Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Blaðsíða 46
54
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 JjV
afmæli
Til hamingju með afmælið 19. september
90 ára
Ingibjörg Bjaraadóttir, Sundstræti 26, ísafirði.
85 ára
Bjöm Þórðarson, Hvanneyrarbr. 37, Siglufirði.
80 ára
Katrín Guðmundsdóttir, Tröðum, Borgarbyggð.
75 ára
Ágpist Sæmundsson, Þrúðvangi 9, Hellu. Hann er að heiman.
60 ára
Björgvin Magnússon, Strembugötu 24, Vestmeyjum. Erla Sigríður Hansdóttir, Skarðsbraut 15, Akranesi. Guðríður Jónsdóttir, Lindarflöt 51, Garðabæ. Magnús Kristjánsson, Mýrarbraut 7, Vík. Sveinn Friðvinsson, Háuhlíð 13, Sauðárkróki. Þórunn Torfadóttir, Kirkjuvegi 1G, Keflavík.
50 ára
Amljótur Geir Ottesen, Keilusíðu 9A, Akureyri. Bjarai Bogason, Háhæð 9, Garðabæ. Einína Einarsdóttir, Norðurvangi 48, Hafnarfirði. Guðrún Margrét Skúladóttir, Hjallavegi 25, Reykjavík. Gunnar VífiU Karlsson, Stafnesvegi 5, Sandgerði. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Háaleitisbraut 38, Reykjavík. Jón Ólafur Karlsson, Nýbýlavegi 88, Kópavogi. Ólafía Kristófersdóttir, Hólabergi 66, Reykjavík. Sigríður D. Jóhannsdóttir, Hagamel 20, Reykjavík. Stefán Bjami Stefánsson, Hamrahlíð 17, Reykjavík. Sæmundur Þórðarson, Hjallabyggð 5, Suðureyri. Tómas Sigurbjörnsson, Brekkutúni 3, Kópavogi.
40 ára
Amrún Lilja Kristinsdóttir, Flókagötu 47, Reykjavík. Bergrn- Einarsson, Hlíðarhjalla 67, Kópavogi. Bjami Hjaltalín, Skarðshlíð 22B, Akureyri. Böðvar Sigurðsson, Lækjarási 3, Garðabæ. Guðbjörg H. Hilmarsdóttir, Lágmóa 15, Njarðvík. Hjörtur Erlendsson, Brekkusmára 2, Kópavogi. Ólafur Bjöm Lámsson, Grasarima 3, Reykjavík. Ólafur Gröndal, Gerðhömrum 7, Reykjavík.
www.visir.is
FVRStyfi MEO FRÉTTÍRNAR
Michela R. Jespersen
Michela Roberta Jespersen mat-
ráöskona, Bjarmalandi 11, Sand-
gerði, er sextug í dag.
Starfsferill
Michela fæddist á Tvoroyri í Fær-
eyjum og ólst þar upp. Hún kom til ís-
lands 1955 og var þá vinnukona hjá
Baldri Guðmundssyni og Magneu Jó-
hannsdóttur. Michela fór til Patreks-
fjarðar 1956 og starfaði þar við eldhús-
ið á sjúkrahúsinu, vann við eldhúsið
við Samvinnuskólann að Bifröst
1957-58 og síðan við eldhúsið á Vífils-
stöðum.
Michela fór til Kaupmannahafnar
1961 og stundaði þar nám við hús-
mæðraskóla í eitt ár. Hún vann á ver-
tíð í Sandgerði 1963 þar sem hún
kynntist manni sínum.
Michela hefur síðan verið búsett í
Sandgerði og stimdað ýmis störf. Hún
vann við vélpijónavélar um árabil en
hún er mikil prjónakona. Þá var hún
ræstitæknir við Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar 1988-94, hefur gegnt ýmsum
störfum við Grunnskóla Sandgerðis
sl. íjögur ár og er nú matráðskona
þar.
Michela starfar í Vélprjónafélagi ís-
lands og hefur setið í stjóm félagsins.
