Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1998, Page 13
býð þeim upp á rauðvín, opna hurðir
fyrir þær, vil hafa kerti, góðan mat og
allt það. Það er stundum eins og is-
lenskar konur vilji bara láta draga
sig á hárinu inn í einhvern helli og
síðan nauðga sér. Ég er ekkert að
gera lítið úr macho-karlmönnum,
þeir eru yfirleitt bara að svara eftir-
spurn og ekkert ánægðir með þetta
macho-hlutverk."
En ertu ekki bara öfgahrokafullur
snyrtipinni?
„Jú, en allur minn hroki byggist
upp á kómík. Eins og með GK, inni í
búðinni er plakat með lítilli ástar-
sögu í Reykjavík. Sagan fjallar um
hvað sé málið í haust og annað slíkt.
Á þvi stendur líka að ef þetta ert ekki
þú, þá að leita uppi það sem er últra-
flott, farðu þá eitthvað annað. Leiðin-
legt að segja það en ég og GK getum
ekkert gert fyrir gæja sem vill bara
klæðast Don Cano-galla. Hann verður
bara að sjá um sig sjálfur. Mér finnst
hann lumma og ömurlegur og flokka
hann umsvifalaust undir rútufólkið.
En ég meina, hvað með það?“
Rútufólkiö?
„Þetta er meirihluti þjóðarinnar.
Þjóðin á það til að vera svo hrikalega
„pathetic". Hérna fyrir nokkrum
árum var auglýsing í Mogganum um
að sýndar yrður rúturnar á BSÍ. Þetta
var sem sagt rútubílasýning. Neðst í
auglýsingunni stóð að gefnar yrðu
pylsur og eitthvað að drekka. Það
mættu þúsundir manna. Þetta var
fyrir átta eða tíu árum og rútufólkið
er að fjölga sér. Þessu fólki er að sjálf-
sögðu óbjargandi og þannig verður
það bara að vera. Það mun halda
áfram að versla allt sitt í Holtagörð-
um, sama hvað ég segi.“
Arnar Gauti fæddist í Eyjum og
var fluttur með bleiu til Keflavíkur í
gosinu. Þar ólst hann upp hjá yndis-
legri fjölskyldu. Lærði að drekka
rauðvín með stelpunum í bekknum
og spjallaði við þær um lífið og tilver-
una á meðan strákarnir drukku
landa og rifumst um úrslitin í körfu-
bolta. Sautján ára gamall flutti hann
svo í bæinn og hefur verið hér síðan.
„Ég er þannig gæi að þegar ég geng
Laugaveginn með yndislegri konu og
það byrjar að snjóa þá segi ég henni
að nú séu englar að strá yfir okkur
hamingju. En fyrir aftan mig heyri ég
Flottasti uppstríiaði vínarbrauöstillinn
er alveg örugglega verslunarmaðurinn
og útvarpskúltúrgæinn Arnar Gauti í
GK. Þaö er hreinlega ekki til flottari
karlmaður á Fróni.
að einhver kjáni er að blóta þessu
helvítis skita íslandi. Svona er allt
hjá mér. Ég vel gönguferð í mjúkri
rigningu með klassadömu fram yfir
sjónvarpsgláp eða bióferð."
Hvaó í fari íslenskra karlmanna
fer mest í taugarnar á þér?
„Dæmi! Um daginn var ég að
skoða nýjan skemmtistað. Það var
þama gæi sem var að sýna mér
hann og tala um hvað þetta væri allt
saman flott og fint. Eftir skoðunar-
ferðina hrósa ég honum fyrir stað-
inn og þá segir hann: Og nú er bara
að vona að maður fái eitthvað að
ríða út á þetta. Svona þoli ég ekki og
gat ómögulega setið á mér. Það ríður
mér enginn, sagði ég pirraður og fór.
Nennti ekki að standa í svona
kjaftæði. Að minu mati er ekki hægt
að ríða neinum. Kynlíf fjallar um að
njóta, ekki ríða. Til að fá eitthvað út
úr kynlífi verður maður að bera
óhemju mikla virðingu fyrir kon-
unni. Ég ber það mikla virðingu fyr-
ir konum að yfirleitt heldur fólk
jafnvel að ég sé „gay“. En ég lofa að
það hamrar mig enginn!"
