Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1998, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1998 UV
Sjávarútvegsskóli SÞ formlega settur í gær:
Væntum mikils af
dvöl okkar hér
- segja nemendurnir Isabel Omar og Bamba Banja
Bamba Banja frá Gambfu og Isabel Omar frá Mósambík
eru meðal fyrstu nemendanna sem stunda nám f Sjávar-
útvegsskóla Sameinuðu þjóöanna. DV-mynd ÞÖK
„Námið leggst mjög vel í mig og
fyrsta vikan í skólanum hefur verið
afar athyglisverð. Mér líst mjög vel
á þennan skóla og íslendingar geta
verið stoltir af því að hafa komið
þessum skóla á laggimar,“ segir
Bamba Banja frá Gambíu en hann
stundar ásamt Isabel Omar frá Mó-
sambik nám í Sjávarútvegsskóla
Sameinuðu þjóðanna, sem var form-
lega settur í gær. Nemendumir í
skólanum em alls sex, tveir frá Mó-
sambik, tveir frá Úganda og tveir
frá Gambíu.
Sjávarútvegur er mikilvæg at-
vinnugrein í heimalöndum allra
nemendanna og segjast þau Isabel
og Bamba hafa miklar væntingar til
námsins hér.
„Sjávarútvegur í Gambíu er vax-
andi atvinnugrein en við horfum á
breytta tíma þar sem krafan um
aukin gæöi tlskafurða vex hratt.
Við ætlum okkur aö verða sam-
keppnishæf við aðrar þjóðir og það
er ein ástæða þess að ég er hingað
kominn. Sú vitneskja sem ég mun
afla hér mun án nokkurs vafa verða
mikilvæg þegar heim kemur og ég
mun kenna öðrum það sem ég hef
lært hér,“ segir Bamba Banja en
hann starfar við gæðaeftirlit í
Gambíu og hefur 17 ára reynslu í
greininni.
Isabel tekur undir orð Bamba en
bætir við að sjávarútvegur í sínu
heimalandi, Mósambík, sé enn tölu-
vert vanþróaður og margt megi enn
bæta.
„Það eru aðrar aðferðir notaðar
við vinnslu sjávarafla í Mósambík
og við erum fyrst og fremst að leita
leiða til að bæta gæðin. Þaö verður
svo mitt starf
að námi loknu
að kenna öðr-
um sem vinna
að gæðaeftir-
liti. Ég er viss
um að við get-
um margt
lært af íslend-
ingum og þá
finnst mér
ekki síðri
kostur við
námið að geta
skipst á
reynslu við
aðra Afríku-
rnenn," segir
Isabel Omar
en hún er líf-
fræðingur að
mennt en hefur unnið við gæða-
stjómun í heimalandi sínu síðustu
tvö árin.
Isabel og Bamba segjast hlakka til
vettvangsferðanna en þær verða
nokkrar samhliða náminu. Sú
lengsta verður til Akureyrar í byrj-
un október en hópurinn mun dvelja
tíu daga á Akureyri og sækja fyrir-
lestra hjá Háskólanum þar. Fyrsta
vettvangsferðin var hins vegar sl.
fimmtudag en þá fóra nemendurnir
ásamt Tuma Tómassyni út á
Reykjanes þar sem þau kynntu sér
meðal annars fiskeldi.
„Þetta var stórkostleg ferð og fyr-
irtækin hvert öðra áhugaverðara.
Við kynntumst hafbeit en sú hug-
mynd finnst mér hreinasta snilld.
Ef námið verður jafnáhugavert og
það hefur verið þessa fyrstu viku þá
hef ég engu að kvíða,“ sagði Bamba
Banja að lokum. -aþ
i ^ ± (S
ÞitJM -U
r- íSSScSb©-'
ntf h* ■róasu. Í6ku & Clb
Ibiza á Vísi.is:
Sápuópera
á vefnum
Á Vísi.is má nú finna stórskemmti-
legan vef um ferðalag nokkurra ung-
menna til Ibiza. Þau Rikki, Kolla,
Sara, Svavar, Bjössi og Magga eru að
skemmta sér á Ibiza og lesendur Vís-
is.is geta fylgst með þessu öllu í smá-
atriðum. Þar er sagt í smáatriðum frá
ferðalagi þeirra en nýjar myndir og
dagbækur era settar daglega inn á
vefinn. Auk þess má sjá stutt yfirlit
yfir eyjuna og Ibiza-fararnir era
kynntir, hver og einn. Nú þegar hefúr
ein stelpa týnst, einn strákur skoraði
mark á móti þýsku kvenþjóðinni í
fyrradag og tvö þeirra sáust á róman-
tísku andartaki undir stjömunum á
ströndinni. Fleira á eftir að gerast á
næstu dögum og ekkert lát er á
skemmtunum hjá krökkunum. Að
sögn Karls Péturs Jónssonar, mark-
aðsfulltrúa hjá Fijálsri fjölmiðlun hf.,
var auglýst eftir þátttakendum, bæði
í Morgunblaðinu og á FM 957, og
komu fjölmargar umsóknir. „Nokkrir
voru svo boðaðir i viðtal og svo stóðu
þessi sex eftir. Þau eru öll með ein-
dæmum glæsileg og frambærileg og
virðast öll vera að slá í gegn á Ibiza,“
sagði Karl Pétur. -hb
Afmælishátið Sam-
vinnuháskólans
DV.Vesturlandi:
Afmælishátið Samvinnuháskól-
ans verður haldin á Bifröst laugar-
daginn 29. ágúst og er haldin í til-
efni af því að 80 ár era liðin frá þvi
að Samvinnuskólinn í Reykjavík
hóf göngu sína og 10 ár era liðin frá
því að kennsla á háskólastigi hófst
við skólann á Bifröst.
