Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
39
Heimsferðir í fyrsta sinn á skíði:
Fjölbreytt afþreying í Austurríki
Zell am See þykir eitt besta skíðasvæði Austurríkis. DV-mynd GVA
Ferðaskrifstofan Heimsferðir býð-
ur nú i fyrsta sinn upp á skíðaferðir.
Áfangastaðirnir verða tveir, báðir í
Austurríki, Zell am See og Saalbach
Hinterglemm og munu ferðirnar
standa frá janúar og fram í mars.
„Það er gjama talað um Zell am
See og bæinn Kaprun i sömu andrá
en saman mynda þeir eitt fegursta
skíðasvæði í Austurríki. Á þessum
slóðum er skíðamönnum tryggður
nægur snjór þannig að ef náttúran er
skíðamönnum ekki hliðholl þá taka
öflugar snjóvélar við að framleiða
snjó á allar helstu brautirnar. Ná-
lægð jökulsins Kitzsteinhorn tryggir
etnnig að skíðaiðkun er möguleg allt
árið um kring. Það er rík hefð fyrir
skíðaiðkun í Zell am See en undir
lok síðustu aldar breyttist bærinn úr
litlu klaustursamfélagi í ferða-
mannastað sem hefur síðan vaxið.
Þarna má sjá fyrsta skíðakláf lands-
ins sem settur var upp árið 1927 svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Hildur
Gylfadóttir hjá Heimsferðum.
í Zell am See er að finna allt sem
skíðamenn vanhagar um. Skíðaskól-
ar eru margir og fólk getur leitað að-
stoðar við að finna út hvaða skíða-
brautir henta best. Þá eru snjóbrett-
in að ryðja sér mjög til rúms og á
svæðinu er að finna góða aðstöðu
fyrir brettafólk. Kennarar eru einnig
til taks, bæði fyrir byrjendur og
lengra komna.
Gönguskíðabrautir eru alls um
300 kílómetrar að lengd og mjög vin-
sælt er að fara hringinn í kringum
Zell am See vatnið. „Það eru mjög
góðar aðstæður fyrir gönguskíðafólk
og í Kaprun er til dæmis að finna
mjög skemmtilega upplýsta braut.
Þá er hægt að prófa aðra tegund
skíða en bæði Telemark- og
Monoskíði eru mjög að ryðja sér til
rúms,“ segir Hildur.
Skíðastaðir eru víðast hvar farnir
að bjóða upp á margs konar afþrey-
ingu enda litið á skíðaiðkunina að-
eins sem hluta leyfisins. Áfangastað-
ir Heimsferða, Zell am See og Saal-
bach Hinterglemm, bjóða báðir upp
á fjölbreytta afþreyingu, svo sem
skauta, tennis, keilu, sund, svif-
dreka, söfn, fjölbreytta flóru veit-
ingastaða og fjörugt næturlif.
um. Fékk svo að skoða veski þeirra
til þess að athuga hvort allt væri
ekki í lagi. Þegar heim á hótel var
komið uppgötvaði fólkið að „lögregl-
an“ hafði losað þau við allt reiðufé
sem geymt var í veskinu.
Þriðja atvikið átti sér síðan stað í
neðanjarðarlest. Fjórir menn um-
kringdu hjónin, byrjuðu að hrinda
þeim til og frá og þreifa á vösum
þeirra. Eftir reynslu undangenginna
daga höfðu hjónin hins vegar komið
verðmætum sínum í trygga geymslu
og vasaþjófamir riðu ekki feitum
hesti frá hrindingunum.
-þhs/Times
Svindlað í Prag
Prag þykir ein fegursta borg Evr-
ópu en eitthvað mun hafa borið á
því að ferðamenn gangi ekki óhultir
um götur hennar. Ferðablaði New
York Times barst á dögunum les-
endabréf frá hjónum sem dvöldu sex
daga í Prag en urðu þrisvar fyrir
ágangi óprúttinna glæpamanna.
Með því að segja sögu sína vildu
þau brýna fyrir öðrum ferðamönn-
um að vera á varðbergi i borginni
fógru.
