Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1998, Blaðsíða 10
Fimm nýjar
plötur með
John Lennon
ASdáendur Johns Lennons geta farið að
hlakka til því annan nóvember verður gefiö úr
risavaxiö safn í fjögurra diska öskju sem hlot-
ið hefur nafniö „Wonsaponatime". Á sama
tíma kemur út safndiskur með vinsælustu lög-
um Lennons. I öskjunni verða 100 óútgefnar
upptökur, frá hljómleikum, úr heimastúdíóum
og lög sem lentu ekki á plötum. Diskarnir
spanna allan sólóferil Lennons milli áranna
1969 og 1980 og hefur 'hverjum um sig verið
gefið nafn; „Ascot", „New York City", „The
Lost Weekend" og „Dakota". Öskjunni fylgir
60 síðna bæklingur með teikningum Johns,
minnispunktum og aðfaraorðum. Yoko Ono
hefur haft yfirumsjón með útgáfunni.
Strákarnir í The Manic Street Preachers
þurftu á sínum tíma að sanna að þeir væru
ekki feikaðir pönkarar. Nú hafa þeir fullorðn-
ast og þroskast og sanna það á nýju skíf-
unni, This Is My Truth Tell Me Yours.
Hættir
að sparka í
áheyrenda
- farnir að
faðma þá í staðifi
Saga The Manic Street Preachers
er dálítið sérstök. Ekki þó byrjun-
in; fjórir strákar stofnuðu hljóm-
sveit í námubænum Blackwood í
Suður-Wales 1988 og grasseruðu í
bílskúmum þar sem tónlistar- og
bókmenntaáhugi þeirra bræddist
saman í eitt. Þeir voru hrifnir af
slagorðaupphrópunum Public
í S 1
NR. 289
enski t
i S t i N N
vikuna 10.9-17.9. 1998
Sæti Vikur LAG
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
FLYTJANDI 10/93/9
12
3
7
3
7
6
6
3
4
3
9
2
1
2
9
7
7
2
3
9
2
1
2
1
2
6
4
4
4
11
1
32
33
34
35
36
37
38
39
40
I D0NTWANTT0 MISS A THING ..............AER0SMITH
IF Y0U T0LERATE THIS ......MANIC STREET PREACHERS
I BEL0NG TO YOU .....................LENNY KRAVITZ
SUBSTITUTE FOR LOVE.......................MADONNA
ANOTHER ONE BITES THE DUST .................QUEEN
SÍLIKON ..............................SKÍTAMÓTALL
TIME AFTER TIME .............................INOJ
WALKING AFTER YOU ....................F00 FIGHTERS
ENJOYTHE SILENCE .........................FAILURE
LUV ME, LUV ME......................SHAGGY & JANET
INTERGALACTIC .......................BEASTIE BOYS
WHATS ITLIKE.............................EVERLAST
D00 WOP (THATTHING)........................LAURYN HILL
ONEWEEK .........................BARENAKED LADIES
IMMORTALITY................................CELINE DION
ALL’BOUTTHE MONEY............................MEJA
VIVA FOREVER ...........................SPICEGIRLS
MILLIENNIUM ......................ROBBIE WILLIAMS
NO MATTER WHAT............................BOYZONE
ORGINAL.......................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
WHAT CAN I DO................................CORRS
BURNING ................................BABYBUMPS
IF YOU COULD READ MY MIND .............STARS ON 54
BOOTIE CALL ............................ALLSAINTS
EVERYBODY GET UP .............................FIVE
STRIPPED................................RAMMSTEIN
LOOKING FOR LOVE............................KAREN RAMIREZ
NEW KIND OF MEDICINE ...................ULTRA NATE
PURE MORNING ..............................PUCEBO
THE BOY IS MINE...................BRANDY & MONICA
l’LL NEVER BREAK YOUR HEART............BACKSTREET BOYS
REAL GOOD TIME ...................ALDA ÓLAFSDÓTTIR
LASTTHING ONMYMIND..........................STEPS
COMEWITHME.................PUFF DADDY & JIMMY PAGE
FALLING IN LOVE AGAIN............EAGLE EYE CHERRY
LIFE .....................................DES’REE
MY FAVOURITE MISTAKE.................SHERYL CROW
ALLTHE WRONG PEOPLE.........................SELMA
STELPUR.................................Á MÓTI SÓL
FLAGPOLE SITTA .....................HARVEY DANGER
1 1
26 30
7 9
6 10
2 4
16 20
4 6
11 22
3 7
10 21
9 5
13 -
In vtt
34 -
8 12
15 11
14 3
Invtt
27 28
22 26
29 -
■mýttI
23 -
InVtt
33 -
17 17
21 27
30 33
31 19
13 5
InVtt
19 18
40 -
22 12
InVtt
20 15
35 37
In VttI
32 25
í i
fslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
f 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu.