Fjölskylda
Michela giftist 31.12.
1967 Helga Marteini Ár-
mannssyni, f. 4.9. 1942,
sjómanni. Hann er sonur
Ármanns Guðjónssonar,
f. 9.9. 1910, sjómanns í
Sandgerði, og Ólafíu
Þórðardóttur, f. 22.7.1906,
d. 18.5. 1993, matráðs-
konu.
Dóttir Michelu frá þvi
áður er Ludviga Jesper-
sen, f. 10.6. 1962, búsett í Danmörku,
en sambýlismaður hennar er Karl
Larsen.
BörnMichelu og Helga Marteins
eru Ármann Ólafur Helgason, f. 5.3.
1965, sjómaður í Sandgerði, en sam-
býliskona hans er Ástríður Eyjólfs-
dóttir húsmóðir og eru börn þeirra
Sigríður Berta Ármannsdóttir, f. 18.12.
1991, og Helgi Marteinn Ármannsson,
f. 2.7.1993; Gisli Helgason, f. 26.2.1971,
sjókokkur, búsettur í Keflavík, en
unnusta hans er Ólöf Vigdís Ragnars-
dóttir lögfræðinemi; Elísa Dögg Helga-
dóttir, f. 18.3. 1975, kennaranemi í
Reykjavík, en sambýlismaður hennar
er Ejub Purisévic.
Hálfbróðir Michelu er
Jonhard Jenssen, f. 29.4.
1937, verslunarstjóri, bú-
settur á Tvoroyri í Fær-
eyjum; Roj Jespersen , f.
19.12. 1939, starfsmaður
NATO í Brassel, búsettur
þar og í Kaupmannahöfn;
Charlie Jespersen, f. 29.8.
1941, skipsflóri í Noregi,
búsettur þar; Georg Jesp-
ersen, f. 20.6.1944, verka-
maður í Fuglafirði i Fær-
eyjum; Meivor Hovgárd,
f. 8.7. 1946, verslunarmaður á
Tvoroyri í Færeyjum; Oddbjörg 0ster,
f. 29.8. 1951, verslunarmaður á
Tvoroyri í Færeyjum.
Foreldrar Michelu: Karl Jespersen,
f. 7.10. 1915, fyrrv. sjómaðm og kaup-
maður á Tvoroyri í Færeyjum, og
Ludviga Jespersen, f. 27.3.1918, d. 13.7.
1996, fyrrv. verkakona og húsmóðir.
Foreldrar Michelu eiga bæði ættir að
rekja til íslands.
Michela tekur á móti gestum í sam-
komuhúsinu í Sandgerði, laugard.
19.9. kl. 20.00. Allir sem vilja gleðjast
með þeim hjónum eru velkomnir.
Michela R. Jespersen.
Jón Þ. Steinþórsson
Jón Þorleifur Stein-
þórsson (Jón Skuggi),
hljóðtækni- og tónlistar-
maður, Urðarstíg 8,
Reykjavík, verður fertug-
ur á morgun.
Starfsferill
Jón fæddist í Skugga-
hlíð í Norðfirði og ólst
þar upp til átján ára ald-
urs. Á árunum 1976-83
dvaldi hann á Neskaup-
stað á sumrin en i
Reykjavík á vetuma, en hefur verið
búsettur í Reykjavík frá 1983.
Jón lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskólanum i Neskaupstað 1974,
lauk prófi frá framhaldsdeild Gagn-
fræðaskólans 1975 og lærði á
kontrabassa í Tónskóla Sigursveins
1979-82.
Jón stundaði ýmis almenn störf
og lék jafnframt með hljómsveitum
á árunum 1975-84 og hefur verið
sjálfstætt starfandi hljóðmaður og
tónlistarmaður frá 1984.
fréttir____________________
Jón hefur hljóðritað
fjölda íslenskra hljóm-
platna og hljóðblandað
tónleika innan lands og
utan, þar á meðal tón-
leikaferðir Sykurmol-
anna 1987-88 og síðar
GusGus 1997-98 um Evr-
ópu og Norður-Ameríku.
