysis til New
York töluverða athygli þar vestra,
ekki síst vegna þess að sama dag gekk
hitabylgja yfir borgina og þótti þaö
frásagnarvert aö flugvél, fullskipuö
farþegum frá landi sem bar svo
kuldalegt nafn, ísland, heföi komió í
heimsókn einmitt þennan heita dag. “
Staðfest af Tniman
Einn af þeim sem báru hita og
þunga af undirbúningi þessarar flug-
leiðar var Hjálmar Finnsson sem á
þessum árum starfaði í Bandaríkjun-
um sem útflytjandi í New York en
jafnframt umboðsmaður Loftleiða
þar vestra. Við heimkomu til íslands
1949 gerðist hann framkvæmdastjóri
Loftleiða og starfaði sem slikur til
1952 eða þar til hann var ráðinn for-
stjóri Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufúnesi. Því starii hætti hann árið
1985 sökum aldurs.
Eftir aö forystumenn Loftleiða
höfðu keypt Douglas Skymaster vél-
ina í því skyni að hefja flug til
Bandaríkjanna var farið í það aö fá
Ilugleyfiö. Hjáimar var fenginn til að
sannfæra bandarísk flugmálayfirvöld
um að veita Loftleiðum flugleyfi milli
íslands og Bandaríkjanna. Lenti
hann i þriggja gráðu yfirheyrslu hjá
Flugráði Bandaríkjanna ásamt
Magnúsi Magnússyni, starfsmanni
íslenska sendiráðsins þar í landi.
Nokkru eftir
að yfir-
heyrslunni
lauk kom
loks-
ins frá
Tekið á móti áhöfn og forystumönnum Loftleiða eftir fyrsta farþegaflugið frá
íslandi tii Bandaríkjanna 26. ágúst 1948. Frá vinstri eru það Sigríður Gests-
dóttir flugfreyja, Hólmfríður Mekkinósdóttir flugfreyja, Halldór Guðmunds-
son yfirflugvélvirki, ónefndur forráðamaður flugvallarins, Axel Thorarensen
flugleiðsögumaður, ónefndur aðstoðarborgarstjóri New York, Sigurður
Magnússon, blaðafulltrúi Loftleiða, Alfreð Elfasson, flugstjóri og síðar for-
stjóri Loftleiða, Kristján Jóhann Kristjánsson, stjórnarformaður Loftleiða og
forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur, Bolli Gunnarsson loftskeytamaður, Krist-
inn Olsen flugmaður og loks Hjálmar Finnsson, umboðsmaður Loftleiða í
Bandaríkjunum og síðar framkvæmdastjóri félagsins. Myndin er úr bókinni
Fimmtíu flogin ár, 1. bindi.
lensk stjómvöld lögðu blessun sína
á leyfi Loftleiða og var það síðan
staðfest á Jónsmessu 24. júni af sjálf-
um forseta Bandaríkjanna, Harry S.
Truman.
Risið úr öskustó
„Á þessum tíma áttu sér stað
gríðarlegar breytingar, ekki bara
hér á íslandi heldur alls staðar.
Heimurinn var að rísa úr öskustó
striðsáranna," sagöi Hjálmar í
stuttu samtali sem við áttum við
hann i vikunni. „Eimskip var í sigl-
ingum milli íslands og Bandaríkj-
anna á stríðsárunum en þegar stríð-
inu lauk var erfiðara að fá far með
skipunum. Flugfélagið American
Overseas fékk leyfi til farþega- og
póstflugs milli landanna i mars árið
1947 en mönnum þótti tími til kom-
inn að íslenskt flugfélag tæki að sér
þessa leið.“
Forsmekkur að Ameríkuflugi og
íslensku millilandaflugi var í júni
1947 þegar ný vél Loftleiða lenti á
Reykjavíkurflugvelli eftir flug frá
Bandaríkjunum. Félagið hafði keypt
Douglas-vél sem fékk nafnið Hekla og
var henni flogið frá New York til
Winnipeg. Þar voru nokkrir Vestur-
íslendingar teknir um borð og flogið
með þá til íslands. Hekla lenti á
Reykjavíkurflugvelli 15. júni og má
segja að þá hafl millilandaflug hafist
á íslandi.
Eins og áður sagði var Hjálmar
framkvæmdastjóri Loftleiða i þrjú
ár. Á þeim tíma var komið á svoköfl-
uðum „túristafargjöldum", lágum
fargjöldum fyrir ferðamenn. Loftleið-
ir urðu fyrst flugfélaga til að bjóða
slík fargjöld yfir Atlantshafið. í kjöl-
farið fór Pan American að auglýsa
slík fargjöld. Hjálmar sagði þennan
tíma hafa verið eftirminnilegan. Mik-
ið hefði gengið á en skemmtilegt
hefði verið að taka þátt í mótim milli-
landaflugsins.