Leigubílstjórar eru víst sérlega
varasamir í Prag. Kunnugir segja að
þeir bíði utan við alkunna ferða-
mannastaði og bjóði fólki far en
heimti svo svimandi háar upphæðir
að akstri loknum. Þannig lentu
hjónin sem um ræðir í því að mælir-
inn sýndi 80 kórónur (um 170 kr. ís-
lenskar) eftir stutta bílferð en bíl-
stjórinn bætti hreinlega 7 fyrir
framan og krafði þau um 780
kórónur, eða 1700 kr. ís-
lenskar. Eftir þref sagðist
bílstjórinn sætta sig við 200
kórónur. Ekki vildi parið
una því og gerði sig líklegt
til að kalla á lögreglu. Þá
hunskaðist bílstjórinn burt
án þess að þiggja nokkra
greiðslu fyrir aksturinn.
í rólegu hverfl um há-
bjartan dag hittu hjónin svo
kurteisan og snyrtilegan
mann sem spurði þau til
vegar. Varla höfðu þau snúið sér við
þegar annar maður kom aðvífandi
og sýndi þeim lögregluskilríki.
Hann fulllyrti að maðurinn sem
spurði til vegar hefði annaðhvort
ætlað að selja þeim svartamarkaðs-
góss eða eiturlyf og brýndi fyrir
hjónunum að passa sig á svona kón-
Hneykslisferð um Washington:
Watergate var misskilningur
- segir „Nixon" við ferðamenn
Ýmislegt hneykslanlegt hefur gerst í
þessu húsi.
Ekkert jafnast á við óviðurkvæmi-
legt samband í Hvíta húsinu ef vekja
á áhuga fólks á hneykslisferð um höf-
uðborgina Washington. Það segja að
minnsta kosti forsvarsmenn
Hneykslisferða sem fara með ferða-
menn um borgina og leika fyrir þá
valda kafla úr hneykslum sem þar
hafa átt sér stað. Um þessar mundir
er þar góður grundvöllur fyrir ferð
sem á hápunkta í lægstu hvötum
pólitikusa.
Stjórnmálamenn í höfuðborginni
hafa í gegnum tíðina verið duglegir
að leggja til efni handa leikhópnum
sem stendur fyrir ferðunum. For-
svarsmenn Hneykslisferða segja að
þeir hafi haldið að Clinton væri frek-
ar óspennandi, en „shortari" í Hvita
húsinu var allt sem þurfti til þess að
kippa þvi í lag.
„Þegar við héldum að rólegt sum-
ar væri fram undan og maður fengi
loksins að slappa af, hvað gerist? -
Óviðurkvæmilegt samband í Hvíta
húsinu."
Leikhópurinn gerir vitaskuld
stólpagrín að öllu saman og nefna
má sem dæmi að einn af leiðsögu-
mönnunum er Hillary Clinton, eða
raunar leikarinn Christine Thomp-
son. Hún byrjar á því að segja að altt
sé þetta samsæri um að sverta eigin-
mann sinn, það sé ekkert nýtt að
frjálslegt kynlíf sé stundað í Hvíta
húsinu. Kennedy hafi meira að segja
næstum breytt þvi í ódýrt mótel.
Leikkonur túlka Paulu Jones og
Monicu Lewinsky og skipta ört um
búninga. Linda Tripp tekur við og
talar fjálglega um eiginkonu Abra-
hams Lincolns og bága geðheilsu
hennar og enn fremur um þá stað-
reynd að George Washington var
ófrjór.
Það eru þó ekki einungis kynlífs-
hneyksli sem tekið er á í hneykslis-
ferðinni. Gamla skrifstofubyggingin
þar sem Fawn Hall og Oliver North
dunduðu sér um nætur við að tæta
skjöl sem tengdust Íran-Kontra-
hneykslinu fer líka undir stækkun-
argler. Varaforsetinn A1 Gore reikar
um sali sem trédrumbur og leggur til
að stórfyrirtæki fari að styrkja
stjórnmálamenn.