Hann hefur starfað fyrir
ríkissjónvarpið, viö
hljóðkerfi Reykjavíkur-
borgar, fyrir veitingáhús-
ið Perluna, Hótel Sögu,
Alþýðuleikhúsið, Leikfélag Hafnar-
fjarðar, Stúdentaleikhúsið, Leiklist-
arskóla íslands, Listahátíð í Reykja-
vík, Múskíktilraunir í Tónabæ,
Norðurkjallarann MH og tekið þátt
í fjölmörgum uppákomum í Laugar-
dalshöllinni, s.s. vegna þjóðhátíðar
eða af öðru tilefni.
Jón hefur leikið með fjölmörgum
hljómsveitum, s.s. Amon Ra, frá
Neskaupstað 1976-81; OXZMÁ 1985;
Langa Sela og Skuggunum frá 1985;
Júpiters 1991-93; Hringum 1992-95;
Urðarköttum 1997 og Rússíbönum
1996-98.
Hálfbróðir Jóns, samfeðra, er Sig-
ursteinn Steinþórsson, f. 29.3. 1954,
lögregluvarðstjóri í Hafnarfirði.
Alsystkini Jóns eru Guðjón Stein-
þórsson, f. 26.12.1955, tæknimaður í
Reykjavík; Steinunn B. Steinþórs-
dóttir, f. 15.6. 1957, leikskólakenn-
ari, búsett að Skuggahlíð II í Norð-
firði; Valgerður Stefánsdóttir, f.
17.7. 1961, doktor í sameindcdíf-
fræði, búsett í Reykjavík; Jóna Jó-
hanna Steinþórsdóttir, f. 15.4. 1965,
búfræðingur, búsett í Skuggahlíð.
Foreldrar Jóns: Steinþór Þórðar-
son, f. 13.7. 1926, d. 7.4. 1995, bóndi í
Skuggahlíð, og Herdís V. Guðjóns-
dóttir, f. 6.7. 1936, bóndi í Skugga-
hlíð.
Ætt
Steinþór var sonur Þórðar Ólafs-
sonar, b. í Múla á Barðaströnd, og
Steinunnar Bjargar Júlíusdóttur
húsfreyju.
Herdís er dóttir Guðjóns Her-
mannssonar, b. í Skuggahlíð í Nes-
kaupstað, og Valgerðar Þorleifsdótt-
ur húsfreyju.
Jón tekur á móti gestum í Kaffi-
leikhúsinu, Vesturgötu 3B, Reykja-
vík, sunnud. 20.9. milli kl. 17 og 19.
Jón P. Steinþórsson.
Fer Gettu betur yfir til íslenska útvarpsfélagsins?
„Lítum með tilhlökk-
keppninnar"
Andrés Jónsson kom upphaflega
með tillöguna um að spurningakeppni
framhaldsskólanna, Gettu betur, færi
yfir til íslenska útvarpsfélagsins og
það var hann sem kynnti hana fyrir
forsvarsmönnum fyrirtækisins og
framhaldsskólunum.
Hann segir að þátttökuskráningar
frá framhaldsskólunum renni jafnt og
þétt út úr faxtæki íslenska útvarpsfé-
lagsins. „Við lítum með spenningi og
tilhlökkun til keppninnar á næsta ári.
Maður hlýtur að spyrja forsvarsmenn
Ríkisútvarpsins um hvað sé á seyði
þegar áhugaleysi, niðurskurður og
stöðnun kemur niður á einu vin-
sælasta dagskrárefni þess, óskabarni
þjóðarinnar - Gettu betur.
Menn þurfa því ekki að vera hissa
á því að framhaldsskólarnir skuli
ekki sætta sig við að athugasemdir
þeirra og tillögur mæti skilningsleysi.
Það er það sem með sanni má kalla
skort á hugmyndaauðgi.
Rangfærslur í fjölmiðlum og ann-
ars staðar eru ekki til þess fallnar að
að auka traust manna á því að eitt-
hvað muni breytast. Við erum
kannski ungt fólk en það má ræða við
okkur eins og fullorðið fólk.