-MT
Hvað ma aldo?
Nærbuxur: Ljósbláar Bongourno-
naríur úr Hagkaupi.
Sokkar: Hvítir sokkar eru algerlega off
nema fyrir Davíð Þór Jónsson, það
bjargar honum ekkert.
Buxur: Buxur með þrjár fellingar eða meira.
Ef þú átt slíkar, hentu þeim.
pon 4.
Verslaö í bíósjoppunnl: Nachos með
ostasósu. Gæinn við hliöina á mér fær
olnbogann ef hann dirfist.
Drykklr á bar: Vodka í kók. 21. öldin er
handan við hornið, spurning um aö sýna
smástíl.
Jakki: Tvíhnepptir jakkar í litum eru
ógeðslegir.
Háralltur: Aflitað hár og og skegg í stíl
er gjörsamlega lost.
Tóbaklð: Winston Lights er fyrir rútufólkið.
Vinnustaöurinn: Gluggaþvottamenn og
verðbréfasalar eru ekki þaö áhugaverðasta.
Morgunmaturlnn: Cheerios og Camel.
Hálsmen: Leðurreimar upp í háls er
fyrri feitu pönkarajussurnar.
Kaffivélln í eldhúsinu: Ódýr sjálfvirkur
uppáhellingur úr Elkó er ekki málið.
Settu metnað í kaffið.
Sófasettiö í stofunni: Leðursófinn frá
mömmu og pabba eða svartir króm-sófar.
Gemsinn: Gamall Motorola-klumpur og svo
er viðbjóður að sjá þessa sextán með síma
sem þeir hafa ekkert að gera við.
Náttborðslampinn: Hlunkur úr
dánarbúi ömmu þinnar og afa.
Konan á arminum: Ljóshært beibi
í teknómelludressi sem veit ekki
hvort hún er að koma eöa fara.
Kynlífsstellingin: Trúboðs er bara fyrir
Gunnar í Krossinum.
Híbíýli: Sextíu fermetra íbúð með veggj-
um og hurðum í Grafarvogi.
Bíltegund: Skódinn er bara fýrk
vísitöluvaríant.
I geislanum: Euroteknó
og þungarokk.
Út á lífið meö strákun-
um: Óöal er
alltof basic.
Boösgestir í matar-
boö: Starfsmenn
Reykjavíkurborgar.
Plck up-lína: Á ég þig
ekki eftir?
Hvers konar myndir í
bíó: Formúlumyndir
eins og Lethal Wea-
Heimsborgln: Dublin og Glasgow.
Ilmur fyrir herrann: Spírinn er út og þá
sérstaklega Kouros frá Vves Saint Laurent.
Blóm handa konunni: Rósatilboösbúnt
I Blómavali er virkilega súr gjöf.
Vetrarfríið: Pakkadíll til Kanari er
bara fyrir gamla pensionista.
Arnar Gauti verður í spjallinu
á www.visir.is í dag frá 4 til
5. Netverjar geta spurt og
spjallaö viö Arnar Gautas um
hvaö megi og hvaö ekki.
NV-SD230
'PER DRSVE
-INTEUIGENT CONTROL
■NER RRESET • AUTC CLOC
ADTO CLOCK SET - Ok'-SCREEN 0;SP
V-
s~" v
Vw# V,*# V. fc
Afm
Iboð
sti
Myndbandstæki fyrir þá sem vilja
hafa hlutina trausta og einfalda
Nú bjóðum við ítilefni 20 ára afmælis okkar
Panasonic SD230 myndbandstæki.
Tækið er sérlega áreiðanlegt og traust
fjölskyldutæki og þægilegt í allri notkun.
Tækið er með N.T.S.C. afspilun, barnalæsingu
og fjöldanum öllum af frábærum eiginleikum
sem myndbandstæki af bestu gerð prýða.
18. september 1998 f ÓkllS