Einnig getur fdlk hringt í sfma 550 0044 og tekið þátt f vali
listans. fslenski listinn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og er birtur á hverjum föstudegl f DV. Ustinn
er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
16.00. Ustinn er birtur, að hluta, f textavarpi MTV sjónvarps-
stöðvarinnar. fslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart" sem
framlelddur er af Radio Express f Los Angeles. Elnnig hefur hann
áhrif á Evröpulistann sem birtur er f tönlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandarfska tdnlistarblaðlnu Blllboard.
Yflrurmján með skoðanakönnun: HaTldóra Hauksddtlir - Framkvarmd könnunar: Markaðsdfild DV - TöKuvinnsla: Dódó - Handrit, heimlldarðflun og
yfirumijón með framleiðslu: fvar Guðmundsson - Taeknistjórn og framleiðsla: Forsteinn Ásoeirsson og Kiinn Steinsson - Utsendingastjóm:
Ásgeir Kolbeinsson og Jóhann Jóhannsson - Kynnir f útvarpl: fvar Guðmundsson
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
98*
Enemy og The Clash, sjúskuðum
rokkglamúr Hanoi Rocks og Guns
N’ Roses, og einrænu rokki Joy
Division og The Smiths. Eftir að
námunni var lokað og atvinnulaus-
um fjölgaði varð Blackwood enn
daprari staður til að búa á:
„Ef byggt yrði safn til að kynna
Blackwood væri ekki hægt að hafa
annað í því en skít,“ sögðu þeir síð-
ar. Bandið notaði því fyrsta tæki-
færi til að flytja til London, leigði
saman í kjallaraholu og reyndi fyr-
ir sér.
í höfuðborginni fannst bransalið-
inu strákarnir vera að feika'ða,
pönkaður ákafi þeirra væri bara
uppgerð, en þá tók gítarleikarinn
Richey James sig til og skar „4
Real“ í upphandlegginn á sér í við-
tali. Upp úr því breyttist viðhorfið
til bandsins og fólk kyngdi því að
þeir væru „alvöru". Það fór mikið
fyrir þeim, blammeringar i allar
áttir í viðtölum og pönkað rokk í
gangi á fyrstu tveim plötunum,
„Generation Terrorist“ (1992) og
„Gold Against the SouT’ (1993). Á
næstu plötu, „The Holy Bible", sem
kom út ári síðar, var tónlistin
grimmúðleg sem fyrr og andrúmið
jafnvel þyngra en áöur. I febrúar
'95, daginn áður en bandið átti að
leggja upp í tónleikaferð um
Bandaríkin, gerðist það óvænta;
Richey James hvarf og hefur ekki
fundist enn þá.
Hann var þeirra örastur og um
leið mest veikgeðja og þar sem
álagið var orðið mikið hafði hann
leitað sér hjálpar á geðdeild
skömmu áöur. Almennt er talið að
hann hafi fargað sér til að sleppa
úr sviðsljósi frægðarinnar og eitur-
lyfjadrullu sem hann var farin að
sökkva sífellt dýpra í. Mannshvarf-
ið gerði vitanlega bandið bara enn
vinsælla, æpandi blaðamenn hrúg-
uðust að (eftirlifandi) meðlimum í
breskum slúðurpressustíl og plöt-
urnar voru rifnar út, enda nú
ákveðin dulúð og spennandi ógæfu-
bragð komið á tónlistina. Ótýndir
meðlimir tóku þessu auðvitað öllu
með óhug, voru í sárum yfir hvarf-
inu og hurfu sjáifir úr sviðsljósinu
um nokkum tíma. „Við áváðum að
halda áfram sem tríó þegar við
höfðum beðiö við símann í tvo
mánuði. Við héldum að við værum
svo nánir honum en þegar kom að
leiðarlokum reyndumst við ekkert
geta gert fyrir hann.“
Þegar þeir snéru aftur með plöt-
unni „Everything Must Go“ árið
eftir hafði tónlistin mýkst til muna
og lífsreyndur fullorðinsblær var
komin til skjalanna. Platan vann
öll hugsanleg bransaverðlaun í
Bretlandi 1996 og gerði bandið að
einu af risunum í breska rokkinu.