Afmælishátíðin hefst með dag-
skrá á hátíðarsal skólans. Þar
munu meðal annars flytja ávörp
Björn Bjamason menntamálaráð-
herra, Páll Skúlason, rektor Há-
skóla íslands, Jónas Guðmundsson,
rektor Samvinnuháskólans, og
nokkrir nemendur Samvinnuhá-
skólans.
Flutt verður tónlist á milli
ávarpa af þeim Ólafi Magnúsi
Magnússyni og Sigríði Óðinsdóttur.
Kynnt verður ný aðstaða upplýs-
ingamiðstöðvar, endumýjaður
tölvubúnaður skólans og Stofnun
Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Boðn-
ar verða skoðunarferðir um svæðið.
Eftir að dagskrá lýkur verða kaffi-
veitingar. Allir eru velkomnir á
þessa afmælishátíð.
Dómur Bos
Rokkkóngurinn Björgvin Hall-
dórsson, sem í útlöndum er betur
þekktur undir nafninu Bo Hall-
dórsson, var eitt sinn staddur á
tónleikum þar sem
einn af frægustu
gítarleikurum
landsins þótti fara
á kostum. Við-
staddir klöppuðu
gítarleikaranum
hr ;j— lof í lofa en eitt-
hvað þótti mönn-
um hrósyrðin
standa í kónginum og fóra því að
ganga eftir áliti hans. Bo tók sér
langa umhugsun áður en hann
svaraði en dómurinn féll þó að
lokum: „Þetta er andskoti góður
gítarleikari, en hann er bara eitt-
hvað svo glataður...“
Glappaskot í auglýsingu
Ekki alls fyrir löngu gerði aug-
lýsingastofan Gott fólk auglýsingu
fyrir Lífis þar sem sjá mátti
; Kristin Hrafnsson, fréttamann á
Stöð 2, á mynd að
tala í GSM-síma.
Vinnsla auglýsing-
arinnar tókst í
alla staði vel en
heldur tók gam-
anið aö káma
þegar menn fóra
að taka eftir
Kristni á myndinni.
Kristni er nefhilega sem frétta-
manni óheimilt að leika í auglýs-
ingum og hann hafði hvergi kom-
ið að gerð hennar. Kristinn fékk
virtan lögmann hér í bæ til að
gæta réttar síns í þessu máli og
urðu lyktir málsins þær'að aug-
lýsingin var innkölluð en Kristni
greiddar tugþúsundir í bætur.
Mikilmennskubrjálæði
King Kong, þáttur þeirra Dav-
íðs Þórs Jónssonar og Steins Ár-
manns Magnússonar, hefur nú
gengið á Bylgjunni í sumar, ef-
laust við allnokkrar
vinsældir. Eitt af
því sem jafnan hef-
ur verið hlýtt á
með athygli í þátt-
unum er spuming
dagsins. í síðustu
viku var þar
spurt um mann
og var fyrsta vísbend-
ing á þá leið að maðurinn hefði sjö
ára ætlað að verða bakari en þeg-
ar hann var átta ára ætlaði hann
að verða Napóleon. Á fullorðins-
aldri hefði sami maður sagt að
metorðagirnd sín hefði aukist
mjög frá þeim tima. Einn hlust-
enda var skjótur til svars, hringdi
inn og svaraði því að þetta væri
Helgi Hjörvar borgarfulltrúi. Rétt
svar var hins vegar að þama hefði
veriö um að ræða listmálarann
Salvador Dali..
Formannssæti í hættu
Árni Gunnarsson berst nú
mikilli baráttu fyrir því að halda
formannssæti sínu í Sambandi
ungra framsóknarmanna en deil-
ur eru um lögmæti
formannskjörs
hans á afmælis-
þingi SUF í júni.
Framkvæmda-
stjórn SUF hefur
nú skilaö Hall-
dóri Ásgríms-
syni greinar-
gerð um málið og fjallað verður
um kæruna á landsstjórnarfundi
flokksins á ísafiröi í næstu viku.
Ýmsir eru þeirrar skoðunar að
það geti komið sér illa fyrir Árna
að framkvæmdastjóm SUF lýsti í
vikunni yfir stuðningi við Siv
Friðleifsdóttur í ráðherrasæti.
Telja menn Ámi hafi þar með
getað bakað sér óvild stuðn-
ingsmanna annarra kandídáta,
en þeir munu vfst ekki vera
ánægðir...
Umsjón Kjartan Björgvinsson
Netfang: sandkom @ff. is