Ég er sérstaklega ánægður með að
Stefán Pálsson, talsmaður og þjálfari
spurningaliðs MR, hefur lýst áhuga
þeirra á að miðla af reynslu sinni og
þekkingu til þess að keppnin á næsta
ári megi verða sú skemmtilegasta og
besta frá upphafi. Bæði fyrir skólana
og þjóðina alla.“ -SJ
Alíslenskar fiskbollur
„Við notum eingöngu íslenska
glænýja ýsu í ORA-fiskbollumar og
höfum aldrei notað annað," segir
Magnús Tryggvason, framkvæmda-
stjóri matvælafyrirtækisins ORA, í
samtali við DV.
Sú sögusögn hefur verið á kreiki
að norskur fiskur sé notaður í fisk-
bollurnar en því vísar Magnús al-
gjörlega á bug. Dósimar utan um
fiskbollumar koma hins vegar frá
Noregi en ástæða þess er eingöngu
sú að þær era lakkaðar eða húðaðar
að innanverðu á sérstakan hátt til
að tryggja gæði vörunnar. Slík lakk-
húðun í niðursuðudósir er ekki fá-
anleg hérlendis.
-SÁ
Til hamingju
með afmælið
20. september
85 ára
Sigmundur Jóhannesson,
Faxabraut 1, Keflavík.
Þorbjörg Eiríksdóttir,
Hamraborg 32, Kópavogi.
80 ára
Hulda Pétursdóttir,
Freyjugötu 32, Sauðárkróki.
Þorvaldur Sæmundsson,
Skipholti 47, Reykjavík.
75 ára
Guðrún Jónsdóttir,
Vesturgötu 105, Akranesi.
Ingibjörg Hjartardóttir,
Bugðutanga 24, Mosfellsbæ.
Ragnheiður Bjarnadóttir,
Reynimel 43, Reykjavík.
70 ára
Fjóla Einarsdóttir,
Bláhömrum 2, Reykjavik.
Þorsteinn Kristinsson,
Faxabraut 40D, Keflavík.
60 ára
Amdís EUertsdóttir,
Vorsabæ 18, Reykjavík.
Kristján Jóhannesson,
Drafiiargötu 9, Flateyri.
50 ára
Árni F. Vikarsson,
Kirkjugai'ðsstíg 8, Reykjavík.
Elías B. Jóhannsson,
Heiðarbraut 7A, Keflavík.
Guðbjörg Ásgerður Överby,
Hafnarstræti 6, ísafirði.
Jónína I. Þorsteinsdóttir,
Hverafold 29, Reykjavík.
Kristjana Magnúsdóttir,
Hjallabraut 80, Hafnarfirði.
Sævar Örn Guðmundsson,
Frostaskjóli 2, Reykjavík.
40 ára
Guðlaug Bjömsdóttir,
Mímisvegi 6, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum í
Drangey, Stakkahlíð 7, á
afmælisdaginn frá kl. 16.30.
Árni Bjöm Bjömsson,
Kvisthaga 1, Reykjavík.
Gestur Kristinn Gestsson,
Bláskógum 10, Egilsstöðum.
Guðlaug Brynjarsdóttir,
Garðhúsum 25, Reykjavík.
Hallfríður Sverrisdóttir,
Víðimýri 10, Sauðárkróki.
Leifur HaUgrímsson,
Hraunborg, Skútustaðahreppi.
Magnús Jóhannsson,
Gilsbakka 12, Neskaupstað.
Oddur Kjartansson,
Langholtsvegi 18, Reykjavík.
Sjöfn Tryggvadóttir,
Kögunarhæð 3, Garðabæ.
Theodór Guðfinnsson,
Lækjarhjalla 18, Kópavogi.
Þórey Hannesdóttir,
Hringbraut 119, Reykjavík.
Þórkatla Snæbjömsdóttir,
Birkihlíð 6, Hafnarfirði.