Auðvitað er engin hneykslisferð
um Washington fullkomnuð nema
komið sé við á Watergatehótelinu
og í höfuðstöðvum demókrata þar
sem innbrot árið 1972 leiddi til af-
sagnar Richards Nixons. Rúta
stoppar við hótelið og stæld útgáfa
af Nixon útskýrir að allt hafi þetta
verið tómur misskilningur. Inn-
brotameistarinn G.Gordon Liddy
hafl ekki ætlað að stela neinum
skjölum heldur hafi hann verið að
leita að lyklunum sínum. Reuter
■>*
Rauða spjaldið!
Flugfélagið British Airways hef-
ur ákveðið að taka reglur knatt-
spyrnudómara sér til fyrirmyndar
og gefa fólki viðvaran-
ir ef það hegðar sér
illa um borð í flugvél-
um þess.
Borið hefur á því
að farþegar láti illa á
flugi og má þar oft kenna um
frekju, fylliríi og nikótínskorti.
Mörkin eru dregin þar sem farþeg-
ar hafa verulega truflandi áhrif á
aðra með ólátum og við slíkt eru
Íhinir hávaðasömu farþegar að-
varaðir í orðum. Ef þeir láta sér
ekki segjast við tiltal og halda
áfram sinni iðju, hvort sem þeir eru
að stelast tU þess að fá sér sígarettu
inni á klósetti eða að slást við
áhöfnina, þá getur verið að flug-
freyjan sýni gula spjaldið. Gula
spjaldið þýðir það sama og á katt-
' spyrnuvellinum, alvarleg viðvörun,
auk þess sem ófriðarseggnum er
bannað að drekka áfengi það sem
eftir er ferðarinnar.
En ef ólátunum er haldið áfram
gæti það haft mun alvarlegri afleið-
ingar en að vera sendur snemma í
sturtu. Rauða spjaldið hjá British
Airways getur þýtt að óþekktar-
ormurinn verði bundinn í sæti sínu
og flugmaðurinn kalli tU áfanga-
staðarins og biðji löggæslumenn að
taka á móti honum, ef hann hefur
þá fyrir því að fljúga með hann á
áfangastaö. Flugmaðurinn hefur
nefnUega líka leyfi tU þess að lenda
á næsta flugveUi og henda buUunni
5 út, og ef svo viU tU að það er á
óheppUegum tíma og farþegarnir
þurfa að gista á miUUendingar-
staðnum, þá þarf bullan að borga
gistmgu og uppihald fyrir aUa.
Fólk ætti að hugsa sig tvisvar um
áður en það er með múður í flugvél
um British Airways.
Ekki sama hvernig
brauðið snýr
Hjátrúin er mismunandi eftir
löndum og það getur verið gott fyr-
ir ferðamenn aö þekkja helstu
I kreddur þess lands sem þeir heim-
i sækja. Það vita
sjálfsagt ekki
margir að Sví-
ar hafa mikla
ótrú á því að
leggja lykla á
borð. Það er því
| betra fyrir ferðamenn að geyma
: hóteUyklana í vasanum. VUji menn
• aftur hræða líftóruna úr frönskum
þjónum þá þurfa þeir ekki annað en
; leggja brauðið á borðið þannig að
Hati endinn snúi niður. í Rússlandi
er stórhættulegt að heUsa fólki í
dyragætt og þá dugar ekkert annað
en að stíga innfyrir með viðkom-
andi og síðan út aftur, vUji menn af-
stýra ólukkunni. Tölumar 4 og 9
eru eitur í beinum Japana og þeir
I forðast jafnvel að nefna þær í sam-
ræðum. Rétt eins og Evrópubúar
: sleppa gjaman 13. hæðinni á hótel-
um þá sleppa Japanir þeirri fjórðu
I og níundu. Ástæðan er að tölurnar
hljóma víst afar líkt og orðin dauði
og sársauki á japönsku.
Aukin þjónusta
Þú getur pantað
gjaldeyri í síma
560 6000 og sótt
hann í afgreiðslu
okkar á 2. hæð
í Leifsstöð.
Landsbankinn
| (Jpið frá 9 til 19