Hreinleikanum náð
Nú er fimmta platan nýkomin
út, heitir „This Is My Truth Tell
Me Yours“ og hefur verið að fá
fína dóma. Fyrsta lag á smáskífu,
„If You Tolerate This Your
Children Will Be Next“, er orðið
geysivinsælt, en það er nokkuð
lýsandi fyrir afganginn af plöt-
imni. Þann tón sem The Manics
gáfu með „Everything Must Go“
er hér fylgt eftir; þetta er popp
sem tekur sig alvarlega, straum-
harðar strengjasveitir í nánast öll-
um lögunum og kryddað með
óhefðbundnum hljóðfærum eins
og sítar og melodíku.
„Þetta er plata þar sem við
náum loksins þeim hreinleika og
þeirri fegurð sem við höfum verið
að sækjast eftir,“ segir Nicky
Wire bassaleikari. „Á síðustu
plötu reyndum við þetta mikið og
tókst það i sumum lögum en ég
myndi segja að núna takist okkur
þetta fullkomlega."
Bak viö textana sem Nicky sem-
ur eru djúpar pælingar. Hann sem-
ur um ólíkustu efni, tekur m.a. fyr-
ir ógæfuna í Hillsborough þegar 96
Liverpool-aðdáendur létust á leik I
Sheffield (“South Yorkshire Mass
Murder"), yfirburði kvenna (“Bom
a Girl“) og smáskífulagið vinsæla
segir hann vera undir áhrifum frá
bók Orwells, „Homage To Catalon-
ia“, um sjálfboðaliða sem börðust
gegn fasistum í spænsku borgara-
styrjöldinni fyrr á öldinni. „Text-
inn fjallar um það að bjóða hinu
illa birginn og hve almenningur í
dag er heppinn. Ef ákveðnir atburð-
ir hefðu ekki gerst í sögunni vær-
um við einfaldlega ekki hérna í
dag.“ Gítarleikarinn og söngvarinn
heitir James Dean Bradfield og
hefur mjög þýða og sérstaka rödd
sem gefur textunum aukið vægi.
í heild er platan mýksta verk
The Manics, þeir eru hættir að
sparka í klofið á áheyrendum og
farnir að faðma þá að sér í staðinn.
Platan mun ömgglega auka vin-
sældir þeirra og öfugt við marga
geta þeir tekið því; „Ég er hissa á
öllum böndunum sem bregöast iila
við frægðinni," segir Nicky. „Það
síðasta sem ég myndi segja í viðtali
væri; við höfum afneitað vinsæld-
unum og erum orðnir indí aftur.
Fyrir mig er það algjör sæla aö
spila á stórum tónleikum, bara
hugsunin um að það sé möguleiki
að hafa áhrif á allt þetta fólk. Eins
lengi og ég veit að við skiptum máli
er það þess virði að halda bandinu
starfandi. Og í dag skiptum við
meira máli en nokkru sinni fyrr."
-glh
plötudómar
Ekki nóg að rappa á frönsku
MC Solaar: ★★
Hver man ekki eftir MC Solaar
sem rappaði svo listilega á frönsku
yfir Dagsljós-stefið forðum daga.
Já, það er svo sannarlega hægt að
rappa á frönsku og það er ekkert
síðra að hlusta á það en ensku og
þótt maður skilji náttúrlega sama
og ekkert í textanum þá skiptir
það ekki miklu máli vegna þess að
franskan hefur svo flott og
„smooth" flæði.
Eins og gefur að skilja hefur MC
Solaar verið lengi í bransanum.
Það er býsna langt síðan hann
rappaði fyrir Dagsljós og þá var
hann þegar oröinn frægur í Frakk-
landi og búinn að gefa út disk með
miklum fyrirgangi.
Lögin á þessum diski eru frekar
í rólegri kantinum og sum á köfl-
um beinllnis drungaleg, rétt eins
og umslagið á diskinum, dimm og
einfold. Það eru frekar fá element
í lögunum en útkoman er góð og
undirstrikar enn frekar flæðið í
rappinu sem ég minntist á áðan.
Þetta er mjög góður diskur, lög-
in eru flott og öll vinnsla til fyrir-
myndar. Samt er eins og eitthvað
vanti. Það er ekkert sem aðgreinir
hann frá öllum hinum diskunum.
Þetta er of týpiskt rapp, það vant-
ar í tónlistina einhvern sérstakan
franskan hljóm. Það er einfaldlega
ekki nóg að rappa á frönsku, það
þarf eitthvað meira að koma til.
En fyrir þá sem eru orðnir þreytt-
ir á enskunni ættu endilega að
kíkja á MC Solaar. Ég við líka
benda á tvær aðrar franskar rapp-
sveitir, LAM og NTM, en þær hafa
báðar verið að gera mjög góða
hluti undanfarið.
Guðmundur Halidór Guðmundsson
10
f Ó k U S 18. september 1998